Morgunblaðið - 22.05.1997, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 22.05.1997, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 55 FRÉTTIR Héraðsdómur Reykjavíkur í máli þrotabús gegn Islandsbanka Banka óheimilt að skulda- : jafna af reikningi þrotabús ÍSLANDSBANKA var óheimilt að skuldajafna af gjaldeyrisreikningum þrotabús vegna skuld- ar búsins við bankann, samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Héraðsdómur sagði, að innstæðan hefði verið eign þrotabúsins sem hafi mátt ráðstafa henni að vild. Því yrði ekki talið að bankinn skuldaði þrotabúinu fé það sem var á reikningunum og því hefðu ekki verið i forsendur til skuldajöfnunar. Málavextir voru þeir, að bú íslensks berg- vatns hf. var tekið til gjaldþrotaskipta í janúar 1 árið 1994. Þá átti þrotabúið innstæður á þrem- ur reikningum í íslandsbanka, um 145 þúsund krónur á sparisjóðsbók og samtals 288 þúsund krónur á tveimur gjaldeyrisreikningum. ís- landsbanki lýsti tæplega 28 milljóna kröfu í þrotabúið og lýsti jafnframt yfir skuldajöfnuði á innistæðum þrotabúsins og hinni lýstu kröfu. Skiptastjóri þrotabúsins féllst á að innstæða á sparisjóðsbók færi til skuldajöfnuðar, en krafð- ist þess að bankinn greiddi þrotabúinu innistæð- ur á gjaldeyrisreikingunum. Bankanum gert að endurgreiða 288 þúsund krónur auk dráttarvaxta o g málskostnaðar íslandsbanki taldi skuldajöfnuð heimilan samkvæmt gjaldþrotalögum og sagði viður- kennd sjónarmið í norrænum rétti að við gjald- þrot viðskiptamanna sinna væri innlánsstofnun- um heimill skuldajöfnuður við innstæður á al- mennum viðskiptareikningum þeirra, svo fremi ráðstöfunarheimildir reikningseiganda sjálfs væru ekki háðar takmörkunum, annað hvort samkvæmt samningi hans við þriðja mann eða samkvæmt lagaboði. Héraðsdómur vísaði til þess, að samkvæmt gjaldþrotalögum gæti hver sá, sem skuldaði þrotabúi, dregið það frá, sem hann ætti hjá því, hvernig sem skuld og gagnkröfu væri varið, en innstæðan hafi verið eign þrotabús- ins og yrði ekki talið að bankinn hefði skuldað þrotabúinu hana. „Óumdeilt er í máli þessu að enginn samn- ingur var í gildi milli aðila um tryggingu stefnda [íslandsbanka] í innistæðum á gjald- eyrisreikningunum fyrir skuldum stefnanda [þrotabúsins] við stefnda," sagði Héraðsdóm- ur. Þar sem skuldajöfnuður yrði hvorki reistur á samningi aðila né ákvæðum laga um við- skiptabanka og sparisjóði yrði ekki talið að málið væri þannig vaxið að túlka bæri lög um gjaldþrotaskipti þannig, að réttur til skulda- jafnaðar hafi orðið til við gjaldþrotið. íslandsbanki var dæmdur til að greiða þrota- búinu rúmar 288 þúsund krónur, auk dráttar- vaxta frá júní 1994, auk þess að greiða þrotabúinu 120 þúsund krónur í málskostnað. Firma- keppni TR og Hellis í hraðskák TAFLFÉLAGIÐ Hellir og Taflfélag Reykjavíkur standa í sameiningu fyrir Firma- keppni í hraðskák 1997. Keppnin hefst í húsnæði T.R. í kvöld, fimmtudaginn 22. maí. Mótið verður til skiptis á hvorum keppnisstað sem hér segir: Fimmtudagur 22. maí T.R., þriðjudagur 27. mai Hellir, fimmtudaginn 29. maí T.R. og mánudagur 2. júní Hellir. Mótinu verður framhaldið á fimmtudögum í T.R. og á mánudögum í Helli. Keppnin hefst ávallt kl. 20. Félags- heimili T.R. er að Faxafeni 12 og félagsheimili Hellis er að Þönglabakka 1, Mjódd- inni. Mótið er öllum opið. Veitt verða verðlaun fyrir besta samanlagða árangur. SKÓGARBÆR, hið nýja hjúkrunarheimili aldraðra í Suður-Mjódd, PP Þrír með föls- uð vegabréf ÞRÍR einstaklingar af austur- lensku bergi brotnir voru stöðvað- ir í flugstöð Leifs Eiríkssonar um miðjan dag á sunnudag og lagt hald á vegabréf þeirra þar sem þau voru talin fölsuð. Fólkið hafði komið hingað til lands með vél Flugleiða frá Danmörku og ætlaði að halda áfram för til Bandaríkj- anna samdægurs. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli voru það árvökulir starfsmenn Flugleiða sem töldu eitthvað grun- samlegt við vegabréf fólksins, en bréfin voru frá Japan og Hol- landi. Fólkið var í vörslu lögreglu til næsta morguns, þegar það var sent aftur til Danmerkur þar sem lögregla tók á móti þeim. