Morgunblaðið - 20.09.1997, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
MESSUR Á MORGUN
Olöguleg
rótarhnyðja
ENGINN veit
hvemig rótarhnyðjan,
sem óbeinlínis banaði
Gretti, leit út. Aftur á
móti er „rótarhnyðja"
þeirra Orra Hauksson-
ar og Illuga Gunnars-
sonar, hér í blaði 14.
þ.m. bæði löng og leið-
inda stagl í þrætubók-
arstíl.
Þáttur aðstoðar-
manns forsætisráð-
herrans í greininni er
dapurlegur, hann
kann því miður ekki
að taka heilræðum
eldri embættismanns,
sem birtust hér í blaði
23. júlí sl. og voru í því fólgin, að
slík skrif gætu valdið þeim mis-
skilningi að húsbóndi Orra stæði á
bak við skrifin, sem væri „bjarnar-
greiði" við forsætisráðherrann.
Það er með ólíkindum hve mikið
þeir álita sig kunna fyrir sér í lög-
fræði, að voga sér að kveða upp
Gjafakvótann,
segir Gunnlaugur
Þórðarson, er búið
að festa í sessi með
lögunum illræmdu
um samningsveð.
álit á efni, sem aðeins er á færi
lögfræðinga með þeirri grunn-
hyggnu skoðun, að sægreifarnir
skulu eiga gjafakvótann um alla
framtíð endurgjaldslaust vegna
tækniþróunar, sem þeir hafa kom-
ið á og kostað.
Svona fullyrðing er út í hött,
að yfirtaka voldugra útgerðarfyrir-
tækja á þeim sem minna mega sín
geti talist tækniþróun.
Tvímenningamir átta sig ekki
á, að tækniþróunin í veiðiskap á
sér langa sögu og eiga ýmsar þjóð-
ir þátt í henni.
Landnámsmenn fluttu með sér
þá tækni að veiða fisk i net og á
handfæri og hefur hún verið undir-
staða sjómennskunnar með þjóð-
inni frá örófi alda. Á síðustu tímum
hafa þær veiðiaðferðir verið þyrnir
í augum ríkisstjórna, sem hafa
gert allt til þess að leggja þær í
rúst með kvóta. Það sem veiddist
með þeim veiðiaðferðum nam að-
eins litlum hluta heildaaflans, en
átti samt mikinn þátt í að halda
uppi byggð á minni þéttbýlisstöð-
um sem nú eru að leggjast í auðn.
Vitað er að sægreifarnir voru á
bak við þær glórulausu aðgerðir.
Þeir sáu ofsjónum yfir
því smáræði, sem var
í þessum aflahluta, en
var samt verðmætasta
útflutningsafurð þjóð-
arinnar.
Það yrði alltof löng
saga, að rekja tækni-
þróunina og spuming
hvar byija ætti varð-
andi togaraútgerð, en
eitt er víst að sægreif-
arnir hafa notið meiri
stuðnings bankavalds-
ins og ríkis til þess að
komast í þá aðstöðu,
sem þeir hafa nú og
er sá stuðningur meiri
en til nokkurrar ann-
arrar atvinnugreinar með þjóðinni.
Nú er aftur á móti búið að festa
gjafakvótann svo í sessi með lög-
unum illræmdu um samningsveð,
að útgerðin er á sinn hátt ofurseld
í höndum bankavaldsins.
Fráfarandi stjórn Landsbankans
stærir sig opinberlega af því, að
verulegur þáttur í rekstrargróða
bankans er „kvóta-brask“, sbr.
frétt á baksíðu Mbl. 13. þ.m.
Voldug fyrirtæki sægreifanna
eru farin að kaupa upp fyrirtæki
erlendis og í því sambandi vofir
yfir sú hætta, að útgerðinni verði
innan fárra ára stjórnað frá útlönd-
um og að ísland verði eins og ver-
stöð með undirmálsfóiki í starfi,
þannig að litlu plássin eru ekki ein
í háskanum, heldur byggð á öllu
landinu.
