Morgunblaðið - 05.06.1997, Síða 11

Morgunblaðið - 05.06.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 11 FRÉTTIR Eigendur Gufuness ehf. óttast að lægra tilboði í Aburðarverksmiðjuna verði tekið 108 milljónum yrði kastað á glæ Tilboð Gufuness ehf. í Áburðarverksmiðjuna hf. var 108 milljónum króna hærra en tilboð kaupfélaga, Bændasamtaka Islands o.fl. Af hálfu landbúnaðarráðuneytisins hefur komið fram áhugi á að taka lægra tilboðinu. Kristinn Briem ræddi við Gunnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóra Gufuness, um þetta mál og áform fyrirtækisins varðandi rekstur verksmiðjunnar, SENN dregur til tíðinda í útboði á hlutabréfum ríkissjóðs í Áburðar- verksmiðjunni því frestur til að birta niðurstöðu þess rennur út á föstu- dag. Fram hefur komið að Gufunes ehf., dótturfyrirtæki eignarhalds- félagsins Sundagarða ehf. átti hæsta tilboðið í verksmiðjuna að íjárhæð 725 milljónir. Annað og mun iægra tilboð barst frá kaupfélögum, Slátur- félagi Suðurlands, Bændasamtökum íslands, Vatnsveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Reykjavíkur, Rafmagn- sveitu Reykjavíkur og Eignarhalds- félaginu Alþýðubankanum eða að fjárhæð 617 milljónir. Sundagarðar eru í eigu Gísla V. Einarssonar og fjölskyldu hans, en þau eru jafnframt eigendur innflutn- ingsfyrirtækisins. Mata ehf. Hafa Sundagarðar einkum fjárfest í hluta- bréfum á verðbréfamarkaði. „Þetta hefur gengið þokkalega hjá okkur og við höfum stöðugt haft augum opin fyrir nýjum fjár- festingarkostum," segir Gunnar Þór Gíslason sem stýrt hefur tilboðsgerð- inni af hálfu Gufuness. „Við skoðuð- um möguleika á að kaupa hlutabréf- in í Skýrr, en komumst að þeirri niðurstöðu að það hentaði okkur ekki. Einnig litum við á útboð Áburð- arverksmiðjunnar og lögðum tölu- verða vinnu í að fara í gegnum út- boðsgögnin og meta hvað hægt væri að gera úr fyrirtækinu. í fram- haldi af því lögðum við fram tilboð með ákveðinni upphæð í samræmi við útboðslýsingu. Þar eru ekki sett- ir fram neinir fyrirvarar um að það eigi að skila greinargerð um hvað tilboðsgjafar hyggist fyrir með verk- smiðjuna. Þetta er frábrugðið því sem fram kemur i útboðslýsingu fyrir Skýrr, en þar átti ekki einung- is að leggja fram ákveðna tölu held- ur áttu tilboðsgjafar einnig að greina frá fyrirætlunum sínum um rekstur Skýrr.“ Vistvæn framleiðsla Um áform Gufuness varðandi Áburðarverksmiðjuna segir Gunnar forráðamenn félagsins hafi mikla trú á rekstri verksmiðjunnar. „Við telj- um að hún sé meira virði í rekstri, heldur en að hún sé bútuð niður til niðurrifs. Tilboð okkar byggir á því að rekstrinum verði haldið áfram. Við teljum að það sé í þágu bænda að áburður verði framleiddur hér innanlands. Verksmiðjan er mjög vistvæn í framleiðsluferlinu því vetni er framleitt með rafgreiningu. Einn- ig hefur komið fram að innihald þungmálma er mjög lágt og miklu lægra en er í innflutta áburðinum. Það er því margt sem liggur að baki því að verksmiðjan sé mikilvæg fyr- ir bændur. Það hefur komið fram í samtölum við Bændasamtök íslands eftir að tilboðin voru opnuð að bænd- ur telja sig hafa mikilla hagsmuna að gæta í þessu máli. Við erum því ekki einir um það að trúa á framtíð rekstrarins í verk- smiðjunni því tilboðsgjafarnir sem buðu á móti okkur hafa mikinn áhuga á að hún haldi áfram rekstri.