Morgunblaðið - 22.05.1997, Side 51

Morgunblaðið - 22.05.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐUR HALLDÓR GÍSLASON + Sigurður Hall- dór Gíslason fæddist á Hóli í Ól- afsfirði 25. desem- ber 1923. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 13. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Digraneskirkju 21. maí. Með nokkrum orðum langar mig að kveðja Sigurð Gíslason og varpa litlu ljósi á ævi- skeið hans. Það er höggvið stórt skarð, þegar kvaddur er maður eins og Sigurður, maður af þeirri kynslóð sem man tímanna tvenna, alinn upp í torfbæ í sveitinni, mikið náttúrubarn og stórkostlegur persónuleiki. Siggi fæddist að Hóli í Ólafsfírði, á jóladag árið 1923, þriðja barn foreldra sinna, sem höfðu þá nýlega bytjað búskap á þeim bæ og var íbúðarhúsið torfbær. Ekki hefur verið auðvelt að eiga til hnífs og skeiðar á þeim tíma, enda þurfti faðir hans að stunda sjóinn með búskapnum til að byrja með. Barnahópurinn varð stór, eins og algengt var á þeim tíma, alls urðu börnin 11, tvö dóu ung úr kíghósta, 9 komust á legg, fjórir bræður og fimm systur, en ein systranna bjó hjá föðurforeldrum. Bræðurnir voru ekki gamlir þegar þeir fóru á sjóinn eða í aðra fiskvinnu og þá gjarnan systurnar líka, til að leggja björg í bú og lét Siggi ekki sitt eftir liggja í því, hann bytjaði sjó- mennskuna ungur með móðurbróður sínum, sem var þá skipstjóri á síldarbát, sem gerður var út frá Sigluftrði. Ári 1942 flutti fjöl- skyldan í nýtt íbúðar- hús, sem stendur enn á jörðinni, snoturt stein- hús, sem hefur aldeilis verið mikil upplyfting og tilvistarbreyting fyrir fjölskyld- una að flytja í úr torfbænum, en Siggi tók ekki síst þátt í að koma upp nýja húsinu. Siggi sýndi bú- skapnum einnig mikinn áhuga, enda var hann sá sem tók við búi for- eldra sinna. Siggi kynntist Fjólu, eiginkonu sinni, árið 1955, þegar leið hans lá í Kópavoginn, þar sem hann hafði ráðið sig í vinnu við frystihús þar í bæ. Bytjuðu þau búskap í foreldra- húsum Pjólu, Dvöl við Hlíðarveg, en fluttu síðan á Hlíðarveg 55 og bjuggu þar, þangað til þau ákváðu að taka við búi foreldra Sigga, norð- ur í Ólafsftrði, en meðan þau bjuggu á Hlíðarveginum, stundaði hann sjó- mennsku, en vann seinna í mörg ár í Vibró, verksmiðju í Kópavoginum sem framleiðir einangrunarplast og einnig við múrarastörf. MINNINGAR Árið 1965 ákváðu Fjóia og Siggi að flytja til Ólafsfjarðar með börnin sín fjögur, við tóku sveitastörfin. Ég átti því láni að fagna að fá að dvelja hjá þeim í sveitinni um tíma sem unglingur, það er mér ógleym- anlegur tími. Ekki leyndi sér bónd- inn í Sigga, atorkan óendanleg og hafði við hlið sér Fjólu sína, sem vann bústörfm af einstakri prýði. Yfirleitt vaknaði maður á morgnana við bökunarilminn úr eldhúsinu, því á þeim bæ bytjaði dagurinn snemma. Sveitastörfin kölluðu og komst unglingurinn ekki upp með að slá slöku við. „Drífa í því“ voru orð Sigga, þegar honum fannst verkið unnið með hangandi hendi, eða þegar laumast var upp að suð- urvegg til að sleikja sólskinið. Já, fyrir ómótaðan ungling var góð kennslustund að vinna undir leið- sögn Sigga, hann kunni svo'vel að vera vinur manns og jafningi, alltaf svo skilningsríkur. Búskaparár þeirra hjóna í sveit- inni urðu ekki mörg og vegna slæmra skilyrða lá leið þeirra aftur í Kópavoginn, eftir u.