Morgunblaðið - 30.08.1997, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Utanhússviðgerðir á Safnahúsinu við Hverfisgötu
Landsfundur jafnréttisnefnda
Koparþak
oghvít
málning
FRAMKVÆMDUM miðar vel
við viðgerðir á Safnahúsinu við
Hverfisgötu og er gert ráð fyrir
að fyrsta áfanga þeirra, þ.e.
utanhússviðgerðum, ljúki í
októberlok. Safnahúsið mun í
framtíðinni gegna hlutverki
þjóðmenningarhúss, þar sem
hýstar verða sýningar frá helstu
söfnum, eins og t.d. Árnastofn-
un, Þjóðminjasafni og Listasafni
Islands. Gert er ráð fyrir að hin
nýja starfsemi geti hafist í hús-
inu árið 2000.
Verið er að fjarlægja alla eldri
málningu af húsinu og siðan
verður gert við skemmdir sem
eru á stöku stað í útveggjum.
Þá verður skipt um gluggafög
og gler þar sem þörf er á. Húsið
verður síðan málað í sama lit og
áður, hvítt.
Umfangsmesta viðgerð á
húsinu frá upphafi
Guðmundur Magnússon, for-
stöðumaður Safnahússins, segir
þetta umfangsmestu viðgerðina
sem fram hefur farið á húsinu
frá því að það var byggt á árun-
um 1906-1908, en það var tekið
í notkun 1909, þannig að það
nálgast nú óðum nírætt.
„Húsið er griðarlega vel
byggt og það hefur komið í ljós
að það er mjög vel farið í megin-
atriðum," segir hann. Safnahús-
ið er alfriðað, þannig að allar
viðgerðir hafa að sögn Guð-
mundar farið fram í nánu sam-
ráði við húsafriðunarnefnd,
borgarminjavörð og bygginga-
Morgunblaðið/Ásdís
SAFNAHUSINU var pakkað vandlega inn áður en hafist var
handa við endurbætur utanhúss.
LOKIÐ er við að klæða þakið og brátt
verður farið að leggja á það kopar.
fulltrúann í Reykjavík.
Guðmundur segir einna rót-
tækustu aðgerðina sem ráðist
verði í nú vera breytingar á
þaki hússins. Á því hefur frá
upphafi verið bárujárn en það
var ekki ætlun danska arkitekts-
ins Johannes Magdahl Nielsens,
sem teiknaði Safnahúsið. „Hann
hafði hugsað sér að á þakið yrðu
settar annaðhvort enskar skífur
eða kopar. Þegar hafist var
handa við að byggja
húsið var ákveðið að
þakið skyldi vera úr
kopar, en af ein-
hverjum ástæðum
hafa menn talið að
þar væri hentugra
að spara og í niður-
stöðu frá 1907 segir
að fyrst um sinn
skuli vera bárujárn,“
segir hann, þannig
að nú má segja að á
húsinu hafi verið
bráðabirgðaþak í
tæpa níu áratugi.
Þegar er lokið við
viðgerð þaksins og
það verið klætt að
nýju og verður hafist handa við
að leggja koparinn á það á
næstu dögum.
í húsinu er enn hluti Þjóð-
skjalasafnsins og hefur það
einnig til umráða lestrarsalinn
sem áður tilheyrði Landsbóka-
safni. í kjallaranum eru auk
þess geymd varaeintök bóka í
eigu Landsbókasafnsins, sem
bíða þess að þeim verði fundin
varanleg geymsla annars staðar.
Konur bjartsýn-
ar á sinn hlut
Þjóðvaki ekki sjálfstætt framboðsafl
í næstu kosningum
LANDSFUNDUR jafnréttisnefnda
hófst í gær. Á honum var m.a. rætt
um komandi sveitarstjórnarkosning-
ar og þátttöku kvenna í þeim og kom
fram að engin ástæða væri til annars
en bjartsýni í þeim efnum.
Elín Líndal, formaður
jafnréttisráðs, kynnti í ræðu
sinni samstarfshóp jafnrétt-
isráðs um aukinn hlut
kvenna á framboðslistum
vegna sveitarstjórnarkosn-
inga vorið 1998, sem settur
var á laggimar síðasta vor.
Hópinn skipuðu fulltrúar
alira stjómmálaflokkanna
auk fulltrúa jafnréttisráðs
og kvenréttindafélags ís-
lands. Til að vinna að því
markmiði, sem kemur fram í heiti
hópsins, var m.a. unnin skýrsla um
úrslit síðustu sveitarstjórnarkosninga
af Lindu Blöndal auk þess sem for-
ystumönnum stjórnmálaflokkanna
var sent bréf þar sem spurt var
hvemig þeir hyggðust stuðla að jafn-
stöðu kvenna og karla á framboðslist-
um í komandi kosningum.
