Morgunblaðið - 27.06.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FOSTUDAGUK 27. J UNI 1997 Zð
ERLENT
Síðustu dagar löggjafarþings Hong Kong
Saka Breta o g Banda-
ríkjamenn um svik
Hon£ Kong, Taipei. Reuter.
Birtir til
hjá Svíum?
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„FJÁRÚTLÁT í stað niðurskurðar"
er boðskapur Görans Perssons for-
sætisráðherra Svía að loknum fundi
í stjórn Jafnaðarmannaflokksins.
Jafnframt boðar hann skattahækk-
anir á hálaunafólk þar sem jafna
þurfi byrðunum. Samtök sænskra
iðnrekenda benda hins vegar á að
efnahagsstaðan sé enn ótrygg og
ekki horfur á aukinni atvinnu.
Göran Persson álítur að Svíar séu
nú komnir yfir erfiðasta hjallann í
glímunni við efnahagsvandann. Á
næsta ári verði því til fé til að deila
út og nú þurfi að ræða hvernig því
verði skipt. Stjórnin hefur þegar
tilkynnt að skólakerfinu verði sinnt
sérstaklega. Jafnframt hefur Pers-
son beint sjónum að miklum kaup-
hækkunum framkvæmdastjóra og
hefur látið í ljós að rétt sé að skatta
hátekjumenn sérstaklega.
Undanfarið hefur Hægriflokkur-
inn verið stærri í skoðanakönnunum
en Jafnaðarmannaflokkurinn, en
það hefur nú snúist við, rétt þegar
Carl Bildt, formaður flokksins, er
að koma aftur á heimavöll sænskra
stjórnmála. Líklega hefur efna-
hagsbati hjálpað Persson.
Keisaraynj
urnar í
Hong Kong
KONUR í Hong Kong flykkjast
nú á snyrtistofur til að fá hár-
greiðslu og andlitsmálningu að
hætti keisaraynja í tilefni valda-
skiptanna en þá hyggjast konurn-
ar skarta sínu fegursta í hinum
fjölmörgu valdaskiptaveislum í
borginni. Þessi sýningarstúlka er
í hópi þeirra sem fengu keisara-
lega snyrtingu í gær.
KJORNIR fulltrúar á löggjafarþingi
Hong Kong, sem munu missa þing-
sæti sín við valdatöku Kínverja, hafa
harðlega gagnrýnt ríkisstjórnir
Breta og Bandaríkjanna fyrir að
hverfa frá fyrri yfirlýsingum sínum
um að hundsa innsetningarathöfn
nýja þingsins.
Kínastjórn hefur ákveðið að leysa
upp lýðræðislega kjörið löggjafar-
þing Hong Kong, er hún tekur við
völdum í borginni 1. júlí næstkom-
andi, og skipa þess í stað nýtt þing
frammámanna sem eru hliðhollir
stjórninni í Perking.
Þingmenn hins nýja þings verða
settir inn í embætti sín við hátíðlega
athöfn skömmu eftir að Bretar af-
henda Kínveijum borgina. Bæði
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og Tony Blair,
forsætisráðherra Breta, hafa ákveð-
ið að sniðganga innsetningarathöfn-
ina í mótmælaskyni við upplausn
löggjafarþingsins. Þá hafa bresk
stjórnvöld reynt að sannfæra önnur
ríki Evrópusambandsins um að gera
slíkt hið sama. Það hefur ekki tekist
þótt Evrópusambandið hafi skorað á
Kínastjórn að standa við fyrirheit
um kosningar í Hong Kong innan
árs frá valdatökunni.
Bretar og Bandaríkjamenn
draga í land
Nú hafa hins vegar stjórnir bæði
Bretlands og Bandaríkjanna dregið
í land með afstöðu sína og sagt að
aðrir fulltrúar þeirra verði viðstaddir
athöfnina. Lýðræðissinnar í Hong
Kong, sem eru áhyggjufullir um
framtíð sína eftir valdatöku Kin-
veija, hafa lýst yfir óánægju og
vonbrigðum með umskipti landanna
ogjafnvel ásakað þau um svik. Þing-
maðurinn Emily Lau fordæmdi
stjórnirnar í London og Washington
og sagði þær fyrirlitlegar. Martin
Lee, formaður Demókrataflokks
Hong Kong, sagði að breytingin
væri útvötnun á fyrri yfirlýsingum,
jafnvel þversögn við þær. Sonny Lo,
stjórnmálaskýrandi við Hong Kong
háskóla, spáði því að þetta markaði
endalok opnberra afskipta Breta af
stjórnarfari Kínveija í Hong Kong.
Áhrifamenn í Bretlandi hafa hins
vegar vísað því á bug að Bretar séu
að draga í land með mótmæli sín
við upplausn þingsins. Francis Corn-
ish, viðskiptafulltrúi bresku stjórnar-
innar, sem mun verða viðstaddur
athöfnina fyrir hönd breskra stjórn-
valda, sagðist styðja embætti Tung
Chee-hwa, hins nýja stjórnanda
Hong Kong, og starfsliðs hans og
vilja eiga góð samskipti við þau í
framtíðinni. Hann verði viðstaddur
athöfnina vegna þess að þau verði
svarin inn í embætti við sama tæki-
færi. Fréttaskýrendur eru sammála
um að mildari afstaða Bretlands og
Bandaríkjanna miði að því að vernda
viðskiptahagsmuni landanna á
mörkuðum í Kína.
Fundað um nýjan sáttmála Evrópusambandsins
Santer segir breyting-
arnar ganga of skammt
Brussel. Reuter.
