Morgunblaðið - 20.09.1997, Page 22
22 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
íþróttagalli, stuttbuxur, sundbolur,
takkaskór, golfhanski og allt hitt sem
íþróttafólk klæðist venjulega verður að
einkennisbúningi þeirra í augum okkar
hinna. Af íþróttafötunum þekkjum við
þau. Veðurbarin, þreytt og jafnvel
sveitt. Rakel Þorbergsdóttir kallaði
saman ungt íþróttafólk og klæddi það úr
íþróttagallanum.
ALLTAF með
boltann.
LANÖ5-
LIÐ5-
KONAN
Asthildur Helga-
dóttir er ein besta
knattspyrnukona
landsins og hefur lengi
átt fast sæti í
landsliðinu. Hún er 21
árs og er að hefja nám í verkfræði í Vanderbilt-há-
skólanum í Nashville í Tennesee í Bandaríkjunum.
Hún fékk fótboltastyrk fyrir skólagjöldum og mun
æfa og keppa með háskólaliðinu vestanhafs.
Ásthildur er tæplega einn og áttatíu metrar á
hæð og gæti auðveldlega talist vera fyrirsæta.
„Það er mjög erfitt að finna spariskó sem eru ekki
með hæl. Flottustu skórnir eru alltaf með háum
hælum,“ sagði Ásthildur. „Ég veit ekki hvort ég
fylgist mikið með tískunni en ég er dugleg að
versla mér fót.“ Hún segist versla mikið erlendis
og nýlega ujipgötvaði hún verslunina Oasis í Kr-
inglunni. „Eg er yfirleitt í pilsi eða kjól þegar ég
fer út á lífið en hversdags er ég í buxum. Eg reyni
að vera ekki mikið í íþróttafötum utan vallarins,"
sagði Ásthildur sem átti að keppa seinna um dag-
inn og var í græna Breiðabliksgallanum. Hún
sagðist vel geta hugsað sér að eiga kjólinn úr
Spakmannsspjörum og fannst hann ekkert of fleg-
inn.
Morgunblaðið/Kristinn
HVÍTU skyrtuna fékk Ólöf einnig í Dýrinu.
MAGNÚS Aron er í
glansbol og buxum úr
versluninni Sautján á
Laugavegi.
ÓLÖF var sér-
staklega hrifin
af gervileður-
kjólnum og sif-
fonkápunni með
loðkraganum
úr Dýrinu á
Hverfis-
götu.
KRINGLUKA5TARINN
MMagnús Aron Hallgrímsson er einn af okkar efnileg-
IW Sustu frjálsíþróttamönnum um þessar mundir. Magn-
ús Aron er 21 árs og æfir kringlukast að meðaltali sex sinn-
um í viku. Hann æfði áður tugþraut en sneri sér alfarið að
kringlunni og hefur lengst kastað 58,12 metra og hefur tek-
ist að bæta árangur sinn um tíu metra á einu ári.
Magnús Aron hefur unnið hjá Sláturfélaginu á Selfossi í
sumar en sagði veturinn óráðinn. Hann er búsettur á Sel-
fossi en kemur reglulega til borgarinnar og æfir með þjálf-
ara sínum Vésteini Hafsteinssyni. „Ég kaupi mér bæði föt á
Selfossi og hér í borginni," sagði Magnús Áron sem var
duglegur að yppa öxlum þegar hann var spurður um tísk-
una og virtist ekki hafa sterkar skoðanir á staumum og
stefnum hennar. „Þetta eru föt sem ég gæti hugsað mér að
kaupa og vera í,“ sagði Magnús Aron um fötin úr Sautján.
Morgunblaðið/Þorkell
ÁSTHILDUR er f blásvartri svuntu frá Spakmannsspjörum í Þing-
holtsstræti.
GDLFIVIEI5TARINN
w
Islandsmeistari kvenna í golfi er 21
árs gömul og heitir Ólöf María
Jónsdóttir. „Ég er aðallega í íþrótta-
fötum. Gallar, bolir og gallabuxur eru
einkennisbúningur minn,“ sagði Ólöf.
Hún á nákvæmlega einn kjól og tvö pils
og þegar hún keypti sér kjól fyrir
tveimur árum hafði hún ekki verið í
einum slíkum síðan hún var fimm ára.
„Ég er næstum alltaf í buxum og h'ð-
ur hálfilla í kjól,“ sagði Ólöf. Hún
reynir ekki að fylgjast með tísku-
straumum eða tískunni almennt en
verslar oftast í Sautján. „Það tek-
ur mig alltaf heila eilífð að finna
eitthvað."
Það er erfitt að æfa golf á ís-
landi þar sem sumarið er stutt
og veturinn langur. Ólöf seg-
ist æfa fjórum til fimm sinn-
um í viku yfir veturinn en í
sumar kenndi hún bömum og
unglingum golf. Hún er að hefja nám í
íþróttakennaraskólanum að Laugarvatni
en stefnan er sett á Bandaríkin eftir tvö ár. SVEIFLAÐ af krafti.
DIESEL-jakkinn úr
Sautján fór Magnúsi sér-
staklega vel en buxur og
bolur eru einnig úr 17.
MEÐ kringluna
og þjálfarann.