Morgunblaðið - 28.09.1997, Side 35

Morgunblaðið - 28.09.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997 35 VALBERG G UNNARSSON + Valberg Gunn- arsson var fædd- ur 1. maí 1985 á Akureyri. Hann lést af slysförum 21. september síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Heiðbjört Ing- varsdóttir og Gunn- ar Björnsson. Fóst- urfaðir Valbergs er Hafsteinn Hafsteins- son. Hálfsystur hans sammæðra eru Lena Reynisdóttir og Sunna Reynisdóttir. Hálfsystkini sam- feðra eru Ragnheiður, Hildur og Gunnar. Hann fluttist til Reykjavíkur tveggja mánaða gamall. Hann var nemandi í Fossvogsskóla frá síðastliðnu hausti, þar áður í Vesturbæjar- skóla að undanskildu einu ári í Grunnskóla Djúpavogs. Útför Valbergs fer fram frá Bústaðakirlqu á morgun, mánu- dag, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofí rótt. (Sveinbjöm Egilsson) Valberg var nýr nemandi í bekkn- um okkar og var aðeins hjá okkur í 3 vikur. Með þessu litla versi viljum við kveðja hann og þakka honum hlý og ánægjuleg kynni. Sendum öllum aðstandendum innilegar sam- úðarkveðjur. Guð veri með ykkur og styrki í ykkar miklu sorg. Kennari og nemendur í hópi 13 í Fossvogsskóla. Til hvíldar hægt mig leiddu og hlífðarvænginn breiddu um beð minn nú í nótt. Bæg illum öndum frá mér, lát engla syngja hjá mér. Guð vill að bam sitt blundi rótt. (Helgi Hálfdánarson) Elsku Valli. Ekki grunaði mig að ég sæi þig í síðasta skipti þegar við ræddum um nýja skólann þinn, kenn- ara og vini við eldhúsborðið hjá Lenu og Eiríki. Hugsunin um dauðann er fjarlæg er við horfum á ungt fólk í blóma lífsins. M varst lífsglaður, skemmtilegur krakki sem vildir öllum vel. Það kom ekki síst í ljós þegar þú umgekkst litla frænda okkar, hann Garðar Breka. Anægjan og umhyggjan skein úr augunum þínum er þú annaðist hann. Þó að þú reynd- ir að vera harður af þér þá varstu lítill inn við beinið og máttir ekkert aumt sjá. Ekki þurfti mikið til að gleðja þig. Mér er það minnisstætt þegar ég kom í heimsókn til þín og fjölskyldu þinn- ar þegar þú varst 3ja ára gamall. Ég hafði meðferðis svolítinn pakka handa þér og þú varðst svo innilega glaður að því fá engin orð lýst. Ég gleymi aldrei þeirri fallegu mynd sem ég á af þér í huga mér, hana mun ég varðveita um aldur og ævi. Elsku Heiðbjört, Hafsteinn, Sunna, Lena, Eiríkur og aðrir að- standendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið Guð um að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Jóna Aradóttir. Við höfum öll í 7.V fylgst með líð- an Valla frá slysinu á fimmtudaginn var. Við sendum honum kort, en hann vaknaði ekki aftur til að sjá það. Við vonuðumst alltaf til að hann mundi vakna aftur og senda kveðju á móti. Þegar kennarinn okkar tilkynnti um fráfall hans á mánudagsmorgun, leið okkur svo undarlega. Hann var svo ungur, það er svo sorglegt þegar ungt fólk deyr svona allt of fljótt. Þetta gat varla verið satt. Hann Valberg var fínn strákur. Valli var góður bekkjar- félagi. Hann var sann- gjam og gjafmildur. Margir ættu að taka hann til fyrirmyndar. Maður finnur varla mikið betri vini í dag. Hann var stór og fannst gaman í körfu- bolta og var góður í honum. Sum okkar lék- um saman í leikriti í fyrra, hann lék Önnu ráðskonu í leikritinu. Hann