Morgunblaðið - 22.05.1997, Side 10

Morgunblaðið - 22.05.1997, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Myndaritsljóri Playboy staddur á Islandi til að undirbúa Islandsþátt Leitar að fögrum íslensk- um konum til að sitja fyrir Myndaritstjórí bandaríska tímarítsins Playboy kom til landsins í gær til að und- irbúa myndatökur fyrir fyrirhugaðan * Islandsþátt í tímaritinu. Morgunblaðið/Þorkell ÍSLENSKAR konur eru margar ny'ög fallegar, segir James Larson myndaritstjóri Playboy. FYRIR skömmu var auglýst í Morgunblaðinu eftir fyrirsætum til að sitja fyrir í nektarmyndatökum hjá Playboy. James Larson mynda- ritstjóri segir að ekki hafí borist mikið af umsóknum enn sem kom- ið er, enda sé undirbúningur á byij- unarstigi. Hann hefur rætt við nokkrar stúlkur. Larson hyggst dvelja hér á landi fram á laugardag og hafa samband við forsvarsmenn módelskrifstofa hér á landi og aðra þá sem vísað geta á fagrar íslenskar konur og skoða hugsanlegar staðsetningar fyrir myndatökur. Hann mun einn- ig sækja Fegurðarsamkeppni ís- lands sem haldin verður á föstudag. íslenskar konur hafa ekki hlotið verðskuldaða athygli Myndatökur fyrir tímaritið munu fara fram hér á landi í júlí, en gert er ráð fyrir að ljósmyndaþátt- ur um íslenskar konur birtist næst- komandi vetur. „Það hefur verið mikil umfjöllun um ísland í Banda- ríkjunum upp á síðkastið og þannig vaknaði áhugi okkar. Islenskar konur hafa hingað til ekki vakið verðskuldaða athygli þar, því þær eru margar mjög fallegar." Larson segir að reynt verði að leggja áherslu á uppruna kvenn- anna á myndunum. Myndimar verða flestar teknar úti á landi, þar sem er fögur náttúra eða sérís- lenskt umhverfí. Einnig verður reynt að hafa klæðnað fyrirsæt- anna íslenskan, að svo miklu leyti sem hann verður til staðar. Að sögn Larsons er bandarískri útgáfu Playboy dreift í þremur milljónum eintaka. Oft getur mynd- birting í tímaritinu verið stökkpall- ur til frekari frama. Larson bendir meðal annars á Jenny McCarthy sem dæmi. Eftir að myndir af henni birtust í Playboy varð hún kynnir á MTV-sjónvarpsstöðinni og nú stjómar hún eigin spjallþætti. Einnig nefnir hann sænska fyrir- sætu, fyrrverandi ungfrú Svíþjóð, sem var leikfélagi ársins í Playboy í fyrra og er nú komin með stóran auglýsingasamning fyrir galla- buxnaframleiðanda. Vandað tímarit Larson leggur áherslu á að Play- boy sé vandað tímarit. „í löndum þar sem tímaritið hefur litla út- breiðslu er sú tilhneiging ríkjandi að líkja því við önnur karlablöð sem em í allt öðmm gæðaflokki. Það er oft sagt sem brandari að Play- boy sé keypt út af því hvað grein- amar og skopmyndimar em góðar. En sannleikurinn er sá að hvort tveggja er mjög vandað." Hann segir aðspurður að það geti verið erfítt að fínna ljósmynda- fyrirsætur í litlum samfélögum. „Við höfum þó oft myndir af konum úr háskólasamfélögum, litlum bæj- um og jafnvel þorpum þar sem all- ir þekkja alla. Nýlega vomm við með myndaflokk sem nefndist „smábæjarstúlkur". Ég hafði sam- band við fyrirsætumar eftir á til að kanna hvaða áhrif myndbirting- in hefði haft fyrir þær. Engin þeirra hafði átt við nein vandamál að stríða þess vegna.“ Larson segir mismunandi ástæð- ur vera fyrir því að konur sækist eftir því að gerast fyrirsætur fyrir tímaritið, enda komi þær úr öllum mögulegum áttum og mismunandi samfélagsstéttum. „Fyrir sumar er þetta stökkpallur til annarra verk- efna. Aðrar vilja einfaldlega fá mynd af sér í Playboy, svo snúa þær sér að öðram verkefnum, verða læknar, iðnverkakonur eða hús- mæður.