Morgunblaðið - 14.05.1997, Page 26

Morgunblaðið - 14.05.1997, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Ástabálið brennur - að eilífu Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háð- vör frumsýnir í kvöld í samvinnu við Nem- endaleikhús Leiklistarskóla íslands nýjan gamanleik með söngvum eftir Árna Ibsen. Nefnist verkið Að eilífu og fjallar um brúð- kaup tveggja ungmenna, svo sem Orri Páll Ormarsson komst að raun um, að- draganda þess, undirbúning og eftirköst. AÐ ER ekkert grín að elska. Engu að síður er fólk farið að elska allt mögulegt í seinni tíð. Sumir elska að fara á skíði, aðrir í bíó og enn aðrir í líkamsrækt. Þá eru þeir til sem elska gamlárs- kvöld - og jafnvel skyr, svo sem sá sérlundaði guðsmaður séra Hall- dór heldur fram í gamanleiknum Að eilífu. Ungmennin Jón Pétur Guðmundsson og Guðrún Birna Klörudóttir eru hins vegar ekki í minnsta vafa - þau elska hvort annað. Fyrir vikið þykir þeim við hæfi að ganga í hjónaband - grunlaus um þá atburðarás sem ákvörðunin hrindir af stað. Fj'andinn verður hreinlega laus. Skyldi svo sem eng- an undra, þar sem brúðkaup er leiksýning sem verður að vera glæsileg, eins og móðir brúð- gumans ályktar, og ekki bætir það úr skák að hún er ein af þessum manneskjum sem finnst hlutirnir ekki gerast ef enginn hefur áhyggj- ur af þeim. Þá sogast inn í sjónar- spilið vantrúaðir vinir, gamlir elsk- hugar, fósturfeður, fyrrnefndur prestur og jafnvel fatafella, sem er ekki öll þar sem hún er séð. Já, það er svo sannarlega ekki tekið út með sitjandi sældinni að láta pússa sig saman. Að eilífu er annað leikritið sem Árni Ibsen skrifar sérstaklega fyrir Hafnarijarðarleikhúsið. Hið fyrra, Himnaríki, var sýnt áttatíu sinnum fyrir fimmtán þúsund áhorfendur, fyrst í Hafnarfirði en síðan á ieik- listarhátíðum í Björgvin, Stokk- hólmi og Bonn. En hvers vegna kýs hann að beina sjónum sínum að brúðkaupinu að þessu sinni? „Það má eiginlega segja að verk- efnið hafi valið mig en ekki öfugt,“ svarar Árni, „en hugmyndin skaut upp kollinum þegar við vorum að sýna Himnaríki. Þá vorum við mik- ið að velta því fyrir okkur hvað yrði um karakterana í verkinu - hveijir myndu enda með hveijum. Það hlaut að koma að giftingu!" Fyrirbærið brúðkaup Þar með var hugmyndin að leik- riti sem fjallaði um hjónavígslu kviknuð og eftir það var ekki aftur snúið - enda ekki svo auðvelt að aflýsa brúðkaupi, hafi það á annað borð verið sett á. Að sögn Árna var ætlunin aldrei sú að segja sögu einhverra ákveðinna einstaklinga, heldur að fjalla um brúðkaupið sem fyrirbæri og „henda einhveijum fígúrum inn í atburðarásina". „Brúðkaup á íslandi hafa gjör- breyst á undanförnum tíu til fimmt- án árum og eru oft og tíðum orðin einskonar amerískur bastarður, ef þannig má að orði komast," heldur Árni áfram. „Þess vegna tókum við fljótlega þann pól í hæðina að taka mið af kvikmyndaveruleikanum og vitna jafnvel beint í ákveðnar kvik- myndir. Fyrir vikið göngum við nokkuð langt í stíllegu tilliti og á köflum minnir verkið jafnvel á teiknimynd. I stuttu máli má segja að við vinnum út frá raunveruleg- um aðstæðum en skekkjum þær aðeins." Svo sem ráða má af orðum Árna hér að framan hefur Að eilífu orð- ið til í leiksmiðju Hafnarfjarðarleik- hússins - hann notar fornafnið „við“ en ekki „ég“ þegar hann gerir grein fyrir tilurð verksins. „Handritið var til þess að gera hrátt þegar ég sýndi leikhópnum það fyrst, stutt leikatriði sem í sam- hengi lýstu ákveðinni framvindu. Síðan hefur það tekið miklum breytingum og leikararnir bókstaf- lega fengið að fylgjast með leikrit- inu verða til.