Morgunblaðið - 27.06.1997, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LISTA97
SUMAR
AKUREYRI
Tónlist,
myndlist
og fyrir-
lestur
Morgunblaðið/Kristján
JOHN Erik Stern-Peltz hjá Citibank heimsótti Hita- og vatnsveitu Akureyrar í vikunni í tilefni af
samningi við bankann um lántöku upp á 26 milljónir Bandarikjadala. Með honum í för var Ólafur
ísleifsson í alþjóðadeild Seðlabankans, sem aðstoðaði HVA við samningagerðina. F.V. Ólafur, John,
Ari Rögnvaldsson, yfirvélsljóri HVA, Franz Árnason, hita- og vatnsveitustjóri, Baldur Dýrfjörð bæjar-
iögmaður, Svavar Ottesen, formaður veitustjórnar, og Dan Brynjarsson hagsýslustjóri.
Hita- og vatnsveitan tekur lán að upphæð 26 milljónir Bandaríkjadala
Heildarskuldir um
3 milljarðar króna
SAMSÝNING akureyrskra
listamanna stendur nú yfir í
Deiglunni. Akureyri hefur gefið
af sér marga myndlistarmenn
gegnum tíðina, sumir þeirra
eru búsettir á staðnum en aðr-
ir hafa haldið á aðrar slóðir en
nú sameinast tæplega 50 þeirra
á sýningu í Deiglunni.
Ramminn sem settur er um
sýninguna er sá að allar mynd-
irnar eru jafnstórar, 50x50 cm,
en myndefni og aðferðirnar eru
mjög mismunandi. Sýningin
stendur til 7. júlí.
Sinfóníuhljómsveit íslands
og Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands ásamt Richard Simm
píanóleikara, flytja verk eftir
Rachmaninoff og Mahler í
íþróttaskemmunni, laugardag-
inn 28. júní kl. 17. Stjórnandi
er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Tónleikar KK
Söngvarinn, gítarleikarinn
og tónskáldið Kristján Krist-
jánsson - KK, mun heimsækja
Akureyri um helgina og halda
tónleika í Aksjón Café á laugar-
dagskvöld. KK er um þessar
mundir að vinna að útgáfu
hljómplötu. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 22 en húsið opnar kl.
21. Aðgangseyrir er kr. 1.200.
Hermann Pálsson, fyrrver-
andi prófessor við Edinborgar-
háskóla og núverandi fræði-
maður og rithöfundur, er nú
með aðsetur í Davíðshúsi. Hann
heldur fyrirlestur sem hann
nefnir „íslandssögur, menning
og munnmæli" á Aksjón café
sunnudaginn 29. júní kl. 16.
Kirkjukór frá Færeyjum
Myndlistarsýningu Guð-
bjargar Ringsted í Gallerí
Svartfugli í Listagilinu lýkur
um helgina.
Kirkjukórinn í Rúnavík í
Færeyjum heldur tónleika í
Akureyrarkirkju mánudaginn
30. júní kl. 20.30. Kórinn kem-
ur hingað í framhaldi af vina-
bæjarheimsókn til Egilsstaða.
HEILDARSKULDIR Hita- og vatns-
veitu Akureyrar eru um 3 milljarðar
króna og hafa lækkað um rúmar 500
milljónir króna frá því í árslok 1993.
Eftir er að greiða um 200 milljónir
króna í afborganir af lánum á þessu
ári og vonast Franz Árnason, hita-
og vatnsveitustjóri, til að um næstu
áramót verði skuldir veitunnar
komnar niður undir 2,8 milljarða
króna. Það ráðist þó af því að gengi
krónunnar haldist óbreytt miðað við
„skuldakröfu“. Höfuðstóll veitunnar
var jákvæður samkvæmt ársreikn-
ingi 1996 og er það í fyrsta sinn sem
svo er.