“ Vildi hvíta límósínu Larson segir að myndatökumar séu þokkalega borgaðar og að tímaritið sé tilbúið til að uppfylla ýmsar séróskir. „Einu sinni var kona sem aðeins vildi láta taka af sér myndir ef hún yrði keyrð á tökustaðinn í hvítri límósínu. Onnur samþykkti eftir að við höfðum út- vegað henni gæslumann fyrir hundinn hennar. Þetta virðast frá- leitar kröfur, en fyrir þessar konur var þetta mikilvægt. Fyrst og fremst reynum við að vera sann- gjamir og koma fram við alla af virðingu." Larson segir að konur sem vilja gerast fyrirsætur fyrir blaðið verði að vera orðnar átján ára, enda em um það ströng lög í Bandaríkjunum að ekki megi taka nektarmyndir af yngra fólki. Skila þarf ljósriti af skírteini til sönnunar aldrinum. Einnig þarf að fylgja ljósmynd af fyrirsætunni í bikini og andlits- mynd. Larson leggur áherslu á að fyrir- sætumar séu íslenskar að uppmna og ættum, þó ekki þurfí þær að vera ljóshærðar og bláeygar. En fagrar skulu þær vera, enda hefur Playboy efni á að gera kröfur. Ógrynni af bréfum berst tímaritinu á hverju ári frá konum sem vilja láta birta af sér mynd. Akureyri Bærinn selur ekki malbikun- arstöð BÆJARSTJÓRN Akureyrar samþykkti á fundi í vikunni að Akureyrarbær reki áfram núverandi malbikunarstöð, en nokkur fyrirtæki hafa á und- anförnum missemm óskað eftir að kaupa stöðina. Að sögn Gísla Braga Hjart- arsonar bæjarfulltrúa og for- manns framkvæmdanefndar varð niðurstaðan sú að ein- faldast væri að Akureyrarbær ræki malbikunarstöðina áfram eins og verið hefur. Bærinn notaði ríflega helming allrar framleiðslunnar, en hann væri smám saman að draga sig út úr lagningu mal- biks nema rétt það sem færi á götur bæjarins. í norðanátt og rigningu Á fundi bæjarstjómar var samþykkt að kaupa nýjan ryk- hreinsibúnað í malbikunar- stöðina áður en starfsemi hennar hefst vorið 1998. Bún- aðurinn kostar um 7 milljónir króna. Mikið hefur verið kvartað yfír mengun frá stöð- inni, en strókinn frá henni leggur gjarnan yfír bæinn á góðviðrisdögum. Gámngar í framkvæmdanefnd hafa lagt til að starfsemi í stöðinni verði einungis leyfð í norðanátt og rigningu. Ástæðu þess að ekki væri- þegar búið að setja upp ryk- hreinsibúnað í malbikunar- stöðina sagði Gísli Bragi vera þá að fyrirtæki í Danmörku sem framleiddi stöðina hefði orðið gjaldþrota fyrir einhveij- um ámm. Nú hefði fyrirtæki á Ítalíu tekið við umboðinu og því opnast möguleiki á að verða sér úti um viðeigandi búnað í stöðina að nýju. * Umsögn lögfræðings Háskóla Islands um höfundarrétt að Vesturfaraskrá 1870-1914 Birting á al- netinu brot á höfundalögum BIRTING upplýsinga úr bókinni Vesturfara- skrá 1870-1914 á alnetinu brýtur gegn ákvæðum höfundalaga, samkvæmt umsögn lögfræðings Háskóla íslands, Harðar F. Harðarsonar hdl. Á heimasíðu sem Hálfdan Helgason útbjó í ágúst á síðasta ári um vesturfarana og ber heitið „The Emigration from Iceland to America" vora m.a. upplýs- ingar úr bókinni um Vesturfara úr Skaga- fjarðar- og Húnavatnssýslum. Höfundur bókarinnar er Júníus H. Krist- insson sagnfræðingur, en hann lést árið 1983. Bókin hefur að geyma Itarlega skrá yfír þá 14.268 íslendinga sem fluttu til Vesturheims á tímabilinu 1870-1914. Júníus vann verkið fyrir Sagnfræðistofnun Háskóla fslands. Andleg sköpun eða samtíningur staðreynda? Ágreiningur hefur verið uppi um hvort verkið falli undir fyrstu grein höfundalaga, þar sem fram kemur að forsenda þess að verk njóti vemdar höfundalaga sé að það teljist til bókmennta eða lista. Samkvæmt þriðju grein laganna hefur höfundur einka- rétt til að gera eintök af verki sínu og til að birta það í upphaflegri mynd eða breyttri, þýðingu og öðmm aðlögunum. í athuga- semdum sem fylgdu