Morgunblaðið - 05.06.1997, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 55
BREF TIL BLAÐSINS
Reglugerðir -
sljórntæki
hentistefnunnar
Frá Ernu Hauksdóttur:
í SÍÐASTA mánuði undirritaði
heilbrigðisráðherra reglugerð um
breytingu á heilbrigðisreglugerð-
inni. Ástæða reglugerðarbreyting-
arinnar var sú
að á þeim tíma
var langt komið
með að innrétta
gististað í
Reykjavík sem
uppfyllti ekki
kröfur heilbrigð-
isreglugerðar
um stærð her-
bergja, en í
henni er gerð sú
Erna
Hauksdóttir
krafa að tveggja manna herbergi
séu a.m.k. 12 fermetrar að stærð.
Fram að þessu hefur mönnum ekki
þótt ástæða til að minnka þessar
kröfur og gististaðir um land allt
hafa þurft að leggja í ómældan
kostnað til að uppfýlla bæði þessar
kröfur svo og aðrar sem í reglugerð-
inni eru. I stefnumótunarvinnu
samgönguráðherra, sem staðið hef-
ur yfir síðan á síðasta ári, er reynd-
ar lögð áhersla á aukin gæði og
auknar kröfur. En nú á vordögum,
í miðri stefnumótunarvinnunni,
þótti ekki lengur ástæða til að halda
þessum kröfum til streitu, en þó
þótti heppilegra að búa til einhvers
konar undanþáguákvæði og þau eru
vandmeðfarin. Góð ráð voru því dýr
við að bjarga þvi máli að gera ólög-
legan gististað löglegan. Eftir
nokkurt bras var eftirfarandi snilld-
arákvæði sett í reglugerðina:
„Ef um er að ræða gististað þar
sem eingöngu er gert ráð fyrir
næturgistingu, þ.e. að einungis sé
dvalið í herbergjum yfir nótt, getur
heilbrigðisnefnd veitt undanþágu
frá ákvæðum greinar 64.2 um gólf-
flöt tveggja manna herbergis. Und-
anþága skal bundin skilyrðum um
að gólfflötur verði aldrei undir 9
fermetrum og að á herbergi sé
opnanlegur gluggi á útvegg."
Það skal viðurkennt að ég þurfti
að lesa þetta tvisvar, og svo var
um fleiri. Hvenær þurfa gestirnir á
tveggja manna herbergjunum að
vera farnir út úr húsi á morgnana
og hvenær er þeim leyfilegt að
hverfa aftur til herbergja sinna að
kvöldi? Gestum, sem dvelja einir á
þessum herbergjum, virðist aftur á
móti leyfilegt að dvelja í herbergjum
sínum að degi til. Hver ætlar að
fylgjast með því að eftir þessu sé
farið? Ætlar heilbrigðisnefndin ef
til vill að taka að sér þetta eftirlit
svona eins og lögreglan fylgist með
því að skemmtistaðimir séu ekki
opnir lengur en reglur segja til um?
Ef stjómvöld og ferðaþjónustan
komast að þeirri niðurstöðu, eftir
umræður og kannanir, að rétt sé
að breyta reglum sem að ferðaþjón-
ustunni lúta, þá er eðlilegt að ráð-
herrar breyti reglugerðum. Þetta
tiltekna dæmi er skólabókardæmi
um hvemig hægt er að misnota
reglugerðimar þegar henta þykir.
Ef eðlilegt þykir að minnka kröf-
ur um herbergjastærðir þá á að
ganga þá götu á enda, en misbjóða
ekki atvinnugreininni með slíkum
aulaákvæðum. Það kann vel að
vera að það sé ferðaþjónustunni á
íslandi til góðs að opna gististað
sem býður upp á litlar káetur inni
í miðju húsi þar sem gesturinn
horfir í gegnum glugga fram á
gang, um það ætla ég ekki að
dæma hér, en ég er að benda á
hvemig ekki á að standa að stjórn-
valdsaðgerðum s.s. reglugerðar-
breytingum og benda á hversu
langt menn geta gengið í vitleys-
unni til að bjarga því sem þeir
kæra sig um að bjarga.
ERNA HAUKSDÓTTIR,
framkvæmdastjóri
Sambands veitinga- og gistihúsa.
CIO o« utwoo
Úrvals ryksugur á veröi
sem enginn stenst!
EIO ryksugurnar eru frá einum stærsta og virtasta fram-
leiðanda Þýskalands. Þær eru tæknilega fullkomnar, lág-
værar með stillanlegum sogkrafti og 6-földu míkrófilter-
kerfi sem hreinsar burt smæstu rykagnir.
EIO ryksugurnar hlutu nýlega 4 stig af 5 mögulegum
í gæðaprófun neytendasamtaka erlendis.
Exdusive 1400W
knj 3.965 stgr.
kr.j2.255 stgr.
kr. 11.305 stqr.
Harlekin 1200W
Einnig
DAEWOO 1100 W
ryksugur með
5-földu míkrófilterkerfi
á aðeins kn9.405 stnr.
Glæsilegar ryksugur
í glæsilegum litum!
iMCÐiHuiip
með nuddi og svuntu
kr. 99.500,- stgr
«
!
með setu
kr. 11.466,-
stgr
■ *
kr. 4.797,- stgr
Handlaugar 57 sm. kr. 3.276,- stgr
Baðker 160 x 70 sm kr. 8.092,- stgr
pAíFABORGf
KNARRARVOGI 4 • 8 568 6755
Línuskautar
m
Margar gerðir
og stærðir.
Mikið úrlval af
varahlutum og
hlífum.
Opið laugardaga
kl. 10-16
ORu'jmnÞ'
Skeifunni 11, sími 588 9890
TILSOB - RÁmfÚF *
LAUGARDAGA 9 -18
BOGIFRANZSON SKÓGARVERKFRÆÐINGUR
VEITIR LEIÐBEININGAR UM RÆKTUN
SUMARHÚSALÓÐA OG PLÖNTUVAL
SKÓGARPLÖNTm BIRKl HNA VSAPLÓNWR
TILBOÐ 20% AFSL.
Birki bk. 35 stk.
Stafafura bk. 35 stk.
Birki hnausaplöntur
hæð 1,25 -1,75 m.
VERÐ ÁÐUR KR. 1.080- 1.480-
NÚ AÐEINS KR. 690-
PLÖNTUSALAN í FOSSVOGI
Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspítala) Opið kl. 8-19. helgar kl. 9-18. Sími 564 1777
^ Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin
Nftt LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG *
á