Morgunblaðið - 22.05.1997, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ1997 33
LISTIR
AÐSENDAR GREINAR
Háskóla-
sagnfræði
BOKMENNTIR
S a g n f r æ ð i
MENNTUN,ÁST OG SORG
Einsögurannsókn á íslensku
sveitasamfélagi 19. og 20. aldar eftir
Sigurd Gylfa Magnússon. 339 bls.
Háskólaútgáfan. Reykjavík, 1997.
EINSÖGU kallar höfundur það
sem á ensku nefnist microhistory.
Aðferð sína kveður hann felast í
því »að rannsaka einstök smáatriði
í lífi hvers manns, en varpa um
leið ljósi á sögu stærri
heiida«. Að viðfangs-
efni hefur hann valið
dagbækur bræðra
tveggja sem voru í
heiminn bornir á seinni
hluta 19. aldar. Hall-
dór og Níels hétu þeir.
Þetta er samt engin
persónusaga. Enn síð-
ur verður þetta flokk-
að undir þjóðlegan
fróðleik. Segir höfund-
ur um rannsókn sína
að hún sé »öll á dýpt-
ina í stað lengdarinn-
ar«. Með því á hann
við - ef .rétt er skilið
- að kafað sé í sálar-
djúp alþýðunnar til að varpa ljósi
á hið huglæga og tilfinningalega í
stað þess að rekja atburðarás eina
saman. Bræðurnir verði þó »algjör-
ar aukapersónur í bókinni«.
Höfundurinn er amerískmennt-
aður og sér þess víða stað í verki
hans. Hann hefur kynnt sér kenn-
ingar erlendra fræðimanna um gildi
bréfa og dagbóka fyrir sagnfræði-
rannsóknir og vitnar óspart til
þeirra, bæði í aðaltexta og neð-
anmáls. Sá er raunar meginstyrkur
ritsins hve kenningum ýmsum eru
gerð þar viðhlítandi skil. Þetta er
háskólasagnfræði fyrst og fremst,
meiri á hæðina en dýptina, kjörið
stuðningsrit fyrir stúdenta sem
velja sér gömul bréf og dagbækur
að rannsóknarefni. Þar að auki
hefur höfundur dregið saman ær-
inn fróðleik um íslensk skóla og
heilbrigðismál á seinni hluta 19.
og fyrri hluta 20. aldar. Þurr er
sá fróðleikur en þarfur þeim sem
skoða vilja. Að baki liggur venjuleg
sögurannsókn hvað sem höfundur
kýs að kalla það, og reyndar ágæt
sem slík. Ályktanir hans ýmsar
bera því hins vegar vitni að hann
miði um of við tíðarandann á líð-
andi stund fremur en fyrri tíma
viðhorf; veitist því stundum erfítt
að setja sig í spor þeirra sem mál-
um réðu í sveitasamfélaginu gamla.
Tregða sveitarstólpa og annarra
ráðamanna andspænis nýjungum
stafaði sjaldnast af íhaldssemi og
þröngsýni, svo dæmi sé tekið, held-
ur af hreinni og beinni fátækt og
hræðslu við að valda
ekki nýfengnu íjárfor-
ræði. Þá telur höfund-
ur að héraðsskólarnir,
sem stofnað var til á
þriðja og fjórða ára-
tugnum, hafi verið
tímaskekkja. Ef horft
er til þess sem síðan
hefur gerst má líta svo
á. En stofnendum
þeirra gafst ekki frem-
ur en öðrum að
skyggnast inn í fram-
tíðina. Héraðsskólarnir
voru mikil fyrirtæki á
sinni tíð þó tími þeirra
sé nú löngu liðinn.
Augljóst er að mikil
vinna liggur á bak við rit þetta,
bæði rannsókn og samantekt. Fram
kemur í inngangi að margir hafi
með einum eða öðrum hætti aðstoð-
að höfundinn við verkefnið. Svið
það, sem ritið spannar, er líka harla
vítt þegar alls er gætt eins og ráða
má af nafna- og hugtakaskrá. Ekki
er heimildaskráin heldur neitt smá-
ræði.
Þar sem gerðar eru strangar
kröfur til rits af þessu tagi hefði
höfundur á stöku stað mátt fara
betur ofan í textann. Það heitir t.d.
að menn séu samrýndir, ekki sam-
rýmdir. Útgangspunktur er ágæt
danska en lakari íslenska. Óhófleg
notkun tískuslettunnar að upplifa
sýnist vera með öllu óþörf. Fleira
mætti lagfæra ef bókin verðut' gef-
in út aftur. Þá hefði höfundur að
skaðlausu mátt stytta texta sinn,
meðal annars með því að forðast
endurtekningar, beinar og óbeinar.
