Morgunblaðið - 14.05.1997, Side 16

Morgunblaðið - 14.05.1997, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Bæjarstjórar á Islandi hittast Stykkishólmi - Árlegur fundur bæjarstjóra á íslandi var haldinn á Snæfellsnesi 8. og 9. maí sl. Það voru Stykkishólmsbær og Snæ- fellsbær sem buðu sameiginlega til þessa fundar. Fyrri daginn dvöldu bæjarstjór- arnir í Snæfellsbæ og kynntu sér atvinnumál og það helsta sem þar er að gerast. Seinni daginn fór dagskráin fram í Stykkishólmi. Þar skoðuðu gestirnir klaustur systr- anna, sögusýningu grunnskólans og framleiðslu íshákarla á beitu- kóngi. Þá var boðið til hádegisverð- ar í Norska húsinu þar sem gestir fengu að bragða á afurðum úr líf- ríki Breiðafjarðar. Að lokinni eyja- siglingu var fundað á hótelinu. Þar var rætt um málefni sveitarfélaga sem efst eru á baugi og ýmis sam- eiginleg málefni sem sveitarfélögin fást við. Að sögn Ólafs Hilmars Sverris- sonar, bæjarstjóra í Stykkishólmi, eru þetta mjög gagnlegir fundir og gefst bæjarstjórunum gott tækifæri til að bera saman bækur sínar, skiptast á upplýsingum og kynnast. Þeir eru hver á sínum stað og fást við svipuð verkefni og því er gagnlegt að frétta hvern- ig tekið er á málum í öðrum bæjar- félögum. Alls mættu 20 bæjar- stjórar og borgarstjórinn í Reykja- vík á þennan sameiginlega fund. -r 4 7! I i 1" 1 I ] Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason BÆJARSTÓRAR víða að af landinu hittust til að bera saman bækur sínar í Stykkishólmi. Myndin er tekin fyrir framan Norska húsið í Stykkishólmi en þar var boðið upp á hádegisverð. Hjól atvinnulífsins snúast á ný á Drangsnesi Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir JÓHANN Áskell Gunnarsson og Haraldur Ingólfsson við upp- skipun úr Víkurnesinu. Drangsnesi - Verkalýðsfélag Kaldrananeshrepps skrifaði undir kjarasamning við Vinnumálasam- bandið 7. maí sl. og hefur aflýst verkfalli sem staðið hefur frá 21. apríl sl. Almennt er fólk ánægt með að samningar hafi náðst og vinna geti hafist að nýju. Samning- urinn byggist á þeim samningum sem gerðir hafa verið í vetur. Auk 4,7% hækkunar á launa- taxta eru 54 krónur færðar úr bónusinum í taxtakaupið og þar að auki er fastur bónus 178 krón- ur á tímann í rækjuvinnslunni. Fastráðið starfsfólk eftir tíu ára starf hjá atvinnurekandanum fær um 69.200 kr. á mánuði fyrir utan bónus. Ekki róið vegna verkfallsins Hafdís Baldursdóttir, formaður verkalýðsfélags Kaldrananes- hrepps, sagði að laun fólks í rækju- vinnslunni hækkuðu núna strax um 2-4 þúsund kr. á viku miðað við að rækja sé unnin allan mánuð- inn. Þá eru launin hjá þeim sem lengstan starfsaldur hafa tæpar 98 þúsund kr. Þessi samningur er með fyrirvara um að nái ASV meiri kauphækkunum í samning- um sínum muni sá samningur gilda milli samningsaðila. Vinna hófst strax á föstudags- morgun við ýmislegt, s.s. kara- þvott, málningu og þrif en engin rækja er nú til að vinna í rækju- vinnslunni þar sem bátar hafa ekki róið vegna verkfallsins. Vík- urnesið ST-10 komst ekki á sjó á miðvikudagskvöld eins og þeir áætluðu en verkfallsverðir Verka- lýðsfélags Hólmavíkur komu í veg fyrir það með aðgerðum sínum. Því var það að Víkurnesið lagðist í fyrsta sinn að bryggju í Drangs- nesi á fimmtudagskvöld og starfs- menn Hólmadrangs á Drangsnesi afgreiddu það með bæði kör og ís svo þeir kæmust á veiðar. Félag- ar í Verkalýðsfélagi Hólmavíkur reyndu ekki að koma í veg fyrir að skipið væri afgreitt frá Drangs- nesbryggju og gekk lestun bæði fljótt ög vel. