Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 15
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
í veiðihug
Kántríball
og námskeið
JÓHANN Örn Ólafsson dans-
kennari verður með námskeið
fyrir byrjendur og lengra
• komna í líkamsræktinni að
Bjargi á Akureyri um helgina,
laugardag og sunnudag, en
hann hefur verið á ferðinni og
kennt kántrídansa víða um land
undanfarið.
Kántríkvöld verður í hlöðunni
á bænum Hrísum í Eyjafjarðar-
sveit sunnudagskvöldið 18. maí
þar sem Jóhann stjómar dansi
ásamt dúettinum Tveir saman
frá Akureyri. Hlöðunni á Hrís-
um var breytt í danshús fyrir
ári og þar voru haldin nokkur
böll í fyrrasumar og fjölskyldu-
hátíðin „Sveitalíf1 um síðustu
verslunarmannahelgi.
Ferðaskrif stofan
Nonni
Ferð til
Slóveníu
UM 150 manna hópur Slóvena
kemur með beinu flugi Flugleiða
á vegum Ferðaskrifstofunnar
Nonna á Akureyri hingað til
lands 20. maí næstkomandi og
dvelur til 26. maí. Þetta er í
fyrsta skipti sem Slóvenum er
boðið upp á beint flug til íslands.
Ferðaskrifstofan Nonni býð-
ur íslendingum einnig að not-
færa sér tækifærið og heim-
sækja Slóveníu með beinu flugi
frá Keflavík, en 15 ár eru frá
því að þessi möguleiki var síð-
ast fyrir hendi.
Fermingar
minnst
SÁ siður hefur skapast við
Akureyrarkirkju að minnast
fermingarinnar með því að boða
til hátíðarmessu þá sem fermd-
ust fyrir 10, 20, 30,40 og 50
árum. Svo er einnig nú og þeir
sem fæddireru árin 1973,1963,
1953, 1943 og 1933 eru hvattir
til að koma í hátíðarmessuna,
en auk þessara hópa eru allir
aðrir hjartanlega velkomnir.
Hátíðarmessan hefst kl. 11 á
Hvitasunnudag.
FÉLAGARNIR Gunnar og Logi
brugðu sér niður á bryggju að
veiða þó svo að heldur væri
napurt í veðri. Logi var vel út-
búinn í björgunarvesti eins og
vera ber, en eflaust ætlar Gunn-
ar að fá sér eins útbúnað fyrir
veiðiferðir sumarsins. Þótt
veiðiþjólið væri að stríða Loga
fékk hann þokkalegasta þorsk
við bryggjuna, þó hann teljist
vart annað en undirmálsfiskur.
Útskriftartónleikar söng-
kvenna og gítarleikara
TVÆR söngkonur og gítarleikari
halda tónleika á Akureyri í kvöld,
annað kvöld og á laugardag og eru
tónleikarnir liður í burtfararprófi
þeirra frá Tónlistarskólanum á
Akureyri. Tónleikar þeirra eru öll-
um opnir og aðgangur er ókeypis.
Hildur
Tryggvadóttir
heldur tónleika í
Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju
í kvöld, fimmtu-
dag, kl. 20.30.
Hildur er fædd í
Reykjavík en
býr að Fremsta-
felli í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Hún hefur víða komið fram sem
einsöngvari, t.d. með kvennakóm-
um Lissý og Kór Tónlistarskólans
á Akureyri, en hún hefur stundað
nám við skólann síðustu 7 ár und-
ir handleiðslu Margrétar Bóasdótt-
ur, Hólmfríðar Benediktsdóttur og
Más Magnússonar.
Á efnisskrá tónleikanna em ljóð
og óperuaríur frá ýmsum tímum.
Richard Simm leikur undir á píanó.
Björn Leifsson leikur með Hildi í
söngverki Franz Schuberts
„Hirðirinn á hamrinum". Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir.
Lýður Ólafs-
son gítarleikari
heldur burtfar-
artónleika í Ak-
ureyrarkirkju
föstudagskvöld-
ið 16. maí kl. 20.
Lýður stundaði
lengst af nám
hjá Erni Viðari
Erlendssyni í
Tónlistarskólan-
um á Akureyri, en í vetur hefur
hann lært hjá Kristjáni Þ. Bjarna-
syni. Einnig hefur hann sótt nám-
skeið hjá Arnaldi Arnarsyni,
Manuel Barrueco, David Russel,
Oscar Gighiiia og Timo Korhonen.
Lýður lýkur stúdentsprófi af tón-
listarbraut Menntaskólans á Akur-
eyri í vor.
Á tónleikunum leikur Lýður verk
eftir J.A. Logy, H. Villa Lobos, J.S.