“ Að sögn höfundarins spillti það heldur ekki fyrir að vera „um- kringdur her galdrakarla“ eins og í Hafnarfjarðarleikhúsinu. „Hér gefa menn sér svigrúm til að skapa Morgunblaðið/Jón Svavarsson TURTILDÚFURNAR, Guðrún Birna (Þrúður Vilhjálmsdóttir) og Jón Pétur (Halldór Gylfason), sjá ekki sólina hvort fyrir öðru. KLARA, móðir brúðarinnar, (Inga María Valdimarsdóttir) fer þess á leit við séra Halldór (Gunnar Hansson) að fá að leiða dóttur sína upp að altarinu. Þannig er nefnilega mál með vexti að hún á eiginlega engan föður! - yrkja á rýmið. Þetta er gífurlega samstilltur hópur sem bindur sig ekki við formleg vinnubrögð, heldur fer á sköpunarfyllirí þegar það á við.“ Aðalhlutverkin í sýningunni, Jón Pétur og Guðrún Birna, eru 1 hönd- um Halldórs Gylfasonar og Þrúðar Vilhjálmsdóttur. Koma þau bæði úr röðum Nemendaleikhússins sem Hafnarfjarðarleikhúsið hefur feng- ið til liðs við sig að þessu sinni. Telst samvinna af þessu tagi vera nýlunda hér á landi. „Hafnarfjarð- arleikhúsið kynnti hugmyndina fyr- ir okkur síðastliðið vor, þegar við vorum að klára þriðja bekk í Leik- listarskólanum," segir Þrúður, „og við keyptum hana um leið enda höfðum við séð Himnaríki og viss- um að hveiju við gengum." Segjast þau síður en svo hafa orðið fyrir vonbrigðum. „Þetta hef- ur verið frábært - eiginlega með því skemmtilegasta sem ég hef gert um dagana," segir Halldór og Þrúður tekur í sama streng: „Þetta hefur verið gaman, spennandi og lærdómsríkt, ekki síst að fylgjast með því hversu vel tíminn hefur verið notaður. Vonandi á ég eftir að leika í þessari sýningu sem lengst - hún er svo skemmtileg." Allir í líkamsrækt Liður í undirbúningi leikaranna ungu fyrir sýninguna var líkams- rækt en við æfingar á Að eilífu hafa þeir fengið að kynnast því að leiksýningar geta verið erfiðar lík- amlega ekki síður en andlega. Eru skiptingar milli atriða oft og tíðum hraðar, svo sem gamanleikja er siður, og atgangurinn á sviðinu á köflum mikill. Halldór og Þrúður luku, ásamt bekkjarfélögum sínum sex, prófi frá Leiklistarskóla íslands um síð- ustu helgi. Leggst framhaldið vel í þau. „Atvinnuhorfur fyrir unga leikara eru mun bjartari núna en fyrir tíu til fimmtán árum,“ segir Halldór, „enda hefur áhugi fyrir leiknu efni verið að aukast á síð- ustu árum. Síðan er íslenskt leik- hús alltaf að verða betra og betra - þannig að framtíðin virðist björt." Ellefu ungir leikarar fara með á þriðja tug hlutverka í Að eilífu. Auk Halldórs og Þrúðar koma frá Nemendaleikhúsinu Atli Rafn Sig- urðarson, Baldur Trausti Hreins- son, Gunnar Hansson, Hildigunnur Þráinsdóttir, Inga María Valdi- marsdóttir og Katla Margrét Þor- geirsdóttir