Morgunblaðið - 05.06.1997, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Christina Odenberg, fyrsti kvenbiskupinn í Svíþjóð, heimsækir Island
Sumir helstu andstæðinga
minna eru góðir vinir mínir
Borgarnesi. Morgunblaðið.
AÐALFUNDUR Kirknasambands Norður-
landa var haldinn í Borgarnesi um síðustu
helgi. Nýr stjórnarformaður sambandsins
er Christina Odenberg sem er verðandi bisk-
up í Svíþjóð, fyrsti kvenbiskupinn þar í
landi.
í viðtali við Morgunblaðið kvaðst Christ-
ina Odenberg vera hér á íslandi í fyrsta
skipti. Hún kvaðst hafa séð nóg af landi
og þjóð til þess að vera ákveðin í því að
koma hingað sem fyrst aftur til þess að
skoða sig betur um.
Aðspurð kvaðst Christina biskup verða
formlega ráðin biskup innan fárra daga en
sjálf vígslan færi fram í október. Hún yrði
þá einn af 14 biskupum í Svíþjóð og fyrsta
konan sem gegndi því embætti. í Svíþjóð
væri einn biskup í hveiju stifti og svo hefði
erkibiskupinn einn aðstoðarbiskup. Hún
kvaðst verða biskup yfir Lundarstifti. Þar
væru um 450 prestar og um 120 þeirra
væru konur. Í sumum stiftunum væri skipt-
ingin nokkuð jöfn en kvenprestar eru um
25% af heildarfjölda presta í Svíþjóð.
Andstaða karlpresta
Sagði Christina Odenberg að töluvert
hefði borðið á gagnrýni varðandi skipun
hennar í biskupsembættið. Þarna væri um
háværan minnihlutahóp að ræða sem nýtti
sér athygli fjölmiðlanna óspart. Sjálf kvaðst
hún langmest verða vör við almenna ánægju
og gieði fólks yfír þessum tímamótum. Hún
hefði fengið mjög mikið af hamingjuóskum
víðs vegar að frá alls konar fólki og söfnuð-
um um allan heim.
Hún vissi hins vegar mjög vel að nokkuð
margir karlprestar væru andvígir því að
kona yrði biskup. Þessir prestar væru nokk-
uð dreifðir um Svíþjóð en flestir væru í
Gautaborgarstifti.
Fræðilegur ágreiningur
„Það verður að gæta að því að þessi
ágreiningur beinist ekki að mér sem per-
sónu eða starfshæfni minni. Sumir af helstu
andstæðingum mínum eru góðir vinir mínir
en við deilum oft um þessi mál og ég reyni
að sjálfsögðu að snúa þeim til betri vegar,“
sagði Christina Odenberg kímin. „Ágrein-
ingurinn er einungis fræðilegur og snertir
túlkun á grundvallarkenningum kristinnar
kirkju.
Það var stjórnmálaleg ákvörðun árið
1958 þegar tekin var ákvörðun um að kon-
ur gætu orðið prestar i Svíþjóð en ég tel
að allir prestar séu sammála um að í dag
er ágreiningurinn fræðilegur.
Þessi andstaða gegn konum innan kirkj-
unnar er ekkert ný í Sviþjóð hún var alveg
jafn mikil um 1960 þegar fyrstu kvenprest-
arnir voru skipaðir til starfa. Rök þeirra
sem eru á móti konum í embættum innan
kirkjunnar hafa hins vegar breyst á liðnum
árum. Þeir leita ekki lengur að tilvitnunum
úr biblíunni máli sínu til stuðnings því þar
hafa þeir ekki fundið nein dæmi sem halda.“
Sagði Christina Odenberg að hún teldi
Morgunblaðið/Theodór
CHRISTINA Odenberg, verðandi
fyrsti kvenbiskup í Svíþjóð, fyrir utan
Hótel Borgarnes þar sem hún sótti
aðalfund Kirkjusambands Norður-
landanna.
að sú staðreynd að Kristur hefði einungis
valið karla sem postula sína lýsti meira
þjóðfélagsástandinu sem ríkti á þeim tíma
heldur en því að Kristur hefði ekki viljað
konur sem postula. Ennfremur bæri að líta
á þá staðreynd að í upphafi kristni hefðu
ekki verið til eiginlegir prestar. Sú skipan
innan kirkjunnar sem ríkti í dag hefði þró-
ast á löngum tima og nú væri kominn tími
til að skipa kvenbiskup.
