Morgunblaðið - 22.05.1997, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 22.05.1997, Blaðsíða 68
68 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBÖIUD/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP ,v -> MYNDBÖND Rugluð rómantík Strákar (Boys)________________________ D r a m a ★ Framleiðendur: Peter Frankfurt, Paul Fletcher og Erica Huggins. Leikstjóri: Stacy Cochran. Hand- ritshöfundur: Stacy Cochran byggt á smásögunni „Twenty Minutes" eftir James Salter. Kvikmyndataka: Robert Elswit. Tónlist: Stewart Copeland. Aðalhlutverk: Winona Ryder, Lucas Haas, John C. Reilly, James LeGros og Skeet Ulrich. 82 mín. Bandaríkin. Háskólabíó 1997. Útgáfudagur 13. maí. Myndin er bönnuð börnum innan 12 ára. „STRÁKAR“ er undarleg mynd. Hún fjallar um það þegar lífinu í frekar súrrealískum drengjaskóla er snúið á rönguna þegar einn nemandinn, John Baker jr. (Haas), kemur með meðvitundarlausa stelpu (Ryder) inn á herbergið sitt á heimavistinni. Hann verður þeg- ar ástfanginn af þessari 25 ára gömlu snót, en það kemur í ljós að hún er stúlka með villta fortíð að baki. Þetta virðist kannski vera hefðbundinn söguþráður, en öll framsetningin á honum er ger- samlega í rugli, sem gæti þótt kostur í sumum tilfellum, en ekki þessu. Það virkar nákvæmlega ekki neitt í þessari mynd, ekki leik- urinn, handritið, og síst af öllu leik- stjórnin. Leikararnir sýna litlaus- um illa skrifuðum persónum sínum lítinn sem engan áhuga á meðan leikstjórinn virðist halda það að áhorfendur hafi mikinn áhuga á því sem er að gerast í myndinni (kannski engin furða, því hún skrifar handritið), sem er alger misskilningur af leikstjórans hálfu. Það er enginn ljós punktur í þess- ari vandræðalegu gelgjuskeiðs- fantasíu. _,.. „ . _ Otto Geir Borg Andraé Crouch á Hótel íslandi 27. maí kl. 20.00 Auk hans koma fram: Páll Rósinkrans, íris Guðmundsdóttir og Lofgjörðahópur Fíladelfíu Miðaverð 1.500,- kr. Sala og dreifing miða verslunin Jata Hátúni 2 sími 552 5155 maítilboð @ “wmp Hvar er ástríðan? Líf eftir Picasso (Surviving Picasso) Sannsöguicg m y n d Framleiðandi: Merchant Ivory/Wolper. Leikstjóri: James Ivory. Handritshöfundur: Ruth Prawer Jhabvala eftir bókinni Pic- asso: Creator & Destroyer eftir Ariönnu Stassinopoulos Huffing- ton. Kvikmyndataka: Tony Pierce Roberts. Tónlist: Richard Robbins. Aðalhlutverk: Anthony Hopkins og Natascha McElhone. 120 mín. Bandaríkin. Warner Bros./Skífan 1997. Picasso var ástríðufullur í einka- lífi sínu og listum. Hann var mikill kvennamaður, átti margar konur, og hélt framhjá þeim öllum. Þær hjálpuðu honum að skapa og í stað- inn eyðilagði hann þær. Nema Francoise. Hún átti með honum tvö börn og fann að lokum í sér kjark til að yfirgefa hann. Hér er það Francoise ' sem segir sögu meistarans. Eg verð að segja að mér finnst mjög sorglegt að ekki tókst betur til við þessa mynd. Þeg- ar nöfn eins og Ivory, Merchant, Jhabvala og Hopkins eru annars vegar býst mað- ur við miklu. Enn meiru þegar þau velja sér annað eins efni og Picasso sjálfan. Picasso var ástríðan ein út í gegn, en henni er ekki fyrir að fara í þessari mynd. Líf hans var einstak- Iega viðburðaríkt og bókin sem handritið er skrifað upp úr spannar mörg hundruð blaðsíður. Útgangs- punktur myndarinnar er ein af eigin- konum Picassos og finnst mér það ágæt hugmynd. Þessi kona komst í kynni við allar þær konur sem Pic- asso elskaði og höfðu á hann áhrif. Samt sem áður hefði verið gaman að sjá ævi hans frá upphafi. Það hefði eflaust hjálpað til að gefa heil- steyptari mynd af Picasso sem lista- manni, því margfaldur ástvinamissir hans á yngri árum hafði mikil áhrif á hann. Handritið er í raun ekki annað en glefsur úr lífi hans valdar með það í huga að allir þekki persónu- leika og líf þessa listamanns vel, en við