Elín kynnti svör flokkanna í ræðu
sinni. í þeim kom fram að flestir
flokkanna stefna að því að tryggja
konum vissan hlut framboðssæta.
Markmið Alþýðuflokksins er að hlut-
fall kvenna verði ekki minna en
40%. Framsóknarflokkurinn stefnir
að því sama en miðar við árið 2000.
í bréfi Alþýðubandalagsins kom
fram að flokkurinn hefði lengi haft
kvóta á konum í trúnaðarstörfum
og væri nú miðað við að hlutfall
kvenna væri a.m.k. 40%. Það hlut-
fall yrði haft til hliðsjónar í komandi
kosningum. Formaður Þjóðvaka, Jó-
hanna Sigurðardóttir, sagði í bréfí
sínu að Þjóðvaki yrði ekki sjálfstætt
framboðsafl í næstu kosningum en
að hún myndi beita sér nú sem
endranær í jafnréttismálum karla
og kvenna.
Sj álfstæðisflokkurinn
mun ekki beita kynjakvóta
kom fram í bréfi frá Davíð
Oddssyni, forsætisráðherra
og formanni flokksins. I
bréfi hans segir að unnið
sé að hugarfarsbreytingu í
jafnréttismálum innan
Sjálfstæðisflokksins en
flokksforystan muni ekki
gefa út miðstýrðar tilskip-
anir. Áfram verði beitt
þeirri aðferð að velja hæf-
asta einstaklinginn til starfa.
Bjartsýni fyrir næstu
kosningar
Elín Líndal sagði eftir ræðu sína
enga ástæðu til annars en bjartsýni
fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar
miðað við þau svör sem hefðu borist
frá forystumönnum. „En til að jafn-
réttisbaráttan verði virk þarf hún
að vera alls staðar til staðar líka í
smærri sveitarfélögum." Elín vísaði
í rannsókn Lindu Blöndal sem var
kynnt á fundinum en í henni kom
m.a. í ljós að því smærri sem sveitar-
félög væru því færri konur væru
virkar í stjórnmálum.
Elín sagðist ennfremur ánægð
með starf samstarfshópsins til þessa.
„Hann hefur vakið athygli. Það virk-
ar vel að að fá fulltrúa.úr öllum
stjórnmáiaflokkum til samstarfs.
Með þverpólitískri umræðu verður
krafan um jafnrétti þyngri en ella.“
Elín
Líndal
i
Morgunblaðið/Ásdís
SÓLEY Elíasdóttir og Pálína Jónsdóttir í hlutverki systranna
Hörpu Dísar og Lollu.
Umax PageOffice
Skjalaslcanni fyrir
skrifstofuna eða heimilið
300 x 600 dpi upplausn
Vandaour
á hlægilegu verði 19.900
lcr. 14.900
Bjóðum einnig 'TV-safer' tækið á
Aðeins í dag!
heimilanna
Faxafeni 5 - Sími 533 2323
tolvukjor@itn.ii
Pípudraumar
LEIKLIST
Lcikfclag Rcykjavík-
ur á stóra svidi
Borgaricikhússins
HIÐLJÚFALÍF
Höfundur: Benóný Ægisson. Höfund-
ar tónlistar: Jón Olafsson og Kristján
Krisljánsson. Danshöfundur: Kenn
Oldfield. Leikstjóm: Þórarinn
Eyfjörð. Búningar: Þórunn E. Sveins-
dóttir. Leikmynd: Stígur Steinþórs-
son. Lýsing: Elfar Bjamason. Hljóð:
Baldur Már Amgrímsson. Leikendur
og hljóðfæraleikarar: Ari Matthías-
son, Bjöm Ingi Hilmarsson, Eggert
Þorleifsson, Ellert A. Ingimundar-
son, Guðlaug E. Ólafsdóttir, Jóhann
G. Jóhannsson, Jóhanna Jónas,
Jón Ólafsson, Kormákur Geirharðs-
son, Margrét Helga Jóhannsdóttir,
Ólafur Þórarinsson, Pálína Jónsdótt-
ir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Selma
Bjömsdóttir, Soffía Jakobsdóttir og
Sóley Elíasdóttir og Valgeir Skag-
Qörð. Föstudagur 29. ágúst.
BENÓNÝ Ægisson hóf skiykkj-
óttan höfundarferil sinn á áttunda
áratugnum með brúna kverinu Tekið
í og leikverkinu Skeifu Ingibjargar.
Síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar og á síðustu árum hefur Ben-
óný vaxið ásmegin á sviði íslenskrar
leiklistar. Hann hefur starfað með
Götuleikhúsinu auk þess sem hann
hefur skrifað ýmsa smáþætti fyrir
leiksvið. Hið ljúfa líf er annað verk
hans sem hlýtur verðlaun Leikfélags
Reykjavíkur og ratar þar á stóra
sviðið, hið fyrra var barnaleikritið
Töfrasprotinn.
í Hinu ljúfa lífí tekur Benóný nýja
stefnu, hér er ætlunin að skrifa
kassastykki - gamanleik með söngv-
um - og verkið hefur alla burði til
þess að standa undir þessum vænt-
ingum. Leiktextinn er fyndinn og
eðlilegur, persónusköpunin snarpleg
og leikframvindan trúverðug - þar
til dregur að lokum verksins. Endir-
inn er brotalöm sem setur strik í
reikninginn. Hann er ótrúverðugur,
ekki vegna þess að atburðirnir séu
ómögulegir heidur eingöngu vegna
þess að þeir eru ólíklegir. Sá trúnað-
ur sem áhorfendur hafa lagt á sög-
una þegar þeir samþykkja að með-
taka blekkinguna sem felst í leik-
verki er brostinn. Þeir voðaatburðir
sem marka hvörfin í verkinu eru
ekki einn heldur tveir. í báðum tilvik-
um eru áhrifin eyðilögð með vand-
ræðalegum og ónógum viðbrögðum
annarra persóna. Þarna hefði mátt
hafa í huga að allt er best í hófi.
Tónlistin skipar veglegan sess í
verkinu og lögin eru mjög grípandi.
Hvert atriði einkennist af lagi í stíl
sem hæfir, en allt er innan þess
breiða ramma sem íslensk sveita-
ballamúsík rúmar. Hæfilega ýktir
búningar, raunsönn leiktjöld og mjög
fjölbreytt ljós auka enn á stemmn-
inguna. Stílfærðir dansarnir bijóta
upp röð smárra atriða og eru listi-
lega útfærðir.
Eins og útsetningar laganna eru
persónurnar meðvituð stæling, stæl-
ing ýmissa persónugerða sem ganga
ljósum logum í þjóðfélagi okkar.
Þetta atriði - þessi meðvitaða eft-
iröpun - er það sem gefur verkinu
gildi. Persónurnar eru í viðjum eigin
takmarkana - þær leika hlutverkin
sem þeim eru ásköpuð án þess að
fá neinu um það ráðið. Þær verða
þannig endurómur af sjálfum sér,
klisjurnar bergmála í vonlausum
pípudraumum þeirra. Þarna tekst
höfundinum vel upp og gefur okkur
hlutdeild í einstakri sýn sinni á tilver-
una. í textanum eru ennfremur fjöl-
margar tilvísanir í aðra höfunda og
verk sem auka á þá tilfinningu að
allt sé endurómur einhvers annars.
Leikurinn er góður og jafn.
Fremstar í flokki eru Pálína, sem
er frábær í alla staði sem Harpa
Dís; Margrét Helga sem er stórkost-
leg Gógó og Guðlaug sem er drep-
fyndin Halla. Sóleyju tekst sérstak-
lega vel að túlka umkomuleysi Lollu
og Eggert Þorleifsson sýnir hófstillt-
an leik í hlutverki Gedda. Ari Matthí-
asson hefur sjóarann algjörlega á
valdi sínu. Björn Ingi og Jóhanna
Jónas léku sér að því að túlka geró-
lík hlutverk. Rósa Guðný og Ellert
náðu að vera hvort öðru miskunnar-
lausara og sjúkara sem Sköbó og
Ólöf. Jóhann G. og Soffía náðu að
gæða persónur sínar lífi þó að þeim
væri nokkuð þröngur stakkur skor-
inn. Valgeir Skagfjörð náði gamia
skallapopparanum óhugnanlega vel.
Minna mæddi á öðrum hljómsveitar-
meðlimum í leik. Selma Björnsdóttir,
sem brilleraði í söng og dansi, túlk-
aði varfærnislega Maríu sem þrátt
fyrir ungan aldur virðist hafa glatað
draumum sínum.
Leikstjóranum hefur tekist að
haga verkskiptingu þannig að allir
fá að sýna sínar bestu hliðar. Það
er ótrúlegt hvað flókin sýningin
smellur vel saman. Verkið er virki-
lega fyndið, leikhópurinn leggur sig
allan fram og tónlistin gælir við
hlustir og hjarta. Eins og sagt er í
verkinu: „Einhver verður að gefa
fólkinu það sem fólkið vill.“ Hér
gerir Leikfélag Reykjavíkur einmitt
það og af glæsibrag.
Sveinn Haraldsson