“ Tapið stefnir í 100 milljónir Áburðarverksmiðjan hefur verið rekin með umtalsverðu tapi síðastlið- in tvö ár og tapið stefnir í 100 millj- ónir á þessu ári vegna aukins inn- flutnings og verðlækkunar. Hvernig skyldu forráðamenn Gufuness hafa hugsað sér að snúa þeim rekstri við? „Auðvitað er þetta áhyggjuefni og ekki létt verk að snúa rekstrinum við,“ segir Gunnar Þór. „Hins vegar er ekkert sjálfgefið að innflutning- urinn haldi áfram. Okkur hefur skil- ist að innflytjendum hafi ekki geng- ið of vel að selja áburðinn. Einnig sjáum við að Kaupfélag Árnesinga er meðal tilboðsgjafa, en það félag er einn helsti aðili í sölu innflutts áburðar. Okkur sýnist að KÁ hafí metið stöðuna þannig að það þjóni hagsmunum félagsins betur að styðja við bakið á innlendu verk- smiðjunni. Við komum til með að líta fyrst á kostnaðinn í rekstri Áburðarverk- smiðjunnar, en það er þó ekki sjálf- gefið að hægt sé að skera niður kostnað í verksmiðjunni. Sérstak- lega munum við kanna hvort hægt sé að samnýta aðstöðuna með öðrum rekstri. Ef verksmiðjan kemst úr eigu ríkisins losnar hún undan ákveðnum hömlum. Ríkisverksmiðja getur ekki farið út í annan atvinnu- rekstur í samkeppni við einkaaðila. Sviðið mun því víkka fyrir fyrirtæk- ið. Ég tel að hægt sé að virkja betur þekkingu og reynslu starfsmann- anna ásamt því að nýta betur þá aðstöðu sem þarna er fyrir hendi." Gunnar bætir því við að ekki megi eingöngu líta á verðið við kaup á áburði heldur hreinleika vörunnar. „Við teljum að íslenski áburðurinn komi betur út en sá útlendi og þess vegna er ekki óeðlilegt að hann sé dýrari. Einnig skiptir máli að verk- smiðjan sé nálægt markaðnum. Að- stæður á íslandi eru þannig að það þarf miklu fleiri tegundir af áburði en eru almennt notaðar erlendis. Verksmiðjan hefur sérhæft sig í framleiðslu fyrir íslenskan markað, en erlendar verksmiðjur eru að vinna fyrir allt öðruvísi markað." En nú hefur komið fram að er- lendir aðilar á borð við Norsk Hydro hafa sýnt áhuga á íslenska áburðar- markaðnum. „Norsk Hydro fékk útboðslýsingu samkvæmt okkar heimildum, en sendu ekki inn tilboð. Fyrirtækið hefur ekki sýnt áhuga á markaðnum hingað til og við eigum ekki von á því að bændur vilji frekar kaupa norskan áburð en hollenskan." Landbúnaðarráðuneytið vill taka lægra tilboðinu Þeir Gufunes-menn hafa orðið varir við umræðu um það eftir opnun tilboðanna á föstudag að þeirra til- boði yrði e.t.v. hafnað og lægra til- boðinu tekið. „Það kom fram fyr- irspurn við opnun tilboðanna hvort ekki væri öruggt að sala verksmiðj- unnar gengi fljótt og vel fyrir sig. Þá svaraði fulltrúi landbúnaðarráðu- neytisins því til að það væri ekki sjálfgefið hvoru tilboðinu yrði tekið og það þyrfti að líta sérstaklega til hagsmuna bænda í því sambandi. Þetta var sagt þrátt fyrir að það munaði 108 milljónum átilboðunum. Síðan var haft eftir Birni Sigur- björnssyni í landbúnaðarráðuneytinu að ráðuneytinu lítist betur á lægra tilboðið, þrátt fyrir að hann efaðist ekkert um getu Gufuness til að reka verksmiðjuna. Ef það hefur verið ætlunin að selja hana til hagsmuna- samtaka bænda þá hefði átt að láta slíkt skilyrði kom fram í útboðslýs- ingu. “ En hvaða úrræði eru fyrir hendi hjá ykkur ef lægra tilboðinu verður tekið? „Við trúum því ekki að menn ætli sér að reyna komast upp með það. Auðvitað munum við skoða okkar réttarstöðu ef af því verður. Það hlýtur að þurfa mjög sterk rök fyrir því ef ríkissjóður hafnar 108 milljóna króna tekjum. Ef ríkissjóður hefur efni á að kasta 108 milljónum á glæ er verið að sniðganga hags- muni skattborgaranna. Ef báðum tilboðunum verður hafnað eru einungis tveir kostir eft- ir í stöðunni, þ.e. annað hvort að hafa verksmiðjuna áfram í eigu rík- isins eða leggja hana niður. Það er búið að fullkanna það bæði inn- anlands og utan hveijir séu reiðu- búnir að kaupa verksmiðjuna og aðeins tveir tilboðsgjafar gáfu sig fram þegar á reyndi.