fmmvarpi til höfunda- laga er að finna nánari afmörkun á hugtök- unum bókmenntaverk og listaverk. Þar seg- ir m.a. að í verkinu eigi að koma fram „and- leg sköpun, sem sé ný og sjálfstæð, a.m.k. að formi til“. Einnig segir að ekki séu talin til bókmennta „rit, sem aðallega em samtín- ingur staðreynda án sjálfstæðrar úrvinnslu". Höfundur heimasíðunnar hafði samband við ekkju bókarhöfundar og leitaði eftir af- stöðu hennar til notkunar hans á upplýsing- um úr bókinni á heimasíðunni. Hún svaraði því til að honum væri óheimilt að nýta sér upplýsingamar með þessum hætti, þar sem höfundarrétturinn væri hjá henni. Að beiðni ekkjunnar lokaði höfundur heimasíðunnar fyrir aðgang að þeim upplýsingum sem hann hafði þegar sett inn á síðuna. Höfundarrétturinn eign Sagnfræðistofnunar? í kjölfarið leitaði hann álits Hildar Sól- veigar Pétursdóttur hdl., sem komst að þeirri niðurstöðu að ritið Vesturfaraskrá 1870- 1914 gæti ekki talist til bókmenntaverks I skilningi fyrstu greinar höfundalaganna og því væri heimilt að nota upplýsingar úr rit- inu til miðlunar á öðram vettvangi. Til stuðn- ings niðurstöðu sinni vísaði Hildur til þess álits Jóns Torfasonar, sem starfar á Þjóð- skjalasafni íslands, að í bókinni væri ekki að fínna neina sjálfstæða úrvinnslu á efni heldur væri fyrst og fremst um handavinnu að ræða. Síðar hefur Ólafur Ásgeirsson þjóð- skjalavörður reyndar tekið fram að þetta álit Jóns sé einungis persónulegt álit hans en ekki umsögn Þjóðskjalasafns íslands um málið. í framhaldi af þessu leitaði Hálfdan eftir heimild Sagnfræðistofnunar Háskóla íslands til þess að birta upplýsingar úr bókinni á alnetinu. Ástæðu beiðninnar mun vera að rekja til samtala hans við sagnfræðingana Helga Skúla Kjartansson og Guðmund Hálf- dánarson, en hann telur að þar hafí komið fram það álit þeirra að höfímdarréttur að verkinu væri fremur eign Sagnfræðistofnun- ar en erfíngja Júníusar. í kjölfar beiðninnar óskaði Anna Agnarsdóttir, forstöðumaður Sagnfræðistofnunar, eftir því við háskóla- rektor að leitað yrði eftir áliti lögfræðings háskólans á erindi Hálfdans. Árangur sjálfstæðrar andlegrar sköpunar í umsögn lögfræðingsins em leidd rök að því að verk Júníusar H. Kristinssonar sé þess eðlis að það njóti vemdar höfunda- laga, enda sé um að ræða sjálfstæða úr- vinnslu og framsetningu upplýsinga sem krafíst hafí mikillar vinnu og kunnáttu auk þekkingar á viðfangsefninu. Verkið sé árangur sjálfstæðrar andlegrar sköpunar og njóti sem slíkt verndar höfundaréttarreglna. Bent er á að höfundarrétti fylgi einkaréttur til eintakagerðar og birtingar verks sem höfundarréttur nær til. Afritun verka í tölvu- banka og dreifíng þeirra þaðan til almenn- ings teljist til eintakagerðar og feli í sér brot gegn þriðju grein höfundalaga. Brot gegn ákvæðum höfundalaga geti varðað sektum, varðhaldi eða fangelsi, allt að tveim- ur áram og heimildir séu til upptöku eintaka verka sem gerð séu eða birt með þeim hætti að fari í bága við ákvæði laganna. Hyggst ekki ganga í berhögg við vilja ekkjunnar Hálfdan fékk lögfræðiálitið nýlega sent frá Sagnfræðistofnun, sem samkvæmt því getur ekki veitt honum leyfi til birtingar á upplýsingum úr Vesturfaraskrá, þar sem stofnunin hafí einungis staðið að útgáfu rits- ins en höfundarrétturinn sé alfarið hjá ekkju höfundar. Sjálfur kveðst Hálfdan ekki hafa hugsað sér að ganga í berhögg við vilja ekkjunnar, jafnvel þó að sú umsögn sem hann hafí fengið hjá lögfræðingi hafí verið þess eðlis að honum væri birtingin heimil. Hann hyggst því ekki aðhafast frekar I málinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.