Morgunblaðið - 27.06.1997, Page 39

Morgunblaðið - 27.06.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 39 JONA ERLINGSDÓTTIR + Jóna Erlings- dóttir var fædd 21. október 1914. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Skjóli við Dalbraut í Reykjavík, að morgni 20. júní síð- astliðinn. Móðir hennar var Kristín, dóttir Erlends Magnússonar, b. á Kaldárbakka í Skorradal, og Ragnhildar Berg- þórsdóttur. Faðir Jónu var Erlingur, b. á Stóru-Dragá í Skorradal, Jóhannssonar, b. á Þyrli, Engja- landi og á Indriðastöðum, Torfasonar, b. á Valdastöðum, Guðlaugssonar. Móðir Jóhanns var Málfríður Einarsdóttir, en móðir Málfríðar var Þórunn Björnsdóttir, b. á Fremra-Hálsi og á írafelli í Kjós, Stefánsson- ar, og konu hans Úrsúlu. Systk- ini Jónu voru Albert kaupmað- ur og málarameistari, Bertel málarameistari, Guðlaug versl- unakona, Ólafur bókaútgef- andi, Ragnhildur verslunar- kona, og Ragnar málarameist- ari. Eru þau öll látin. Jóna giftist árið 1936, Stefáni Viktori Guðmundssyni, sjó- manni, f. 3.2. 1912, d. 25.1. 1993. Faðir hans var Guðmund- ur Krisiján Bjarnason skip- sfjóri í Reykjavík, fæddur 12.12. 1872, sonur Bjarna Jóns- sonar útvegsbónda frá Dalshús- um í Önundarfirði, og Rósamundu Guð- mundsdóttur. Móðir Stefáns var Sólveig Steinunn Stefáns- dóttir, b. á Stóru- Vatnsleysu á Vatns- leysuströnd, Magn- ússonar, fædd 29.3. 1887. Systkini Stef- áns voru Axel Ósk- ar sjómaður, Bjarni yfirumsjónarmaður þjá Pósti og síma, Guðmundur Linnar skipstjóri, Jens, og Njáll skólastjóri. Eru þau öll látin, auk tvíbura, sem létust í æsku. Jónu og Stefáni varð fimm barna auðið: Sólveig Helga, f. 15.4. 1933, fyrrum framreiðslu- kona, gift Friðgeiri Gunnars- syni, búsett í Reylqavik; Stella, f. 22.7. 1936, húsmóðir, gift Aðalsteini J. Þorbergssyni, bú- sett í Reykjavík; Guðmundur Kristján, f. 1.5. 1943, vélvirki, sambýliskona Valborg Björg- vinsdóttir, búsettur í Reykja- vík; Erlingur Kristinn, f. 17.8. 1946, framkvæmdastjóri, kvæntur Erlu Ottósdóttur, bú- sett í Reykjavík; og Albert, f. 9.4. 1949, sjúkraliði og þjónn, kvæntur Vigdísi Björnsdóttur, búsett á Blönduósi. Barnabörn- in og bamabarnabörnin era orðin fjölmörg. Útför Jónu fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfn- in klukkan 10.30. Það var mikil sorgarfrétt, þegar tilkynning barst frá hjúkrunar- heimilinu Skjóli snemma að morgni síðastliðins föstudags, að ástkær móðir, amma og langamma, hefði látist. Margar minningar koma upp í hugann um þessa yndislegu konu, sem svo oft þurfti að horfast í augu við harða lífsbaráttuna. Hún bjó manni sínum Stefáni heimili í Reykjavík, þegar kreppan mikla hafði látið að sér kveða víða um heimsbyggðina sem og hér á landi. Það hefur því ekki verið auðvelt að koma upp fjölskyldu á þessum árum fyrir marga, þegar lífsgæðin voru naumt skömmtuð. Lífið getur stundum verið eins dagurinn, sól rís að morgni og sest að kvöldi. Við sólarupprás í lífi hennar hefur örugglega reynt á þolgæði, dugnað og bjartsýni til að takast á við þá erfiðleika, sem blöstu við mörgum á þessum árum. Vinna þurfti hörð- um höndum til þess eins að geta séð sér og sínum farborða. Stefán maður hennar hafði snemma farið að stunda sjómennsku og gerði í rúmlega 40 ár. Það kom því í hlut Jónu að stýra heimilinu, auk þess sem hún lagði dijúga hönd á plóg- inn með vinnu utan heimilis, til að fjölskyldan liði sem minnstan skort. Jóna var nefnilega ein af þessum merku alþýðukonum, sem mótbyr slípaði og styrkti, og taldi það ekki eftir sér að taka á þegar svo bar undir. Hún hafði ekki mörg orð um þá baráttu, sem lífíð var á þessum árum, frekar en reyndar Stefán maður hennar, þegar talið barst að þessu tímabili í lífi þeirra og sögu þjóðarinnar. Það var stundum eins og hún hefði varla upplifað það sjálf, og segir það ýmislegt um þessa sómakonu. Tækifærin í lífinu fyrir marga fjölskylduna á fyrri hluta aldarinn- ar voru ekki mörg. Brauðstritið var fólkinu nauðsynlegast, og það gleymist oft, að mörg merkiskonan og -maðurinn leyndust einmitt meðal þessa alþýðufólks, sem að- eins hafði