Morgunblaðið - 30.08.1997, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 29
Deyja 300 íslending-
ar af völdum m&m
súkkulaðis árlega?
VARLA! Eða eru
rauðar pylsur svo
hættulegar að það
þykir ástæða til að
banna þær? Var blár
opal risavaxið heil-
bri'gðisvandamál?
Þessar og margar
aðrar líkar spurningar
hafa vaknað hjá undir-
rituðum undanfarin ár.
Hvers vegna? Jú, það
þykir sjálfsagt að
banna neysluvörur sem
eru skaðlegar heilsu
manna. Svo það valdi
engum misskilningi þá
er ég sammála því að
banna vörur sem vís-
Þórarinn
Guðjónsson
indalega hefur verið sannað að valdi
tjóni á heilsu fólks. Það sem ég er
mjög ósáttur við, er að á sama tíma
og ofangreindar vörur ásamt mörg-
um öðrum eru bannaðar eru reyk-
ingar leyfðar.
Reykingar eru eins og allir vita
orðið í dag, sá mesti heilsuspillir
sem fyrir finnst á íslenskum neyslu-
markaði og því finnst mér engin
rök í því að banna vörur sem ég
að ofan hef nefnt og ganga fram
hjá reykingum sem bæði beint og
óbeint drepa fólk.
Sígarettureykur inniheldur í
kringum 4.000 lífræn og ólífræn
efnasambönd og þar af eru 43 sem
sýnt hefur verið fram á að geti
verið krabbameinsvaldandi og holl-
ustu hinna 3.957 dreg ég stórlega
í efa. Ekki veit ég um neinn sem
hefur látist af m&m eitrun, fengið
pylsukrabba eða veikst alvarlega
af völdum blás opals. Ég hef hins
vegar persónulega þekkt fólk sem
látist hefur af völdum reykinga, og
sem meira er, langflestir þeirra sem
lesa þessa grein þekkja einn eða
fleiri sem þurft hafa með einum eða
öðrum sjúkdómi að lúta í lægra
haldi fyrir tóbaki.
Reykingar eru örsök allt að 90%
af lungnakrabbameinum. Krabba-
mein í munni, vélinda, brisi, nýrum,
þvagblöðru og leghálsi eiga það
sameiginlegt að reykingar eru tald-
ar spila þar einn stærstan þátt.
Reykingar auka stórlega hættuna
á hjartasjúkdómum, og slagtilfell-
um. Tölfræðilega hefur verið sýnt
fram á tengsl reykinga á meðgöngu
við fósturlát, andvana fæðingu og
vöggudauða. Breska vísindatímarit-
ið „British Journal of Caneer" hefur
birt niðurstöður sem
sýna fram á, að 15%
af krabbameinum hjá
börnum geti verið
tengd reykingum
feðra. Reykingar eru
taldar geta valdið
krabbameins-tengdum
stökkbreytingum í
erfðamengi sæð-
isfruma sem seinna
geti gert afkvæmin
móttækilegri fyrir
krabbameinsmyndun.
Þetta allt saman er að
sjálfsögðu ekkert í
samanburði við skað-
semi m&m súkkulaðis,
eða er það?
Það er talið að 30-40 íslending-
ar deyi af völdum óbeinna
(óftjálsra) reykinga á ári hveiju.
Ég er þess fullviss að enginn hefur
látist af óbeinu m&m áti. Sam-
kvæmt skýrslu sem gefin hefur
Reykingar drepa fólk
beint og óbeint, segir
Þórarinn Guðjónsson,
og staðhæfir, að síga-
rettur séu langmestur
heilsuspillir á íslenzkum
neyzlumarkaði.
verið út í Bandaríkjunum deyja fleiri
af völdum reykinga-tengdra sjúk-
dóma á ári hveiju en deyja af eyðni,
áfengisdrykkju, eiturlyijum, í bíl-
slysum, eldsvoðum, morðum og
sjálfsmorðum ti! samans. Þetta líka
er að sjálfsögðu ekkert í saman-
burði við þann fjölda fórnarlamba,
sem hafa orðið fyrir barðinu á m&m
súkkulaðinu.