Erlendur Jónsson
Sigurður Gylfi
Magnússon
Sumardjassskóli
á Akureyri
DAGANA 26. maí - 30. maí verðut'
haldið djassnámskeið á Akureyri á
vegum Sumarháskólans á Akureyri
og Sigurðar Flosasonat'. Sigurður
sem er yftrkennari djassdeildar
Tónlistarskóla F.Í.H, verður einnig
faglegur stjórnandi námskeiðsins.
Framkvæmdastjóri er Arna Ýrr
Sigurðardóttir, verkefnisstjóri
Sumarháskólans.
„Námskeiðið verðut' niikið stílað
inn á samspil. Dagskráin hefst á
morgnana með sameiginlegum
morgunverði, síðan tekur við
þriggja tíma samspil. Eftir hádegi
eru tímar í hljómfræði og spuna. í
sérstökum hlustunartímum kynn-
um við tónlist og ýmsar hugmynd-
ir fyrir nemendunum. Einn „master
class“ verður svo haldinn fyrir
hvert hljóðfæri, og farið verður í
skemmtilega ævintýraferð," sagði
Sigurður Flosason í viðtali við
Morgunblaðið.
„Sérkennsla á þessu sviði hefur
þróast á undanförnum árum í
F.Í.H, og stðar á Akureyri. Nent-
endur í tónlistarskólum úti á landi
eiga sjaldnast kost á kennslu á
þessu sviði, og er námskeiðið hugs-
að fyrit' þau, en einnig fyrir full-
ot'ðna sem vilja kynna sér þessi
mál eða auka við færni sína á þessu
sviði,“ sagði Sigurður.
Kennarar á námskeiðinu eru
nokkrir af okkar hæfustu djass-
hljóðfæraleikurutn. Auk Sigurðar
sem er landsþekktur saxófónleik-
ari, verða þat' Einar Scheving
trommuleikari, Hilmar Jensson gít-
arleikari og Jón Rafnsson bassa-
leikari. Jón er jafnframt yfirmaður
alþýðutónlistardeildarinnar við
Tónlistarskólann á Akureyri.
„Þetta námskeið er haldið í mjög
nánu og góðu samstarfi við Tónlist-
arskólann á Akureyri. Við fáum
húsnæði þar, hljóðfæralán, styrk
og alla mögulega fyrirgreiðslu sem
er geysilega gott,“ sagði Sigurður
Flosason.
Kennaratónleikar verða haldnir
miðvikudagskvöldið 28.maí á Poll-
inurn og hefjast þeir kl. 21.00.
Námskeiðið endar einnig tneð nem-
endatónleikum í Deiglunni föstu-
dagskvöldið 30. maí, líklega einnig
kl. 21.00.
ÍSALog
umhverfismál
NÚ FER að líða að gangsetningu
fyrstu keranna í umfangsmikilli
stækkun álversins í Straumsvík.
Eftir stækkun mun framleiðslan
verða 162.000 tonn af áli á ári.
Það er um 60% fram-
leiðsluaukningu í
verksmiðjunni frá því
sem nú er. Undirbún-
ingur þessarar stækk-
unar hefur tekið nokk-
urn tíma, en stækkun-
in er liður í því að
renna styrkari stoðum
undir rekstur ISAL í
framtíðinni. Svo er
einnig um þá ákvörð-
un stjórnenda fyrir-
tækisins að taka upp
markvissa umhverfis-
stjórnun. Nú um miðj-
an mars var stigið
stórt skref í umhverf-
ismálum ISAL er gerð
var úttekt á umhverfisstjórnunar-
ket'fi fyrirtækisins, úttekt sem er
hliðstæð þeirri sem gerð var á
gæðastjórnunarkerfinu 1992.
Svissneska vottunarfyrirtækið SQS
(Swiss Association for Quality and
Management Systems) annaðist
úttektina, en SQS er viðurkenndur
og virtut' aðili á þessu sviði. Úttekt-
in staðfestir að umhverfisstjórnun
hjá ISAL er að öllu leyti í samræmi
við kröfur alþjóðastaðalsins ISO
14001. ISO 14001 er staðall um
umhverfisstjórnunarkerfi, sem var
gefinn út af Alþjóðlegu staðlasam-
tökunum í september 1996 og stað-
festur af Staðlaráði Islands 1. mars
1997. Það er ánægjulegt að ISAL
skuli hafa orðið fyrst fyrirtækja til
að ná þessum árangri hér á landi
og vera þannig í fararbroddi á vett-
vangi umhverfismála á íslandi.
