Morgunblaðið - 30.08.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 43
AÐALHEIÐUR
GUÐRÚN
ANDREASEN
+ Aðalheiður
Guðrún Guðna-
dóttir Andreasen
fæddist í Kotmúla
9. mars 1914. Hún
andaðist á Hjúkr-
unarheimilinu Ljós-
heimum, Selfossi,
22. ágúst síðastlið-
inn.
Foreldrar henn-
ar voru Guðni Guð-
mundsson, f. á
Litlu-Hildisey í A-
Landeyjahr. 9. ág-
úst 1883, d. 29.
apríl 1949, og
Steinunn Halldórsdóttir, f. á
Kotmúla í Fljótshlíð 18. maí
1884, d. 28. nóv. 1966. Systkini
hennar eru: Guðmundur, f. 4.
okt. 1909, býr á Hvolsvelli.
Sveinn, f. 17. nóv. 1911, býr á
Hvolsvelli. Margrét Sigríður,
f. 25. júní 1916, býr á Sel-
fossi. Skúli, f. 25. feb. 1920,
býr á Selfossi, Dóra Ragnheið-
ur, f. 28. júní 1924, býr í
Reykjavík, og Arnþór, f. 13.
feb. 1928, býr á Selfossi.
Fyrri maður Aðalheiðar var
Hildiþór Loftsson, f. 17. ágúst
1905, d. 3. júl. 1995. Þau slitu
samvistum. Börn Aðalheiðar
af fyrra hjónabandi eru: Fjóla
Steindóra, f. 23. ágúst 1932,
húsmóðir á Selfossi, maki: Sig-
urður Kristinn Sighvatsson, f.
13. júlí 1926. Þau eiga 4 börn,
5 barnabörn og 2 barnabarna-
börn. Anna Guðný, f. 20. jan.
1934, verslunarmaður _ í
Reykjavík, maki: Sigurjón Osk-
ar Sigurðsson, f. 8. maí 1927.
Þau eiga 5 börn og 5 barna-
börn. Aðalheiður giftist 16. feb.
1946 Helga Malling Andreasen,
f. 1. jan. 1912, d. 31. des. 1977.
Börn Aðalheiðar og Mallings
upp hjá
Kotmúla
eru: Guðni Ckr.
Bögebjerg, f. 18.
mars 1950, bakara-
meistari á Selfossi,
maki: Björg Osk-
arsdóttir, f. 3. júní
1950. Þau eiga 3
börn og 2 barna-
börn. Steinunn
Ásta, f. 10. sept.
1953, verslunar-
stjóri á Selfossi,
maki: Grétar Arn-
þórsson, f. 2. apríl
1956 og eiga þau 3
syni.
Aðalheiður ólst
foreldrum sínum í
Fljótshlíð í stórum
systkinahópi. Á Akranesi bjó
hún um tíma en eftir sambúð-
arslit flutti hún aftur í for-
eldrahús með dætur sínar. Að
Selfossi fluttist hún 1945, og
bjó fyrst á Fossmúla. Eftir að
Aðalheiður og Malling giftu sig
bjuggu þau í Bræðraborg á
Selfossi en fluttu svo að Sunnu-
vegi 14 í nýtt hús sem þau
byggðu sér. Aðalheiður vann
við ýmis störf ásamt heimilis-
störfum á sínu heimili, þ. á m.
í Selfossbíói og á sjúkrahúsinu
þar sem hún vann við matseld.
Þá leigðu þau út herbergi í
mörg ár og seldu kost. Eftir
að Aðalheiður varð ekkja bjó
hún á nokkrum stöðum á Sel-
fossi, þ. á m. hjá Ástu dóttur
sinni og Grétari. En nú síðustu
ár bjó Aðalheiður á Dvalar-
heimilinu Sólvöllum á Eyrar-
bakka. Aðalheiður átti við van-
heilsu að stríða síðustu árin.
Aðalheiður verður jarðsung-
in frá Selfosskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Jarðsett verður í Selfosskirkju-
garði.
Mig langar að minnast ömmu
minnar með fáeinum orðum. Aðal-
heiður amma mín var ein af þessum
konum sem búa yfir mikilli reisn.
Ævi hennar var ekki alltaf auð-
veld, það þurfti hugrekki og kjark
fyrir 50 árum til að brjóta ailar
brýr að baki sér og byrja nýtt líf,
einstæð móðir, með tvær hendur
tómar, en þetta gat amma og með
góðri hjálp fjölskyldu hennar og
eigin dugnaði og krafti fór allt vel.
Amma flutti á Selfoss og fljót-
lega giftist hún Malling. Þá tóku
góðir dagar við í lífi ömmu, Malling
var einstakt góðmenni, besti afinn
sem við áttum, barnabörnin.