Annað sem mér hefur fundist
fáránlegt er að á sama tíma og
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
(ÁTVR) selur áfengi eingöngu í
séi-verslunum sínum og til veitinga-
húsa (gott og gilt) dreifir það tób-
aki til allra verslana og þykir það
sjálfsagt. Þetta er í hróplegu ósam-
ræmi við stefnu stjórnvalda í fyrir-
byggjandi aðgerðum. Þó ég ætli
ekki að mæla áfenginu bót þá veit
ég um mun fleiri sem hafa ánetjast
reykingum en áfengi og því ætti
að vera enn brýnna að íjarlægja
tóbakið úr búðum. Nú vaknar ör-
ugglega sú spurning! Hvaða vánda
leysir það að flarlægja tóbak úr
verslunum? Kannski engan, en
hvers vegna að gera reykingafólki
og unglingum auðveldara fyrir með
því að selja tóbakið í verslunum.
Það er merkilegt að hugsa út í að
stór hluti þeirra sem reykja hafa
ánetjast tóbaki fyrir 18 ára aldur.
Það stendur skýrt í tóbaksvarnalög-
um að tóbak megi hvorki selja né
afhenda einstaklingum yngri en 18
ára. Sjálfur hef ég unnið í félags-
miðstöð og horft á hversu aðgengi
unglinga að sígarettum er auðvelt.
Þegar maður fer að rabba við ungl-
ingana í sambandi við reykingar
heyrir maður oft viðkvæðið „ég dey
hvort sem er einhvern tírnann."
Þetta er kannski eðlilegur hugsana-
háttur hjá ungu fólki, sem ekki
hefur kynnst sjúkdómum af völdum
reykinga og afleiðingum þeirra. Ég
er sannfærður um að fólk sem feng-
ið hefur lungnakrabbamein eða
aðra lífshættulega sjúkdóma af
völdum reykinga, vildi gjarnan fá
tækifæri til að spóla til baka og lifa
reyklausu lífi. Ég tæki því hattinn
ofan fyrir þeim kaupmanni sem
tæki frumkvæðið og hætti að selja
tóbak í verslun sinni. Það kæmi
mér heldur ekki óvart, að sú ákvörð-
un hefði jákvætt frekar en nei-
kvætt auglýsingagildi fyrir viðkom-
andi kaupmann.
Þróunin er í þá átt (og verður
ekki stöðvuð) að réttur reykinga-
fólks verður skertur meir og meir
og er ég þess fullviss að reykingar
verða bannaðar víða þegar fram í
sækir. Hvort það verður eftir 10,
20, eða 30 ár hef ég enga hugmynd
um, en eitt er víst að það gerist.
Það væri því ekki leiðinlegt ef ís-
lendingar yrðu frumkvöðlar í út-
rýmingu reykinga.
Ég er sammála (þó mín reynsla
sé engin) að tóbak sé vanabindandi
og að erfitt sé að banna það á ein-
um degi. Byijum á að Ijarlægja
tóbakið úr búðum og seljum það i
ÁTVR. Næsta skref gæti orðið að
fjarlægja tóbakið úr ÁTVR (sem
myndi þá vonandi breytast i ÁVR)
og selja það gegn iTamvísun lyfseð-
ils í apótekum. Ég ætla ekki að
hafa þetta fjas mikið lengra en
enda á .því í lokin að biðja ykkur
sem ekki reykið að vera góð við
reykingafólkið því það á svo stutt
eftir.
Heimildir
American Cancer Society http://www.canc-
er.org/frames.html Oncolink
http://www.oncolink.upenn.edu/causepre-
vent/smoking/ British Journal of Cancer.
(Janúar 1997)
Höfundur er frumulíffræðingur
og stundar framhaldsnám í
krabbameinsrannsóknum við
læknadeild
Kaupmannahafnarháskóla.
S var til Margrétar
Sigurðardóttur
ÞAÐ virðist vera sem sumir hafi
ekki fengið nóg af niðurlægingu
R-listans. Það sannast á orðum
Margrétar Sigurðardóttur í Morg-
unblaðinu. Hún segir
að það sé betur hlustað
á borgarana af þeim
sem ráða borginni í
dag. Spyija má: Var
hlustað á þá sem mót-
mæltu leikskólabygg-
ingu í Teigunum? Var
hlustað á þá sem mót-
mæltu byggingu leik-
skóla við Hæðargarð?