Að fenginni reynslu af gæða-
stjórnunarkerfinu samkvæmt ISO
9002 staðlinum, var tekin sú
ákvörðun að koma á umhverfis-
stjórnunarkerfi samkvæmt kröfum
ISO 14001 staðalsins. ISO 14001
staðallinn um stjórnun umhverfis-
mála er gott verkfæri til að reka
skilvirkt umhverfisstjórnunarkerfi
enda mikil reynsla innan fyrir-
tækisins af því að koma á og við-
halda hliðstæðu stjórnkerfi, þar
sem unnið hefur verið samkvæmt
gæðastjórnunarkerfi í nokkur ár.
Umhverfisstjórnunarkerfið nær til
alls fyrirtækisins og er samofið
gæðastjórnunarkerfinu. Þannig er
tekið kerfisbundið á tveimur af
mikilvægustu þáttum í rekstri fyr-
irtækisins, gæðum framleiðslunnar
og umhverfismálum.
Fyrirtækið hefur sett sér mark-
mið á sviði umhvet'fismála og eru
þau hluti af stefnu þess. Um-
hverfisstjórnunarkerfið veitir þær
upplýsingar og leggur til þau tæki
sent þarf til þess að við getum
unnið markvisst að því að bæta
árangur okkar í umhverfismálum.
Helstu markmiðin eru:
• Að lágmaka röskun á jafnvægi
í vistkerfinu með þeim efnum og
orku sent verksmiðjan þarfnast
eða skilar frá sér.
• Bætt nýting og aukin endurnýt-
ing með hringrásum, þar sem
það er hægt.
• Að haga starfseminni í samrænti
við gildandi lög og reglur um
umhverfismál.
• Að auka áhuga starfsmanna,
birgja og almennings á umhverf-
ismálum.
• Að farga óhjákvæmilegum úr-
gangi, þannig að hann valdi sem
minnstum umhverfisspjöl 1 um.
Umhverfisstjórnun auðveldar
stjórnendum yfirsýn yfir um-
hverfismálin með kerfísbundinni
rýni:
• Á því hvaða efna verksmiðjan
þarfnast (inntak).
•Á því hvaða efnum verksmiðjan
skilar frá sér (úttak).
• Tengsla inntaks og úttaks við
ákveðna starfsemi og ákveðin
umhverfisáhrif.
• Krafna sem gerðar
eru til fyrirtækisins.
Kröfurnar geta komið
fram í lögum og reglu-
gerðum ásamt þeim
stöðlum eða samning-
um sem ISAL hefur
skuldbundist.
Við nýtum okkur
tölvutæknina og var
sérstakur gagna-
grunnur hannaður til
að miðla þessum upp-
lýsingum til viðkom-
andi aðila innan fyrir-
tækisins. Það skal tek-
ið fram að slíkar mæl-
ingar og skráningar,
eru ekki nýlunda hjá
ISAL. Allt frá upphafi starfseminn-
ar hefur verið starfrækt umhverfi-
seftirlit hjá fyrirtækinu þar sem
fylgst hefur verið með mikilvæg-
ustu atriðum, svo sem útsleppi frá
Mikið starf hefur á und-
anförnum árum verið
unnið í umhverfismálum
hjá ÍSAL, sefflr Rann-
veig Rist. Frárennslis-
mál verksmiðjunnar
hafa verið endurbætt
og er holræsalögn frá
verksmiðjunni út fyrir
stórstraumsfjöruborð.
verksmiðjunni, og niðurstöður
skráðar. Fella þurfti þennan þátt
að umhverfisstjórnunarkerfinu.
Upplýsingar úr gagnagrunninum
eru aðgengilegar þeint starfsmönn-
um sent þurfa að nýta sér þær og
auðvelda skipulagningu einstakra
þátta starfseminnar. Með því að
rýna í niðurstöður mælinga er grip-
ið til úrbóta ef með þarf. Upplýs-
ingar úr umhverfisstjórnkerfinu
eru innlegg í ákvarðanatöku stjórn-
enda um frekari aðgerðir í unt-
hverfismálum.
Mikið starf hefur á undanförnum
árum verið unnið í umhverfismálum
hjá ISAL. Ft'árennslismál verk-
smiðjunnar hafa verið endurbætt
og er nú holræsalögn frá vet'ksmiðj-
unni út fyrir stórstraumsfjöruborð.
Þegar unnið er að mengunar-
vörnum reka menn sig oft á það,
að við það að ná tökum á einum
mengunarvaldi verður til annar.
Hávaðantengun frá verksntiðjunni
er nú aðallega frá þurrhreinsistöðv-
unum sem eru til þess að hreinsa
reykinn frá kerunum. Hávaðinn frá
súrálslöndunarbúnaðinum er vegna
blásara sent er til þess að koma í
veg fyrit' rykntengun vegna súráls.
