Morgunblaðið - 14.05.1997, Page 3

Morgunblaðið - 14.05.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 3 Það er ódýrt að versla í Nova Scotia, hvort sem ætlunin er að kaupa einfaldan varning eða fína merkjavöru. Veitingastaðir bjóða mat á heimsmælikvarða og tilvalið er að bregða sér í ferð eftir undurfallegri sjávarströndinni og ekki skemmir gestrisnin sem er heimamönnum í blóð borin. Fylgstu með á komandi \ikum, þín bíða freistandi tœkifœri í No\a Scotia! Allar upplýsingar og bókanir hjá Flugleiðum í síma 50 50 100. Þá er einnig hægt að skrifa til Nova Scotia Economic Development & Tourism - Marketing, ÞO Box 519, Halifax, Nova Scotia, B3J 2R7, Canada. Fax: 902 424 2668. Áœtlunarferðir Flugleiða til Halifax í Nova Scotia hafa hlotið gríðarlega góðar viðtökur ogflaug þangað mikill fjöldi íslendinga á síðasta ári. Halifax var áfyrri tímum áningarstaður þeirra íslendinga semfluttust búferlum til Vesturheims og er nú nokkurs konar hlið að Kanada, öllum opið, ekki síst þeim sem vilja nýta sér samband landanna til inn- eða útflutnings. Ýmsum viðskiptatengslum hefur nú þegar verið komið á auk þess sem íslendingar hafa eignast fjölda vina í Halifax enda eiga þessar þjóðir fjölmargt sameiginlegt. Um margra ára skeið hefur ólíkum þjóðum og menningarstraumum ýmissa landa verið vel tekið í Halifax og Nova Scotia. HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.