Morgunblaðið - 05.06.1997, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Björn Pálsson
Aldraðir sjómenn heiðraðir
SJÓMANNADAGSRÁÐ Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar heiðraði
níu aldraða sjómenn fyrir störf
sín að sjómennsku á sjómanna-
daginn. Það var Guðmundur Hall-
varðsson, formaður sjómanna-
dagsráðs, sem afhenti sjómönnun-
um viðurkenningar vegna þessa.
Það voru þeir Garðar Þorsteins-
son, stýrimaður, Guðmundur
Ibsen, skipstjóri, Hans Ragnar
Siguijónsson, skipsljóri, Ingólfur
S. Ingólfsson, vélstjóri, Jóhann
Magnússon, skipstjóri, Sigurbjörn
Haildór Bernódusson, sjómaður,
Skúli Einarsson, matsveinn, Stef-
án Guðmundsson, skipstjóri, og
Stefán Nikulásson, skipstjóri.
Verkfall skipveija á Hvannabergi ÓF lögmætt
Verkfall hefst á Flæm-
ingjagrunni á morgun
FÉLAGSDÓMUR hefur komist að
þeirri niðurstöðu að boðað verkfall
skipveija á Hvannabergi ÓF sem
hefjast á þann 6. júní, sé lögmætt.
Verkfallið var boðað til að knýja
útgerð skipsins, Sæberg hf. á Ól-
afsfirði, til leiðréttingar uppgjörs
samkvæmt kjarasamningum. Sjó-
mannasamband íslands hefur
hafnað tilboði útgerðarinnar um
greiðslu til skipveijanna.
Samkvæmt dómi Félagsdóms
frá því í mars sl., þar sem deilt
var um fiskverð til hlutaskipta í
svokölluðum tonn á móti tonni við-
skiptum, var Sæberg hf. á Ólafs-
firði talið hafa brotið gegn kjara-
samningi Farmarina- og fiski-
mannasambands íslands og Land-
sambands íslenskra útgerðar-
manna með því að taka ekki tillit
til verðmætis móttekins aflamarks
fyrir seldan afla við tilgreiningu
heildarskiptaverðmætis.
Stjórn Sjómannafélags Ólafs-
fjarðar krafðist í framhaldi af því
að Sæberg hf. leiðrétti uppgjör
skipveija á Hvannabergi ÓF vegna
þátttöku þeirra í kvótakaupum út-
gerðarinnar á tímabilinu 31. mars
1995 til 21. mars 1996. í félaginu
var ennfremur samþykkt að boða
til ótímabundins verkfalls gegn
fyrirtækinu sem taka átti til þeirra
félagsmanna sem störfuðu á
Hvannabergi ÓF. Verkfallið skyldi
hefjast 6. júní nk. og standa þar
til útgerðin féllist á að greiða og
gera upp við starfsmenn sína í
samræmi við kjarasamninga og
dóm Félagsdóms.
VSÍ, LIÚ og Útvegsmannafélag
Norðurlands vísuðu verkfallsboð-
uninni til Félagsdóms og kröfðust
þess að verkfallið yrði dæmt ólög-
mætt þar sem dómur Félagsdóms
frá því í mars væri aðeins viður-
kenningardómur um túlkun á
kjarasamnings og fjallaði hvorki
beint né skýlaust um greiðslu-
skyldu Sæbergs hf. Þannig væri
dómurinn fjarri því að vera svo
ótvíræð heimild um greiðsluskyldu
fyrirtækisins að heimilt væri að
beita vinnustöðvun til þess að
knýja útgerðina til greiðslu.
I dómsniðurstöðu Félagsdóms
segir hinsvegar að Sæberg hf.
hafí ekki sinnt skyldu sinni til upp-
gjörs og því hafi félagsmönnum
Sjómannafélags Ólafsfjarðar verið
heimilt að boða til verkfallsins.
Stefnanda var ennfremur gert að
greiða Sjómannafélagi Ólafsvíkur
málskostnað, 150.000 krónur.
Höfnuðu tilboði
útgerðarinnar
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands íslands, segir
dóminn staðfesta enn frekar að
allir dómar sem snerti brask út-
gerðarmanna með veiðiheimildir
fari á einn veg. Hann segir fram-
hald málsins einfaldlega vera að
verkfall skelli á ef ekki verði gert
upp við skipveija Hvannabergs
ÓF.
„Dómurinn frá því í mars segir
að til skipta eigi að koma verð-
mæti veiðiheimilda. Okkur hefur
verið gert tilboð um gera upp eftir
meðaltalsverði úrskurðarnefndar á
þessum tíma, en það eru um
40-45% af kröfu okkar í þessu
máli. Við höfnuðum því vitaskuld.