Nýverið var settur upp nýr hljóð-
deyfir á löndunarblásarann. Hljóð-
deyftt'inn, sern smíðaður var hér-
lendis, er verulega til bóta og
mælist hávaði nú til rnuna minni
en áður. Töluverður árangur hefur
náðst í að draga úr útblæstri frá
verksmiðjunni. I samvinnu við opin-
bera aðila hafa ntælingar verið
gerðar frá því áður en vet'ksmiðjan
hóf starfsemi sína og sýna niður-
stöður síðastliðinna ára að
mengunaráht'if álversins á gróður
eru orðin það lítil að niðurstöðurn-
ar, eins og sést á meðfylgjandi línu-
riti, eru áþekkar þeim sem mæld-
ust áður en álverið hóf starfsemi
Rannveig
Rist
sína. Sögu mengunarvarna má lesa
út úr línuritinu.
Fjárfestingar í mengunarvarnar-
búnaði hafa verið umtalsverðar og
má nefna að vélknúnar felliþekjur
voru settar á kerin. Þær og búnað-
ur þeim tengdur kostaði tvöfalt á
við nýjan frystitogara sent keyptur
var til landsins á svipuðum tíma.
Ástand umhverfismála í heimin-
um heldut' áfram að versna þrátt
fyrir viðleitni í átt til úrbóta og
vitað er að auðlindir jarðar eru
takmarkaðar. Þess vegna telja
stjórnendur ISAL að umhverfismál
séu meðal forgangsmála í rekstri
fyrirtækisins. Það er keppikefli
ISAL að ganga á undan nteð góðu
fordæmi hvað umhverftsmálin
varðar. Það er mikilvægt öllum
þeim sem stunda stóriðjurekstur
að missa aidrei sjónar á mikilvægi
umhverfismála.
Öryggi starfsmanna er ekki síð-
ur miklvægt atriði í rekstri ISAL.
Á vegum alþjóðlegu staðlastofn-
unat'innar er í undirbúningi staðall
um öryggismál. Við munum fylgj-
ast vel með þeirt'i þróun og leitast
við að innieiða kröfur þess staðals
í okkar gæða- og umhverfisstjórn-
unarkerfi þegar þær liggja fyrir.
Með því að vinna samkvæmt slíku
stjórnkerfi et' skipulega fylgt regl-
um unt þá þætti sem skipta okkur
öll mestu máli. Öryggismál, sem
tengjast öllum starfsmönnum
beint, umhverfismál, sent tengjast
vilja okkar til að lifa og starfa í
sátt við náttúruna og gæðamál,
sem tengjast viðskiptavinum okkar,
stöðu okkat' á heimsmarkaði og
afkomumöguleikum.
Ef litið er á þróunina á stöðlum
og stjórnkerfum sem þeint tengj-
ast, er ljóst að fleiri atriði sem
hafa verið á starfssviði opinberra
aðila eru að falla inn í alþjóðlega
staðla. Fyrir nokkrum áratugum
var t.d. gæðamat útflutningsvara
meira og minna á ábyrgð opinberra
aðila. Fyrst komu gæðamálin á
staðlaformi, síðan umhverfismálin
og nú eru öryggismálin í undirbún-
ingi. Ef horft er fram á veginn er
ekki óhugsandi að ýmis félagsleg
málefni þróist á hliðstæðan liátt í
hinu alþjóðlega viðskiptaumhverfi
og þau mál sem tengjast vilja okk-
ar til að lifa og starfa í sátt við
hvert annað.
Liður í umhverfisstjórnun hjá
ISAL er að koma upplýsingum til
almennings, því verður „Opið hús
í Straumsvík" sunnudaginn 25.
maí, frá kl. 10 til 17. Þetta er ein-
stakt tækifæri fyrir þá sem áhuga
hafa - sérstaklega börn - til að
skoða nýja kerskálann sem gang-
settur verður í júlí. Þar sem í álver-
inu er unnið með fljótandi málm -
ál - er umhverfið hættulegt fyrir
börn og munurn við því aka með
fólk í strætisvögnum í gegnum
aðra hluta verksmiðjunnar, þannig
fá allir tækifæri til að sjá sem
mest af verksmiðjunni og fræðast
um starfsemina í Straumsvík, en
jafnframt er leitast við að gæta
fyllsta öryggis.
Höfundur er forstjóri Islenska
álfélagsins hf.
*Skemmtilegt * Hátiðlegt *
* Regnhelt * Auðvelt *
Tjaldaleigan
bkemmtilegt hj.
Krókhálsi 3, s. 587 6777