Morgunblaðið - 22.05.1997, Page 1
88 SÍÐUR B/C
112. TBL. 85.ARG.
FIMMTUDAGUR 22. MAI1997
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
íslendingarnir stóðu allir þrír saman á tindi Everest kl. 7:15 í gærmorgun
„Komumst ekki hærra“
„REYKUR Hörður; reykur Björn kallar. Við verðum að valda ykkur
vonbrigðum, strákar. Við komumst ekki hærra.“ Þannig tilkynnti
Björn Olafsson Herði Magnússyni og Jóni Þór Víglundssyni, sem biðu
í grunnbúðum, að íslendingar hefðu sigrað tind Everest. Það var
klukkan 7:15 að íslenskum tíma sem Björn gaf yfirlýsingu um að
hann, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnússon stæðu á toppi
Everest, hæsta fjalls heims, sem er 8.848 metrar að hæð.
Björn notaði kallmerki hjálpar-
sveitanna þegar hann kallaði í
grunnbúðir. Þegar hann sagði að
þeir kæmumst ekki hærra átti
hann ekki við að þeir yrðu að snúa
við heldur að það væri ekki hægt
að komast hærra. Toppnum hefði
verið náð.
Ferðin á tindinn tók um 13
klukkutíma og ferðin niður um 5
tíma. Þeir dvöldu í tæpan klukku-
tíma á tindinum og samtals tók
því ferðin frá Suðurskarði u.þ.b.
19 klukkutíma.
Ólýsanleg tilfinning
Morgunblaðið ræddi við Einar
K. Stefánsson stuttu eftir að hann
kom niður í Suðurskarð. Hann
sagðist vera þreyttur en afskap-
lega ánægður með að þeim hefði
tekist að ljúka ætlunarverki sínu.
Hann sagði að leiðin niður af tind-
inum hefði verið erfiðasti hluti
ferðarinnar. Vindur hefði verið
töluvert sterkur og færið sums
staðar erfitt.
Einar var spurður hvernig til-
finning það væri að standa á tindi
hæsta fjalls heims.
„Það er ekki hægt að lýsa því
með orðum. Þetta hefur verið
margra ára draumur og við höfum
unnið þrotlaust mjög lengi að því
að fá hann til að rætast. Það hefur
gengið á ýmsu hjá okkur í ferð-
inni. Við lentum í miklum veikind-
um og þurftum að bíða lengi í
óvissu vegna veðurs. Við gerðum
okkur grein fyrir því að líkurnar á
að við kæmumst upp væru að
minnka. Ánægjan yfir því að okkur
skyldi takast þetta er því enn meiri
en ef þetta hefði gengið í samræmi
við upphaflega áætlun.“
Með Einari, Hallgrími og Birni
á tindinn komust Nick Kekos leið-
angursstjóri og Sherparnir Ang
Babu, Daeva og Pende. Þetta var
sjöunda ferð Babu á tindinn.
Fjöldi fólks, heima og erlendis,
hefur óskað Everestförunum til
hamingju með afrekið. Mikið álag
var á Everestsíðu Morgunblaðsins
í gær og margir notuðu hana til
að senda fjallgöngumönnunum
kveðjur. Þeirra á meðal var for-
seti Islands, Ólafur Ragnar Gríms-
son. Margir fjallgöngumenn, sem
beðið hafa betra veðurs á Ever-
est, hafa fært sig ofar í fjallið og
ætla að feta í fótspor íslending-
anna.
■ íslendingarnir/
18,19, 36, 37 og 72
FJALLGÖNGUMENNIRNIR BjörnÓlafsson, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnússon urðu í
gærmorgun fyrstir íslendinga til að ganga á Everest, hæsta fjall heims.
Ned Gilletie
660 manns hafa komist á tindinn
RÚMLEGA fjögur þúsund manns
hafa reynt að klífa tind Everest á
þeim rúmu 70 árum sem tilraunir
til þess hafa staðið. Alls hafa 660
manns komist á tindinn en um 170
manns fallið í valinn. Það-var árið
1921 sem fyrsti leiðangurinn var
gerður út og árið 1953 náði fyrsti
maðurinn tindinum. Síðan hefur
Everest verið sigrað eftir öllum
leiðum sem taldar eru mögulegar.
Á suðausturhlíð fjallsins er síðasti
spölurinn upp mjóan fjallshrygg
þar sem hyldýpi blasir við á báða
bóga, eins og sést á myndinni.
Sir Edmund Hillary í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi
Oska íslensku
fj allagörpunum
til hamingju
SIR Edmund Hillary,
sem fyrstur komst á
tind Everest ásamt
Sherpanum Tenzing
29. maí 1953, hafði
ekki frétt af því að
íslensku fjallgöngu-
mennirnir hefðu
komist á tindinn
þegar Morgunblaðið
hringdi í hann á
heimili hans í Auck-
land á Nýja-Sjálandi
í gærkvöldi, en fagn-
aði afreki þeirra og
kvaðst vildu óska
fjallagörpunum og
Islendingum öllum
til hamingju með árangurinn.
Aðspurður hvort ekki væri mik-
ill munur á Everestferðum nú og
þegar hann sjálfur
kleif tindinn fyrstur
manna fyrir 44 árum
sagði hann að vissu-
lega væru tímamir
breyttir og búnaður-
inn annar, en þó
væri það eftir sem
áður afrek að kom-
ast á tindinn.
„Kannski má
segja að aðalmun-
urinn sé sálfræðilegi
þátturinn. Árið 1953
vissum við ekki einu
sinni hvort það væri
í mannlegu valdi að
komast á tindinn en
nú vita menn að það er mögulegt.
En það er þó eigi að síður afrek
og ekki á allra færi,“ sagði Hillaiy.
Sir Edmund
Hillary