Ég man lítið eftir ömmu og
Malling í Bræðraborg, þó man ég
að alltaf var margt um manninn
og vel tekið á móti gestum. Amma
var afskaplega myndarleg í verk-
um sínum, saumaði fyrir fólk, gerði
hnappagöt og fleira. Öll matargerð
og kökubakstur lék í höndunum á
henni og allt bragðaðist jafn vel
hjá ömmu.
Minnisstæð eru öll matarboðin
og þá sér í lagi á nýársdag heima
á Sunnuvegi, margréttaður mat-
seðill að dönskum sið. Okkur
fannst þetta óskaplega hátíðlegt,
barnabörnunum, en amma átti nú
alltaf eitthvað annað inni í eldhúsi
handa þeim sem ekki vildu puru-
steik. I minningunni fannst mér
þú, amma, geta allt: saumað, eld-
að, bakað, sagt stórkostleg ævin-
týri og sungið falleg lög sem við
lærðum. Oft var vinnudagurinn
langur hjá þér, allir þessir kost-
gangarar sem komu við á Sunnu-
veginum. Það var alltaf eitthvað
um að vera og gaman að koma í
heimsókn til þín hvar sem þú varst.
En nú er kallið komið og við
vitum að þú varst tilbúin amma,
búin að velja sálmana og ganga
frá öllum þínum málum, eins og
alltaf.
Ég kveð þig með söknuði, elsku
amma.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.
Guðbjörg.
Upplýsingar í símum
562 7575 & 5050 925
I HOTEL LOFTLEIÐIk
S t C E L A N PA 1 «_H O T « t «
Einn þú hefur allt í höndum,
öll þér kunn er þörfin mín,
ó, svo veit í alnægð þinni
einnig mér af ljósi þín.
Anda þinn lát æ mér stjórna,
auðsveipan gjör huga minn,
og á þinnar elsku vegum
inn mig leið í himin þinn.
(Steingr. Thorst. þýddi.)
Með örfáum orðum langar mig
að minnast vinkonu minnar, Aðal-
heiðar G. Andreasen. Hún var
Rangæingur að ætt og uppruna,
ólst upp í Fljótshlíðinni fögru í stór-
um systkinahóp. Þegar ég kynntist
henni fyrir 23 árum bjó hún á
Sunnuvegi 14, Selfossi, ásamt
manni sínum, Malling Andreasen.
Hann kom frá Danmörku, mjólkur-
fræðingur að mennt, kom til vinnu
í Mjólkurbúi Flóamanna, þar sem
hann vann til æviloka. Að koma á
heimiii þeirra var ógleymanlegt,
þar ríkti hin sanna gestrisni. Hjá
þeim áttu margir góðar stundir og
allra götu vildu þau greiða. Mann
sinn missti Aðalheiður fyrir tæpum
20 árum.
Mér fannst Aðalheiður falleg
kona sem bar mikla persónu, og
hélt andlegri heilsu 0g reisn til
æviloka þrátt 'fyrir þverrandi
krafta. Hún átti alltaf fallegt heim-
ili hvort sem hún bjó í stóru húsi
eða smáíbúð. Sonur minn varð fyr-
ir því láni að verða tengdasonur
Aðalheiðar. Honum var hún alltaf
sem besta móðir. Fyrir það vil ég
þakka og allar góðar stundir sem
við höfum átt saman.
Innilegar samúðarkveðjur send-
um við hjónin öllum aðstandendum
og biðjum Guð að blessa minningu
Aðalheiðar.
Vér sjáum hvar sumar rennur
með sól yfir dauðans haf,
og lyftir í eilífan aldingarð
því öllu sem Drottinn gaf.
(Matth. Jochumsson.)
Hvíl þú í friði.
Guðríður Bjarnadóttir.
Mér brá óþægilega, þegar mér
var sagt, að hún amma mín væri
dáin. Þó hafði hún kvatt mig síð-
ast með þeim orðum, að sennilega
sæjumst við ekki framar, því að
hennar tími væri senn kominn. í
þeirri trú sinni var hún með full-
kominni hugarró, en hitt var henni
meira áhyggjuefni, að ég kynni ef
til vill ekki að hitta neina aðra
ættingja mína í heimsókn minni á
Selfoss þennan dag.
Þetta lýsir henni ömmu vel, því
að hún bar ávallt hag fjölskyldu
sinnar, ættingja og vina fyrir
Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
ODDNÝJAR JÓNASDÓTTUR,
Laufrima 14a,
Reykjavík.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki á
kvennadeild Landsþítalans (21A) og heima-
hlynningar Krabbameinsfélagsins fyrir vin-
semd og nærgætna umönnun.
