Morgunblaðið - 28.09.1997, Síða 18

Morgunblaðið - 28.09.1997, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Indriði G. Bergijót Þorsteinsson Arnalds Hreiðar Hjörtur E. Stefánsson Þórarinsson Minningar og mána- dísir SKJALDBORG gefur út nokkrar ævisögur og endurminningabækur fyrir jólin. Æviminningar Hjartar E. Þórarinssonar á Tjörn í Svarfað- ardal eru eftir Ingibjörgu Hjartar- dóttur og Þórarin Hjartarson. Jón- as Jónasson skráir Flugsögu Harð- ar Guðmundssonar. Sjávarniður og sunnanrok er viðtalsbók Jóns Kr. Gunnarssonar við fimm sjósókn- ara. Indriði G. Þorsteinsson er höfundur Þátta um menn og mál- efni. Ein íslensk skáldsaga kemur út I\já Skjaldborg, Nótt á mánaslóð, eftir Birgittu H. Halldórsdóttur. Mánadís í myrkri grafar er eftir Mary Higgins Clark, Agatha Christie er höfundur Morðs um borð. Bókin um bamið - meðganga, fæðing og fyrstu sex ár bamsins er handbók eftir Vibeke Manniche þýdd og staðfærð af Jóhönnu G. Erlingson. íslensk knattspyrna 1997 er eftir Víði Sigurðsson. Ey- firskur fróðleikur og gamanmál, annað bindi sem inniheldur kvæði og stökur, er ísamantekt Eiríks Bjömssonar. Útkall rauður - sorg og sigrar í starfi björgunarsveita er eftir Björgvin Richardsson. Hafræna - sjávarljóð og siglinga. verður endurútgefín. Guðmundur Finnbogason safnaði þessum ljóð- um á sínum tima en endurskoðaða útgáfan er í höndum Finnboga Guðmundssonar. LISTIR Tíminn og baðstrandagellur Bama- og unglingabækur em að vanda margar frá Skjaldborg. Tóta og tíminn er eftir Bergljótu Amalds með myndum eftir Ómar Öra Hauksson. Leynifélagið er eft- ir Kristján Jónsson. Sören Ols- son og Anders Jacobsson em höfundar bókanna Bert og baðstrandagellumar, Gott hjá þér, Svanur!, Skólataskan hans Svans og Dúfa-Lísa og sonur vindsins. Besti jólaleikur allra tíma er eftir Barböm Robin- son. Bróðir minn og bróðir hans er eftir Hákon Lindquist. 5 mínútna kisusögur fyrir hátt- inn em eftir ýmsa höfunda. Franklín eignast nýjan vin er eftir Paulette Bourgeois og Brendu Clark, Kóngsdóttirin og grísinn eftir Heather Amery og Stephen Cart- wright, Risar dýraríkisins eftir Bent Jörgensen og Mannkyns- saga bama og unglinga, Heim- ur í mótun, eftir Nils Hartman og Johannes Bojesen. Margar harðspjaldabækur fyrir yngstu börain koma út. Meðal endurútgefínna bóka fyr- ir böra og unglinga er saga Hreið- ars Stefánssonar Grösin í glugg- húsinu, Salómon svarti eftir Hjört Gislason, Stafakarlarnir eftir Bergljótu Arnalds auk Frank- og Jóabóka, Nancy- og Kimbóka. Guðlaug Sveinsdóttir Guðlaug sýnir í Eden GUÐLAUG Sveinsdóttir heldur sýningu í Eden í Hveragerði og stendur hún til 6. október. Guðlaug Sveinsdóttir er fædd 11. ágúst 1924 að Hryggstekk í Skriðudal. Hún hefur lengst af búið í Egils- staðabæ og starfaði sem ljós- móðir þar í mörg ár. Guðlaug hefur sótt námskeið hjá ýmsum listamönnum og stundaði nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Guðlaug hefur tekið þátt í mörgum samsýningum og haldið eina einkasýningu. Nýjar bækur • Félagsfræði - einstaklingur og samfélag er ný kennslubók í féiagsfræði eftir Garðar Gíslason, félagsfræðing og kennara við Menntaskólann í Kópavogi. Bókin er samin fyrir grunnáfanga í félagsfræði í framhaldsskólum. Hún skiptist í 22 kafla og lýsir inn- viðum þess samfélags sem við búum í og helstu áhrifavöldum við mótun einstakl- ingsins: menn- ingu, trú, íjöl- skyldu, atvinnu- markað