- o -
Þetta er hripað niður í 37 þús-
und feta hæð yfir Miðjarðarhafi.
Undirritaður er á leið til fundar-
setu á alþjóðaráðstefnu lögfræð-
inga, „World Jurist Association",
sem haldin verður í Dohan í höfuð-
borg furstadæmisins Quatar á
næstu dögum.
Undanfarin 25 ár hefur mér þótt
mikilvægt að sækja þær ráðstefn-
ur, sem haldnar eru á 2ja ára fresti
víðsvegar um heim og sótt þær nær
undantekningarlaust síðan.
Á seinustu árum hefur mér verið
meðal annarra falið að flytja fram-
söguerindi um ýmis lögfræðileg
efni. T.d. hef ég m.a. rætt um land-
helgismálið, varð meira að segja
gegn sannfæringu minni að reyna
að skýra þá hæpnu ákvörðun Ólafs
Jóhannessonar, þáverandi utanrík-
isráðherra, að sniðganga Alþjóða-
dómstólinn.
Á ráðstefnunni í Quatar verð ég
einn af frummælendum. Ætlun mín
er, fýrst og fremst, að fjalla um
mál Jan Mayen og Svalbarða, reyna
að skýra aðgerðaleysi íslenskra
stjómvalda í þeim málum.
Ráðstefnuna sækja lögfræðingar
frá öllum heimsins hornum. Mér
hefur aldrei hlotnast sú fyrir-
greiðsla, þrátt fyrir margra ára
embættisferil, að hafa ferðast á
kostnað íslenska ríkisins.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
SNYRTISTOFAN
GUERLAIN
IÓðingata 1 • 101 • Reykjavík I
Sími 562 3220 « Fax 552 232p|
Gunnlaugur
Þórðarson
sœtír sofar
• Smiðjuvegi 9 • S í m i 564 1475 *
Guðspjall dagsins:
Jesús læknar á
hvíldardegi.___________
(Lúk. 14)
ÁSKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Fjölbreytt dagskrá í tali og tón-
um. Foreldrar hvattir til þátttöku
með börnunum. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Prests- og djákna-
vígsla kl. 10.30. Biskup (slands
herra Ólafur Skúlason vígir cand.
theol. Önnu Sigríði Pálsdóttur sem
aðstoðarprest í Grafarvogspresta-
kalli í Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra, ennfremur Halldór Elías
Guðmundsson sem vígist djákna-
vígslu til þjónustu í Æskulýðssam-
bandi kirkjunnar í Reykjavíkurpróf-
astsdæmum. Vígsluvottar: Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson, prófastur,
sem lýsir vígslu, sr. Vigfús Þór
Árnason, Ragnheiður Sverrisdóttir,
djákni og sr. Hjalti Guðmundsson,
dómkirkjuprestur, sem annast alt-
arisþjónustu ásamt biskupi. Dóm-
kórinn og Kór Grafarvogskirkju
syngja við athöfnina. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Barna-
samkoma kl. 14 við upphaf barna-
starfsins. Prestur sr. Jakob Á.
Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 14. Prestursr. Tómas Guð-
mundsson. Organisti Kjartan Ólafs-
son. Félag fyrrverandi sókn-
arpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Fjölskyldu-
messa kl. 11. Barnastarfið hefst.
Eirný Ásgeirsdóttir og félagar.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa kl. 11. Organisti
Hörður Áskelsson. Sr. Sigurður
Pálsson. Kl. 20 kvöldmessa á veg-
um Reykjavíkurprófastsdæmis
vestra í tilefni upphafs vetrarstarfs-
ins. Sr. Karl Sigurbjörnsson prédik-
ar, Kór Grensáskirkju syngur, org-
anisti Árni Arinbjarnarson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14. Dr. Sig-
urður Árni Þórðarson, forstöðu-
maður safnaðaruppbyggingar þjóð-
kirkjunnar prédikar. Organisti Pavel
manasek. Sr. Helga Soffía Konr-
áðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Hátíðarmessa kl.
