Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ * Morgunblaðið/Kristinn
FORSETAHJON Islands og Tékklands skoða myndaalbúmið ásamt Þórhildi Þorleifsdóttur leikhússtjóra.
Havel fékk myndir
frá Leikfélaginu
Á STUTTUM fundi með Havel á Keflavíkurflugvelli í gærmorg-
un, f.v: Þorsteinn Gunnarsson, Olga Franzdóttir, Brynja Bene-
diktsdóttir og Vaclav Havel.
VÁCLAV Havel, forseti Tékk-
lands, og kona hans Dagmar
höfðu stutta viðdvöl á Keflavík-
urflugvelli í gærmorgun á leið
vestur um haf. Hann hitti að
máli forseta íslands hr. Olaf
Ragnar Grímsson, Guðrúnu K.
Þorbergsdóttur forsetafrú og
leikhúsfólk.
Eins og kunnugt er sá hann
frumsýningu leikritsins Endur-
byggingar eftir sig í Reykjavík
í febrúar 1990 þá nýorðinn for-
seti. Havel hreifst svo af sýning-
unni að hann lét stöðva æfingar
á verkinu í Prag til að hægt
væri að taka mið af íslensku sýn-
ingunni og fékk í því skyni sent
myndband.
Brynja Benediktsdóttir leik-
stjóri Endurbyggingar sem einn-
ig leikstýrði Largo desolato eftir
Havel hjá Leikfélagi Reykjavíkur
í fyrrahaust var meðal þess leik-
húsfólks sem hitti Havel nú, en
hún og maður hennar, Erlingur
Gíslason leikari, eru góðkunn-
ingjar Havels.
Brynja sagði að ánægjulegt
hefði verið að hitta Havel og eig-
inkonu hans, leikkonuna Dagmar
Havlovu. Hann hefði endurtekið
þakkir fyrir sýningu Endurbygg-
ingar og Iýst enn á ný hrifningu
sinni. Einnig hefði honum þótt
vænt um að fá í hendur frá Leik-
félagi Reykjavíkur áritað albúm
með litmyndum frá sýningunni á
Largo desolato með stórri lit-
mynd af Borgarleikhúsinu á káp-
unni.
Var hress og glaður
Havel var mjög hress, glaðleg-
ur og leit vel út, að sögn Brynju.
Hann er hættur að reykja og
Brynja minntist þess hve hann
lofsamaði íslenska loftið og veðr-
ið þegar hann var hér seinast á
ferð. „Reyndar gerði það ekki
endasleppt við hann því að hann
lenti í ofsaroki og blindhríð við
brottförina," sagði Brynja.
Auk forsetahjónanna og þeirra
Brynju og Erlings komu til fund-
ar við Havel Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikhússtjóri, Þorsteinn
Gunnarsson leikari og þýðend-
urnir Olga Franzdóttir og Baldur
Sigurðsson. Erlingur og Þor-
steinn léku aðalhlutverk í Havel-
sýningunum fyrrnefndu og sagði
Brynja að umræðurnar hefðu
m. a. snúist um rithöfunda og
arkitekta með hlutverkin í leik-
ritunum og lífinu í huga, en Þor-
steinn sem lék rithöfund í Largo
desolato er líka arkitekt.
Könnun á dagvistarþörf í Reykjavík
69% óska eftir leikskólaplássi
í KÖNNUN sem gerð hefur verið
fyrir Dagvist barna á dagvistarþörf
næstu misseri kemur fram að um
91,1% þeirra sem tóku þátt í könn-
uninni hafa þegar sótt um eða
hyggjast sækja um leikskólapláss.
Ennfremur að 69% aðspurðra óska
ekki eftir annarri þjónustu fyrir
barnið, 9,8% velja dagmóður, 8,4%
heimgreiðslur, 4,2% einkaleikskóla
og 8,7% annað.
Könnunin var gerð meðal for-
eldra barna sem fædd eru seinni
hluta ársins 1995 og allt árið 1996
og var markmiðið að meta eftir-
spurn og þörf foreldra þessa aldurs-
hóps fyrir dagvistarpláss. Úrtakið
náði til 400 foreldra og var fjöldi
barna 2.559. Alls svöruðu 316 for-
eldrar eða 79%.