og stjórnkerfi. Hér er fræðigreinin skilgreind, lýst er þeim rannsókn- araðferðum sem notaðar eru inn- an félagsfræðinnar og fjallað er um helstu greinar sem teljast skyldar henni. Einnig eru í bókinni fjölmarg- ar myndir, kort og töflur þar sem stuðst er við ný íslensk tölfræðirit og í lok hvers kafla eru hugtaka- listi, spurningar og verkefni. Við bókarlok eru heimildaskrá, mynda- skrá og nafna- og atriðisorðaskrá. Útgefandi er Mál og menning. Féiagsfræði - einstaklingur og sam- félag er 303 bls., unnin íPrentsmiðj- unni Odda hf. Kápuna gerði auglýs- ingastofan XYZETA. Verð: 3.899 kr. GUNNAR Öm útskýrir sýninguna og skilaboðin til jarðarinnar fyrir Bandaríkja- SKILABOÐ til jarðarinnar á festingum við rætur Heklu. mönnunum ungu. „SKILABOÐ" MYNDLIST Ileklurætur HRAUNVERKSMIÐJAN ÞJÓÐKIRKJAN ÁSATRÚAR- SÖFNUÐURINN GUNNAR ÖRN HELGA SIGURÐARDÓTTIR SPESSI BUBBI Opin allan sólarhringinn til 30. september. SÉRSTÆÐUR gjömingur hefur verið í gangi við rætur Heklu frá 26. júlí og lýkur nú um helgina. Vissi rýnirinn fullseint af honum, var í Berlín er hann hófst, en hefur verið á leiðinni á staðinn undanfarnar vik- ur. Umgangspestir og veður hafa hins vegar seinkað för og lá við að ekkert yrði úr framkvæmdum vegna rigningar og þoku um sl. helgi. Þó var lagt í hann á sunnudagsmorgni og ekið rakleiðis að Kambi, óðali Gunnars Amars listmálara, skipt um kerru og í rúmgóðum kraftmiklum jeppa haldið áfram að Hellu, hvar hugmyndasmiður framkvæmdarinn- ar, Snorri Guðmundsson, beið í minni jeppa. Í framhjáhlaupi var stefnan tekin á Gunnarsholt, þar sem hraun- verksmiðja Snorra er til húsa og hún skoðuð. Auk eigin hugmyndavinnu, leiðbeinir hann vistmönnum á staðn- um við minjagripagerð við prýðilegar aðstæður og má það í senn vera mjög gefandi og uppörvandi iðja fyr- ir þá. Þamæst skyldi ekin Fjallabaksleið syðri, heilir 58 kílómetrar, að stórum hluta til á frumstæðum krókóttum og grýttum vegi. Var þó eitthvað hik á mönnum þar sem skyggni var slæmt, þoka niður í fjallsrætur og rigningarúði í lofti, en þar sem þetta var eina tækifærið til að taka rýninn með voru báðar kerrurnar ræstar áður en nokkrum gæfist tími til að snúast hugur. Bugðóttu brúna til mánans mætti nefna leiðina því í hinu takmarkaða skyggni var flest sem yfírhöfuð markaði fyrir ósjaldan líkast dular- fullu landslagi á tunglinu, ósýnilegur ókennilegur heimur jötunafla í ná- grenninu æsti upp hugarflugið, allt á suðumarki í heilakymunni. Framkvæmdin, Skilaboð til jarð- arinnar, er í tengslum við 70 ára byggð á Hellu, einnig að 50 ár eru liðin frá gosinu mikla 1947, og kost- uð af Rangárvallahreppi. Hún er öðru fremur hugmyndafræðilegs eðl- is og stefnumörk hennar; að maður- inn friðmælist við jörðina. Þótti þessi magnaði staður við jaðar storknaðrar hraunelfunnar 1991 kjörinn vett- vangur, þar mætast tvö hraun, annað nýtt og bert, en hitt mosagróið og sýnu eldra, hið þriðja í nágrenninu. Eldfjallið er á mörkum austurs og vesturs, að vestan hinn landfræðilegi Ameríkufleki, en að austan Evró- Asíuflekinn. Snorri hefur þá trú, að séð úr fjarska sé harla erfitt að að- skilja manninn frá jörðinni, þannig álítur hann jörðina lifandi veru, og telur að kannski hafi hinar gömlu hugmyndir um fordyri vítis átt við rök að styðjast, á þann veg að um Heklu sé bein leið til jarðarinnar. Þetta var sem ferðalag á annarri plánetu og hvergi neitt kvikt á ferli, en