var alveg frábær í því, allir strákarnir þurftu að leika stelpur. Það var mjög ánægjulegt að koma til hans í afmælisveislur og fjölskylda hans var mjög góð. Við vorum öll úr gamla H-13 bekknum í afmæii hans í vor, það var mjög mikið fjör, við dönsuðum og skemmtum okkur frábærlega. Við héldum karókí- keppni, sem heppnaðist bara vel. Það var svo mikið nammi að meira að segja við, 16 krakkar - með góða nammilyst - gátum ekki klárað það. Þegar afmælið var búið fylgdi Valli okkur í strætó. Þegar foreldrar okkar hafa verið að segja okkur frá hinum og þessum sem hafa slasast illa á hjóli, af því að þeir voru ekki með hjálm, höfum við ekki tekið almennilega mark á því. En núna var það Valli vinur okkar. Allt í einu svo miklu nær okk- ur. Við notum öll hjálm hér eftir. Við fínnum svo til með Valla og fjölskyldu hans, okkur finnst svo óréttlátt að sumir lifa og aðrir ekki. Til hvers að fæðast ef maður á að deyja 12 ára? Við eigum eftir að sakna hans mikið. Innilegustu samúðarkveðjur til Heiðbjartar mömmu hans og allrar fjölskyldunnar. Saknaðarkveðjur frá 12 ára nemendum í Vesturbæjarskóla. Þú varst búinn að vera hjá okkur í Vesturbæjarskóla í 5 ár. Við fengum að njóta þess að sjá þig vaxa og þroskast. Við kvöddum þig síðastliðið vor. Við töldum alla vegi færa fyrir þig sem varst svo einstakur drengur. Hér er núna hljóður og sleginn hópur eftir að sú hörmulega frétt barst að lífshlaup þitt var rofið svona snöggt og sárt. Mörg minningarbrot líða núna gegnum huga okkar. Við sáum næ- man, viðkvæman dreng hefja skóla- göngu sína og vaxa ásmegin ár frá ári. Jafnan var svo stutt í brosið þitt og kímnina og ólíkt mörgum krafðist þú svo lítils fyrir sjálfan þig en vildir öllum svo gott. Með velvilja og já- kvæðu hugarfari skapaðir þú góðan anda þar sem þú komst. Svona ung- ur en samt svo ótrúlega stöðugur og raungóður. Þessir einstöku þættir í fari þínu styrktust og skýrðust með árunum og þeir sem kynntust þér sáu hvern mann þú hafðir að geyma. Þannig tókst þér að kenna og gefa öðrum margt dýrmætt á stuttri ævi þinni. Þín er sárt saknað í okkar hópi og viljum við votta foreldrum þínum og systkinum, okkar dýpstu samúð. Starfsfólk Vesturbæjarskóla. HRAFN SVEINBJÖRNSSON + Hrafn Svein- björnsson fædd- ist í Hleiðargarði í Eyjafirði 12. maí 1928. Hann lést á Landspítalanum hinn 21. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sveinbjörn Sigtryggsson og Sigrún Þ. Jónsdótt- ir sem síðast bjuggu í Saurbæ í Eyja- firði. Hrafn var yngstur sex systk- ina sem voru í ald- ursröð: Rósa sem bjó í Hleiðar- garði, Herbert málari á Akur- eyri, Daniel bóndi í Saurbæ, Sigtryggur bóndi í Sandhólum og Guðrún sem lengi bjó í Laug- arborg. Rósa, Herbert og Daní- el eru látin. Hinn 30.ágúst 1949 giftist Hrafn Báru Olsen Jakobsdóttur f. 28. júní 1928. Bára er dóttir hjónanna Jakobs Olsen málara- meistara á Akureyri og Guð- bjargar Pétursdóttur sem bæði eru látin. Hrafn og Bára eign- uðust níu börn: 1) Sigrún Svein- björg, f. 6. ágúst 1947, skrif- stofutæknir, starfsmaður Pósts og síma, maki Gylfi Már Jóns- son, forstöðumaður hjá Pósti og síma. 2) Óskírð dóttir, f. 6. ágúst 1947, d. 8. ágúst 1947. 