Við vitum hvert verðmæti veiði-
heimildanna var á þessum tima og
af því viljum við fá hlut,“ segir
Sævar.
Hvannaberg ÓF er nú að veiðum
á Flæmingjagrunni en heldur til
hafnar á Islandi á morgun ef af
verkfallinu verður.
111 milljóna tap
hjá Ishúsfélaginu
UM 111 milljóna króna tap varð
af rekstri íshúsfélags ísfirðinga
á síðasta ári. Árið áður nam tap
af rekstrinum 95 milljónum
króna. Til að bæta stöðu fyrir-
tækisins hefur mikið verið selt
af eignum. Togarinn Framnes
ÍS var meðal annars seldur
móðurfélaginu, Gunnvöru, og
seldur hefur verið eignarhlutur
í ýmsum fyrirtækjum. Aðalfund-
ur beggja þessara fyrirtækja var
haldinn nú í vikunni.
Magnús Reynir Guðmunds-
son, formaður stjórnar íshús-
félagsins, segir reksturinn
hafa verið afar erfiðan síðustu
misserin, en nú standi yfir rót-
tækur uppskurður á starfsemi
félagsins og séu bundnar við
það vonir að hann geti rétt
reksturinn við samfara aukn-
ingu á kvóta í þorski og rækju.
Hann segir að afkomutölur eft-
ir fyrstu fjóra mánuði ársins
lofi góðu þó aðgerðum til úr-
bóta sé ekki lokið.
„Rekstri félagsins verður hald-
ið áfram, sé þess nokkur kostur.
Við vonumst til að geta haldið
áfram við eðlilegar aðstæður.
Verkfallið hér hefur þegar
höggvið stórt skarð í steinbíts-
vertíðina og vonandi verða áföllin
ekki meiri en orðið er,“ segir
Magnús Reynir.
Gunnvör er lokað félag og
ekki fást upplýsingar um rekstur
þess að öðru leyti en því að fyrir-
tækið standi vel.
-
Ráðstefna Einingarsamtaka Afríku
Lýsir yfir stuðn-
ingi við Kabila
Harare, Kinshasa. Reuters
ROBERT Mugabe, forseti Zim-
babwe, segir að þátttaka fulltrúa
herstjórna Nígeríu og Búrúndí í
þriggja daga ráðstefnu Einingar-
samtaka Afríku sé ekki í mótsögn
við fordæmingu fundarins á valda-
ráninu í Sierra Leone og að fulltrúum
þessara landa hafi verið gert ljóst
að samtökin muni ekki sætta sig við
annað en að sjá lýðræðisþróun í ríkj-
um þeirra.
Þá lýstu ráðstefnugestir yfir full-
um stuðningi við Laurent Kabila,
nýjan valdhafa Lýðveldisins Kongó,
sem áður hét Zaire, og samþykktu
að leggja sitt af mörkum til upp-
byggingar landsins.
Kabila, sem fagnaði stuðningsyf-
irlýsingunni, samþykkti að skipa
sérstakan embættismann til að vinna
með flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna en liðsmenn hans hafa leg-
ið undir sívaxandi ámæli fyrir að
standa að fjöldamorðum og aðför
að flóttamönnum frá Rúanda.
Nelson Mandela, forseti Suður-
Afríku, hefur m.a. notað ráðstefn-
una til samningaviðræðna við aðra
leiðtoga um að taka við Mobutu
Sese Seko, fyrrum forseta Zaire.
Mobutu, sem þjáist af krabbameini,
barst mikið á í 32 ára stjórnartíð
sinni og skildi landið eftir gjald-
þrota. Hann á nú hvergi höfði sínu
að halla.
Ásakar Frakka um stuðning
við Mobutu
Á miðvikudag ásakaði Kabila
Frakka um að styðja Mobutu og ýta
undir óstöðugleika í landinu. Sagðist
hann hafa heimildir fyrir því að
franskar hersveitir, sem staðsettar
eru í nágrannaríkinu Kongó Brazza-
ville, hafi útvegað stuðningsmönnum
Mobutus vopn. Frakkar hafa ekki
svarað ásökunum hans en sendiherra
Kongó Brazzaville, vísaði því á bug
að andstæðingar Kabila ættu bæki-
stöðvar í nágrannaríkinu og sagði
að von væri á sendinefnd til Kins-
hasa til að ræða ásakanirnar.
f
»
»
í
1
i
I
í
I
g
Oklahoma-réttarhöldin
Lifir Timothy _
McVeigh eða deyr? \
Denver. Reuters
SÍÐARI hluti Oklahoma-réttarhald-
anna hófst í Denver í Bandaríkjunum
á miðvikudag. í fyrri hiuta rétt-
arhaldanna fann kviðdómur Timothy
McVeigh sekan um að hafa komið
fyrir sprengju í Alfred P. Murrah
alríkisbyggingunni í Oklahomaborg
árið 1995 og orðið þannig 168
manns að bana. Það bíður nú sama
kviðdóms að skera úr um það hvaða
refsingu hann fær.
