Morgunblaðið - 28.09.1997, Síða 21

Morgunblaðið - 28.09.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997 21 LISTIR „Blái liturinn sameinaði okkur“ SEX listakonur í Textílfélaginu sýna textílþrykk, í Ásmundarsal við Freyjugötu, þar sem þema sýningarinnar er blár. Sýningin stendur til 5. október nk. Listakonurnar sem sýna eru Anna María Geirsdóttir, sem þrykkir á bómull, Björk Magnúsdóttir þrykkir á slétt flauel, Helga Pálína Brynjólfs- dóttir þrykkir á bómullarsatín, Hrafnhildur Sigurðardóttir þrykkir myndverk á handgerð- an pappír sem hún hefur unnið úr japönskum trefjum, Hrönn Vilhelmsdóttir sýnir síþrykk á viscose satín og Þóra Björk Schram sýnir upplýst myndverk unnin á silki með blandaðri tækni. Verkin á sýningunni undir- strika fjölbreyttar tjáningarleið- ir miðilsins, bæði sem hönnun og fijáls myndsköpun. Helga Pálína segir að Textílfélagið vilji með þemasýningum sínum gefa almenningi mynd af því hvað textíll er. „Við vildum að samsýningin hefði ákveðið þema sem héldi utan um ólík verk okkar,“ segir Helga. „Blái litur- inn var sá sem við áttum auð- veldast með að sameinast um.“ Hún segir að mörk listgreina séu sífellt að verða óljósari. Hrafn- hildur bendir á að efnisnotkun sé orðin mjög fjölbreytt. Sjálf þrykkir hún á pappír sem hún vinnur sjálf. „Að vefa úr málmi, er það skúlptúr eða textíll?“ spyr Hrafnhildur. „Ég lít frem- Morgunblaðið/Þorkeii ur á mig sem myndlistarkonu SEX meðlimir Textílfélagsins sýnaþrykkí Ásmundarsal. en textílkonu nú orðið.“ Aukasýning- ar á Latabæ NOKKRAR aukasýningar verða á barnaleikritinu Áfram Latibær í Loftkastalanum í október og nóv- ember. Leikritið er í leikgerð Baltasars Kormáks og Magnúsar Schevings eftir sögu þess síðarnefnda. Leik- stjóri er Baltasar Kormákur og leik- endur eru Magnús Ólafsson, Magn- ús Scheving, Selma Björnsdóttir, Siguijón Kjartansson, Pálína Jóns- dóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Jón Stefán Kristjánsson, Ingrid Jóns- dóttir, Ólafur Guðmundsson, Sveinn Þórir Geirsson, Þórhallur Ágústsson og Guðmundur Erlingsson. Söng- textar eru eftir Davíð Þór Jónsson og tónlist eftir Mána Svavarsson. Nýjar bækur • Sagan af Músa-mús heitir ný barnabók eftir Moshe Okon og Sigrúnu Birnu Birnisdóttur. Sara Vilbergsdóttir myndskreytti. Sag- an íjallar um Músa-mús sem er einn heima í fyrsta skipti.„Hann er orð- inn stór og duglegur og ekkert hræddur við köttinn. En þegar hann heyrir þrusk við útidyrnar er vissara að vera við öllu búinn og láta ekki óttann nátökum á sér.“ Utgefandi erMál og menning. Bókin er 30 síður ogprentuð íPrent- smiðjunni Odda hf. Hún kostar 1380 krónur. • Mér er alveg sama og Það var ekki égeru tvær nýjar barnabæk- ur. Höfundurinn er Brian Moses, breskur kennari og rithöfundur, en listamaðurinn Mike Gordon mynd- skreytti. Mér er alveg sama fjallar um háttvísi í mannlegum samskipt- um ogÞað var ekki ég um heiðar- leika. I bókunum eru sett á svið algeng atvik úr daglegu lífi og bent á það sem betur má fara í samskipt- um við annað fólk. Tónninn er gam- ansamur og í eftirmála eru leiðbein- ingar til foreldra og kennara. Útgefandi er Mál og menning. Sigrún Árnadóttir þýddi bækurnar sem eru hvor um sig 32 litprentaðar síður og kosta 990 krónur. • Komin er út barnabókin Brúsi, saga um vináttu manns og refs eða saga um það hvenær maður veiðir ref og hvenær maður veiðir ekki ref, eins og segir í undirtitli. Höfundurinn er Finnur Torfi Hjörleifsson, sem meðal ann- ars er þekktur fyrir ljóðabækur sínar. „Brúsi er með óvenju fal- legan feld og brúsandi skott og lifir villtur úti í náttúrunni. Veiðimaðurinn heillast af honum og lætur byssuna síga og smám saman kynnast þeir og læra að treysta hvor öðrum.“ Þóra Sig- urðardóttir teiknaði myndir í þessa náttúrulífssögu. Útgefandi er Mál og menning. Bókin cr67 blaðsíður, prentuðí Ásprent POB og kostar 1390 krónur. Vióóir þú að andlitsböð hindi ctímabœra öldrun húðar? Við bjóðum upp á andlitsböð fyrir konur og karla Snyrtistofan Ársól •Grímsbæ, Efstalandi 26, Reykjavík mSími: 553 1262 Snyrtistofan Eygló * Langholtsvegi 17, Reykjavík * Sími: 568 4590 Snyrtistofan Fegrun mBúðagerði 10, Reykjavík mSími: 553 3205 Snyrtistofa Halldóru mHúsi verslunarinnar, Kringlunni 7, Reykjavík mSími: 588 1990 Snyrtistofan Hrund • Grænatúni 1, Kópavogi mSími: 554 4025 Snyrtistofan Jóna mHamraborg 10, Kópavogi mSími: 554 4414 Snyrtistofan Lipurtá mStaðarbergi 2-4, Hafnarfirði mSími: 565 3331 Snyrtistofan Mandý mLaugavegi 15, Reykjavík mSími: 552 1511 Snyrtistofan Paradís mLaugarnesvegi 82, Reykjavík mSími: 553 1330 Snyrtistofan Saloon Ritz mLaugavegi 66, Reykjavík • Sími: 552 2460 Snyrtistofan Tara mDigranesheiði 15, Kópavogi mSími: 564 1011 i R Snyrtistofan Tara mHáholti 14, Mosfellsbæ mSími: 566 6161 A Ifi Snyrtistofan Þema * Reykjavíkurvegi 64, Ilafnarfirði • Sími: 555 1938 ^fl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.