“ Gufunes hefur tryggt fjármögnun á því kaupverði sem fram kemur í tilboðinu. Þar er bæði um að ræða lánsfé og eigið fé. „Við þurfum að taka heilmikið að láni og þær fjár- málastofnanir sem eru reiðubúnar að lána okkur peninga fóru yfir áætlanir okkar áður en við lögðum fram tilboðið. Þær hafa trú á þessu verkefni." Landbúnaðarráðherra um einkavæðingu Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi Farið verður að leikreglum í DAG leggur einkavæðingarnefnd til við landbúnaðarráðherra hvernig farið verður með tilboðin tvö sem borist hafa í Áburðar- verksmiðjuna. Tekur ráðherra ákvörðun í framhaldi af því. Formaður nefndarinnar segir að kalt fjárhagslegt mat eigi að ráða ferðinni og landbúnaðarráðherra segir grundvallarspurninguna þá, hvers virði verksmiðjan sé og hvort tilboðin séu nálægt því mati. Tilboðin sem bárust í Áburðarverksmiðj- una voru annars vegar frá Gufunesi ehf. sem bauð rúmlega 725 milljónir króna og frá hópi sem samanstendur af nokkrum afurða- sölum bænda, veitustofnunum Reykjavíkur- borgar, Bændasamtökum íslands og eignar- haldsfélagi Alþýðubankans sem hljóðaði uppá 617 milljónir króna. Samkvæmt útboðsskil- málum ber að upplýsa tilboðsgjafa um af- stöðu ríkisins eigi síðar en á morgun. Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráð- herra kvaðst í gær ekki tilbúinn að meta hvoru tilboðinu yrði tekið eða hvort báðum verði hafnað fyrr en eftir að hafa fengið álit einkavæðingarnefndar. Hann sagðist að- spurður ekki vilja svara á þessari stundu hvort fjárhagslegt mat réði afstöðu til tilboð- anna. Verður að taka afstöðu samkvæmt leikreglum „í fjárhagslegu mati felst kannski fyrst spurningin hvers virði við teljum verksmiðj- una vera og hvort þessi tilboð séu viðunandi Guðmundur Hreinn Bjarnason Loftsson út frá því mati - það er grundvallarspurn- ingin og það sem ég þarf að gera upp við mig. Síðan er sjálfsagt að leikreglur gildi en ég vil ekki segja meira á þessu stigi.“ Fram hefur komið að fulltrúi ráðuneytisins hafi látið þau orð falla að þar væri fremur áhugi á lægra tilboðinu, því sem kom m.a. frá ýmsum hagsmunaaðilum í landbúnaði. „Fulltrúi okkar lét orð falla í þá veru við opnun tilboðanna, að það væri vissulega áhugi hjá ráðuneytinu að þarna yrði áfram starfrækt áburðarverksmiðja sem þjónaði landbúnaðinum en í raun er ekkert annað bak við þau orð. Það verður að skoða þessi tilboð eins og þau eru og taka afstöðu til málanna samkvæmt leikreglum. Það liggur fyrir frá báðum að áhugi er áfram á rekstri þó með þeim fyrirvara að það sé gerlegt að snúa vörn í sókn og hætta taprekstri," sagði landbúnaðarráðherra. „Það er sama viðhorf og hagsmunir ríkisins, við getum ekki haldið endalaust áfram að reka verksmiðju sem er halli á.“ Hreinn Loftsson, fortnaður einkavæðingar- nefndar, sagði að nefndin og fulltrúi landbún- aðarráðuneytisins myndu taka ákvörðun á fundi í dag um hvort öðru hvoru tilboðinu yrði tekið eða báðum hafnað, þeir þrír kostir væru í stöðunni. Bjóst hann við að tilboðsgjöf- um yrði svarað í dag. Hann minnti á að tilboð- in væru talsvert undir því virði sem Handsal hefði metið verksmiðjuna á í október sl. sem var um milljarður. Vegaþarf og meta alla kosti Hreinn var spurður um áðurgreint álit sem fram hefði komið hjá fulltrúa landbúnaðar- ráðuneytisins að þar á bæ litist mönnum betur á tilboðið frá hagsmunaaðilum í land- búnaði. „Það álit á ekki að hafa nein áhrif hér. Báðir tilboðsgjafar hafa lýst því yfir að þeir muni halda áfram framleiðslu í verk- smiðjunni og það er ógjörningur að taka orð annars trúanlegri en hins. Að yfirlýsingum þeirra gefnum er hér bara um að ræða kalt mat á fjárhagslegri stöðu, hvort taka eigi hærra tilboðinu eða hafna eigi þeim báðum á þeim grundvelli að þau væru undir því verði sem telja má viðunandi." Aðspurður hvort tilboðin endurspegluðu ekki markaðsverð verksmiðjunnar sagði Hreinn það kannski stafa af óvissunni um framtíð fyrirtæksins. „Þá þarf að velta fyrir sér hvað ríkið vill gera, treystir það sér til að reka verksmiðjuna betur áfram eða vill það leggja hana niður og fá meira út úr því þannig en sem næmi sölunni. Allt þetta þarf að vega og meta,“ sagði Hreinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.