Morgunblaðið - 05.06.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 27
Grensásuegi 3 -108 Reykjauík
m
rður diskur
a geisiadrif
windows '9
5 islenskir i
110 tíma rafhlaða
250 gr að þyngd
Sendlr stutt skllaboð
Mðttekur stutt skllaboð
Númerabirting
NOKIA 1611
VINNUÞJ
Simí. 5885900
Fax: 5885905
Opið virka daga Irá
Nýlistasafniö
sctustofa
AKVARELLUR
HAFSTEINN AUSTMANN
Opið alla daga frá kl. 14-18. Lokað
mánudaga. Til 8. janúar. Aðgangur
ókeypis.
ÞAÐ teljast nokkur tíðindi er
Nýlistasafnið hefur kynningu á
hinum fyrrum hötuðu FÍM-urum í
húsakynnum sínum, nánar tiltekið
í nýrri setustofu á Pallinum svo-
nefnda. Setustofan er annars inn-
réttuð sem óhefðbundinn sýningar-
salur, þar sem frammi liggja einn-
ig listtímarit víða að, auk þess sem
kaffi er á könnunni. Húsgögn
Franks Reitenspiess eru þó frekar
fyrir augað en þægindin.
Rétt að geta þessara tímamóta
sérstaklega, en fyrsti gesturinn er
Hafsteinn Austmann, sem hefur
valið að draga fram nokkrar fornar
„akvarellur", sem hann hefur legið
á fram til þessa. Voru myndirnar
upprunalega á sýningu listamanns-
ins í Bogasal Þjóðminjasafnsins
1960, en þær eru allar gerðar á
árunum 1959-60. Vafalítið gert
með hliðsjón af, að þetta taldist
drjúg nýlist á þeim árum og svo
mun þetta hafa verið fyrsta sýn-
ingin á akvarellum eingöngu á ís-
landi. Áður höfðu menn að vísu
sýnt vatnslitamyndir ásamt með
málverkum og öðru frá fyrstu ára-
tugum aldarinnar, en listgeirinn
taldist enn sem komið var vinnu-
kona málaralistarinnar, eða „anc-
illa pic.turae" eins og það nefnist
og svo var einnig með pastel, krít-
armyndir og allar tegundir af
svartlist. það er þannig ekki lengra
síðan olíumálverk á dúk drottnaði
yfir öðrum tegundum myndlistar í
norðrinu, sem þó var á umdeilan-
legum forsendum litið til listasög-
unnar. Var um frekar grunnrist
tízkufyrirbæri að ræða tökum við
mið af því, að best varðveittu
málverk sögunnar voru unnin á
hellisveggi (Altamira), stein (Pom-
pei), og á seinni tímum tré sbr.
byzantíska íkona. Hins vegar held-
ur olíumálverkið enn stöðu sinni
og reisn hvort heldur undirlagið
sé dúkur eða tré, helst grunnað
masonit. Akvarellur Hafsteins eru
„kolabstrakt" eins og það nefndist
hér fyrrum, en í raun er um að
ræða ljóðræn tónastef, hryn og
innri gerjun, með sterkri skírskot-
un til lit- og ljósbrigða náttúrunn-
ar. Tónlist hefur verið álitin ab-
EIN af akvarellunum á sýningunni.
strakt, en þó eru í henni sterkar
vísanir til náttúrunnar svo sem
allir vita. Hér var líkt farið að, svo
trauðla er hægt að halda því fram
að um hreinn tilbúning og tilviljan-
ir sé að ræða, heldur lúta vinnu-
brögðin engu síður ströngum lög-
málum en vinna við tónsmíðar.
Vinnumátinn var svo mjög í anda
þess sem efst var á baugi í óhlut-
bundinni list í París, að viðbættum
persónuleika listamannsins, stað-
bundnu hugsæi.
Sýningin í Bogasal vakti mikla
athygli og man ég eftir að Valtýr
Pétursson fór um hana mjög lof-
samlegum orðum hér í blaðinu.
Á seinni árum hefur Hafsteinn
af endurnýjuðum krafti snúið sér
að akvarellunni og er ferskur og
fijór sem aldrei fyrr eins og vegur
hans á alþjóðlegum sýningum mið-
ilsins staðfestir.
Þetta er falleg sýning, hugmynd-
in góð og vonandi verður framtakið
til að auka áhuga listunnenda á
staðnum. Dijúgur akkur er að
myndbandi um feril listamannsins,
sem þó er ekki nægilega í fókus á
stundum, hvað sem veldur. Maður
saknar þó að fá engar upplýsingar
upp í hendurnar utan fréttabréfs-
ins, ekki einu sinni á einblöðungi
og myndir ónúmeraðar. Loks mega
sýningar safnsins að ósekju standa
í viku lengur með hliðsjón af fjölda
þeirra, vægi og séreðli.
Bragi Ásgeirsson
fólksflutningabíll
grindarbíll
sendibíll
pallbíll
„Tvö hundruð orð“
MVNDIISI
Álftanes-
kórinn í
Borgarnesi
ÁLFTANESKÓRINN heldur
tónleika í Borgarneskirkju
föstudaginn 6. júní kl. 20.30.
Daginn eftir, laugardaginn 7.
júní, syngur kórinn í Víðihlíð
í Húnavatnssýslu ásamt
kirkjukór Víðdalstungu. Hefj-
ast tónleikarnir í Víðihlíð kl.
21.
Á söngskrá kórsins verða
m.a. negrasálmar, lög eftir
Bach, Jón Ásgeirsson, Gade,
Hjálmar H. Ragnarsson og
Björgvin Guðmundsson. Auk
þess syngur kórinn tilbrigði
við lag Schuberts „Die For-
elle“ í ýmsum stíltegundum.
í Álftaneskórnum eru um 30
félagar og hefur kórinn sung-
ið við margvísleg tækifæri í
Bessastaðasókn s.s. við
kirkjuathafnir o.fl. Stjórnandi
Álftaneskórsins ei Þóra Fríða
Sæmundsdóttir.
- kjarni málsins!
HEKLA
VOLKSWAGEN LT er sá stærsti í stórri
fjölskyldu atvinnutækja frá Volkswagen.
Hann fæst í órtúlega mörgum útfærslum.
Burðargeta er allt aö 2700 kg.
Verð frá kr. 1
i m ö r g u m
útf ærsl u m !
án vsk.
Volkswagen
Oruggur á alla vegu!