Hitaveita Akureyrar tók lán hjá
Citibank árið 1987. Lánið var til 10
ára, svokallað kúlulán og var láns-
upphæðin 32 milijónir Bandaríkja-
dala. Lánið var tekið til að greiða
upp 15 milljón dollara lán frá Citi-
bank, auk þess sem greidd voru upp
mörg óhagstæð lán sem tekin höfðu
verið frá 1977 tii 1987. Lánið var
með ríkisábyrgð.
Á síðari hluta síðasta árs var
ákveðið að lcita til Seðlabanka og
Ríkisábyrgðarsjóðs vegna nýrrar
lántöku til að greiða upp lánið frá
1987. Heimiid var í lánsfjárlögum
til þess að veita ríkisábyrgð vegna
lántöku HVA. Ákveðið var að leita
tilboða hjá völdum aðilum erlendis í
lán að jafnvirði 34 milljóna Banda-
ríkjadala, til að greiða upp lánið
ásamt vöxtum.
Lán yfirtekin af bæjarsjóði
Eins og kunnugt er seldi Akur-
eyrarbær hlut sinn í Útgerðarfélagi
Akureyringa hf. og hugðist nota
tekjur af sölunni til að greiða upp
skuldir. Þegar farið var að skoða
þau lán sem greiða átti kom í ljós
að nokkur innlend lán báru fremur
lága vexti. í kjölfarið var á ákveðið
að HVA yfirtæki nokkur lán bæjar-
sjóðs samtals að upphæð 500 miilj-
ónir króna, verðtryggð lán með vel
innan við 6% vexti. Þegar þetta lá
fyrir var send út ósk um lánstilboð
í 27 milljónir Bandaríkjadala eða
jafngildi þess í öðrum gjaldmiðlum.
Sex tilboð bárust frá virtum fjár-
málastofnunum sem starfa á al-
þjóðamarkaði. Að vandlega athug-
uðu máli og að höfðu samráði við
Seðlabanka og Ríkisábyrgðarsjóð
lögðu hita- og vatnsveitustjóri og
hagsýslustjóri til við veitustjórn að
gengið yrði til samninga við Citi-
bank. Veitustjórn og síðan bæjar-
stjórn samþykktu tillöguna.
Betri lánskjör vandfundin
Á meðan var verið að ganga frá
málinu, m.a. ákvarða gjaldmiðla-
samsetningu lánsins, kom í ljós að
efni voru til að lækka lántökuna um
1 milljón dala eða í 26 milljónir.
Lánssamningurinn gerir ráð fyrir
fljótandi vöxtum og er lánið í þrem-
ur gjaldmiðlum, dollurum, þýskum
mörkum og frönskum frönkum. Af-
borgarnir af láninu hefjast árið
2001, eru litlar í byrjun en fara
hækkandi í samræmi við lækkun
annarra skulda HVA.
„Við sem að lántökunni unnum
erum mjög sáttir við árangurinn og
erum þess jafnframt fullvissir að
Citibank hefur teygt sig mjög langt
til að koma til móts við okkar óskir.
Einnig má fullyrða að betri lánskjör
eru vandfundin um þessar mundir,"
sagði Franz.
f/ó()or
í emum
/jdÁ’Aw
^fiótta undan
ástinni
pessv\rðiaðte
Wévcn á r\Sf
Rarnsráúið
^ ásútgáfan
Glerárgötu 28 - Sími 462 4966
Forsetahjónin á vinabæjaviku
Forsetinn afhjúpaði
listaverk í miðbænum
FORSETI íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, og kona hans,
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir,
komu til Akureyrar í gær og tóku
þátt í dagskrá á lokadegi norrænu
vinabæjavikunnar NOVU 97. Ólaf-
ur Ragnar afhjúpaði listaverk í
miðbænum og forsetahjónin voru
heiðursgestir á „Nordisk aften“
hátíðarkvöldverði í íþróttahöllinni í
gærkvöldi, ásamt sendiherra Nor-
egs og starfsmönnum annarra nor-
rænna sendiráða.