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson ÁRNI Böðvarsson, formaður USVS, heldur á kyndlinum um borð í hjólabátnum við gatið á Dyrhólaey. Ólympíueldurinn í tveggja metra ölduhæð í hjólabát Fagradal - Ölympíuleikar smá- þjóða fara fram á íslandi 3.-7. júní í sumar. Undirbúningsnefnd leikanna, í samvinnu við UMFI, efndi í því tilefni til kyndilhlaups hringinn í kringum landið og hófst hlaupið í Reykjavík. Byrjað var að hlaupa um Suð- urland. Á sunnudagsmorgun var lagt af stað hlaupandi frá Jök- ulsá á Sólheimasandi og hlaupið að Dyrhólum í Mýrdal og siglt í gegnum gatið á Dyrhólaey og sem leið liggur að Reymsdröng- um og siglt á milli þeirra og endað í fjörunni í Vík, en þar tók Hafsteinn Jóhannesson, sveitar- stjóri, við kyndlinum. Gísli D. Reynisson, skipstjóri á hjólabátn- um, gat ekki keyrt bátinn fulla ferð vegna þungrar undiröldu sem var í kringum tveir metrar. Helgi Gunnarsson hjá UMFÍ segir hlaupið hafa farið vel af stað og allar tímaáætlanir stað- ist. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Björgunartæki fast í skurði Héraðsvaka á Heimalandi Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir SÖNGNEMENDUR Tónlistarskóla Rangæinga fluttu atriði úr söngleiknum Gæjar og píur. Vogum - Björgunarmenn Tít- anfyrirtækisins, sem sér um björgun úr Víkartindi, festu þetta öfluga farartæki í skurði á fimmtudaginn. Farartækið, sem er á beltum, skorðaðist á milli skurðbakkanna og komst hvorki áfram né afturábak. Björgunarmennirnir fjórir að tölu biðu eftir aðstoð og þegar jarðýta kom á staðinn tókst að losa tækið. Hellu - Rangæingar fögnuðu sumri og ljölmenntu á árlega Héraðsvöku Rangæinga sem haldin var í félags- heimilinu á Heimalandi í V-Eyja- fjallahreppi. Héraðsvakan er haldin til skiptis í sveitum sýslunnar, en að þessu sinni sáu fulltrúar Eyfell- inga, Landeyinga og Fljótshlíðinga um dagskrána sem var fjölbreytt að vanda. Héraðsvakan hófst með messu í Stora-Dalskirkju, en að henni lok- inui tók við dagskrá á Heimalandi, hátíðarræða, ávarp, kórsöngur, píanóleikur, upplestur og söngatr- iði nemenda Tónlistarskóla Rangæinga og kvartettsins Söng- systra. Viðurkenningar og verð- laun til afreksmanna í íþróttum voru afhent, en íþróttamaður árs- ins 1996 var valinn Þórður Þor- geirsson hestamaður. Helgi Ólafs- son stórmeistari tefldi fjöltefli við Rangæinga og á göngum mátti sjá myndlist eftir listamenn úr sýsl- unni. Þá kynnti Sælubúið á Hvols- velli verkefnið „Á Njáluslóð og Sögusetrið á Hvolsvelli", sem áætl- að er að opna í sumar. Ferðamála- félagið Hekla sem stofnað var sl. vetur og starfar í vesturhluta sýsl- unnar kynnti ferðaþjónustu sem í boði er á svæðinu og gestum hér- aðsvökunnar gafst kostur á að láta spákonu lesa í skrift. í kaffihléi buðu kvenfélög hreppanna gestum upp á kaffi og meðlæti. Formaður Héraðsvökunefndar var Ólafur Tryggvason bóndi á Raufarfelli, en næsta Héraðsvaka verður að ári á Hvolsvelli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.