Morgunblaðið - 27.06.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1997 17
Afmælisár í Stykkishólmi
Bæjarskemmtun
haldin 29. júní
Stykkishólmi - Það eru margar
stofnanir og félög í Stykkishólmi
sem eiga merkisafmæli á þessu
ári. Á þessu ári eru 400 ár síðan
verslun hófst í Stykkishólmi, 10 ár
síðan bærinn fékk kaupstaðarrétt-
indi og 150 ár frá stofnun Amtbóka-
safnsins í Stykkishólmi. Þessara
tímamóta verður minnst í Stykkis-
hólmi á veglegan hátt sunnudaginn
29. júní nk.
Afmælisdagskráin hefst kl. 13
við Norska húsið. Þar mun Lúðra-
veit Stykkishólms leika og Kór
Stykkishólmskirkju syngja. Opnuð
verður sýning í Norska húsinu á
verkum eftir Rudolf Weissauers.
Árið 1982 fékk Amtbókasafnið um
200 vatnslita- og grafíkmyndir eft-
ir þýska listamanninn Rudolf
Weissauers að gjöf frá Katli Jóns-
syni frá Hausthúsum í Eyjahreppi.
Er þetta í fyrsta skipti sem mynd-
imar eru sýndar almenningi og
hefur Bragi Ásgeirsson valið mynd-
ir á sýninguna. Þá verður meðal
annars boðið upp á götuleikhús og
afmæliskaffi í félagsheimilinu. Um
kvöldið verða tónleikar fyrir ungl-
ingana þar sem nokkrar vinsælar
hljómsveitir skemmta. Þá verður
dansleikur í félagsheimilinu á laug-
ardagskvöld fyrir eldri aldurs-
flokka.
Atvinnulífssýning á Hvammstanga
Áhersla á framleiðslu
matvæla og iðnvarnings
Hvammstanga - Atvinnulífssýn-
ingar, sem er liður í Björtum nótt-
um, héraðshátíð Vestur-Húnvetn-
inga, verður haldin á Hvammstanga
laugardag og sunnudag, 28. og 29.
júní. Verður þar lögð áhersla á að
kynna framleiðslu matvæla og iðn-
vamings, handverk og margvíslega
þjónustu sem veitt er í héraðinu.
Að sögn Björns Hannessonar,
framkvæmdastjóra Bjartra nátta
1997, verður um fjölbreytta og
áhugaverða sýningu að ræða sem
sett verður upp í Félagsheimilinu
Hvammstanga og einnig á útisvæði
þar. „Þetta verður í fyrsta sinn sem
slíkur vettvangur skapast í hérað-
inu og taka um 30 aðilar þátt í
sýningunni.
Sýnd verður starfsemi og fram-
leiðsla sjávarútvegsfyrirtækja og
landbúnaðarafurðastöðva, fjöl-
breytt handverk héraðsbúa og þijár
saumastofur, sem allar hafa sér-
stöðu, sýna framleiðslu sína auk
þess sem margvísleg iðnaðarstarf-
semi verður kynnt. Má þar nefna
trésmíði, innréttingasmiðju, eðal-
málmsmiðju, fyrirtæki á sviði hug-
búnaðar og tölvuvinnslu og orku-
sölu.“
Upplýsingamiðstöð ferðamála
verður á staðnum og kynnir ýmsa
BJÖRN Hannesson, fram-
kvæmdastjóri atvinnulífssýn-
ingarinnar á Hvammstanga.
ferðaþjónustu sem í boði er i Vest-
ur-Húnavatnssýslu. Á útisvæði
verður búvélasýning á vegum sölu-
umboða.
í kjölfar átaksverkefnis Vestur-
Húnvetninga sem starfrækt var
árin 1989-1991 voru stofnsett
nokkur smáiðnfyrirtæki sem mörg
hver hafa skotið föstum rótum í
héraðinu. Er því atvinnulíf héraðs-
ins fjölbreyttara og gróskumeira en
margur hyggur, segir Björn enn-
fremur.
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
VERKTAKINN að störfum í Kokkálsvíkurhöfn.
Skjólgarður í Kokkálsvíkurhöfn
Drangsnesi - Unnið er að endurgerð
skjólgarðs í Kokkálsvíkurhöfn við
Drangsnes. Garðurinn, sem gerður
var árið 1973, var farinn að gefa sig
á kafla þannig að sjór gekk yfír hann
ef eitthvað var að veðri.
Framkvæmdin var boðin út og var
Guðjón Jónsson frá Hvolsvelli með
lægsta tilboðið í verkið, um 80% af
kostnaðaráætlun eða tæpar fjórar og
hálf milljón. í verkinu felst að taka
upp gijót og endurraða í garðinn og
auk þess styrkja hann með viðbótar-
magni af gijóti.
Á verkinu að vera lokið um miðjan
júlí.
Morgunblaðið/Ólatur Bernódusson
KRAKKARNIR heilluðust mjög af tertunni sem var í boði í tilefni afmælisins.