tíma til að færa björg í bú, og koma undir sig fótunum. Of sjaldan heyrast raddir þeirra, sem lífsbaráttan lék hart og gátu ekki valið sér leiðir í lífinu. Erfið- leikar ofan á erfiðleika gátu oft markað sín spor. Oftar en ekki er fyrirfólks minnst, þegar það vinnur afrek sín. Minna fer fyrir afrekum „venjulegs“ alþýðufólks, sem svo oft í raun afrekin vinnur í lífinu. Jóna og Stefán, tilheyra hópi þeirra síðarnefndu, afreksfólki í lífsins ólgusjó, sem af æðruleysi tóku því sem að höndum bar. Jóna bjó börnum sínum heimili víðs vegar um borgina, þar á með- al í Þingholtunum, í næsta ná- grenni staðinn sem ekki ómerkari menn en Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra þjóðarinnar, og Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldis- ins, höfðu áður búið, auk fleiri þjóð- þekktra manna. Arin liðu og Jóna flutti með fjölskyldu sína í Tjarnar- götu og á Skúlagötu. Síðar bjuggu þau hjón í Álftamýri, þegar börnin voru að fljúga úr hreiðri, og við Grensásveg, áður en þau fluttu á Norðurbrún. Jóna lagði fyrir sig ýmis störf um ævina, og vann sem ung kona á Hótel Borg, þegar það var upp á sitt besta og í goðsagna- líki. Jóna stundaði framreiðslustörf lengi vel og vann hún einnig við þau á matsölustað í gömlu Mjólkur- stöðinni við Laugaveg, auk þess að vera með kaffíumsjón fyrir starfsmenn á Hótel Sögu síðar meir. Minnisstæðar eru þær stund- ir þegar Jóna var heimsótt í vinnu. Var hún þá örlát á mat og drykk og muna barnabörnin oft eftir því þegar hún gaf þeim mjólk og klein- ur, sem var uppáhald margra af yngri kynslóðinni á þessum árum. Jóna var einnig um tíma í fiskvinnu í Reykjavík, og lagði með því sitt af mörkum til að þjóðin væri feti nær þeirri velmegun, sem margur meðal hennar nýtur í dag og hún fór á mis við. Jóna var kölluð Lóa meðal vina og vandamanna, og barnabörnin kalla hana Lóu ömmu, og barna- barnabömin kalla hana auðvitað Lóu langömmu. Eins og áður hefur komið fram slípaði og brýndi lífs- baráttan Lóu, og má kannski segja að nauðsynlegt hafi verið í lífsbar- áttu hennar að mynda skráp til að verjast brotöldunum í lífinu. Hún gat verið kát og hláturmild, þegar tilefni gafst til, og bamabömin minnast oft hláturs hennar, þegar svo bar undir, sem þýddi oft að sólin skein skært í hjarta hennar, þrátt fyrir harða lífsbaráttuna. Lóa var félagslynd og hafði gaman af að hitta og spjalla við fólk, og ekki lá hún á skoðun sinni ef svo bar undir þegar mál voru rædd, og kom þá stundum í ljós að hún gat verið ákveðin og föst fyrir, og skal þar engan undra. Þetta hefur hún eflaust þurft að temja sér, þegar lífíð gat stundum farið um hana svo óblíðum tökum. Til að skilja þessa sómakonu varð að fara undir skrápinn og skoða málin frá hennar sjónarhóli, og undir niðri gat hún verið ljúf og góð. Lóa var mjög svo gestrisin, þeg- ar hún var sótt heim, og minnast barnabömin margra góðra stunda með henni og Stefáni afa sínum. Hann hafði fært þeim marga gjöf- ina þegar hann sigldi á skipum milli landa, og minnisstæðar em þær stundir, þegar Lóa og hann buðu þeim upp á heimsins besta sælgæti úr stórum járnboxum frá útlöndum. Það vom nefnilega ekki allar ömmur og afar, sem gátu boðið upp á slíkar gersemar á yngri árum barnabarnanna. Þetta voru heimsóknir og stundir, þar sem hlátur gall í eymm, og sól var í hjarta. Oft buðu þau barnabörnun- um í mat, og þegar sjónvarpsöld var gengin í garð hjá þjóðinni á sjöunda áratugnum, þóttu það for- réttindi að eiga sjónvarp. Fyrir barnmargar fjölskyldur tók það tíma að afla sér slíks tækis, og meðan á þeim biðtíma stóð vom dyrnar alltaf opnar fyrir bama- börnin hjá ömmu sinni og afa, sem áttu eitt slíkt tæki, og auðvitað fylgdi lúxus sælgæti með í hléum. A hátíðlegum stundum var gnægð matar, og oftar en ekki kökur og gosdrykkir. Áttu barnabömin oft eftirminnilegar og góðar stundir þegar þetta bar upp á. Lóa lagði mikið upp úr að hafa jólin hátíðleg, og vom jólaskreytingamar mikil- vægur þáttur í því. Minnast bama- börnin oft þess hversu vel skreytt og hátíðlegt var hjá henni, þegar þau komu í