Morgunblaðið - 14.05.1997, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.05.1997, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Búnaður fjallgöngumanna sá fullkomnasti sem fyrirfinnst Gervihnattasími og sólarorka TÆKNIN kemur að góðum notum í hlíðum Everest þegar skipt- ast þarf á fréttum við fjarlæga staði og milli búða í fjailinu. Hópurínn íslenski sem nú freistar uppgöngu á Everest hefur yfir að ráða besta búnaði sem völ er á og fullkomnasta tæknibúnaði sem fyrir- finnst. Hér lýsa þeir sjálfir þessum marg- brotnu tækjum. AÐ er í raun kraftaverki líkast að vera hér efst í Himalayafjöllum, í tuga kílómetra fjarlægð frá næsta síma og í yfir 100 km fjar- lægð frá vegi en geta samt verið í beinum samskiptum heim, bæði komið frá okkur fréttum og fá fréttir að heiman á augnabliki. Það hafa margir lýst áhuga sínum á að fá að vita hvernig þetta er hægt og hvernig tækjabúnaði við höfum yfir að ráða. Það var orðið ljóst nokkru áður en við héldum að heiman að áhug- inn á þessu framtaki var verulegur og því æskilegt að unnt væri að koma fréttum heim örar en á nokk- urra vikna fresti eins og raunin er oftast í löngum leiðöngrum á íjarlægar slóðir. Póstur og sími hf. er sá aðili sem sér um að viðhalda sambandi manna á milli heima á íslandi og því nærtækast að leita stuðnings þar á bæ. Póstur og sími féllst á að útvega til láns gervihnattasíma til farar- innar. Hann er af gerðinni Thrane & Thrane, Inmarsat M-mini og er af allra nýjustu gerð og er minni en flestar kjöltutölvur. Aðeins fyrir nokkrum árum voru símar af þess- ari gerð á stærð við ferðatösku og þannig eru þeir slmar sem við höf- um séð hjá öðrum leiðöngrum hér. Enda hefur sími okkar vakið hér verulega athygli. Notkun símans auðveld Notkun símans er ótrúlega auð- veld. Loftneti hans er lyft líkt og skjá á kjöltutölvu, símanum er snúið í átt að þekktum Inmarsat gervihnetti en þeir eru staðsettir á nokkrum stöðum í 36.000 km hæð yfír miðbaug jarðar. Hægt er að nota hljóðmerki og láta símann leita að hnettinum ef staðsetning hans er ekki þekkt. Þegar hæfileg- um móttökustyrk er náð er hægt að taka upp tólið og hringja heim. Það tekur varla meira en 30 sek- úndur að setja upp símann og ná sambandi. Eins og nærri má geta eru símtöl þessi hins vegar mjög dýr og er því símtölum haldið í lágmarki. Við lögðum áherslu á að síminn væri búinn mótaldi og þeim möguleika að hægt væri að eiga tölvusamskipti um hann. Enda er hann er mest notaður þannig. Við erum með í för öfluga Pentium kjöltutölvu af AST gerð með Windows 95 stýrikerfi. Dial Up Networking er notað til að ná sambandi við netþjón á íslandi sem var settur upp sérstaklega fyrir okkur af Tölvumiðlun hf. vegna erfiðleika að halda sambandi við hefðbundna netþjóna í gegnum gervihnattasambandið okkar. Ein- föld útgáfa af Eudora forritinu er svo notuð til að sækja og senda tölvupóst. Þetta er ódýr og góður möguleiki sem gerir okkur og þeim sem vilja heima, kleift að eiga ítar- leg samskipti á auðveldan hátt þegar hveijum og einum hentar. Á þennan hátt sendum við Morgun- blaðinu fréttir af okkur og svona sendum við efni á netsíðuna okkar. Myndir sendar með tölvu Við getum líka sent myndir heim í gegnum tölvupóst. Við erum með tvær gerðir af myndbandsupptöku- vélum. Jón Þór, myndatökumaður sjónvarps, er með stafræna vél af gerðinni Sony DRC-VX9000. Einnig er með í för til notkunar á fjallinu mjög handhæg og lítil staf- ræn vél af gerðinni JVC GRl. Báðar vélamar er hægt að tengja við Snappy tölvubúnað sem gerir það kleift að lesa af þeim kyrrar myndir með viðunandi gæðum. Þessar myndir er svo hægt að senda með tölvupósti heim en það tekur langan tíma. Venjulega eru myndir sem við sendum af stærð- inni 40K og tekur 10 til 20 mínút- ur að senda hveija mynd eftir gæðum sambandsins sem við náum við gervihnöttinn. Það er því ljóst að myndirnar geta ekki orðið margar. Nota sólarrafhlöður Póstur og sími hf. útvegaði okk- ur líka þijár talstöðvar til að eiga samskipti okkar á milli. Tvær eru af gerðinni Motorola Visar, litlar og handhægar og ein af gerðinni Motorola Radius til notkunar í grunnbúðum. Fyrirtækið Raf- eindatækni bjó svo til fyrir okkur loftnet til að nota við Radius stöð- ina og eykur það mjög drægni milli stöðva. Þessi búnaður hefur reynst það vel að hann er nú notað- ur af öllum leiðangrinum til að eiga samskipti ofarlega úr fjallinu og niður en búnaður leiðangursins sjálfs hefur ekki reynst sem skyldi. Rafeindatækni hannaði einnig búnað til að tengja talstöðvarnar