11. Kirkjudagur Langholtssafnaðar,
vígsluafmælis kirkjunnar minnst.
Kór Langholtskirkju syngur. Prest-
ur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Barna-
starfið hefst kl. 11. Eftir messu
selur Kvenfélag Langholtssóknar
súpu og brauð.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Barnastarf kirkjunnar
hefst. Þórarinn Björnsson guð-
fræðingur prédikar. Kór Laugarnes-
kirkju syngur. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Jón Dalbú Hróbjarts-
son.
NESKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Upphaf barnastarfsins.
Sr. Halldór Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Organisti Viera Manasek.
Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Barnastarfið hefst á
sama tíma í umsjá sr. Hildar Sigurð-
ardóttur, Agnesar Guðjónsdóttur
og Benedikts Hermannssonar.
■-----------■
SLIM-LINE
dömubuxur
frá gardeur
Qhrntv
tískuverslun
_ V/Nesveg, Seltj., s. 561 I680 mm
ÁRBÆJARKIRKJA: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Krakk-
ar og foreldrar, sjáumst.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á
sama tíma. Samkoma ungs fólks
með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Léttar veitingar eftir
messu. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Lenka Máté-
ová. Barnastarf á sama tíma. Um-
sjón Ragnar Schram. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Prestvígsla
í Dómkirkjunni. Anna Sigríður Páls-
dóttir verður vígð til að gegna að-
stoðarprestsembætti í Grafarvogs-
sókn. Barnamessa kl. 11 í Grafar-
vogskirkju. Umsjón Hörður og
Rúna. Nýr sunnudagspóstur. Org-
anisti Hrönn Helgadóttir. Kvöld-
messa kl. 20.30. Sameiginleg guðs-
þjónusta Reykjavíkurprófastsdæm-
is eystra. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson dómprófastur prédikar.
Prestar í prófastsdæminu þjóna
fyrir altari. Órganisti Hörður Braga-
son. Kór Grafarvogskirkju og ungl-
ingakór kirkjunnar syngja. Prest-
arnir.
HJALLAKIRKJA: Helgistund og
kynningarfundur kl. 10.30. Foreldr-
ar og væntanleg fermingarbörn úr
Hjallaskóla eru sérstaklega boðin
velkomin. Barnaguðsþjónusta kl.
13. Helgistund og kynningarfundur
kl. 14.30. Foreldrar og væntanleg
fermingarbörn úr Digranesskóla,
Snælandsskóla og öðrum skólum
eru sérstaklega boðin velkomin.
Organisti Oddný Jóna Þorsteins-
dóttir. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Guðsþjónusta í kirkjunni fellur niður
vegna messuheimsóknar kórs
Kópavogskirkju, sóknarprests og
organista til Grundarfjarðar. Sam-
eiginleg guðsþjónusta með heima-
mönnum í Grundarfjarðarkirkju kl.
14.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
ustur byrja að loknu sumarhléi. Kl.
11 hittumst við í kirkjunni okkar,
krakkar og foreldrar. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Ágúst Einarsson prédik-
ar. Organisti Ólafur W. Finnsson.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.15, guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cecil
Haraldsson.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Al-
menn samkoma og barnastundir
kl. 17 í dag. Ræðumaður sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson. Helgileik-
ur. Septembervaka kl. 20. Ragnar
Gunnarsson talar. Lofgjörð og fyrir-
bæn.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Vörður Traustason. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður Mike
Beilamy frá Keflavíkurflugvelli. Allir
hjartanlega velkomnir.
KLETTURINN: Krakkakirkja kl. 11.
Samkoma kl. 20. Allir velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 10 og fimmtudag kl.
20. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Mess-
ur sunnudaga kl. 10.30, 14 og 20
(á ensku). Laugardaga og virka
daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
Fríkirkjan
í Reykjavík
laugardag og virka daga kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87: Messa
sunnudag kl. 10 á þýsku. Laugar-
dag og virka daga messa kl. 7.15.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30. Messa
virka daga og laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumað-
ur Ásmundur Magnússon. Fyrir-
bænaþjónusta/bænaklútar. Allir
hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudag
kl. 19.30 bænastund. Kl. 20 Hjálp-
ræðissamkoma í umsjá Turid og
Knut Gamst. Allir hjartanlega vel-
komnir.
BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalar-
nesi: Messa kl. 11 f.h. Fermingar-
börn ásamt foreldrum sínum boðin
sérstaklega velkomin. Gunnar
Kristjánsson, sóknarprestur.
VÍDALÍNSKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Setning sunnu-
dagaskólans. Yngri og eldri deild.
Skólakór Garðabæjar syngur við
athöfnina. Bjarni Þór Bjarnason.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. (Rútuferð frá Kirkjuhvoli kl.
13.30 og Hleinunum kl. 13.40).
Bjarni Þór Bjarnason.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudaga-
skólinn hefst kl. 13 í Bessastaða-
kirkju. Rúta ekur hringinn.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Fermdur verður Heimir Freyr
Heimisson, Stuðlabergi 104, Hafn-
arfirði. Sigurður Helgi Guðmunds-
son.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl.
11. Fermingarbörn sýna helgileik.
Prestur sr. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Þóra Guðmundsdótt-
ir. Aðalsafnaðarfundur hefst að lok-
inni guðsþjónustu.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Barn borið til skírn-
ar. Kirkjukór Njarðvíkur syngur und-
ir stjórn Steinars Guðmundssonar.
Baldur Rafn Sigurðsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Jón Ragnarsson.
KOTSTRANDARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Prestur sr. Ágúst
Friðfinnsson. Jón Ragnarsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 10.30.
Hádegisbænir kl. 12.05 frá þriðju-
degi til föstudags. Kvöldbænir
fimmtudag kl. 22. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl.
14. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa
kl. 14. Sigurður Sigurðarson vígslu-
biskup vigir Guðrúnu Eggertsdóttur
djákna. Vígsluvottar verða sr. Svav-
ar Stefánsson, sr. Guðmundur Óli
Ólafsson, sr. Jón Ragnarsson og
Sigríður Valdimarsdóttir djákni.
Söngstjóri Hilmar Örn Agnarsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Kl. 11 sunnudagaskólinn hefur
göngu sína. Kl. 13 almenn guðs-
þjónusta. Ath. breytta tímasetn-
ingu. Barnasamvera meðan á préd-
ikun stendur. Messukaffi. Kl. 16
messu útvarpað á ÚVaff (FM) 104.
Kl. 20.30. KFUM & K, unglingafund-
ur.
HOLTSPRESTAKALL í Önundar-
firði: Messa kl. 11 í Flateyrarkirkju.
Organisti lllugi Gunnarsson. Sr.
Gunnar Björnsson.
AKRANESKIRKJA: Barnastarfið er
að hefjast. Barnaguðsþjónusta í
dag, laugardag kl. 11. Stjórnandi
Sigurður Grétar Sigurðsson.
Messa í kirkjunni sunnudag kl. 11.
Messa í kapellu sjúkrahússins kl.
14. Björn Jónsson.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Messa kl. 14 með söng-
fólki af námskeiði Kirkjukórasam-
bands Austurlands. Mánudagur
22. sept. Kyrrðarstund kl. 18. Sókn-
arprestur.
BORGARPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta verður í Borgarneskirkju
kl. 14. Altarisganga. Guðsþjónusta
á Dvalarheimili aldraðra kl. 15.30.
Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason.