Morgunblaðið - 30.08.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 9
FRÉTTIR
Danskennarar vilja að dans verði skyldugrein í grunnskólanum
Eflir þroska og
eðlileg samskipti
DANSKENNARAR vinna að því
að dans verði gerður að skyldu-
námsgrein í grunnskólum landsins
og hafa þeir m.a. skilað inn álits-
grein í tengslum við endurskoðun
aðalnámskrár grunnskóla, sem
væntanleg er næsta haust. Þar
benda þeir m.a'. á hver markmið
danskennslu eigi að vera og færa
rök fyrir nauðsyn danskennslu fyr-
ir þroska og nám barna.
Hjá grunnskólum Reykjavíkur
hefur frá árinu 1994 verið boðið
upp á danskennslu fyrir öll níu ára
börn, þ.e. fjórða bekk. Um er að
ræða tíu stunda námskeið, sem
fellt er inn í bekkjarkennsluna. Að
sögn Matthildar Guðmundsdóttur,
kennsluráðgjafa hjá Fræðslumið-
stöð Reykjavíkur, er fullur vilji þar
á bæ til að auka þessa kennslu,
þannig að fleiri fái að njóta hennar.
Bætir andrúmsloftið í
bekkjunum að dansa saman
„Þetta er góð kennsla sem ber
árangur og það hefur sýnt sig að
andrúmsloftið verður betra í bekkj-
unum þegar börnin vinna svona
náið saman eins og þau gera í
dansinum. Samvinna kynjanna
verður miklu nánari og betri í dans-
inum og samskiptin eðlilegri," seg-
ir Matthildur og bætir við að dans-
kennsla þyrfti helst að koma inn
strax í sex ára bekk. Hún kveðst
vilja sjá danskennslu sem jafneðli-
legan þátt í kennslu grunnskóla-
barna og t.d. íþrótta- og tón-
menntakennslu.
Danskennsla hefur verið tekin
upp í grunnskólum víðar en í
höfuðborginni. Á Akureyri var fyr-
ir nokkru farið að kenna níu ára
börnum dans og að sögn Heiðars
Ástvaldssonar danskennara líkaði
það svo vel að bæjarstjórn Akur-
eyrar gerði langtímaáætlun um
danskennsluna og samkvæmt
henni verða öll sjö, níu og tólf ára
börn þar í bæ í skyldudansi í vet-
ur. Þá segist Heiðar vita til þess
að öll börn í Sandgerði hafi notið
danskennslu á síðasta ári og hon-
um er kunnugt um að öll níu ára
börn í Mosfellsbæ, _ Grindavík, á
Siglufirði, Húsavík, ísafirði og víð-
ar hafi verið í skyldudansi.
Heilbrigð skemmtun
Heiðar telur það eðlilegt og
æskilegt að Reykjavíkurborg hafi
danskennara í föstu starfi og fór
hann ásamt Matthildi á fund
fræðslustjóra Reykjavíkur í vor,
með þá hugmynd að ráðinn yrði
fastur kennari til að sinna dans-
kennslu í grunnskólum borgarinn-
SAMVINNA kynjanna verður
nánari og betri í dansinum
og öll samskipti eðlilegri.
ar í allan vetur. Sá kennari myndi
síðan fara í skólana til skiptis. Fjár-
munir til þess voru ekki inni á fjár-
hagsáætlun fyrir þetta ár en að
sögn Matthildar hefst kennslan
eftir áramót og verður á tímabilinu
febrúar til apríl eins og áður.
í álitsgrein danskennara segir
m.a. að markmið danskennslu eigi
að vera að efla hreyfiþroska með
aðstoð fjölbreytilegrar tónlistar,
efla félagsþroska í gegnum sam-
vinnu og snertingu, stuðla að
ftjálsari framkomu í umgengni við
annað fólk og gera nemendur færa
um að skemmta sér á heilbrigðan
hátt. Þá er vakin athygli á því að
danskennsla styrki ýmsar aðrar
námsgreinar, svo sem stærðfræði,
tónmennt, íþróttir og samfélags-
greinar.
Sameining sex spítala í Reykjavík og nágrenni
Áætlanir um kostnað
ekki fyrirliggjandi
EKKI er á þessu stigi hægt að
segja hver kostnaður yrði af fram-
kvæmd sameiningar á starfsemi
--sex sjúkrahúsa í Reykjavík og ná-
grenni í einn stóran háskólaspítala
sem framtíðarsýn gerir ráð fyrir.