Ólafur Örn Ingimundarson,
Unnur Lóa Þorsteinsdóttir, Hlías Vairaktaridis,
Jónas Þór Gunnhallsson, Camilla Gunnhallsson,
Júlíana Guðrún Gunnhallsdóttir, Jimmy Anderson,
Þorgils Jónasson, Vilborg Bjarnadóttir
og barnabörn.
bijósti, en dró jafnan úr umræðum
um eigið heilsufar og líðan. Hún
fylgdist alla tíð mjög vel með okk-
ur barnabörnunum sínum og vildi
veg okkar sem mestan.
Amma bjó nær tíu ár á Akra-
nesi með fyrri eiginmanni sínum,
Hildiþóri Loftssyni, afa mínum, og
eignuðust þau saman tvær dætur.
Þau skildu sumarið 1941.
Amma kynntist seinni eigin-
manni sínum, Helge Malling
Andreasen mjólkurfræðingi,
nokkrum árum síðar. Ekki er unnt
að minnast hennar ömmu minnar
öðruvísi en að nefna Malling í sömu
andránni. Svo nátengd voru þau í
hugum okkar barnabarnanna.
Amma og Malling eignuðust
saman tvö börn og bjuggu fyrstu
hjúskaparár sín í Bræðraborg
(Kirkjuvegi 8) á Selfossi. En þar
fæddist ég á heimili þeirra. Amma
og Malling byggðu ‘ sér hús á
Sunnuvegi 14 á Selfossi og fluttu
þangað 1957. Við það hús og heim-
ili eru bundnar bernskuminningar
mínar um ömmu. Þarna dvaldi ég
sem barn oft tímabundið og er
þessi tími mér enn í fersku minni.
Hjá ömmu og Malling leið mér
vel. Ekki síst vegna þess að yngri
móðursystkini mín á mínu reki
voru ágætir leikfélagar.
Malling andaðist á gamlársdag
1977. Hann var einstakt góðmenni
og allra hugljúfi sem urðu þeirrar
gæfu aðnjótandi að kynnast hon-
um.
Eftir fráfall Mallings seldi amma
húsið á Sunnuvegi, þar sem henni
var ofviða að annast svo stórt hús
og mikinn garð. Amma var þannig
gerð að hún vildi ekki vera neinum
byrði og því réðst dvalarstaður
hennar eftir þetta af heilsufari
hennar. Lengst af dvaldist hún á
neðri hæðinni hjá yngstu dóttur
sinni, Steinunni Ástu Andreasen,
og Grétari Arnþórssyni, tengda-
syni sínum. Hjá þeim naut hún
bestu umhyggju og aðstoðar, sem
varði allt til dauðadags.
„Hvað boðar nýárs- blessuð sól?“
Nýárs- blessuð sól 1978 boðaði
ömmu minni söknuð og trega. En
þó ljómaði hún heit af Drottins náð
í huga hennar. Amma mín var far-
in að þrá að sjá nýárssól hinna
nýju heimkynna, þar sem líkami
hennar var mikið til búinn að vera
og hún orðin algerlega upp á aðra
komin, hvað hreyfingar snerti.
Blessuð sé minning þín, elsku
amma mín! Lifðu sífellt við sólar-
ljós í landi eilífðarmnar í Guðs friði.
Sigurður Ármann
Sigurjónsson.
Elsku Alla okkar.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Alla amma.
Núna ertu komin á góðan stað,
þar sem þér líður vel. Við vitum
öll hver tók á móti þér hinum meg-
in. Þakka þér fyrir allt sem þú
hefur gefið okkur. Missir okkar er
mikill 0g þín er sárt saknað, en
minningarnar um þig og afa á
Sunnuveginum, stundirnar með
þér og sögurnar þínar munu lifa
með okkur.
Þér munum við aldrei gleyma.
Andrés Óskar, Svanlaug
og Auður Inga, Gunnar
og Kristján.
+
Elskulegur bróðir okkar,
ÞORSTEINN EIRÍKSSON
Teigaseli 1,
lést á Vífilsstaðaspítala mánudaginn
25. ágúst.
Sigríður Eiríksdóttir,
Friðgeir Eiríksson.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við frá-
fall og útför
INGÓLFS S. ÁGÚSTSSONAR
verkfræðings,
Rauðalæk 44,
Reykjavík.
Ásdís Einarsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
PÉTURS KRISTJÁNS ÁRNASONAR
múrarameistara,
Bugðulæk 7,
Reykjavík.
Úlfhildur Þorsteinsdóttir,
Ómar Pétursson,
Hlini Pétursson,
Guðmundur Pétursson,
Hólmsteinn Pétursson,
Árni Pétursson,
Logi Pétursson,
Lýður Pétursson,
Anna Lísa Blomsterberg,
Kristfn Kristjánsdóttir,
Hallfriður Bára Einarsdóttir,
Aðalheiður Þóra Sigurðard.,
Guðveig Einarsdóttir,
Kristín Jóhanna Hirst,
barnabörn og barnabarnabörn.