Könnunin sýnir að liðlega níundi
hver Reykvíkingur eða 91,1% hefur
þegar sótt um eða hyggst sækja
um leikskólapláss en tæp 6% ætla
ekki að sækja um og rúm 3% treystu
sér ekki til að svara spurningunni.
Við hvaða aldur barns
vilja foreldrar fá leikskólapláss ?
8,7% I
B 4.9%
Hálfs Eins Eins og Tveggja Þriggja
árs árs hálfs ára og eldri
í hve langan tíma dags
vilja foreldrar fá leikskólapláss ?
37,5%
125,6%
22,5% ■
14,4%
Fjórar Fimm Sex Átta til
stundir stundir stundir níu klst.
Þegar spurt var um við hvaða aldur
barns væri óskað eftir plássi kom
fram að 95% foreldra vilja vera
búnir að fá leikskólapláss við
tveggja ára aldur. Flestir foreldrar
eða um 38% óska eftir Qögurra
stunda vistun en um fjórðungur
vill fá átta til tíu stunda vistun.
Margir foreldrar sögðust óska eftir
fjögurra stunda vistun í fyrstu en
vilja fjölga stundunum með aldri
barnsins.
Tilkynnti
nauðgun
KONA tilkynnti nauðgun til
lögreglu um klukkan hálffjögur
í fyrrinótt og átti hið meinta
atvik sér stað á heimili hennar
í Blönduhlíð.
Hún bar að þrír menn hefðu
ráðist inn á heimili sitt og tveir
þeirra nauðgað sér. Hún var
flutt á neyðarmóttöku slysa-
deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur
ásamt dóttur sinni á unglings-
aldri sem fengið hafði áfall eft-
ir atburðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var ekki ljóst af frá-
sögn konunnar hveijir mennirn-
ir væru, en ekki voru sjáanlegar
skemmdir á íbúðinni eða útidyr-
um hennar.
Réðust inn í íbúðina
Samkvæmt frásögn konunn-
ar, sem er 39 ára gömul, hafði
hún verið á veitingastað um
kvöldið og haldið heim að því
Ioknu og sofnað. Hún hafði síð-
an vaknað við að ókunnugur
maður var kominn inn í íbúðina
ásamt tveimur öðrum og þeir
réðust á hana. Dóttir hennar
var sofandi í öðru herbergi í
íbúðinni. Mennirnir héldu burt
að þessu loknu og hafði hún
þá samband við Iögreglu.
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur málið til rannsóknar.
70 án
bílbelta
sektaðir
Ólafsvík. Morgunblaðið.
TÆPLEGA 70 manns voru
sektaðir meðan á könnun lög-
reglu á Snæfellsnesi stóð um
síðustu helgi, en hún leiddi í ljós
að mikill misbrestur var á að
ökumenn og farþegar bifreiða
notuðu öryggisbelti við akstur.
í sömu könnun lögreglu voru
sex ökumenn sektaðir fyrir of
hraðan akstur og einn var tekinn
grunaður um ölvun við akstur.
í sumar er reiknað með aukn-
um ferðamannastraumi um
Snæfellsnes og hyggst lögregla
framkvæma slíkar athuganir af
og til í sumar til að stuðla að
betri umferðarmenningu og
minnka tíðni alvarlegra umferð-
arslysa.
Vinnuslys
við Goða-
borgir
MAÐUR féll um það bil þtjá
metra á milli hæða skömmu
fyrir klukkan 16 á mánudag í
nýbyggingu við Goðaborgir.
Hann var fluttur á slysadeild
með sjúkrabíl, meiddur á höfði
og mjöðm. Meiðsli hans eru þó
talin minniháttar. Vinnueftirlit-
ið fór á staðinn til að kanna
málið frekar.
Götuheiti í
Bryggjuhverfi
BORGARRÁÐ hefur samþykkt.
tillögu að nafngiftum í Bryggju-
hverfi.
Lagt er til að götuheitin verði
Básbryggja, en Bás er örnefni
skammt frá þeim stað þar sem
gert er ráð fyrir bátastæði,
Naustabryggja, sem sótt er í
örnefnið Naustatanga á norð-
urströnd Grafarvogs og Tanga-
bryggja, sem skírskotartil Nau-
statanga og Litlatanga á suðui'-
strönd Grafarvogs. Þá er lagt
til að höfnin verði nefnd
Bryggjuhöfn, hafnargarðu rinn
Bryggjugarður 0g torgið
Bryggjutorg.