Morgunblaðið - 15.05.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 25
ERLENT
Peres
snupraður
SHIMON Peres, fyrrverandi
forsætisráðherra Israels,
sagðist í gær myndu halda
áfram þátttöku í stjórnmáium,
þrátt fyrir að flokkur hans,
Verkamannaflokkurinn, hafi
feilt tillögu um að heiðra Peres
með því að búa til nýtt emb-
ætti fyrir hann, sem flokksfor-
seti. Peres hyggst hætta sem
leiðtogi flokksins í júní.
Bannað að
breyta Rauða
torginu
NEÐRI deild rússneska þings-
ins samþykkti í gær bann við
öllum breytingum á Rauða
torginu og byggingum sem
standa við það. Er þetta ekki
sist gert vegna tillagna sem
komið hafa fram um að færa
lík Vladimírs Lenín úr graf-
hýsi sem stendur við torgið.
Fer málið nú fyrir Borís Jelts-
ín Rússlandsforseta og efri
deild þingsins.
Fordæmir
morð á tímum
aðskilnaðar
F.W. DE Klerk, fyrrverandi
forseti Suður-Afríku, neitaði í
gær að hafa haft vitneskju um
morð sem
framin voru
í nafni að-
skilnaðar-
stefnunnar
og for-
dæmdi þá
sem ábyrgð
bæru á
þeim. Þetta
kom fram í
vitnisburði forsetans fyrir
Sannleiks- og sáttanefndinni
svokölluðu, sem kannar afbrot
frá tímum aðskilnaðarstefn-
unnar.
Þáði Gandhi
mútur af
Bofors?
ÁSAKANIR um að Rajiv
Gandhi, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Indlands, hefði verið
flæktur í Bofors-hneykslið
svokallaða, ollu miklu uppnámi
á indverska þinginu í gær.
Indverskt dagblað fullyrti að
indverska leyniþjónustan hefði
komist að þeirri niðurstöðu að
Gandhi, sem var myrtur árið
1991, hefði þegið mútur frá
Bofors-fyrirtækinu og verið
aðalmaðurinn að baki samn-
ingi Bofors og indversrka
stjórnvalda um vopnakaup.
Afkomandi
Drakúla
látinn
RÚMENSKA prinsessan Alex-
andra Caradja-Kretzulesco er
látin, 77 ára gömul, en hún
kvaðst vera afkomandi fyrir-
myndarinnar að Drakúla, Vlad
prins af Transylvaníu, sem
uppi var á 15. öld í Rúmeníu.
Prinsessan flýði heimaland sitt
árið 1947 er kommúnistar
komust til valda og bjó eftir
það í París.
Opið í kvöld
til kl. 22
Sumartilboð
fram að helgi!
.Fnttbensín
• Utvarp og geislaspilari •
• Hemlaljós í afturglugga
• Samlæsingar og hreyfiltengd þjófavörn
• Rafdrifnar rúður og útispeglar
• 2 öryggisloftpúðar
• Upphituð framsæti
Ótrúlegt verð!
Aðeins 980.000 kr., 3ja dyra með öflugrí 7,31. vél.
5 dyra aðeins 1020.000 kr.i
Greiðslukjör við allra hæfi! Lán til allt að 7 ára!
S WIFT ’9 7
Snöggur * Sterkur • Sportlegur
fsuzUKÍ^ ' 30.000 kr. úttekt á bensíni SUZUKI BILAR HF.
| afl og 1 hjá ESSOfyrírþá sem kaupa Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
[ öryggi J Swifttil 17. maí. Sími 568 5100.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 2800. Akureyri: BSA hf. Laufásgötu 9, simi
462 6300. Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf. Miðási 19, sími 471 2011. Keflavík: BG bilakringian,
Grófinni 8, sími 421 1200. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 1550.
Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 3700.