Morgunblaðið - 22.05.1997, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Námsmenn mótmæla Kabila í borginni Kisangani
Rætt við Tshisekedi
um stj órnarmyndun
Kinshasa. Reuter.
Spurningalisti SÞ
Tekið á
áreitni og
mismunun
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
SAMEINUÐU þjóðirnar hafa oft
setið undir ámæli fyrir að taka
létt eða illa á kynferðislegri
áreitni. í tilraun til að taka á því
máli hafa samtökin nú sent spurn-
ingalista til 50.000 starfsmanna
sinna þar sem leitað er eftir skoð-
unum þeirra og reynslu af kyn-
ferðislegri, trúarlegri og menn-
ingarlegri áreitni.
Einnig er í spurningalistanum,
sem er 13 síður, spurt um atriði
sem tengjast aldri, kynþætti og
þjóðerni auk þess sem spurt er
um faglega mismunun.
Engin skilgreining er gefin á
orðunum „áreitni" og „mismun-
un“ í listanum, enda vonast höf-
undar hans til að fjölþjóðleg sér-
staða stofnunarinnar komi fram
í svörum starfsfólksins og að það
muni með þeim gefa tóninn fyrir
ný gildi.
YFIRSAKSÓKNARI Tyrklands,
Vural Savas, réðist í gær harka-
lega á ríkisstjóm landsins, sem
flokkur heittrúarmanna, Velferð-
arflokkurinn, fer fyrir. Sagðist
Savas myndu höfða mál fyrir
stjórnlagadómstólnum til að fá
flokkinn bannaðan á þeim forsend-
um að hann stefndi hinni verald-
legu stjórn ríkisins, sem kveðið er
á um í stjórnarskránni, í hættu.
Öll spjót standa nú á ríkisstjórn-
inni, sem hefur verið sökuð um að
halla sér æ meira að samtökum
heittrúarmanna og múslimskum
ríkjum. Þrátt fyrir að langflestir
Tyrkir séu múslimar, er islam ekki
opinber trúarbrögð ríkisins og
stjórn Necmettins Erbakans, leið-
toga Velferðarflokksins, er hin
fyrsta sem heittrúarmenn eiga
sæti í frá því að Tyrkland varð
lýðveldi á fyrrihluta aldarinnar.
Að undanfömu hafa þrír ráð-
Ofbeldi í
kosninga-
baráttunni
Jakarta. Reuter.
OFBELDI hefur sett mark sitt
á kosningabaráttuna fyrir
þingkosningar í Indónesíu, sem
fram fara hinn 29. þessa mán-
aðar. Að mati stjórnmálaskýr-
enda liggur orsök ofbeldisins í
því, að fátækasta fólkið í borg-
um landsins nýti tækifærið til
að tjá óánægju sína með efna-
hag og stjóm landsins.
Stjórn Suhartos forseta leyf-
ir aðeins þremur stjómmála-
flokkum að taka þátt í kosning-
um - stjórnarflokknum Golkar,
Sameinaða framfaraflokknum,
sem byggir á stuðningi músl-
ima, og Lýðræðisflokki Indó-
nesíu, flokki kristinna þjóðem-
issinna. Öryggismálayfirvöld
kenna liðsmönnum vinstrisinn-
aðs stjórnmálaflokks, sem ekki
er leyft að bjóða fram, um að
óeirðirnar síðustu daga.
LAURENT Kabila, sem náði völd-
um í Lýðveldinu Kongó, áður Za-
ire, á laugardag, vann í gær að
því að mynda nýja ríkisstjórn í
landinu. Á sama tíma efndu náms-
menn í borginni Kisangani til mót-
mæla, hinna fyrstu sem beinast
að hinum nýju valdhöfum. Við-
brögð erlendis við valdatöku Ka-
bila hafa einkennst af varkámi og
frönsk stjórnvöld „minntu" Kabila
á að gæta öryggis útlendinga í
landinu eftir að tveir Frakkar voru
myrtir í höfuðborginni Kinshasa í
gær. Gáfu Frakkar í skyn að þeir
kynnu að veita Mobutu Sese Seko,
fyrrverandi forseta, landvist, svo
að hann geti leitað sér lækninga.
Forsetinn fyrrverandi og fjölskylda
hans eru nú í Togo.
herrar samstarfsflokks Erbakans,
Sannleiksstígsins, sagt af sér emb-
ætti vegna ónánægju með stefnu
Velferðarflokksins og á þriðjudag
stóðst hann með naumindum at-
kvæðagreiðslu í tyrkneska þinginu
um vantraust.