Markmið
Sagði Christina biskup að áhugi á trúmál-
um færi vaxandi í Svíþjóð. Hún vildi að
markmið kirkjunnar yrðu gerð skýrari og
starf hennar sýnilegra. Það þyrfti að kynna
kirkjuna betur fyrir almenningi og gera
fólki grein fyrir því fyrir hvað kirkjan stæði
í samfélaginu. Einnig þyrfti að gera hveij-
um og einum meðlimi safnaðanna grein
fyrir því að hann hefði ábyrgð gagnvart
kirkjunni og að hann hefði einnig sitt að
segja innan kirkjunnar.
Oft hefði viljað bera við að kirkjan væri
einungis talin vera prestarnir og það fólk
sem ynni hjá kirkjunni. Og söfnuðurinn
kæmi í kirkjuna til þess að vera viðstaddur
það sem þar gerðist en hver og einn kæmi
ekki sem þátttakandi. Söfnuðurinn þyrfti
að skynja það að hann væri kirkjan og
þyrfti að taka þátt í trúarlegri umræðu sem
slíkur og sýna af sér kristilegt líferni. Fyr-
ir þessum hiutum kvaðst Christina Oden-
berg ætla að beita sér sem fýrsti kvenbisk-
upinn í Svíþjóð.
Fulltrúi íslensku kirkjunnar í stjórn
Kirknasambar.ds Norðurlanda er Þorbjörn
Hlynur Árnason, prestur á Borg á Mýrum.
Sagði Þorbjörn Hlynur að á aðalfundum
sambandsins væri rætt um samstarf kirkju-
deilda og kirkna á Norðurlöndunum, bæði
, er varðaði fræðileg málefni og hagnýtt sam-
starf. Væri aðalfundurinn haldinn fimmta
hvert ár á íslandi.
Morgunblaðið/Amaldur
HLUTI af þeim barnafötum sem Sigríður Klemensdóttir hefur
sjálf búið til eða safnað saman til að gefa bágstöddum börnum.
Samkomulag um Sjávarútvegsháskóla SÞ
Starfsemi hefj-
isthaustið 1988
Búa til föt
fyrir bág-
stödd börn
í ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ aldr-
aðra í Hraunbæ er starfandi hóp-
ur kvenna sem hefur á þriðja ár
búið til og safnað saman barna-
fötum sem send eru á vegum
Rauða krossins til bágstaddra í
útlöndum. Fötin fara til landa
eins og Júgóslavíu, Gambíu og
Kazakstan.
Fyrir skömmu barst hópnum
liðsauki frá Akranesi þegar Sig-
ríður Klemensdóttir sendi þeim
föt sem hún hafði annað hvort
búið til sjálf eða fengið að gjöf
frá barnabörnum sínum.
Átak Rauða krossins „Föt sem
framlag" hefur staðið yfir í mörg
ár og konurnar í þjónustumið-
stöð Hraunbæjar eru meðal
þeirra sem hafa lagt átakinu lið.
Konurnar búa sjálfar til barnaföt
en einnig safna þær notuðum
barnafötum sem þær þvo og
pakka saman og senda með
Rauða krossinum. Búin voru til
einföld snið og prjónauppskriftir
sem farið er eftir en efnið Ieggja
þær til sjálfar eða fá gefins.
„Þörfin fyrir barnaföt er mikil
og það er synd að henda fatnaði
sem hætt er að nota,“ segir
Anna Þrúður Þorkelsdóttir, for-
maður Rauða krossins. Hún hef-
ur sjálf farið með föt til nauð-
staddra, þ.á m. til Júgóslavíu, og
hefur hún fært konunum í þjón-
ustumiðstöðinni myndir og
myndbönd af börnum sem hafa
fengið fötin þeirra frá Islandi.
Sigríður Klemensdóttir hefur
saumað í mörg ár en eftir að
hafa séð frétt í Morgunblaðinu
um fatagjafir Hraunbæjarhóps-
ins setti hún sig í samband við
hannog er nú virkur meðlimur.