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa nokkur önnur sam- bærileg tilvik komið upp á flug- vellinum í vetur, en samkvæmt bandarískum lögum eru þau flug- félög sektuð sem flytja einstakl- inga með fölsuð vegabréf eða án vegabréfa. Það er því talsvert mikið í húfi fyrir fyrirtækin að flytja ekki ein- staklinga til Bandaríkjanna sem svo er háttað um. Algengt er að þeir einstaklingar sem reyna að komast til Banda- ríkjanna með þessum hætti fargi vegabréfum sínum í flugvélinni á leið til Bandaríkjanna, en vega- bréfslausir ferðalangar eru vistað- ir í sérstökum búðum ytra sem þeir telja nægjanlegt til að reyna að fá frekari inngöngu og landvist þar. Vígsla nýs hj úkrunarheimilis Mikil óánægja fréttamanna RÚV með starfskjör Fréttamenn að örmagn- ast vegna vinnuálags FYRSTI áfangi hjúkrunarheimil- isins Skógarbæjar að Arskógum 2 í Suður-Mjódd hefur verið tek- inn í notkun. Reykjavíkurborg og Reykja- víkurdeild Rauða kross íslands standa sameiginlega að bygg- ingu þessa hjúkrunarheimilis fyrir aldraða. Sjálfseignarstofn- un mun standa að rekstri heimil- isins og stofnaðilar að henni eru, auk Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurdeildar Rauða kross- ins, Verkamannafélagið Dags- brún, Kvennadeild Reykjavíkur- deildar Rauða kross íslands, Starfsmannafélagið Sókn og Verkakvennafélagið Framsókn. MIKIL óánægja er meðal frétta- manna á fréttastofum Ríkisút- varpsins með starfskjör sín og í ályktun aðalfundar Félags frétta- manna sem nýlega var haldinn kemur fram að reyndir fréttamenn séu að örmagnast vegna vinnu- álags sem m.a. sé afleiðing af lág- um launum. I ályktuninni sem send hefur verið útvarpsráði, útvarpsstjóra, framkvæmdastjórum og frétta- stjórum RÚV, segir m.a. að borið hafi á því að undanförnu að reynd- ir fréttamenn á fréttastofum RÚV hafi sagt upp og farið í önnur störf. „FF lýsir áhyggjum sínum vegna þessa og fullyrðir að blóð- takan lýsi fyrst og fremst því að reyndir fréttamenn sem hafa haft metnað fyrir hönd RÚV um langt árabil og haldið tryggð við stofnun- ina hafi nú fengið sig fullsadda af tómlæti og sinnuleysi yfirstjórn- ar RÚV varðandi starfskjör sín,“ segir í ályktuninni. Þá segir að fréttamenn RÚV hafi ekki orðið varir við mikinn Viðræður í gangi um kaup og sam- skiptamál innan útvarpsins stuðning yfirstjórnar RÚV árum saman. Stundum hafi hún jafnvel reynst þeim harðdræg t.d. varðandi launuð og ólaunuð leyfi frétta- manna, að ekki sé minnst á óskir þeirra um kjarabætur sem þrátt fyrir allt séu á valdi yfirstjórnar RÚV. Ekki sama frelsi í kaupgreiðslum Pétur Guðfinnsson útvarpsstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að af hálfu stjórnenda RÚV yrðu í sjálfu sér ekki nein viðbrögð við ályktun Félags fréttamanna þar sem í gangi væru samningaviðræð- ur milli FF annars vegar og samn- inganefndar ríkisins hins vegar, um nýtt launakerfi, eins og reynd- ar hefði verið boðið fleiri ríkis- starfsmönnum. „Hins vegar er líka í gangi við- ræðunefnd innan Ríkisútvarpsins til þess að fjalla um önnur mál varðandi samskiptin. Það er nefnd sem myndi svo fara í það að laga nýjan samning ef hann yrði sam- þykktur af Félagi fréttamanna og raða mönnum í þá nýju flokka og þau nýju hólf sem þar kæmu. Þetta er því hvort tveggja í gangi og heldur áfram, og vonandi skilar það árangri áður en langt um líð- ur,“ sagði Pétur. Hann sagði það rétt að góðir fréttamenn hefðu horfið frá RÚV upp á síðkastið og stofnunin hefði oft orðið að búa við það áður að einkafyrirtæki hafi getað boðið vel í einstaka starfsmenn stofnunar- innar. „Auðvitað er þetta vont, en við búum við þetta launakerfi ríkis- ins og höfum ekki sama frelsi hér í kaupgreiðslum eins og einkafyrir- tæki geta haft. Þetta má segja að sé vandkvæði allra ríkisfyrir- tækja,“ sagði Pétur. Morgunblaðið/Golli ÞÓR Halldórsson, öldrunarlæknir og fulltrúi Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, tekur við lyklum að Skógarbæ úr hendi for- manns byggingarnefndar, Torbens Friðrikssonar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.