3) Guðbjörg Inga, f. 11. janúar 1949, maki Wilhelm V. Stein- dórsson, rafmagnsverkfræðing- ur. Börn þeirra eru: Wilhelm Úlfar, Laufey Dóra, Thelma Bára og Sveinn Þór. 4) Rósa Hrönn, f. 3. desember 1951, starfsmaður Pósts og sima, maki Erlingur Óskarsson lög- t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall mannsins míns, föður, sonar og tengdasonar, FRIÐSTEINS HELGA BJÖRGVINSSONAR, Naustabúð 8 Hellissandi, sem fórst með Margréti SH 196 þann 15. júlí síðastliðinn. Sigrún Jónsdóttir, Sóley Guðríður Friðsteinsdóttir, Bjarni Svanur Friðsteinsson, íris Bjarnadóttir, Freydfs Bjarnadóttir, Sóley Loftsdóttir, Bjarni Guðmundsson, Guðríður Bogadóttir, Jón Tryggvason. fræðingur. Börn þeirra _ eru: Þor- steinn Óskar, Hrafn- hildur Bára og Stef- án Heiðar. 5) Arna, f. 2. febrúar 1957, starfar á sambýli fyrir fatlaða. Henn- ar börn eru: Baldvin Hermann, Bjami Hrafn og Brynjar Helgi. 6) Edda, f. 18. október 1958, starfs- maður hjá Lögregl- unni á Akureyri. Hennar börn em: Ingvar Karl og Jak- ob Valdimar. 7) Harpa, f. 9. ág- úst 1960, maki Asbjöm Valgeirs- son bóndi í Skjaldarvík. Þeirra börn em: Valgeir Einar, Halldór Pétur, Logi, Petrea Aðalheiður og Bára Hrafnhildur. 8) Hrafn, f. 28. júní 1962; bifvélavirkja- meistari, maki Aslaug Harðar- dóttir. Þeirra barn er Elísabet Þöll. 9) Þóra Jakobína, f. 4. ág- úst 1965, starfsmaður hjá Tölvu- tæki/Bókval. Börn hennar era: Þorvaldur Heiðdal og Guðbiörn Ólsen. Hrafn var bifvélavirkjameist- ari að mennt og starfaði fyrst á bifreiðaverkstæðinu Mjölni og síðan á bifreiðaverkstæðinu Þórshamri og lengst af þeim tíma sem verksljóri. Var hann jafnan kenndur við Þórshamar enda vann hann þar samfellt í yfir fimmtíu ár. Hrafn var félagi í Oddfellow-reglunni og söng til fjölda ára með Karlakór Akur- eyrar. Útför Hrafns fer fram frá ALkureyrarkirkju á morgun, mánudag, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Kær vinur minn og tengdafaðir, Hrafn Sveinbjömsson, er látinn sex- tíu og níu ára að aldri. Síðustu mán- uði hafði hann af æðruleysi barist hatrammri baráttu við ilhngan sjúk- dóm sem að lokum lagði hann að velli. Andlát hans bar nokkuð brátt að enda héldum við sem næst honum stóðum lengi vel í þá von að hann myndi vinna þessa lotu enda hafði hann barist hetjulega. En skyndilega dró ský fyrir sólu, ný mein fundust og ekki varð við neitt ráðið og lést Hrafn á Landsspítalanum að morgni dags hinn 21. september umvafinn af eiginkonu sinni, bömum, barna- börnum og öðrum nánum ættingjum sem komu til þessarar kveðjustund- ar, mörg hver um langan veg. Mér líður seint úr minni sú stund er við Hrafn kynntumst fýrsta sinni. Það var haustið 1963 að ég þá sext- án ára gamall kom í heimsókn í Grænumýri 18 til að hitta elstu dótt- urina Sigrúnu sem var heima að passa yngri börnin. í upphafí hafði verið ætlunin að vera farinn áður en foreldrarnir kæmu heim, en þar sem mér hafði dvalist lengur en upphaf- lega var ráðgert mætti ég foreldrun- um í forstofunni. Ég heilsaði Báru fyrst en fannst í fyrstu Hrafn eilítið óárennilegur við þessar aðstæður. Honum hefur trúlega fundist ég held- ur uppburðarlítill því hann kom rak- leitt til mín, heilsaði mér með hlýjum orðum og þéttu handtaki og bauð mig velkominn. Það er skemmst frá því að segja að upp frá þessu varð þetta mitt annað heimili. Ég hafði skömmu