Hætta sögð á átökum
Þá hafa yfirmenn hersins látið
í sér heyra, en þeir saka Erbakan
m.a. um að vera hallan undir
stjómvöld í Sýrlandi og írak, sem
herinn fullyrðir að styðji aðskilnað-
arsinna Kúrda. Tyrkneski herinn
hóf fyrir nokkrum dögum herferð
inn í Norður-írak til að ráðast
gegn Kúrdum.
I ákæruskjali saksóknarans seg-
ir að Ijóst sé að svo rammt kveði
að aðgerðum gegn Velferðar-
flokknum að það kunni að leiða til
átaka, og slíkt stefni öryggi ríkis-
ins í voða. Erbakan vísaði í gær
ásökunum saksóknarans á bug.
„EG ER engin hetja en ég er held-
ur ekki hugleysingi," segir Marihisa
Aoki, fyrrverandi sendiherra Japans
í Perú.
Aoki, sem rekinn var úr embætti
í síðustu viku, svaraði gagnrýni fjöl-
miðla í harðorðri grein í blaðinu
„Asahi Shimbun“. Sagði hann að
komið hefði verið fram við sig sem
stríðsglæpamann frá því hann sneri
heim til Japans.
Breyttist í „hættulegan
stríðsfanga"
Aoki þótti standa hetjulegan vörð
um samlanda sína og var hylltur
sem þjóðhetja á meðan á umsátrinu
stóð. Eftir frelsun gíslanna beindist
athyglin hins vegar frá örlögum
þeirra og að aðdraganda atviksins
og féll Aoki þá af stallinum. •
Er Kabila lýsti sig nýjan vald-
hafa og tók upp fyrra nafn Zaire,
lýðveldið Kongó, hét hann því að
skipa ríkisstjóm innan þriggja sól-
arhringa. Enn hefur ekki verið
mynduð stjórn, en fulltrúi Kabila
átti í gær fund leiðtoga stjómar-
andstöðunnar í tíð Mobutus, Éti-
enne Tshisekedi, um myndun ríkis-
stjómar. Ráðgjafi Kabilas í utan-
ríkismálum, Bizima Karaha, sagði
hina nýju valdhafa stefna að
„ósviknu lýðræði" og vísaði á bug
fullyrðingum um að einn einræðis-
herrann hefði tekið við af öðmm.
Morði mótmælt
Yfir 100 námsmenn í Kisangani
efndu í gær til mótmæla vegna
morðs á námsmanni, sem þeir sök-
LIÐSMENN sérsveita svissnesku
lögreglunnar leiða á brott banka-
ræningja sem var yfirbugaður í
borginni Lucerne í gær. Maðurinn
ruddist vopnaður inn í banka,
skaut einn starfsmannanna og tók
tvo gísla. Krafðist hann lausnar-
„Ég var hylltur sem „Samurai-
sendiherra“ á meðan ég var í gísl-
ingu en breyttist í hættulegan
stríðsfanga við heimkomuna til Jap-
ans,“ skrifaði Aoki.
Auk þess sem japanskir fjölmiðl-
ar hafa gagnrýnt framkomu hans
á blaðamannafundi sem haldinn var
eftir lausn gíslanna hefur hann ver-
ið gagnrýndur fyrir að hafa ekki
gengið fram í að semja við mann-
ræningjana um lausn gíslanna.
Aoki sagði hins vegar að sem
gísl hefði hann ekki verið í neinni
aðstöðu til samningaviðræðna og
að það væri ekki hægt að krefja
gísla um annað en að halda lífi.
Eina ásökunin sem hann vísaði
ekki á bug var að hafa boðið til
fagnaðarins, boðið hættunni heim.
uðu menn Kabila um að standa á
bak við. Hrópuðu þeir m.a. „Túts-
ar, farið heim“ að sögn hjálpar-
starfsmanna.
Æ fleiri ríki hafa viðurkennt
valdatöku Kabila, m.a. Kúba. Vest-
urlönd eru hins vegar varkár og
segja forsendur fyrir stuðningi að
lýðræðisumbætur verði tryggðar.
Vangaveltur hafa verið uppi um
hvort Mobutu verði veitt landvist
í Frakklandi, en hann á glæsihýsi
á Rivierunni. Hann þjáist af
krabbameini í blöðruhálskirtli, og
var fyrir skömmu í Frakklandi í
læknisrannsóknum. Geta margir
sér þess til að honum verði veitt
landvist, eftir 1. júní, þegar seinni
umferð frönsku þingkosninganna
er lokið.
fjár, einnar milljónar svissneskra
franka, tæplega fimmtíu milljóna
ísl. kr. ,fyrir fólkið. Er hann hugð-
ist halda á brott, yfirbuguðu lög-
reglumenn manninn og var hann
fluttur fáklæddur, handjárnaður
og með poka yfir höfðinu á brott.