en Gunnar Helgason, Björk Jakobsdóttir og Erling Jó- hannesson eru fulltrúar Hafnar- fjarðarleikhússins á sviðinu. Leik- stjóri er Hilmar Jónsson, leikmynd hannar Finnur Arnar Arnarsson, búningagerð er í höndum Þórunnar Jónsdóttur, um gervi sér Ásta Haf- þórsdóttir, tónlist velur, semur og stýrir Margrét Örnólfsdóttir, Selma Björnsdóttir semur dansatriði og lýsingu hannar Egill Ingibergsson. Grindavíkursaga BÆKUR S a g n f r æ ð i SAGA GRINDAVÍKUR 1800-1974 eftir Jón Þ. Þór og Guðfinnu Hreið- arsdóttur. Grindavíkurbær 1996, 386 bls. FYRIR tveimur árum kom út Saga Grindavíkur. Frá landnámi til 1800. Sú bók var rituð af Jóni Þ. Þór. Þeirri sögu lauk þegar Skálholtsstóll hafði selt jarðeignir sínar í Grindavík, en hann var eig- andi flestra jarðanna - og þær komust í eigu bænda. Það voru sannarlega mikil þáttaskil í sögu byggðarlagsins. I Aðfaraorðum höfundar fyrra bindis var lýst áætlun um þriggja binda verk. Átti miðbindið að ná til ársins 1939, en þá voru gerðar hafnarbætur sem skiptu sköpum um þróun Grindavíkur. Þriðja bind- ið átti svo að fjalla um tímabilið 1939 og til vorra daga. Þessi áætl- un breyttist með tvennum hætti. Ákveðið var að hafa bindin einung- is tvö. Með því móti þótti sem sam- felldari sýn fengist yfir sögulega þróun, einkum útgerðarsöguna. Og í öðru lagi var frásögnin ekki teygð lengra en til ársins 1974, þegar Grindavík hlaut kaupstaðarréttindi. Þá var þriðja breytingin sú að nú urðu höfundar tveir. Jón Þ. Þór rit- aði fyrri hluta bókar (sex kafla) og fjallaði um byggð og mannfjölda, sveitarstjórn, sjávarútveg og land- búnað. Er það samfelld saga til 1974. Þá tekur hinn höfundurinn, Guðfinna M. Hreiðarsdóttir við og ritar þijá síðustu kaflanaj um menningar- og félagsmál, skólamál og kirkju. Miklar skrár eru í bókar- lok og myndir margar. Bókin skipt- ist nokkurn veginn til helminga milli höfunda. Ég tel að það hafi verið vel ráðið að hafa þessa sögu einungis í tveim- ur bindum, enda eru þau allvæn, samtals hátt á sjöunda hundrað blaðsíður. Mannlíf og athafnalíf hefur í rauninni verið næsta ein- hæft í Grindavík þar til langt var komið fram á þessa öld. Fjölgun í byggðarlaginu var lengst af hæg. Árið 1801 eru þar 185 manns og 1950 eru íbúar ekki fleiri en 527. Eftir það fer byltingin að gerast. 1970 eru þeir orðnir 1169 og aðeins fjórum árum síðar 1600. Þá er líka kominn allmikill menningarbragur á byggðarlagið, en lengi vel var þar fátt um fína drætti. í þeim skiln- ingi má segja að Grindavík sé mjög ungur bær, en með langa forsögu. Mér virðist að höfundar hafi skil- að af sér vönduðu og góðu verki og Grindavíkurbær megi því vera ánægður með þessa söguritun. Hafa verður í huga að það hefur líklega ekki verið auðvelt verk, því að svo er að sjá að Grindvíkingar hafi ver- ið lítt hneigðir fyrir að skrá atburði líðandi stundar eða rifja upp liðna tíð og að varðveislu ritaðra gagna hafi stundum verið ábótavant. Grindavíkursaga er myndarlegt ritverk að öllum ytra búnaði. Brot er fremur stórt, dálkar tveir á síðu og myndir fara vel við texta. Sigurjón Björnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.