því er ekki hægt að búast. Pic- asso sést aldrei við ástríðufulla list- sköpun. Eina sem hann gerir er að vera leiðindapúki, og ekki einu sinni nógu mikill leiðindapúki! Anthony Hopkins er frábær leikari og er full- kominn í þetta hlutverk, því það er ótrúlegt hvað hann í rauninni er lík- ur meistaranum. Þeir eru meira að segja eins vaxnir! Hér tekst honum því miður ekki að skapa trúlegan Picasso. I hann vantar allan kraft og ástríðu. Ég vil þó trúa því að það sé handritshöfundi að kenna. Francoise kemur ágætlega út, og Natascha McElhone á sjálfsagt eftir að fá mikið að gera eftirleiðis. En persóna hennar er einnig heldur lit- laus, og við skynjum því miður ekki hennar tilfinningar né líðan. Myndatakan hefði mátt vera miklu meira lifandi. Hún hefði getað tekið meiri þátt í því (litla) sem er að gerast, í stað þess að horfa bara á það sem fyrir augu ber. Myndin er í alla staði yfirborðskennd og ástríðulaus með öllu. Því miður. Hildur Loftsdóttir Stelpur gegn strákum Stelpuklíkan (Foxfíre) Drama ★★>/2 Framl.: Jeffrie Lurie, John Bard Manulis og John P. Marsh. Leik- stjóri: Annette Haywood-Carter. Handritshöf.: Elizabeth White eftir skáldsögu Joyce Carol Oates. Kvik- myndataka: Newton Thomas Sigel. Tónlist: Michel Colombier. Aðal- hlutverk: Hedy Burgess, Angela Jolie, Jenny Lewis, Jenny Shimizu og Sarah Rosenberg. 100 mín. Bandaríkin. Sammyndbönd 1997. Útgáfudagur: 5. maí. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára. FIMM unglingsstúlkur stofna með sér eins konar stelpuklíku, þegar þær sameinast í að beija á einum kennara sínum, sem hefur sýnt tveimur þeirra kynferðislega áreitni. Sú sem er kveikjan af þessu er uppreisnar- seggurinn og of- urhuginn „Legg- ir“ Sadovsky. En hún umturnar lífi fjögurra hversdagslegra stúlkna svo að öll fyrri gildi þeirra hverfa og ný femínískari taka við. Þetta er mjög vel gerð kvikmynd í marga staði og þá sérstaklega leik- urinn hjá stúlkunum fimm. Jolie er frábær sem hörkutólið og er öruggt að hún eigi eftir að gera góða hluti í framtíðinni. Burgess, Shimizu, Rosenberg og Lewis leika stúlkunar fjórar og þrátt fyrir nokkra van- kanta á því hvernig persónur þeirra eru skrifaðar, gera þær hlutverkum sínum góð skil. Atriðin þar sem klík- an er að myndast og byijar starf- semi sína eru vel útfærð, þó svo að helst til mikið sé notað af tónlistar- myndböndum til þess að tjá líðan stúlknanna. Karlpeningurinn sam- anstendur af algerum ruddum og hormónadrifnum heimskingum. Þessi einfeldningslega framsetning á karlmönnum, er einn af helstu vanköntum myndarinnar. Einnig fannst mér að kvikmyndagerðar- mennirnir hefðu mátt gera djarfari mynd, ekki í erótískum skilningi orðsins heldur hugmyndafræðileg- um. Ottó Geir Borg (to 'ólcf/hc, ^/ú ey ðir Aldamótaverð kr. 2000 ^pda/í '/rain i Þriggja rétta matseðill ijmimw.it— Súpa eða salal -mmm- Léttsteiktur lambavöðvi eða kjúklingabringa með villisveppasósu eða fískfang dagsins eða grænmctislasagne -imtmaim— llnetumousse eða kati'i og sælindi Og bíillið innifíilið I Borðapanlanir sími 55 í-9636 MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU Beint í mark (Dead Ahcad)-k k Jarðarförin (The Funerafí-k k Fræknar stúlkur í fjársjóðsleit (Gold Diggers: The Secret of Bear Mountain)k k 'h Sú fyrrverandi (TheEx)-k Lokaráð (Last Resort)'h Varðeldasögur (Campfire Tales)k k Vörðurinn (The Keeper)k Verndarenglarnir) (Les Anges Gardiensk Reykur (Smoke)k k k'/i Eyðimerkurtunglsýki (Mojave Moonjk k 'h Marco Polo (Marco Polo)k k Tækifærishelvíti (An Occasionai Helfík k Adrenalín (Adrenalin) Golfkempan (Tin Cup)k k k Drekahjarta (Dragonheart)k k k Meðeigandinn (The Associate)k 'h Ráðgátur: Hverfull tími (The X—Files: Tempus Fug- it)k k'h Kekkir (Curdled) k'h
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.