heimsókn, sem gaf hátíðinni aukið gildi og minnti þau á anda jólanna. Hún og Stefán vom dugleg við að fara I heimsókn- ir, þegar sá var gállinn á þeim, komin vel á sjötugsaldurinn. Var þá Skoda-bifreið þeirra hjóna, sem þau héldu svo lengi tryggð við, notuð til hins ýtrasta, og var með ólíkindum hvað þau gátu komist á milli. En þannig var með þau, þetta ástkæra alþýðufólk, þeim þótti þetta ekkert tiltökumál. Margs er að minnast um þessa góðu og yndislegu konu og er fátt eitt hér talið. Eins og áður í lífínu þurfti Jóna að beijast hetjulega við hvert áfallið á fætur öðra undir lokin. Við afkomendur og skyldfólk viljum innilega þakka starfsfólki á Skjóli fyrir alla þá frábæru umönn- un, sem Jóna okkar naut í þeirra höndum. Það var mikil lífsreynsla að fylgjast með ótrúlegum lífsvilja konu, sem vildi ekki gefast upp, enda aldrei því vön, og vildi vera meðal okkar þrátt fyrir margar brotöldur síðustu ára. Hún sýndi hugrekki og hetjudáð og kenndi okkur, sem eftir lifum, lexíu er aldr- ei verður kennd í skóla, nema þá helst í skóla lífsins. Úr þeim skóla útskrifaðist þessi yndislega kona með hæstu einkunn. Þegar sól var farin að setjast í lífí hennar kom þessi ótrúlegi lífsvilji enn í ljós, og þegar sól í raunveruleikanum er á lofti meiri hluta sólarhrings á þess- um árstíma í landi, sem hún ól all- an sinn aldur í, er það kannski táknrænt að hún skyldi kveðja okk- ur á sama tíma. Kannski vildi hún að sól settist aldrei í hjarta okkar afkomendanna, heldur héldist hátt á lofti, og við litum björtum augum fram á veginn, með þrautseigju forfeðra okkar að leiðarljósi. Ástkæra og yndislega móðir, amma, langamma, og tengdamóðir, Guð blessi þig og varðveiti þig. Við munum sakna þín sárt. Hvíl þú í friði. Börn, barnabörn, barna- barnabörn og fjölskyldur. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, ÁRNI MARGEIRSSON, Miðgarði 1a, Egilsstöðum, lést á gjörgæsludeild Landspítalans 25. júní síðastliðinn. Anna Ingólfsdóttir, Ásthildur Árnadóttir, Erla María Árnadóttir, Una Árnadóttir, Ásthildur Árnadóttir, Erla María Sveinbjörnsdóttir Ragnhildur Margeirsdóttir, Hafsteinn B. Hafsteinsson, Ásgeir Margeirsson, Sveinbjörg Einarsdóttir, Veigar Margeirsson, Sigríður R. Jónasdóttir og systkinabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORKELL J. EGGERTSSON fyrrverandi varðstjóri í slökkviliði Akureyrar, Klettastig 10, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 18. þ.m., verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju í dag, 27. júní, kl. 13.30. Guðrún Þorkeisdóttir, Skúli Lórenzson, Páll Þorkelsson, Sigurlaug Tobíasdóttir, Kristján Þorkelsson, Jóhanna Gunnarsdóttir, Lilja Þorkelsdóttir, Geir Hólmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLUR HERMANNSSON, Dvergabakka 36, Reykjavt'k, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, föstudaginn 27. júní, kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Landssamtök hjartasjúklinga. Sigurveig Halldórsdóttir, Haukur Hallsson, Elín Ragnarsdóttir, Stefán Skaftason, Sigríður R. Hermóðsdóttir, Halldór Skaftason, ína Gissurardóttir, Gyða Thorsteinsson, Sveinn Þorláksson, Rósa Thorsteinsson, Árni Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur faðir, tengdafaðir, fósturfaðir og afi, BJÖRN RAGNAR EGILSSON bifreiðastjóri, Stórholti 32, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 25. júní. Birna Ómarsdóttir, Tómas Tómasson, Kolbrún Ólafsdóttir, Óli A. Einarsson, Frida Svantessen, Egill J. Björnsson, Guðríður Guðbjartsdóttir, Magnús Sigurðsson, Jóhanna A. Stefánsdóttir, Björn M. Tómasson, Yngvi Tómasson, Stefán P. Magnússon, Magnús Þ. Magnússon. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR E. ÞORSTEINSSON verkstjóri, Sólheimum 23, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 25. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Elsa Ólafsdóttir, Rúnar Jónsson, Droplaug Ólafsdóttir, Þorsteinn Ólafsson, Jóna F. Kristjánsdóttir, Rósa Ólafsdóttir, Ellert S. Markússon og barnabörn. V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.