„Uppbyggi-
legur“
fundur um
N-Irland
Belfast. Reuter.
FULLTRÚAR Sinn Fein, stjóm-
málaarms írska lýðveldishersins
(IRA), áttu í gær fund með fulltrúum
bresku stjórnarinnar og sagði Mo
Mowlam, sem fer með málefni Norð-
ur-írlands í stjórninni, að fundurinn
hefði verið „uppbyggilegur". Tekið
var fyrir þátttöku Sinn Fein í viðræð-
um um frið á N-írlandi er IRA rauf
vopnahlé sitt fyrir hálfu öðru ári.
Martin McGuinnes, aðalsamn-
ingamaður Sinn Fein, sem nýlega
var kjörinn á breska þingið, fundaði
með bresku embættismönnunum.
Hann var varkár i yfirlýsingum eftir
fundinn, sagði að þar hefði verið
tæpt á mörgum þeirra atriða sem
hefðu staðið friðarferlinu fyrir þrif-
um en ekki væri enn ljóst hver yrði
niðurstaðan.
Solzhen-
ítsyná
sjúkrahús
RÚSSNESKI rithöfundurinn
Alexander Solzhenítsyn hefur
verið fluttur á sjúkrahús í
Moskvu
vegna
hjartakvilla,
að sögn rit-
ara hans í
gær. „Hon-
um líður vel
og hann
fékk ekki
hjartaáfall,"
sagði ritar-
inn, en vildi ekki skýra nánar
frá veikindum Solzhenítsyns.
Læknar á sjúkrahúsinu sögðu
að „ekkert alvarlegt" amaði
að rithöfundinum, sem er 79
ára og fékk bókmenntaverð-
laun Nóbels 1970.
Nýr flokkur í
Suður-Afríku
ROELF Meyer, sem var lengi
bandamaður F.W. de Klerks,
fyrrverandi forseta Suður-Afr-
íku, kvaðst í gær ætla að
stofna nýjan stjórnmálaflokk
sem yrði til mótvægis við Afr-
íska þjóðarráðið (ANC) og
Þjóðarflokk Klerks. Meyer,
sem gegndi mikilvægu hlut-
verki í samningaviðræðunum
um afnám kynþáttaaðskilnað-
arins, sagði sig úr Þjóðar-
flokknum á laugardag og lét
af þingmennsku vegna deilu
við de Klerk um framtíð flokks-
ins.
Bretar lofa
að eyða jarð-
sprengjum
STJÓRN Verkamannaflokks-
ins í Bretlandi lofaði í gær að
eyðileggja allar jarðsprengjur
breska hersins, sem beint er
gegn hermönnum, ekki síðar
en árið 2005. Stjóm íhalds-
flokksins hafði lofað að eyða
jarðsprengjunum en ekki sett
nein tímamörk.
Farsímar
geta truflað
gangráðina
FARSÍMAR geta truflað
hjartagangráði ef þeir em
geymdir í vösum nálægt gang-
ráðunum, samkvæmt banda-
rískri rannsókn á 980 sjálf-
boðaliðum sem nota tækin.
Þegar símunum er haldið við
eyrun valda þeir hins vegar
ekki hættu á slíkum truflunum,
samkvæmt grein um rann-
sóknina í tímaritinu New Eng-
land Journal of Medicine.
Pólland og
Ukraína
friðmælast
FORSETAR Póllands og Úkra-
ínu undirrituðu í gær sáttayfir-
lýsingu sem þeir sögðu að ætti
að binda enda á þá tortryggni
sem einkepnt hefur samskipti
ríkjanna. Úkralnskir kósakkar,
sem börðust fyrir sjálfstæði
Úkraínu, háðu stríð við Pól-
verja á 17. og 18. öld og dráp
á 34.650 Pólveijum í uppreisn
þjóðernissinna í vesturhluta
Ukraínu á árunum 1942-43
vörpuðu einnig skugga á sam-
skiptin.
Saksóknari vill
banna Velferð-
arflokkinn
Ankara. Reuter.
Bankaræningi
yfirbugaður
Reuter
Fyrrverandi sendiherra Japans í Perú
Kveðst hvorki hug
leysingi né hetja
Tókýó. Reuter
Solzhenítsyn