Morgunblaðið - 27.06.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 11
Jón Olafsson segist verða að leita réttar
síns vegna áburðar Helgarpóstsins
Oskar rannsóknar
ríkissaksóknara
á sakargiftum
FRÉTTIR
fslenskt dagsverk afhendir fyrstu framlög sín
Morgunblaðið/Ásdís
FRAMLAG frá íslensku dagsverki var afhent John Winston frá Indlandi. Frá hægri eru Anna Lára
Steindal, framkvæmdastjóri íslensks dagsverks, Hallfríður Einarsdóttir frá Iðnnemasambandinu, sem
var formaður nefndarinnar, Snævar Sigurðsson, John Winston og Jónas Þórisson, framkvæmda-
stióri Hjálparstofnunar kirkjunnar.
FYRSTA framlag frá íslensku
dagsverki, söfnunarherferð náms-
mannahreyfingarinnar frá liðnum
vetri, var afhent í gær f ulltrúa
Sameinuðu indversku kirkjunnar.
Alls söfnuðust 4,6 milljónir króna
og mun verkefnisnefnd þegar í
haust hefja undirbúning næstu
herferðar en slík herferð er ráð-
gerð annað hvert ár hér eftir.
Nokkur samtök námsmanna
efndu í annað sinn til íslensks
dagsverks 13. mars sl. í því skyni
að afla fjár til stuðnings iðnnem-
um á Indlandi. Alls tóku milli sjö
og átta þúsund nemendur í 18
skólum þátt í verkefninu sem unn-
ið var í samvinnu við Hjálparstofn-
un kirkjunnar og tvo samstarfsað-
ila hennar á Indlandi, United
Christian Church of India (UCCI)
og Social Action Movement (SAM).
Á vegum UCCI eru rekin barna-
heimili, grunnskólar og sjúkrahús
og SAM-samtökin vinna að félags-
legum umbótum með því að skapa
fátæku fólki tækifæri til menntun-
Styðja
ungmenni í
Indlandi til
iðnnáms
ar. Báðir þessir aðilar, sem sinna
starfi meðal hinna lægst settu í
landinu, hafa um árabil átt sam-
starf við Hjálparstofnun kirkjunn-
ar og hafa íslendingar stutt starf
þeirra með framlögum.
Fræðsla og fjáröflun
Herferðin íslenskt dagsverk
byggðist annars vegar á að fræða
nemendur framhaldsskóla og há-
skóla um aðstæður ungmenna í
Indlandi og hins vegar brýna þá
til stuðnings með því að leggja
fram vinnu til að afla fjár til verk-
efnisins. Hjá UCCI verður stutt við
aukið iðnnám og verður komið á
kennslu í fimm til sjö iðngreinum
og allt að 10 nemendum í hverri.
Er þær m.a. smíði, rafiðn, sjón-
varps- og ísskápaviðgerðir, körfu-
og töskugerð og fleira. Hjá SAM
verður annars vegar stutt við
tölvukennslu, útsaums-, sauma- og
sníðakennslu svo og kennslu í
akstri og bílaviðgerðum og hins
vegar í málmsuðu, smíðum og
vefnaði. Séra John Winston, for-
stöðumaður UCCI, tók í gær við
ávísun úr hendi Snævars Sigurðs-
sonar, fulltrúa Félags framhalds-
skólanema, að upphæð tæplega
900 þúsund krónur sem er fyrsti
hluti framlagsins til samtakanna.
Framlagið til SAM hefur þegar
verið sent samtökunum. John
Winston sagði muna um stuðning
sem þennan frá íslenskum ung-
mennum sem gerði indverskun
ungmennum kleift að stunda iðn-
nám til að brjótast úr fátækt.
JÓN Ólafsson eigandi Skífunnar
fór í gær fram á við embætti ríkis-
saksóknara að það hefji opinbera
rannsókn á sakargiftum á hendur
honum og fyrirtæki hans sem birt-
ust í þremur nýlegum tölublöðum
Helgarpóstsins, þ.e. 5., 12. og 19.
júní.
í beiðni Jóns segir að í umrædd-
um tölublöðum séu birtar greinar
með áberandi uppslætti á forsíð-
um, þar sem geti að líta áburð um
að hann og fyrirtækið Skífan ehf.
taki þátt í refsiverðu misferli með
fíkniefni.
Skrif bitnað á fjölskyldu
Jón óskar þess að opinber rann-
sókn fari fram með vísan til 27.
greinar laga númer 19 um með-
ferð opinberra mála, þar sem m.a.
er kveðið á um að ríkissaksóknari
skuli eftir því sem unnt er fylgjast
með því að þeir sem afbrot fremja
verði beittir lögmætum viðurlög-
um.
Jón sendi jafnframt frá sér yfir-
lýsingu í gær þar sem segir m.a.
að hann hafi undanfarna mánuði
„mátt sæta því, að vikublaðið
Helgarpósturinn hefur æ ofan í
bendlað mig persónulega og fyrir-
tæki mitt við stórfellda glæpa-
starfsemi, tengsl við fólk sem ég
hef aldrei heyrt nefnt, og aðild að
einstökum glæpamálum, sem ég
hef í mesta lagi heyrt um í fjöl-
miðlum."
Ennfremur segir í yfirlýsingu
Jóns að mælirinn sé nú fullur og
hafi skrif blaðsins bitnað m.a. á
fjölskyldu hans. Hann sjái ekki
aðra leið en leita réttar síns.
Kvíðir ekki
niðurstöðu
„Meiðyrðamál er kannski aí-
gengasta leiðin í málum af þessu
tagi og kemur til álita, þótt ég
sjái ekki mikinn tilgang í því að
fá æruna dæmda af þeim sem
enga hefur. Ég hef hins vegar í
dag óskað eftir því við ríkissak-
sóknara að fram fari opinber rann-
sókn á þeim sakargiftum, sem
Helgarpósturinn hefur borið á
mig. Þær verða þá annaðhvort
staðfestar eða ritstjórinn hefur
gerst sekur um rangar sakargiftir.
Eg kvíði ekki niðurstöðunni," seg-
ir Jón að lokum í yfírlýsingu sinni.
Islenskt
kínakál á
markað
FYRSTA íslenska kínakálið á
þessu sumri er að koma í versl-
anir um þessar mundir. í gær
var starfsfólk Nóatúns að taka
fram fyrstu sendinguna og
kostaði kílóið 325 krónur.
Geturðu gert betri bílakaup?
JJJJJilUUMBÖÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson.Wíf
HtW’.'afnarfiórður: Gudvarður Elíasson, GrænukinrTO
JBtkureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19,
: BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri S, simi 482 37 00.
Gerðu samanburð og taktu síðan ákvörðun.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17,108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
3-dyra BALENO: 1.140.000,- kr.*
4-dyra BALENO: 1.265.000,- kr.*, 4-dyra BALENO 4WD: 1.480.000,- kr.
BALENO WAGON 2WD: 1.450.000,- kr.*, BALENO WAGON 4WD: 1.580.000,- kr.
* Sjálfskipting 100.000,- kr.
SUZUKI
ÐALENO
MEÐ: aflmikilli 16 ventla vél • vökvastýri •
veltistýri • samlæsingum • rafdrifhum rúðu-
vindum • rafstýrðum útispeglum • útvarpi/
segulbandi með 4 hátölurum • upphituðum
framsætum • öryggisloftpúðum fyrir ökumann og
farþega í framsæti • styrktarbitum í hurðum •
samlitum stuðurum.