Var hún unnin fyrir heilbrigðis-
ráðuneytið, íjármálaráðuneytið og
Reykjavíkurborg.
Svanbjörn Thoroddsen hjá VSÓ
ráðgjöf, einn þeirra sem unnið hef-
ur að samantekt skipulagshug-
myndanna, segir að þegar séð verði
hver verður nánat'i útfærsla á
framtíðarsýninni sé næsta skref
að reikna út áætlaðan kostnað.
Ekki hafi verið ætlunin að leggja
fram slíkar áætlanir nú heldur í
framhaldinu. Hann vildi ekki tjá
sig um gagnrýnisraddir sem fram
hafa komið urn að ekki hefði verið
tekið á faglegri hlið sameiningar-
hugmyndarinnar.
A mánudaginn kemur er fyrir-
Borgarleikhús
• •
Oryggis-
vörður
opnaði loka
ÁSTÆÐA þess að úðarar í
lofti Borgarleikhússins fóru í
gang aðfaranótt þriðjudagsins
var sú, að öryggisvörður opn-
aði vatnsloka af misgáningi.
Vatnslokinn veitti kælivatni
á öryggistjald sem aðskilur
stóra svið leikhússins og áhorf-
endasal. í fréttatilkynningu frá
Tómasi Zoéga, framkvæmda-
stjóra Leikfélags Reykjavíkur,
þar sem þetta kemur fram seg-
ir einnig að varanlegar
skemmdir hafi engar orðið,
hvorki á mannvirki né munum.
hugaður kynningarfundur um
framtíðarsýnina á Eirbergi fyrir
starfsfólk Landspítala og á fimmtu-
dag verður hún kynnt í stjórnar-
nefnd ríkisspítalanna. Munu ráð-
gjafar frá VSÓ ráðgjöf vera á þess-
um fundum. Á þriðjudag verður
opinn kynningarfundur fyrir starfs-
fólk Sjúkrahúss Reykjavíkur um
sama mál.
Útsala Enn meiri verðlækkun
Opið laugardag kl. 10-16
\(#HI/I5IÐ Mörkinni 6, sími 588 5518
Prútt Prútt Prútt
Við rýmum
fyrir nýjum
vörum og þií
getur prúttað
að vild!
£>is&a t’ískuhús
Mánudag
frá M. 9-19
Hverfísgötu 52, sími 562 5110
Opið ídag
frá M. 10-16
Ný peysusending
frá Franco Ziche
Man
kvenfataverslun
Hverfisgötu 108, á horni Hverfisgötu og
Snorrabrautar, sími 551-2509
Nýjar haustvörur
tískuskemman
Bankastræti 14
Ólafur Páll Jónsson
Hef opnað tannlæknastofu í
Faxafeni 5,2. hæð. Tímapantanir alla virka
daga frá kl. 8.30-16.30 í síma 588 1522.
Hlutastarf í kvenfataverslun
í boði 2—3 eftirmiðdaga í viku og alla
laugardaga. Umsækjendur þurfa að vera
snyrtilegir, kurteisir, hörkuduglegir,
hafa fágaðan smekk og búa yfir óvenju
mikilli þjónustulund.
Svör sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir föstudaginn
5. september merkt: ,y\. — 1926“.
Dragtir með
pilsum og buxum
hjHQýSafithiMi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið mán.-fös. frá kl. 10.00-18.30, laugardaga frá kl. 10.00-15.00.
Velkomin á kynningar
í Jógastöðinni Heimsljósi í dag
laugardaginn 30. ágúst.
Næring fyrir líkama, hug og anda
Kynning á Kripalujóga ki. 13.30.
■ Kynning á Ölduvinnu Wave Work“ kl. 15.00.
■ Kynning á Qi Gong/Tai Ji kl. 16.00.
Allir hjartanlega vclkoninir.
Upplvsingar í sínia 588 4200
kl. 13.00-19.00.
Jógastöðin Heimsljós,
Ármúla 15,2.h.,
108 Reykjavík
Itfiistoðiu Hcimsljðs cr múöurstöð
Kripalujóga á hlandi.
Allir jógakcnnarar okkar mi mcð
kaimntrétíhndi frá Kripahmiiöstöðlniii
í Massachusetts, USA.