Hún segist sitja við saumavélina
klukkustundum saman og sauma
barnaföt auk þess sem dætur
hennar hafa gefið föt af barna-
börnunum. Fyrir fyrstu sending-
una segist Sigríður hafa verið í
tvær vikur að þvo föt og pakka
saman en gaf sér þó tíma til að
sauma með.
Hólmfríður Gísladóttir, starfs-
maður Rauða krossins, segir að
allir gamlir afgangar séu nýttir,
til dæmis verði gamlar bómull-
argardínur og handklæði að
barnagöllum og þvottastykkjum
sem alltaf koma að góðum not-
um.
Allir geta tekið þátt í söfnun
Rauða krossins og dæmi eru um
að atvinnulaust eða veikt fólk
heima fyrir hafi lagt hönd á plóg-
inn. Hópurinn í Hraunbæ er sam-
mála um að hjálparstarfið sé
mjög gefandi og ánægjulegt að
sjá fötin komast í góðar hendur.
SAMKOMULAG um stofnun Sjáv-
arútvegsháskóla Sameinuðu þjóð-
anna á íslandi var undirritað í vik-
unni af Heitor Gurgulino de Souza,
rektor Háskóla SÞ, Halldóri Ás-
grímssyni, utanríkisráðherra og Jak-
obi Jakobsyni, forstjóra Hafrann-
sóknastofnunar. Áætlað er að Sjáv-
arútvegsháskólinn taki til starfa
haustið 1998 en fyrsta deild Há-
skóla SÞ hér á landi, Jarðhitaskól-
inn, var stofnuð árið 1979.
Áætlað er að nemendur Sjávarút-
vegsháskólans verði í fyrstu 8 talsins
en fjöigi í 16 strax ári síðar.
Undirbúningur að stofnun Sjáv-
arútvegsháskólans hefur staðið á
annað ár. Stofnun Sjávarútvegshá-
skólans er viðleitni íslenskra stjórn-
valda við að aðstoða þróunarlöndin
við nýtingu fiskistofna sinna og upp-
byggingu fískiðnaðar.
I stjórn háskólans verða auk
stjórnvalda; Hafrannsóknastofnunin,
Háskóli íslands, Háskólinn á Akur-
eyri og Rannsóknastofnun fískiðnað-
arins. Forstjóri Hafrannsóknastofn-
unar er samkvæmt samkomulaginu
formaður stjórnar skólans. Markmið
Sjávarútvegsháskólans er að hann
sæki ekki eingöngu vísindamenn
heldur allir þeir sem tengjast sjávar-
útvegi. Nemendur munu m.a. fá þjálf-
un á sviði rannsókna, veiða, vinnslu
og markaðssetningar. Kennsla skól-
ans mun fara fram víða en verður
þó aðallega í kringum starfsemi Haf-
rannsóknastofnunar í Reykjavík.
Lögð verður áhersla á að fyrirtæki
og einkaframtak sjávarútvegsins
verði kynnt fyrir nemendum.
Háskóli SÞ hefur aðsetur í Tókýó
en starfrækir deildir í hinum ýmsu
aðildarlöndum. Heimsókn de Souza
til íslands í tilefni af undirritun sam-
komulagsins verður hans síðasta
heimsókn sem rektor skólans en
hann lætur af störfum í september.
Lögver ehf.
Háagerði 14, 108 Reykjavík,
fax: 5886105, netfang: jon.sigfusis
sími 588 6100
Hófgerði - Kópavogi
Til sölu lítið einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr, samtals
um 115 m2. Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu með suður-
gluggum, tvö herbergi, eldhús og baðherbergi. Parket.
Húsið er klætt að utan með Steni-klæðningu. Stór lóð um
900 m2. Mjög gott umhverfi fyrir börn. Stutt í skóla.
Laust 1. júlí nk. Ekkert áhvílandi. Verð 8,9 millj.
Vantar allar tegundir eigna á skrá.
Reynsla og persónuleg þjónusta.
Jón Sigfússon hdl., löggiltur fasteigna- og skipasali.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra og Heitor Gurgulino
de Souza, rektor Háskóla SÞ, eftir undirritun samnings um Sjávar-
útvegsháskólann á Islandi.