þó var það einhvem veginn ekki óraunhæft, komnir langleiðina, að sást í tvær mannverur framundan. Héldum í fyrstu þetta gangandi hreystimenni, en þeir veifuðu í gríð og erg er við nálguðumst og voru himinlifandi er við staðnæmdumst og tókum þá tali. Um var að ræða unga ameríkumenn af vellinum, sem fest höfðu bíl sinn í nágrenni sýningar- svæðisins. Og voru það glaðklakka- legir halir er settust blautir og kaldir í aftursætið eftir að hafa verið í fjóra tíma á gangi, og löngu famir að ör- vænta um hjálp. Rétt áður en við birtumst þurfti annar að bregða sér frá að þjóna kalli náttúrunnar, en á meðan beið hinn á vegarslóðanum og bað til almættisins um hjálp. Hvort sem það hefur verið Guð eða Hekla sem heyrðu bæn hans greindu þeir einmitt ljós í þokunni í þann mund er þeir heldu af stað aftur, sem voru frá jeppa Gunnars Amars og hjörtu þeirra hoppuðu upp í háls. Þótt ótrú- legt sé voru þeir ekki með farsíma, ekki með skóflu og ekki með línu. Komið á áfangastað hélt Gunnar Öm áfram með þeim til að freista þess að losa bílinn, sem gekk fljótt fyrir sig enda Gunnar með öll þessi tæki og fleiri til. Komu því von bráðar aftur og upplýstist þá að náungamir voru í sömu erindum og við. Höfðu séð auglýsingu um sýninguna á Sel- fossi tveim vikum áður og forvitnin vaknað. Nú fengu þeir hina fullkomn- ustu þjónustu á staðnum, því Gunnar gekk með þeim um svæðið og út- skýrði inntak og tilgang sýningarinn- ar. Það voru svo glaðir menn er hurfu á braut í rennilegum svörtum skutbíl og vonandi verður þetta þeim og fé- lögum þeirra á vellinum nokkur lær- dómur, að ferðast aldrei um óbyggðir landsins án lágmarksbúnaðar. I ljósi allra aðstæðna var augljóst að þeir hefðu lent í miklum raunum hefðum við ekki verið á réttum stað á réttum tíma og það aðeins vegna margend- urtekinna seinkana. En hvort heldur tilviljanir eða yfirnáttúruleg öfl voru að verki, voru hinir ungu menn ekki feigir í það skiptið. Undarleg tilfinning að standa þarna við rætur Heklu, skynja fjallið og ofurmátt þess með hverri taug, en greina einungis hraunjaðrana. I sýningarskrá er reitur fyrir skilaboð gesta til jarðarinnar og var áður frumsamin bæn Gunnars Amars við Heklu rætur: „Almáttugur drottinn, viltu biessa jörðina,/ viltu blessa manninn og hjálpa honum að hugsa rétt./ Hjálpa honum að vernda og varðveita jörðina,/ heimili okkar allra.“ Bænin greinir inntak sýningarinn- ar og eru orð í tíma töluð, þá maður- inn er víðast hættur að skilja þá miklu gjöf sem lífið er og að náttúr- an þarfnast andrýmis ekki síður en maðurinn. Tökum aðeins eitt atriði fyrir; „Súrefni er undirstaða lífs á jörðu, plöntur og dýr þurfa súrefni til öndunar. Súrefni hefur ekki alltaf verið til staðar í andrúmsloftinu í þeim mæli sem við nú þekkjum. Fyr- ir tilverknað ljóstillífunnar plantna tók súrefni að safnast fyrir í and- rúmsloftinu fyrir mörg hundruð millj- ónum ára. Þessi ljóstillífun átti sér stað í lofthjúpi sem meðal annars myndast við eldvirkni jarðarinnar. Eldvirkni átti dijúgan þátt í að mynda hinn foma lofthjúp." Það eru þannig samverkandi þætt- ir reginafla sem eru forsenda lífs á jörðu og afkvæmi þeirra; manninum, hollast að umgangast náttúruna með ást og umhyggju. Má hér minnast orða skáldanna; aðgát skal höfð í nærveru sálar, og ennfremur, hið smáa er jafn lítið smátt og hið stóra er stórt. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.