þ.b. fjögurra ára búsetu á Hóli. Nokkrum árum seinna festu þau kaup á húsinu Dvöl við Hlíðarveg, sem var eign foreldra Fjólu. Fylgdi því húsi mikill skógur, sem foreldrar hennar höfðu ræktað. Siggi hóf störf í Straumsvík og vann þar, þar til hann komst á eftirlaunaaldur. Hann sagði eitt sinn við mig: „Ekki er ástæða til þess að kvíða því að komast á eftirlaunaaldur, því það er yndislegur tími.“ Siggi var alltaf mjög heimakær og naut þess sér- staklega að fá bamabömin í heim- sókn og fá að fylgjast með þeim vaxa úr grasi. Hann fylgdist vel + Vilborg Sveins- dóttir var fædd á Bakka í Borgar- firði eystra 5. októ- ber 1918. Hún Iést í Reykjavík 2. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Magnea Stefáns- dóttir frá Sænautas- eli á Jökuldalsheiði, f. 11.5. 1894, d. 8.10. 1968, og Sveinn Gíslason sjómaður frá Hofströnd, f. 1.1. 1872, d. 4.1. 1926. Systkini Vilborgar voru: 1) Magnús, dó í bernsku. 2) Gísli, f. 20.1.1909, d. 6.3.1951. 3) Sesselja, f. 9.5. 1911. 4) Sig- urborg, f. 26.11. 1912, d. 26.4. 1986. 5) Una Guðlaug, f. 23.8. 1914. 6) Þórhallur, f. 22.3. 1916, Ég kveð vinkonu mína Villu. Margs er að minnast. Lífið lék ekki við hana í æsku. Hún var ung þeg- ar hún missti föður sinn og mamma hennar varð ekkja á Bakka í Borg- arfirði eystra, með sjö börn. Það varð að taka upp heimilið og hópur- inn tvístraðist. Vilborg fór ásamt Boggu systur sinni og Halla bróður að Hofströnd til föðurbróður síns. Þar tengdist hún föðursystur sinni Halldóru Sigfúsdóttur tryggða- böndum, sem aldrei rofnuðu og var Halldóra henni alla tíð eins og besta systir, sem fjölskyldan virti mikils. Föðurmissirinn var sár og upp kom beiskja og Vilborg gat ekki sætt sig við hlutskipti sitt. Hún strauk í örvæntingu sinni frá Hofströnd, berandi Halla bróður sinn, sem var Iamaður, heim til mömmu. Hún varð að snúa aftur. Þannig var líf- ið. „Hlýða skaltu, heillin góð.“ Vilborg gekk í Húsmæðraskóla á Staðarfelli í Dölum. Sú menntun, er hún hlaut þar, kom henni til góða er hún gerðist húsmóðir á Brandagili í Hrútafirði. Þangað fluttist hún með dóttur sína Sig- fríði fjöurra ára gamla árið 1954. Vilborg bjó þar ásamt sambýlis- manni sínum Sigmundi Sigur- björnssyni og þau eignuðust dóttur- ina Maríu. Árið 1963 var Vilborg d. 25.12. 1995. 7) Berta Magna, f. 3.3. 1923. 8) Sigríður Þórlaug, f. 1.9.1924. Börn Vilborgar eru: 1) Sigfríður Védís Ásbjörnsdótt- ir kennari, f. 28.04. 1950, maki Kristinn Jónsson stýrimaður, f. 21.1. 1953, d. 26.10. 1995. Börn þeirra: Jón Gunnar, f. 3.1. 1974, Svavar Knútur, f. 21.1. 1976, og Vilmundur Torfi, f. 27.6. 1990. 2) María Aðalheiður Sigmunds- dóttir landfræðingur, f. 3.10. 1958, maki Gianpiero Venditto, f. 29.6. 