JACQUES Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, ESB, fordæmdi í gær hvernig
leiðtogum ESB-ríkjanna mistókst á
fundi sínum í Amsterdam í liðinni
viku að samþykkja endurbætur á
sambandinu, sem nægðu til að búa
það undir stækkun til austurs. Ut-
anríkisráðherrar ESB funduðu um
niðurstöðu Amsterdam-fundarins í
Lúxemborg í gær.
„Ég tel að þetta viti ekki á gott
með tilliti til stækkunar," sagði
Santer í ávarpi fyrir Evrópuþinginu,
en hann sparaði ekki gagnrýnina
á niðurstöðu leiðtogafundarins
fyrir að ganga ekki nógu langt
í innri endurbótum á samband-
inu. Sáttmálinn verður ekki und-
irritaður formlega fyrr en í októ-
ber. í dag, föstudag, ætlar hol-
lenzka ríkisstjórnin, sem er í
forsæti fyrir ESB, að freista
þess að útskýra hinn nýendur-
skoðaða sáttmála fyrir fulltrúum
þeirra ríkja sem hafa sótt um
aðild að sambandinu.
Ríkjaráðstefna ESB, sem
hófst í marz 1996 og lauk á leið-
togafundinum í Amsterdam,
hafði það hlutverk að endur-
skoða stofnanauppbyggingu
sambandsins og fyrirkomulag
ákvarðanatöku með það fyrir
augum að gera hana skilvirkari
og í stakk búna til að virka þótt
aðildarþjóðunum ijölgaði í allt
að 25. Hin upprunalega uppbygging
sambandsins var miðuð við 6 aðild-
arþjóðir, og þótt þær séu nú orðnar
15 hefur henni ekki verið breytt í
grundvallaratriðum.
Breytingarnar sem voru ákveðn-
ar á Amsterdam-fundinum gengu
skammt. Leiðtogunum mistókst að
Ijölga svo neinu nemi þeim málefna-
sviðum ESB-samstarfsins, þar sem
ákvarðanir eru teknar með auknum
meirihluta. Þannig héldu aðildarrík-
in neitunarvaldi á fleiri sviðum en
vonazt hafði verið til að samkomu-
lag næðist um, þar sem ákvarðana-
taka með 25 aðildarþjóðum við
samningaborðið verður fyrirsjáan-
lega mjög erfið ef hver og ein þeirra
nýtur neitunarvalds.
Endurskoðun í
fyrsta lagi 2002
Það náðist heldur ekki sam-
komulag um að takmarka ijölda
framkvæmdastjórnarmeðlima
eða um að breyta atkvæðavægi
aðildarríkjanna í ráðherraráð-
inu. Leiðtogarnir ákváðu þess í
stað að fresta endanlegum
ákvörðunum er varða endur-
skoðun stofnanauppbyggingar
og ákvarðanatöku fram til þess
tíma sem af næstu stækkun
sambandsins verður, sem spáð
er í fyrsta lagi árið 2002.
Santer dró enga dul á það
að sér finndist þessi niðurstaða
„undir meðallagi“ og tók Wim
Kok, forsætisráðherra Hollands
og forseti ráðherraráðsins, und-
ir þetta mat framkvæmda-
stjórnarforsetans.
Reuter
JACQUES Poos, utanríkisráðherra
Lúxemborgar, býður starfssystkin sín
frá Svíðþjóð, Lenu Hjelm-Wallén, og
Hollandi, Hans van Mierlo, velkomin á
ráðherraráðsfund ESB, þar sem niður-
staða Amsterdam-fundarins og fjöl-
mörg önnur mál voru rædd.
Agreiningur ógnar EMU
Frankfurt. Reuter.
PENINGALEGUR samruni Evrópu-
sambandsríkjanna kann að vera ógn-
að af „grundvallarágreiningi"
Frakka og Þjóðveija í mikilvægum
málum að mati háttsetts embættis-
manns í þýska seðlabankanum.
Reimut Jochimsen, er á sæti í banka-
ráði seðlabankans, sagði við blaða-
menn á miðvikudagskvöld að áform-
in um Efnahags- og myntbandalag
(EMU) héngu á bláþræði í kjölfar
þess að ekki hefði verið tekin ský-
laus ákvörðun um pólitískan sam-
runa á leiðtogafundinum í Amster-
dam fyrr í mánuðinum.
„Ég hef ekkert á móti evróinu.
Hún kann að hafa sína kosti ef hin-
ar efnahagslegu og pólitísku for-
sendur eru til staðar. Þær eru það
hins vegar ekki sem stendur," sagði
Jochimsen. Hann sagði brýnt að
Frakkar og Þjóðveijar leystu ágrein-
ing um þá kröfu Frakka að komið
yrði á pólitísku mótvægi við hinn
evrópska seðlabanka, sem til stendur
að mynda, og kröfu þeirra um að
ESB móti stefnu gegn atvinnuleysi.
í Þýskalandi hafa margir áhyggj-
ur af því að Frakkar vilji draga úr
sjálfstæði hins evrópska seðlabanka
og auka áhrif stjórnmálamanna á
mótun peningastefnu.
Jochimsen, sem á aðild að Jafn-
aðarmannafiokknum (SPD), sagðist
telja skynsamlegt að láta EMU verða
að veruleika 1. janúar 1999 líkt og
áformað hefur verið þó svo að ein-
ungis lítill hluti aðildarríkja ESB
uppfylli skilyrði fyrir aðild.
Franska utanríkisráðuneytið gerði
lítið úr áhyggjum Jochimsens í gær
og sagði talsmaður þess að aukinn
efnahagsiegur samruni ESB-ríkj-
anna myndi gera ágreiningin milli
Þýskalands og Frakklands að engu.
HAGKAUP