áður en þetta gerðist misst föður minn úr sama sjúkdómi og dró Hrafn til dauða nú og vantaði því aðhald og stuðning. Hrafn gaf mér góð ráð og studdi mig á allan hátt og með okkur tókst vinátta sem aldr- ei hefur borið skugga á. Heimili Hrafns og Báru var nokk- uð ólíkt því sem ég hafði áður kynnst, þar var stór fjölskylda, alltaf fullt hús af fólki og mikill léttleiki yfir öllu og mikið spilað og sungið. Þetta andrúmsloft og hlýja og gestrisni þeirra hjónanna hefur einkennt allt þeirra líf og er því ekki að undra að heimili þeirra hefur verið miðpunktur alls fjölskyidulífsins gegnum árin og barnabömin og bamabarnabömin sótt þar öruggt og hlýtt skjól eftir að bömin fóm. Þótt ég sé þess full- f viss að Bára geri nú sem endranær allt til þess að viðhalda þessu góða andrúmslofti er mikið skarð fyrir skildi og sár söknuður er í hjarta okkar allra. Ef lýsa ætti Hrafni Sveinbjöms- syni í fáum orðum kemur mér fyrst í hug heiðarleiki, umhyggjusemi og hreinskilni. Mér fannst hann alltaf eins og klettur, stoltur af uppmna sínum og sínu fólki, fannst auðveld- ara að gefa en þiggja og vildi standa við orð sín. Ég heyrði hann aldrei tala illa um nokkurn mann og hann hafði lag á að draga fram jákvæðar hliðar þeirra sem um var rætt. Þessi einkenni hafa eflaust komið honum að góðu gagni í erilsömu og erfiðu þjónustustarfi sem verkstjóri á stærsta bifreiðaverkstæðinu á Ak- ureyri. Það er ekki allra að sinna slíku starfi en margir hafa sagt mér að hann hafi verið einstaklega far- sæll í þessu starfi og kemur mér það ekki á óvart. Duldist mér ekki að hann naut vináttu og virðingar jafnt samstarfsmanna sinna sem og við- skiptavina. Hrafn var mikill söngmaður og var mikill unnandi góðrar tónlistar. Rödd hans var einstaklega fallega djúp og hann var sérlega lagviss enda söng hann með Karlakór Akureyrar í mörg v ár. Eftir að hann veiktist átti hann erfitt með að syngja en er við fyrir nokkram vikum gerðum tilraun til að syngja Dalakofann honum til heið- urs tók hann undir og kom okkur á sporið eftir að við höfðum misstigið okkur og höfðu viðstaddir mikið gam- an af enda ljóst að hann hafði engu . gleymt. Ér ég minnist samverustunda okk- ar er ekki hægt annað en minnast þess að Hrafn var mjög vel lesinn og minnugur. Ég átti með honum v margar ánægjustundimar þar sem hann sagði sögúr frá því í gamla daga, rakti ættir þeirra sem um var rætt eða þegar hann sagði frá því sem hann hafði heyrt eða lesið um. Hann sagði svo einstaklega skemmti- lega og lifandi frá. Nú þegar komið er að leiðarlokum kveð ég kæran vin með sámm sökn- uði. Ég vil biðja Guð almáttugan að styrkja Bára tengdamóður mína sem fylgt hefur Hrafni gegnum súrt og sætt í yfir fimmtíu ár því söknuður hennar er mestur, einnig bömin, bamabörnin og bamabarnabömin sem nú era full saknaðar og tómleika. Sigrún, börnin okkar og barna- börn kveðja með þakklæti og sökn- uði. Blessuð sé minning Hrafns Svein- bjömssonar. Gylfi Már Jónsson. Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 II HOTtt LOniBÐIR o; f #• $ TEINAR Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró íslensk framleiðsla MOSAIK Hamarshöfdi 4 - Reykjavik simi: 587 1960 - fax: 587 1986

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.