1954. Utför Vilborgar fór fram frá Háteigskirkju 9. maí. orðin of heilsulitil til að búa í sveit. Stofnað var heimili í Lönguhlíð 19 hér í borg. Þar komu þau dætrunum til mennta og bjuggu þar, þar til Sigmundur lést árið 1990. Vilborg bjó síðan í Lönguhlíðinni meðan heilsa og kraftar leyfðu. Hjá Sigfríði og Kristni tengdasyni sínum átti Vilborg ljúfar stundir og naut samvista við barnabömin. Þau fluttust til Flateyrar 1994, þar sem Sigfríður var kennari við grunnskól- ann. Vilborg dvaldi á öldrunarheim- ilinu Sólborg á Flateyri, þar sem hún fékk sérlega góða umönnun og gat notið samvista við fjölskylduna í fríum. En svo reið aldan yftr og snjóflóðið á Flateyri tók ástkæran tengdason. Vilborg kom suður og dvaldi í Hátúni lOa, en þar naut hún ómetanlegrar umhyggju starfs- fólks sem dætumar fá seint full- þakkað. Sumir sem eiga um sárt að binda eftir snjóflóðið hafa líkt því við Persaflóastríðið og sagt að hlutimir hafi gerst í beinni útsend- ingu. Þrátt fyrir það er mér þó einn atburður minnisstæðari en aðrir. Það var þegar ég heimsótti Vilborgu í Hátúnið og við skruppum til Sig- fríðar. Þar var fjöldi fólks saman kominn. Kemur Vilmundur litli sól- argeislinn hennar ömmu sinnar hlaupandi, grípur utan um ömmu og hrópar: „Amma, amma, þú dóst ekki í snjóflóðinu." Enginn hafði haft hugsun á að segja honum hvar amma var. Seinna um veturinn, þegar Sigfríður og Villi litli vom farin aftur í Önundaríjörðinn, þar sem hún lauk kennslu það árið, sagði Vilborg mér að hún væri áhyggjufull og teldi dagana þar til þau kæmu aftur suður. Ég kveð Vilborgu að sinni. Guð blessi minn- ingu hennar. Nú ertu laus úr líkamstötrum, létt er sárum þungum Qötrum. Nýir geislar ná til þín. Um leiðir þínar ljósið streymi, og lýsi þér í nýjum heimi. Vertu blessuð, Vilborg mín. (Kristján Ámason.) Þín vinkona, Marín Guðveigsdóttir. í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar eigum við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. SKEMMUVEGI 48, 200 KOP., SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410 VILBORG SVEINSDÓTTIR FIMMTUDAGUR 22. MAÍ1997 51 með heimsmálunum og hafði sterk- ar skoðanir í pólitík og var alltaf tryggur sínum flokki. I frístundum eyddi hann ófáum stundum í að hlúa að garðinum, enda áttu útistörfín vel við hann, minntu hann sjálfsagt á sveitina og hann naut þess að fylgjast með fuglalíftnu í garðinum og ekki naut hann síst vorsins, sem var hans uppáhalds árstími, núna í vor var hann búinn að snyrta rifsbetjatrén sín, sem var alltaf hluti af hans fyrstu vorverkum og eyddi hann í það síðustu kröftum sínum, áður en sjúkdómurinn tók yfirhöndina, en Fjóla og bömin sáu til þess að Sigga liði eins vel og hugsast gæti, alveg fram í andlátið, með aðstoð yndis- legs hjúkrunarfólks frá heimahlynn- ingu Krabbameinsfélagsins, en það var einmitt í hans anda að skilja við á heimili sínu. Ég og fjölskylda mín vottum Fjólu og öðrum aðstandendum dýpstu samúð. Ingunn Hauksdóttir. í dag kveðjum við vin okkar og heiðursmann, Sigurð Gíslason. Það var alltaf eitthvað sérstakt við að heimsækja heiðurhjónin