Leikskólinn
Bamaból 20 ára
Skagaströnd - Það var mikið
um dýrðir þegar haldið var upp
á 20 ára afmæli leikskólans
Barnabóls í sól og blíðu 20. júní
síðastliðinn. í tilefni dagsins
buðu börnin foreldrum sínum,
systkinum, öfum og ömmum til
garðveislu á leikskólanum.
Margt var um manninn í af-
mælishófinu þar sem krakkarn-
ir sýndu leikrit og sungu fyrir
gesti. Þá var boðið upp á
grillaðar pylsur og tertu ásamt
dry kkj arföngum svo enginn
væri nú svangur í veislunni.
Leikskólabörnin voru misjafn-
lega áhugasöm fyrir veisluhald-
inu því sum þeirra vildu helst
ekkert láta trufla sig í sand-
kassanum og virtust ekki botna
neitt í öllum þessum mannfjölda
sem allt í einu mætti i leikskól-
ann þeirra.
Það var Lionsklúbbur Skaga-
strandar sem byggði leikskól-
ann á sínum tíma og afhenti
Höfðahreppi hánn til rekstrar
og eignar.
Á siðasta ári var síðan tekin
í notkun viðbygging við skólann
þar sem eldra húsið var orðið
alltof lítið til að sinna þörfinni
fyrir leikskólapláss.
Barnaból starfar nú í tveimur
deildum, fyrir og eftir hádegi,
og þar eru átta starfsmenn.
Hafnarframkvæmdir á Þórshöfn
Lægsta tilboð var
53,6 milljónir
Þórshöfn - Töluverðar fram-
kvæmdir verða við höfnina á Þórs-
höfn á næstu mánuðum en á mið-
vikudag voru tilboð opnuð í gerð
brimvarnargarða. Alls buðu níu
fyrirtæki í verkið. Kostnaðaráætlun
er kr. 71.394.881 og lægsta tilboð
áttu Hjarðamesbræður ehf, Höfn,
kr. 53.612.240 sem er um 75% af
kostnaðaráætlun. Auk Hjarðames-
bræðra buðu eftirtalin fyrirtæki í
verkið; Iðufell ehf, Raufarhöfn,
Klæðning hf, Bergbrot-Borgarvirki,
Suðurverk, Ellert Skúlason hf, Há-
fell ehf. Héraðsverk ehf. og Rögn-
valdur Ámason.
Þessar hafnarbætur eru taldar
mjög þarfar því á síðari árum hef-
ur umferð um höfnina margfald-
ast, m.a. vegna aukinna umsvifa
hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.
Með nýjum varnargörðum verður
meiri kyrrð í höfninni og betur fer
um skipin í leguplássum, auk þess
sem þægilegra verður að skipu-
leggja umferð í höfninni. Smábáta-
aðstaða nýtist einnig betur.
Höfnin lífæð fyrirtækis
og byggðar
Breytingar í útgerð og fisk-
vinnslu ásamt veralega auknum
umsvifum hafa á seinni áram kall-
að á umtalsverðar framkvæmdir
við höfnina. Með líkantilraunum
hjá Vita- og hafnamálastofnun
árið 1991 var lagður grannur að
þeim framkvæmdum sem síðan
hefur verið unnið að og verður
unnið að á næstu áram.
Meginniðurstöður þeirra til-
rauna voru þær að til að ná ásætt-
anlegri kyrrð innan hafnar í öllum
vindáttum væri nauðsynlegt að
lengja núverandi Norðurgarð og
byggja nýjan garð út frá austur-
landinu, svokallaðan Suðurgarð.
Innsigling og aðkoma að loðnu-
og síldarlöndunarköntunum var
dýpkuð 1993 í 7,5 metra þannig
að stærri nótaskip eiga nú greiða
leið inn til löndunar. Fyrir tveimur
árum var rekið niður 70 metra
langt stálþil framan við salthús
H.Þ. og var gengið frá þekju og
lögnum við þann kant 1996. Þess-
ar framkvæmdir hafa stórbætt alla
aðstöðu á hafnarsvæðinu, einkum
er aðstaða til löndunar á síld og
loðnu til manneldisvinnslu bætt
ásamt aðstöðu til löndunar á kú-
fiski.
Hafskipakantur lengdur í
næsta áfanga
Samkvæmt hafnaráætlun eru
fjárveitingar til byggingar brim-
vamargarðanna á þessu ári og á
næsta ári og skal framkvæmdum
lokið næsta vetur. Næstu áfangar
era síðan að bæta aðstöðu til vöru-
flutninga um höfnina með lengingu
hafskipakants og bundnu slitlagi á
gámasvæði. Að því loknu verður
ráðist í að auka viðlegurými innan
hafnar, bæði til að bæta aðstöðu
smærri báta og einnig til að koma
til móts við þarfir ýmissa þjónustu-
fyrirtækja sem flotinn á viðskipti
við, s.s. vélsmiðjur og veiðafæra-
gerðir.
Tækiiival
Shellstöóvarnar