Listaverkið sem afhjúpað var í
- kjarni málsins!
miðbænum, var unnið af 19 ung-
mennum frá norrænu vinabæjunum
fímm sem þátt tóku í vinabæjavik-
unni en Sólveig Baldursdóttir, lista-
maður á Akureyri, hafði yfirumsjón
með þeirri vinnu. Sólveig fór í heim-
sókn til vinabæjanna í vetur og þar
hófst vinna við verkið á hveijum
stað. Ungmennin luku við sinn hluta
heima og hver súla steypt í brons
en alls eru 5 súlur í verkinu. Unnið
hefur verið við uppsetningu verks-
ins í vikunni og við gerð tjarnarinn-
ar sem því tilheyrir.
Bæjarstjórar vinabæjanna fimm
afhjúpuðu hver sína súluna en for-
seti Islands vígði verkið, með því
að klippa á borða við tjörnina. Að
sögn Ingólfs Ármannssonar er þetta
verk skilaboð ungmennanna um
framtíðina.
Afmælis-
hátíð Olís
OLÍS stendur fyrir íjölbreyttri af-
mælishátíð við þjónustumiðstöð Olís
á Akureyri laugardaginn 28. júní frá
kl. 10-16. Hátíðin er haldin í tilefni
af 70 ára afmæli félagsins og teng-
ist afmælisleik Olís, „Veisluhöld og
vinningar".
Dagskrá hátíðarinnar verður fjöl-
breytt og ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Gevalía býður
kaffið, Vífilfell gosið og grillað verð-
ur af kappi. Olli mætir á svæðið og
gefur Ol-ís, djasshópur frá Tónlistar-
skóla Akureyrar leikur milli kl. 13
og 14, KA-menn þvo bíla ókeypis
milli 12 og 15. Börnin komast í
skemmtileg leiktæki, fá óvæntan
glaðning og fleira verður á dagskrá.
-----♦ ♦ ♦
Meiiningarkvöld
Ólafsfjörður. Morgunblaðiö.
MENNINGARKVÖLD til _ heiðurs
tónlistarmanninum Jóni Árnasyni
frá Syðri-Á verður haldið í Tjarnar-
borg laugardagskvöldið 28. júní.
Margir góðir gestir koma fram, m.a.
Sigrún Eva Armannsdóttir, Ólafur
Þórðarson, Harmonikkufélag Eyja-
fjarðar og fleiri.
Eftir skemmtidagskrá verður
dansað við harmonikkumúsik.
♦ ♦ ♦-----
*
Islandsflug
kynnir flug til
Akureyrar
ÍSLANDSFLUG mun hefja áætlun-
arflug milli Reyjavíkur og Akureyrar
þriðjudaginn 1. júlí. Farnar verða
tvær ferðir á dag aila daga vikunn-
ar, á 46 sæta ATR vél félagsins.
Af því tilefni hefur félagið boðað
til fjörugra flugdaga á Akureyrar-
flugvelli laugardaginn 28. júní, frá
kl. 15-17. Þar gefst gestum kostur
á að skoða Dornier og ATR flugvél-
ar íslandsflugs og kynna sér starf-
semi félagsins á Akureyri.
Gestum verður boðið upp á kaffi,
gos, ávaxtasafa og pizzur og þau
ynstu fá sleikjó. í gangi verður happ-
drætti og eru glæsilegir vinningar í
boði.
-----»...» 4---
Fimm og
köttur sýna
FJÖLLISTAHÓPURINN Fimm og
köttur opnar sýningu í International
Gallerý of Snorri Ásmundsson í
kvöld kl. 21.
Hópurinn samanstendur af lista-
mönnum af öllum stærðum og gerð-
um sem sameinst nú með eldmóð í
hjarta í að skapa sýninguna „Líf ?“
fyrir alla fjölskylduna.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
FORSETI íslands, herra Ólaf-
ur Ragpiar Grímsson, aflyúp-
aði iistaverk 19 norrænna
ungmenna á vinabæjaviku á
Akureyri í gær.
I-
í
,
»
L
t
i
I
I
€
i
i
i
J