við símann svo unnt sé að tala úr fjallinu og beint heim, með aðstoð úr grunnbúðum. Þessi búnaður hefur einnig reynst vel. Það má ljóst vera að mikla orku þarf til að knýja allan þennan raf- eindabúnað. Má í því sambandi skipta honum í tvennt; annars veg- ar þann hluta búnaðarins sem not- aður er á fjallinu og hins vegar þann hluta hans sem er í grunn- búðum. Upp í fjall er bara farið með talstöðvar og litlu myndbands- vélina auk hefðbundinna mynda- véla. Bæði eru knúin af endurhlað- anlegum rafhlöðum. Það er hins vegar reynslan frá síðasta leið- angri á Cho Oyu að í þeim kulda sem ríkir yfir 8.000 m duga slíkar rafhlöður skammt. Því eru með í för leiðangursrafhlöður af lithium- gerð sem bornar eru innan klæða og knýja bæði talstöð og mynd- bandsvél í gegnum snúru. Sú reynsla sem við höfum þegar feng- ið af notkun þessara rafhlaðna segir okkur að orka á ekki að verða vandamál efst í fjallinu. Öllu erfiðara hefur okkur reynst að afla nægjanlegrar orku fyrir búnaðinn í grunnbúðum. Bæði síma og tölvu má knýja með venju- legri 220V spennu, eins og úr innstungu heima, sem og með sól- arorku. 220V spenna er einfaldari þrátt fyrir að þá þurfi spennu- breyti, því þá er um beina notkun að ræða en sólarorkan dugir aðeins til að hlaða rafhlöður tækjanna en ekki til að halda þeim við þegar þau eru í notkun. Við urðum fyrir því óláni strax í upphafi að rafstöð leiðangursins bilaði og gaf frá sér 370V í stað 220V. Við þetta brunnu straumbreytarnir okkar yfir og urðu ónothæfir. Var okkur þá nauðugur einn kostur að grípa til sólarorkunnar. Við höfum með í för þijá sólar- fleti og rafgeymi til að hlaða orku inn á. Þessi orka hefur dugað okk- ur til að knýja tölvuna að vild en símann aðeins í nokkrar mínútur á dag. Þetta hefur t.d. valdið því að lítið hefur verið um myndsend- ingar. En brennt barn forðast eldinn og við erum orðnir tortryggnir og treystum ekki neinu. Það er á leið- inni tæki til að tryggja að straum- urinn frá frá rafstöðinni haldist jafn og svo er voltmælirinn okkar aldrei fjarri þegar eitthvað er tengt. Það má ljóst vera að það þarf margbrotinn tækjabúnað og margháttað stúss til að færa ís- lendingum fréttir af okkur heim en við lítum á það sem hluta af ævintýrinu. íHfil'* EVEREST, 8.848 m Lhot.se 8.S 16 i" S-o.ii.th Col ; 5, buöjr . : 7/ Ferð Everestfaranna á tindinn er hafin Dvelja í þriðju búðum í nótt ÍSLENSKU Everestfararnir fóru upp í þriðju búðir í gær og gekk ferðin mjög vel, tók um sex klukkutíma. Ekki er enn íjóst hvenær þeir gera atlögu að tindinum, en að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, kvik- myndatökumanns Ríkissjón- varpsins, sem er í grunnbúðum gæti það verið 18.-20. maí. íslendingarnir reikna með að hvíla sig í einn eða tvo daga í þriðju búðum meðan beðið er betra veðurs. Þeir fengu veð- urspá í gær og gefur hún til kynna að breytingar séu fram- undan, en að þær gerist hægt. Áfram er spáð nokkuð hvössum vindum við topp Everest, en um eða eftir helgi er talið að að- stæður hafi skapast fyrir fjall- göngumenn til að ganga á tind- inn. Allir fjallgöngumenn í grunn- búðum eru á leið upp fjallið og sagðist Jón Þór reikna með að þar yrði ærið tómlegt um að litast í dag. Hann sagði að leyfi fjallgöngumannanna, frá stjórnvöldum í Nepal, til að ganga á Everest rynnu út í næstu viku og ættu þeir ekki annan kost en að halda heim þá hvort sem þeir hefðu komist á toppinn eður ei. Hann sagði að allir ætluðu upp í fjallið og láta reyna á hvort þeim tækist að klífa það. Jón Þór dvelur í grunnbúðum ásamt Herði Magnússyni, sem aðstoðað hefur Islendingana. Hörður hefur undanfarna daga gengið á fjöll í nágrenni grunn- búða og hefur því verið fjarri í tæpa viku. Hann var búinn að vera í grunnbúðum í heilan mánuð og hafði því löngun til að skoða sig betur um og tak- ast á við önnur verkefni, en Hörður er reyndur fjallamaður eins og Hallgrímur bróðir hans, sem er á leið á tind Everest. Reyndir fjallamenn Með islensku fjallgöngu- mönnunum, Einari K. Stefáns- syni, Hallgrimi Magnússyni og Birni Ólafssyni eru þrír aðrir vestrænir fjallgöngumenn og þrír Sherpar. Jón Þór sagði að þetta væru allt saman mjög sterkir og reyndir göngumenn. Líkur á að þeir kæmust á topp- inn væru því allgóðar ef þeir fengju yfirleitt tækifæri til þess vegna veðurs. Hann minnti á að það hefðu komið ár þar sem enginn hefði komist á tindinn sökum óhagstæðra veðurskil- yrða. Sjá Everestsíðu Morgunblaðsins: http://www.mbl.is/everest/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.