Var hlustað á þá sem
mótmæltu menguninni
við Miklubraut? Hefur
verið hlustað á Mið-
borgarsamtökin varð-
andi lokun Hafnar-
strætis til austurs? Var hlustað á
listamennina sem kastað var út úr
Hafnarhúsinu? Var hlustað á þá
sem mótmæltu háhýsunum við
Kirkjusand? Var hlustað á það fólk
sem mótmælti aðalskipulaginu? Var
hlustað á kröfur sjúkraliða (kvenna-
vinnukraftinn) sem gagnrýna R-
listann harðlega? Var hlustað á
starfsstúlkurnar sem ræsta skólana
og kúga á til að ganga úr sínu eig-
in stéttarfélagi? Og þannig mætti
lengi spyija.
Ekki vil ég vega að eldri borgur-
um. Þeir, sem lesið hafa greinar
mínar, vita, að ég skil aðstöðu
þeirra. Það er þjóðarskömm ef eldri
borgarar fá ekki að njóta efri ára
sinna með reisn. Eldri borgarar og
öryrkjar eiga ekki að mínu mati að
greiða skatta. Þeir hafa þegar greitt
skatta af öllu sínu aflafé. Það getur
á hinn bóginn verið að leiðrétta
þurfi hlut þeirra í áföngum. En það
er bjargföst skoðun mín að öryrkjar
og aldraðir eigi ekki að greiða fyrir
afnot af síma eða útvarpi og að
þeir eigi að fá lyf á sérkjörum.
Sennilega verður ekki komist hjá
því að þeir greiði fasteignagjöld.
Sumir eldri borgarar eiga stórar en
skuldlitlar eignir - en það verður
að tekjutengja þær greiðslur sem
heimtar eru af þessum eignum. Og
það tekjumark þarf að vera rúmt.
Sumir eldri borgarar hafa ekki tekj-
ur til að standa undir stórum eign-
um. Það þarf að hjálpa
þeim til að halda eign-
um sínum, eða losna
við þær, kjósi þeir þann
kost. Annaðhvort með
skattaívilnunum eða á
annan hátt. En þetta
fólk á að hafa örorku-
og ellilífeyri óskertan
til framfærslu sinnar.
Það á að gera eldri
borgurum kleift að búa
í eigin húsnæði meðan
þeir hafa heilsu og vilja
til. Gegn því vinna á
hinn bóginn dráps-
klyfjar R-listans, s.s.
30% skolpræsagjald og hækkanir á
verði hita, raforku og neyzluvatns.
Það verður sanngjarnt fólk að við-
urkenna. Og þegar Margrét talar
R-listinn hefur hækkað
nær öll þjónustugjöld
borgarinnar, segir
Karl Ormsson, svo sem
hitaveitu, neysluvatn,
rafmagn, aðgang að
sundlaugum, far með
strætisvögnum, barna-
heimilisgjöld o.s.frv.
um gæluverkefni fyrri stjórnenda
borgarinnar má hún huga að gervi-
gosbrunni R-listans, upp á tugi
milljóna króna, sem á að koma í
Öskjuhlíð. En mergurinn málsins
er að við, sem yngri erum, eigum
að gera öldruðum lífið eins bærilegt
og kostur er.
Höfundur er deildarfulltrúi.
Karl
Ormsson
4
BrÚðhjÓtl
Allur borðbúnaður - Glæsileg gjafavara Brúðarhjdna lislar
\4,
VERSLUNIN
Lnttgnvegi 52, s. 562 4244.
2000
Chrysler Stratus
2.5 LE
Frá 2.420.000 kr.
Tveir
bílar á einu númeri!
Sjálfskipting er þægileg við flestar aðstæður. Stundum getur
þó beinskipting hentað betur — í mikilli hálku, bröttum
brekkum eða þegar aukinnar snerpu er krafist. Chrysler
Stratus sameinar þægindi og snerpu því sjálfskiptingunni
má breyta í beinskiptingu með því einu að þrýsta á hnapp
og án þess að stöðva bílinn. Því má segja að í Stratus
sameinist tveir bílar í einum!
Fyrir utan ríkulegan staðalbúnað fylgja nú einkanúmer að
eigin vali með öllum nýjum amerískum bílum frá Jöfri. Þú
merkir bílinn eftir eigin höíði, við greiðum kostnaðinn.
Er ekki tími til kominn að fá sér 1KABIL í CRFLOKKI?
Nýbýlavcgi 2 • sími 554 2600
Umboðsmenn um land allt:
Akranes, Akureyri, Egilsstaðir,
Höfn, Selfoss, Reykjanesbær.
Opið laugardaga frá 12-16
GSP/GG