Bach, F. Sor, A. Barrios Mangore
og F. Tárrega. Tónleikarnir eru öll-
um opnir og er aðgangur ókeypis.
Þuríður Vilhjálmsdóttir heldur
burtfarartónleika sína laugardag-
inn 17. maí í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju og heíjast þeir kl. 17.
Þuríður er
fædd og uppalin
á Þórshöfn á
Langanesi en
lauk stúdents-
prófi frá
Menntaskólan-
um í Reykjavík.
Hún hefur
stundað söng-
nám við Tónlist-
arskólann á Ak-
ureyri síðastliðna 7 vetur auk þess
að vera í alþýðutónlistardeild skól-
ans og lagt stund á píanónám.
Kennarar Þuríðar í söng hafa
verið þau Hólmfríður Benedikts-
dóttir og Már Magnússon, en
einnig hefur hún notið leiðsagnar
og samvinnu píanóleikaranna
Guðrúnar Önnu Kristinsdóttur,
Gerrit Schuil og Richard Simm
en sá síðastnefndi leikur með á
tónleikunum. Þuríður hefur tekið
þátt í starfi ýmissa kóra um ára-
bil en einnig komið fram sem ein-
söngvari við ýmis tækifæri hin
síðari ár.
Á tónleikunum syngur Þuríður
bæði ljóð og óperuaríur, m.a. laga-
'flokkinn „Sjö spænsk alþýðulög"
eftir Manuel de Falla.
Hildur
Tryggvadóttir
Lýður
Ólafsson
Þurfður
Villyálmsdóttir
Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dró sér milljón
kr. frá verslun
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
hefur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmdur í 8 mánaða
fangelsi fyrir fjárdrátt. Fram-
kvæmd refsingarinnar er frestað
og fellur hún niður að liðnum þrem-
ur árum haldi ákærði almennt skil-
orð.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa dregið sér um eina milljón
króna á um eins árs tímabili, frá
maí 1995 til júní 1996, frá verslun
á Akureyri, en þar starfaði hann
sem verslunarstjóri á umræddu
tímabili.
Játaði maðurinn skýlaust það
athæfi sem honum var gefið að sök
og endurgreiddi við lögreglurann-
sókn þá fjármuni sem hann dró
sér. Með hliðsjón af því þótti refs-
ingin hæfilega ákveðin 8 mánaða
fangelsi og framkvæmd hennar
frestað haldi hann almennt skilorð
í þijú ár.
Gallerí AllraHanda
Listkynning
Hansínu
Jens
LISTKYNNING á verkum Hansínu
Jens, gull- og höggmyndalista-
konu, verður opnuð í Galleríi Allra-
Handa í Grófargili í dag, fimmtu-
dag kl. 14.
Hansína lærði gullsmíði hjá föð-
ur sínum, Jens Guðjónssyni, í
Reykjavík. Hún stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og að því loknu höggmynda-
iist í Calgary í Canada í tvö ár.
Hún er þekkt fyrir sérstakan stíl
í skartgripagerð og frumleika í
skúlptúrgerð, segir í frétt frá Gall-
eríinu. Hún rekur eigið verkstæði
í Reykjavík.
Sýning á verkum Hansínu
stendur í tvær vikur.
-----»-♦-«----
Leigjendasamtök
Norðurlands
Opið hús á
skrifstofu
LEIGJENDASAMTÖK Norður-
lands hafa opnað skrifstofu að Gler-
árgötu 28, 4. hæð. í tilefni af opn-
un hennar verður boðið upp á kaffi
og meðlæti í húsnæði samtakanna
í kvöld, fimmtudagskvöldið 15. maí
frá kl. 20.30 til 22 og eru allir sem
fagna vilja þessum áfanga með
stjórn samtakanna velkomnir.
Skrifstofan verður opin á mánu-
dögum, þiðjudögum og miðvikudög-
um frá kl. 11 til 13 til að byija
með, en á öðrum tímum er hægt
að skilja eftir skilaboð á símsvara,
en sími samtakanna er 461-2720.
Gleraugna
ky nn mg
í dag og á morgun verður
Gleraugnahús Óskars með
gleraugnakynningu í Bókvali,
Hafnarstæti 91. Kynningin
hefst kl. 11:00 og stendur til kl.
18:00 báða dagana. Kynntar
verða umgjarðir eftir Óskar,
undir nafninu Modesty Blaise
ásamt fjölda þekktra
gleraugnahönnuða. Fagfólk
verður á staðnum og gefur ráö
varðandi liti, form og gler. 15%
afsláttur af öllum glerjum
meðan á kynningu stendur.
Nánari upplýsingar í síma:
551 - 4455 eða 898 - 2065.
(Ð
GLERAUGNAKUS DSKARS