Fjólu Bjarnadóttur og Sigurð Gíslason í Dvöl, það minnti mig á ftjálsræðið í sveitinni. Þegar gengið var út úr bílnum, flugu fuglarnir á grasblett- inum í snjónum, það var búið að gefa þeim ætið sitt. Það þurfti ekki alltaf að banka á dyrnar, því yngstu barnabörnin skriðu út um dyrnar við fætur afa og ömmu og fylgdust með fuglunum. Sigurður var mikill fjölskyldu- maður, það var fágætt að horfa upp á jafn samrýnda íjölskyldu og fjöl- skylduna í Dvöl. Það er hollt vega- nesti bömum og barnabömum að sitja við þann heimilisarin, eins og hjá þeim heiðurshjónum. Gott var til Sigurðar að leita og gaman heim að sækja, enda gest- risni þeirra hjóna rómuð. Sigurður var fæddur í Ólafsfirði og ólst upp með stórri fjölskyldu. Hann átti því láni að fagna að eignast góða eigin- konu og era börn þeirra fjögur. Sigurður átti mjög sterkar taugar til Ólafsijarðar. Þegar leið að sum- arfríi hans var tilhlökkun að fara að Hóli í fjallaloftið og náttúrafeg- urðina, tæra ána með spriklandi sil- unga og beijalautum góðum, þar þekkti hann hvern hól. Sigurður og Fjóla vora búendur á Hóli í nokkur ár. Þá kynntust bömin þeirra aldeil- is sveitinni og sveitalífinu. Þau fluttu aftur í Kópavog. Lengst vann Sigurður í Straumsvík. Hann var samviskusamur, áræðan- legur og sérlega glöggur á alla hluti. Síðast þegar ég sá Sigurð á fótum á góðvirðisdegi, stóð hann með skæri við trén og var að huga hve mikið þyrfti að klippa, Fjóla kom og aðstoðaði bónda sinn. Snyrti- mennskan í Dvöl, úti og inni, kom ekki af sjálfu sér. Gleðin fólst í því að hafa alla hluti í lagi. Þegar liðið var að lokum, skrifuðu bamabörnin bréf til afa, hann átti að varðveita þau í vasanum í kist- unni. Að eiga góðar minningar er mikill fjársjóður. Þessum góða vini okkar óskum við Guðs blessunar. Ég votta fjölskyldu hans innilega samúð. Hólmfríður Bjarnadóttir. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og bróðir, ÓSKAR KRISTJÁNSSON lögreglumaður, Lækjarási 14, Reykjavík, sem lést á heimili sínu 17. maí, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 26. maí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega Krabbmeinsfélags íslands. Emilía Björg Möller, Arna Óskarsdóttir, Anna Margrét Óskarsdóttir, Valdemar Haukur Hilmarsson, Emilía Björg Óskarsdóttir, Guðmundur Sveinn Krístjánsson, Sóley Gróa Einarsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURÐUR GUTTORMSSON fyrrverandi bílstjórí, Mánagötu 25, Reyðarfirði, lést á Sjúkrahúsi Neskaupstaðar að morgni þriðjudagsins 20. maí. Helga Sveinsdóttir, Guðlaugur S. Sigurðsson, Anna Þ. Sigurðardóttir, Hulda B. Sigurðardóttir, Guðmundur Ágúst Pétursson, Arndís Sigurðardóttir, Vilberg Einarsson, Guttormur Sigurðsson, Laufey Brekkan, barnabörn og barnabarnabörn. KATRÍN JÚLfUSDÓTTIR frá Húsavik, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugar- daginn 24. maí kl. 14.00. Júlíus Stefánsson, Pétur Stefánsson, Katrín Júlíusdóttir, Sigríður Ingólfsdóttir, Lúðvfk Júllusson, Stefán Júlfusson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.