Morgunblaðið - 22.05.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 21
NEYTENDUR
Gámasala í
Holtagörðum
Á MORGUN, föstudag, hefst árleg
gámasala hjá Bónus, Rúmfatalag-
ernum og Ikea í Holtagörðum. Salan
hefst á hádegi og stendur síðan fram
á sunnudag. Sem dæmi um verð má
nefna að Bónus verður með einn gám
fullan af fatnaði og kostar hver flík
199 krónur hvort sem um er að ræða
undirfatnað eða gallabuxur. Þá verð-
ur hægt að kaupa búsáhöld, hús-
gögn, ýmis garðáhöld, rúmfatnað og
margt fleira. Bæði er um nýjar og
eldri vörur að ræða sem verða þarna
seldar beint úr gámunum. Ýmislegt
verður um að vera, grillað fyrir við-
skiptavini, margskonar vörukynning-
ar, lifandi tónlist og fleira.
» ♦ ♦
Svartfugls-
eggin komin
FYRSTU svartfuglseggin eru komin
í sölu hjá Hagkaupi í Skeifunni.
Eggin eru tínd í Látrabjargi og er
um þúsund langvíuegg að ræða. Að
sögn Árna Ingvarssonar hjá Hag-
kaupi koma álku-, og stuttnefjuegg
í næstu viku. Til að byrja með fást
eggin einungis í Hagkaupi í Skeif-
unni en á næstu dögum verða þau
fáanleg í öllum Hagkaupsverslunum.
Eggin kosta 99 krónur og Árni seg-
ir að það verð hafi verið á eggjunum
frá árinu 1994.
Tollar á rauðri
og gulri
papriku lækka
í GÆR, miðvikudag, voru
bæði magn-, og verðtollar
lækkaðir á svokallaðri litaðri
papriku.
„í ljósi þess að ekki
hefur verið hægt að
fá nægilegt magn
af innlendri,
rauðri og
gulri pa-
priku að
undanförnu
ákvað ráðu-
neytið að
lækka gjöldin á
litaðri papriku úr
22,5% verðtolli og
298 króna magntolli i 15%
verðtoll og 199 króna magn-
toll,“ segir Ólafur Friðriks-
son, deildarstjóri hjá land-
búnaðarráðuneytinu.
Ólafur segir að það sem
muni fyrst og fremst hafa
áhif á verð litaðrar papriku á
næstunni sé verðþróunin er-
lendis.
„Verðið á gulri papriku
* viðunandi í Evrópu
en rauð paprika er
enn dýr. Menn
gera sér hins
vegar vonir um
að hún lækki á
næstu dögum.“
- Hvað um
íslenska, litaða
papriku?
„Hún er seinna á
ferðinni en í fyrra og er
veðurfari aðallega kennt um.
Menn telja að framboð verði
orðið nægilegt af íslenskri,
litaðrijiapriku í byrjun júní,“
segir Ólafur. Engu að síður
hefur ráðuneytið tekið þá
ákvörðun að þessi tollalækk-
un gildi út júnímánuð.
Norrænu neytendasamtökin
Merking ef erfða-
breyttar lífverur
erunotaðar
„ÞAÐ er sjálfsagður réttur neyt-
enda að ákveða hvort þeir vilji
kaupa matvæli sem framleidd hafa
verið með erfðabreyttum lífverum
að hluta eða að öllu leyti eða sem
innihalda slíkar lífverur.“ Þetta er
ályktun sem samþykkt var á fundi
framkvæmdastjóra norrænu neyt-
endasamtakanna sem haldinn var
um miðjan mánuðinn.
Jóhannes Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna segir að gefin hafi verið út
tilskipun Evrópusambandsins 15.
maí sl. þar sem kveðið er á um
hvernig slík matvæli skuli merkt.
„Tilskipunin er engan veginn nógu
fullnægjandi. Hún er óskýr og þar
er að finna margar undanþágur.
Við óttumst að með henni sé ekki
verið að tryggja neytendum að geta
valið hvort þeir kaupa þessar vörur
eða ekki. Við teljum ástæðu til að
ætla að aðeins lítill hluti verði
merktur."
Jóhannes bendir á að meginmálið
sé að neytandinn hafí val um hvort
hann vill kaupa þessar vörur eða
ekki og það fæst með skýrum merk-
ingum matvæla. Norrænu neyt-
endasamtökin hafa því sett fram
þær kröfur að ríkisstjórnir Norður-
landa vinni að því að tilskipuninni
verði breytt og öll matvæli með
erfðabreyttum lífverum merkt. Far-
ið er fram á að hrávörum með erfða-
breyttum h'fverum verði haldið að-
skildum frá hrávörum framleiddum
á hefðbundinn hátt. Neytendasam-
tökin fara fram á að framleiðendur
og seljendur gangi til samninga við
neytendasamtök í hveiju landi um
merkingu á öllum matvælum þar
sem erfðabreyttar lífverur koma
nálægt. Slíkt samkomulag gildi uns
opinberar reglur eru fullnægjandi.
Baunir og korn
í náttúruvænar
umbúðir
NÝJAR umbúðir eru komnar utan
um þurrkaðar baunir og kornvöru
Heilsuhússins. Um er að ræða nátt-
úruvænar umbúðir úr endurunnum
pappír. Um 20 tegundir af baunum
og 30 tegundir af kornvöru eru
fáanlegar hjá Heilsuhúsinu og er
nú hægt að fá sumar þessara teg-
unda í 2 kílóa pakkningum. Vörurn-
ar eru fáanlega í ýmsum matvöru-
vei-slunum.
- kjarni málsins!
Gróðurvinin
er í Mörkinni
• Ráðleggjum um plöntuval.
• Sendum plöntur hvert á iand sem er.
• Gerum ræktunarsamninga til lengri tíma.
• Auðvelt að semja um hagstæð kjör
ef um stærri kaup er að ræða.
• Góð lausn fyrir fyrirtæki, félagasamtök,
húsfélög og bæjarfélög.
Tré og runnar
LaufltÝ • Sknuilnumitr • ikin liv
• Harðgerðar, stórar og fallegar plöntur
eru aðalsmerki okkar. Þið fáið vel
ræktuð lauftré skrautrunna og barrtré
í miklu úrvali.
• Til eru þrjú veggspjöld með myndum
og upplýsingum um skrautrunna,
lauftré og barrtré
Opnunartímar:
• Virkadagakl.9-21
• Um helgar kl. 9-18
ý GRÓÐRARSTÖÐIN
STJÖRNUGRÖFIS. SÍMISS) 12HH, FAXSSl 222S
m
ö
SíKkið smnarið til okkar
*Skemmtilegt * Hátíðlegt*
*Regnhelt * Auðvelt*
RentaTent
- TjaldaMgan . - . _
Skemmtilegt hj.
^____Krókhálsi 3, s. 58 7 6777_
s
Garpur er kröftugur drykkur sem býr yfir
miklu og hressandi ávaxtabragði og er ríkur
að kalki og C-vítamíni. Uppistaðan er mysa
en í henni eru öll helstu bætiefni mjólkurinnar.
Garpur er góður á íþróttaæfinguna,
í skólann, fjallið, bíltúrinn og bústaðinn.
FÁÐU ÞÉR EINN - DAGLEGA W