Kviðdómurinn, sem samanstendur
af sjö körlum og fímm konum, þarf
nú að skera úr um það hvort
McVeigh hlýtur dauða- eða lífstíð-
ardóm. Hlé var gert á málflutningi
á þriðjudag en þá fundaði dómari
með lögfræðingum um það hvaða
gögn verði lögð fyrir réttinn.
Richard Matsch, alríkisdómari,
sagðist vilja stuðla að því að kvið-
dómurinn taki siðferðilega ákvörðun,
byggða á viðeigandi upplýsingum
en ekki á tilfinningaþrungnum við-
brögðum.
Saksóknari, sem farið hefur fram
á dauðarefsingu, býst við að kalla til
45 vitni. Meðal þeirra eru 10 ára
drengur sem lýsir því hvaða áhrif það
hafði á hann að missa móður sína
og hjálparsveitarmaður sem segir frá
því hvernig kona dó í örmum hans.
Einnig mun saksóknari tefla fram
fólki sem slapp nær dauða en lífí,
sumt varanlega skaddað, starfsmanni
sjúkrahúss sem lýsir því hvernig
dauða fólks bar að höndum auk
myndar af bömum í leikskóla, sem
var í byggingunni. Á myndinni sjást
m.a. andlit nokkurra barna sem fór-
ust í sprengingunni. Dómarinn stöðv-
aði hins vegar allar brúðarmyndir,
dagbókarbrot og jarðarfararsögur.
Mikilvægt að sýna mannlegar
hliðar McVeighs
Einnig hafnaði dómarinn áætlun-
um veijenda McVeighs um að draga
fram hvernig ríkisstjórnin stóð að
umsátrinu um Waco í Texas og
hvernig alríkislögreglan skaut konu
og barn hvíta aðskilnaðarsinnans
Randy Weaver.
Ólíklegt er talið að McVeigh stígi
sjálfur í vitnastúkuna. Líkur benda
hins vegar til að veijendur kalli til
föður hans og systur og reyni, með
sögum af uppvexti hans og herþjón-
ustu í Persaflóastríðinu að sýna
mannlegar hliðar hans.
Leyniþjónusta Rússa
Njósnarar hvattir
til ffaffnniósna
i. Reuter. ^ ^
NIKOLAJ Kovaljov, yfirmaður rúss-
nesku leyniþjónustunnar, hefur
skorað á Rússa, sem njósna fyrir
erlend ríki, að hringja í sérstakt
símanúmer og gerast gagnnjósnar-
ar.
Áskorunin þykir til marks um að
leyniþjónustan sé að laga sig að
nýja markaðshagkerfinu og tilboð
Kovaljovs er einfalt: þeir sem játa á
sig njósnir geta haldið áfram að
þiggja fé af erlendum leyniþjón-
ustum en þeir sem gera það ekki
verða að lokum handteknir. „Við
munum fínna þá alla hvort sem er,
fyrr eða síðar,“ sagði Kovaljov í sjón-
varpsviðtali í fyrrakvöld.
Símanúmerið, sem Kovaljov gaf
upp, var alltaf á tali í gærmorgun.
„Það merkir að mjög margir hafa
hringt,“ sagði talsmaður rússnesku
leyniþjónustunnar.
Annar talsmaður leyniþjón- «
ustunnar sagði við fréttastofuna It-
ar-Tass að Kovaijov hefði þannig f
skýrt með dæmi hvernig hægt yrði I
að framfylgja lögum, sem sett voru
fyrr á árinu og heimila sakaruppgjöf
fyrir þá sem bæta fyrir afbrot sín.
Talsmaðurinn sagði að ekkert
hefði dregið úr njósnum erlendra
ríkja í Rússlandi þrátt fyrir endalok
kalda stríðsins. Síðasta hálfa árið
hefðu ellefu erlendir útsendarar ver-
ið handsamaðir og komið hefði verið .
í veg fyrir 39 tilraunir til að senda '
ríkisleyndarmál til erlendra ríkja. {
Leyniþjónustan segist hafa afhjúpað |
39 rússneska njósnara og 400 er-
lenda útsendara á árunum 1995-96.