Morgunblaðið - 22.05.1997, Síða 58

Morgunblaðið - 22.05.1997, Síða 58
58 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens [ EtrmLW>S£jfþfr) 1//LT H0&F4 4? j ~7 ~ £/Q/MlFpn=&yJ 'W-J S7^FA/PI/FF£>/ÆL) 4P kOA^At ]T 1 3j Oo -I ©1997Tribune Media Services, All rights reserved. Inc. '■3-16 Grettir Tommi og Jenni Ferdinand Jæja þá, hver tók síóustu Hver tók í rauninni fyrstu Ég tók þá tólftu .. . smákökuna?! kökuna?! BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Sjónvarpið grefur undan hornsteini fj ölsky ldulífsins Frá Sigurði Sigurðarsyni: í MÖRGUM fjölskyldum er það lenska að kveikja á sjónvarpinu þegar komið er heim eftir langan vinnudag og sjónvarpið látið ganga þangað til farið er að sofa og með fjarstýringunni er farið á milli sjónvarpsstöðvanna. Það bregst sjaldan að eitthvað finnst sem fólki líkar eða það er tekin spennandi spóla eða spólur. Ég veit það bara af eigin reynslu að það er kveikt á sjónvarpi eða verið að horfa á spólu og það er aðeins barnafólk sem ég þekki sem gestur og tala ég auðvitað við húsráðendur, en mér finnst börnin ansi afskipt á nokkuð mörgum heimilum eða hreinlega vanrækt. Ég á afskaplega bágt með að trúa því að nútímamaðurinn geti það sem mjög fáir hafa getað, að skipta athyglinni og bæði tala við og hlusta á börnin og samtímis horfa á „imbann“. Allir vita að ekkert blóm þrífst án næringar, nákvæmlega það sama á við um lífsblómið. Það vant- ar ekki að við vöxum og döfnum líkamlega en það barn sem alið er upp til að þegja fyrir framan „im- bann“ eða sagt að fara að leika með dúkkurnar eða nýja fjarstýrða bílinn sinn, þar sé ég litla von til að þau börn nái nokkurn tíma and- legum þroska eða málþroska. Það hefur oft gengið fram af mér að heyra hve lítinn málþroska unglingarnir hafa. Það er varla von á stórræðum svo fljótt sem barnið hefur lært að tala, þá er því stundum sagt að þegja. Þó að flest börn séu á leikskólum og gangi síðar í skóla, þá kemur ekk- ert í staðinn fyrir umræður um atburði dagsins. Leyfa á börnun- um að tjá sig og hlusta á þau af athygli og ekki reka það ofan í börnin þegar þau segja eitthvað vitlaust heldur endurtaka það og leiðrétta. Tilgangurinn með vinnunni er að hafa ofan í sig og á, ekki að keyra á dýrum bílum og fara í sólarlandaferð árlega. Enginn skil- ur upp eða niður í eiturlyfjaneyslu unglinganna í dag. Fyrir mér er það eðlileg afleiðing sjónvarps7 gláps fjölskyldunnar. Afskipta- leysið sem hlýst af miklu sjón- varpsáhorfi fjölskyldunnar og unglingsins elur á einmanakennd unglingsins. Einmanakenndin, sem er stærsti hornsteinn eitur- lyfjavandans, verður ekki leyst fyrr en byijað verður að auglýsa auglýsingar eins og það að það er athygli þín sem er það dýrmæt- asta sem þú getur gefið barni þínu og fleira í þeim dúr. Eiturlyfjasalar sjá oftast hvaða unglingar eru óhamingjusamir, útundan eða einmana og þeir vita að þeir unglingar eru líklegir við- skiptavinir og tekst nokkuð oft að afla sér viðskiptavina úr þeirra hópi til að fjármagna eigin neyslu. SIGURÐUR SIGURÐARSON, Langagerði 100, 108 Rvík. Iþróttir og Alfurinn Frá Kolbeini Pálssyni: ÍÞRÓTTABANDALAG Reykjavík- ur (IBR) samþykkti þá stefnu á síð- asta þingi sínu að hefja markvisst vímuvarnastarf innan félaganna sem standa að bandalaginu. ÍBR ákvað að leita faglegrar aðstoðar við þetta verkefni. For- varnadeild SÁÁ varð fyrir valinu, vegna mikillar þekkingar og reynslu. Forvarnadeildin setti sam- an dagskrá sem miðar að því að aðstoða forystumenn íþróttafélag- anna við stefnumótun, leiðbeina þjálfurum og fræða foreldra. Vímuvarnastarfið hófst í febrúar síðastliðnum og mun standa til ioka þessa árs. Óhætt er að segja að forráðamenn reykvísku íþróttafé- laganna séu afar ánægðir með þá aðstoð sem þeir hafa fengið frá SÁÁ í þessju verkefni. Það að IBR fékk forvarnadeild SÁÁ sér til aðstoðar kom af sjálfu sér. Enginn annai' aðili hér á landi býður upp á jafn öfluga þjónustu og þekkingu í þessum efnum. Starfsmenn foi-varnadeildarinnar eru sálfræðingar og ráðgjafar sem gjörþekkja viðfangsefnið. SÁÁ leggur mikinn metnað í þessa starf- semi. Um helgina verður álfasala SÁÁ. Líkt og áður fer hagnaðurinn til forvarnastarfs SÁÁ. Vonandi sjá sem flestir sér fært að styrkja þetta mikilvæga starf í þágu barnanna okkar. KOLBEINN PÁLSSON, framkvæmdastjóri IBR. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Rcykjavík. SÍMAR: Skipliborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1 122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fróttir 569 1181, íþróttir 569 1 156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 11 10, skrifstofa 568 181 1, gjaldkori 569 1 115. NETKANG: MBL(á-.CKNTRUM.lS / Áskriflargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. cintakið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.