Morgunblaðið - 28.09.1997, Page 36
36 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐÍÐ
r
Dagbók
Háskóla Islands
DAGBÓK Háskóla íslands 28. sept-
ember til 4. október 1997. Allt
áhugafólk er velkomið á fyrirlestra
í boði Háskóla íslands. Dagbókin er
uppfærð reglulega á heimasíðu Há-
* skólans: http://www.hi.is
Mánudagurinn 29. september:
Geir Agnarsson sérfræðingur á
Raunvísindastofnun Háskólans flytur
fyrirlestur í málstofu í stærðfræði í
fyrirlestrarsal gömlu loftskeytastöðv-
arinnar kl. 14:45. Geir nefnir fyrirlest-
ur sinn: „Net með raðvíddina 4.“
Hulda Ólafsdóttir meistaraprófs-
nemi í læknisfræði flytur erindi um
MS-verkefni sitt í stofu 101 í Odda
kl. 16:15 og nefnist það: „Óþægindi
frá hreyfi- og stoðkerfi meðal físk-
vinnslufólks."
f. Trausti Valsson arkitekt og skipu-
lagsfræðingur flytur erindi í umhverf-
ismálstofu verkfræðideildar kl. 17:00
í stofu 158 í húsi verkfræðideildar
að Hjarðarhaga 2-6 og nefnir hann
erindi sitt: „Þróun umhverfismála.“
Miðvikudagurinn 1. október:
Hr. Landsbergis Vytautas forseti
litáiska þingsins kemur í heimsókn
hingað til lands í boði forseta Alþing-
is og heldur fyrirlestur í hátíðasal
Háskólans í Aðalbyggingu kl. 16:30,
að lokinni setningu Alþingis íslend-
inga. Fyrirlestur hr. Landsbergis,
sem er í boði Háskóla íslands, verður
fluttur á ensku og ber yfirskriftina
„From Domination to Co-operation:
European Development and Lithuan-
ian Contribution."
v Fimmtudagurinn 2. október:
Tór Einarsson dósent í viðskipta-
og hagfræðideild heldur fyrirlestur í
málstofu hagfræðiskorar í Odda 3ju
hæð kl. 16:00 og nefnist fyrirlestur-
inn: „Fiscal Policy Analysis under
Altemative Mechanisms of Endog-
enous Growth."
Rannveig Traustadóttir lektor við
félagsvísindadeild flytur erindi á veg-
um Rannsóknastofu í kvennafræðum
kl. 12.00 í stofu 201 í Odda um
„Konur í minnihlutahópum. Hvað
eiga þær sameiginlegt?"
Föstudagurinn 3. október:
Málþing á vegum Siðfræðistofn-
unar Háskóla íslands um siðareglur
í viðskiptalífínu verður haldið á Hót-
el Sögu og hefst kl.9:00. Einkum
verður tekið til umfjöllunar efni sem
töluvert hefur verið rætt á síðustu
misserum, en það eru siðareglur fyr-
irtækja, stofnana og starfsgreina.
Valgerður Steinþórsdóttir líffræð-
ingur á Keldum flytur fyririestur í
málstofu Líffræðistofnunar kl. 12:20
í stofu G-6 að Grensásvegi 12 um
„rannsóknir á virkni beta-eiturprót-
eins úr Clostridium perfringens.“
Laugardagurinn 4. október:
Opnuð sýning á ritum tengdum
Prestaskólanum í sýningarsal Þjóð-
arbókhlöðu kl. 14:00: Avörp og tón-
list. Fyrirlestur: Dr. Páll Skúlason
rektor Háskóla íslands: „Staða guð-
fræðinnar í heimi fræðanna."
Sýningar. Stofnun Áma Magnús-
sonar í Árnagarði. Handritasýning
opin almenningi í Árnagarði þriðju-
daga, miðvikudaga og fimmtudaga
kl. 14-16. Tekið verður á móti hópum
á öðrum tímum sömu daga, ef pant-
að er með dags fyrirvara.
Landsbókasafn íslands - Háskóla-
Meistaravellir 7 — opið hús
Opið hús á Meistaravöilum 7, 3. hæð t.h., í dag, sunnudag, milli
kl. 14.00 og 17.00. Úlfar Aðalsteinsson verður á staðnum og sýnir
íbúðina sem er 4ra herb., 104 fm íbúð og henni fylgir 21 fm bílskúr.
Stakfell, fasteignasala,
Suðurlandsbraut 6.
Sími 568-7633.
Opið frá kl. 12.00—14.00 í dag.
>
Fasteignasalan Suðurveri ehf.
Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík
Sími 581 2040 Fax 581 4755
Fersk fasteignasala
Einar Örn Reynisson, Reynir Þorgrímsson,
Helgi Hákon Jónsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteignasali.
Höfum kaupanda að Iftilli ósamþykktri íbúð á verðb. 1-2
millj. Stórri sérhæð í Þingholtunum með bílskúr. Skoðum
og verðmetum eignir samdægurs ekkert skoðunargjald.
SJÓÐHEITAR EIGNIR m.a. 2 í ÞINGHOLTUM.
MIÐSTRÆTI EIGN í SÉRFLOKKI ÞINGHOLTSSTRÆTI
Um er að ræða 2ja herbergja risíbúð á 3 hæð 51 fm Sérstigagangur er fyrir þessa einu íbúð alla leið upp. Eldhúsið er sérlega skemmtileg i kvisti. Vestursvalir með góðu útsýni yfir vesturbæinn. Sjón er sögu ríkari. Verð. Tilboð. Falleg björt 4ra herbergja íbúð í lyftuhúsi 93,5fm á þessum vinsæla stað í gamla bænum frábært útsýrii yfir vesturbæinn, tvö svefnherbergi stofa og forstofa, vestursvalir íbúðin er laus strax. Ásett verð 8.4 millj. skuldlaus eign
SÓLHEIMAR
Þriggja herbergja herbergja íbúð á 4 Heil húseign sem skiptist i tvö
hæð í lyftuhúsi. Íbúðín er öll mjög i verslunarpláss, tvær íbúðir og stórt
falleg og snyrtileg, svo og öll sam- vinnupláss sem nú er nýtt sem trés-
eign. Góðar suðursvalir. Æskileg i miðja. Eignin selst í heilu lagi eða
skipti á góðri tveggja herbergja íbúð j skipt. Hugsanleg skipti á minni eign
í austurbæ, má vera í Breiðholti. I eða eignum. Eign sem gefur
Verð 6,8 m. j möguleika.
bókasafn: Áfangar, um verk Sigurðar
Nordals." Sýning um verk Sigurðar
Nordals, m.a. á ýmsum handritum
hans sem ekki hafa komið fyrir al-
mennings sjónir fyrr, frumprentunum
á bókum hans og munum úr hans
eigu. Sýningin verður opin til 30. sept-
ember á afgreiðslutíma safnsins.
Námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar HÍ vikuna
29. september - 4. október:
29. sept. og 1., 3. og 6. okt. og
8. okt. kl. 8:30-12:30. Hlutbundin
forritun í C++. Kennari: Helga Wa-
age, tölvunarfræðingur OZ hf.
Mán. 29. sept.-15. des. kl. 20-22.
Alls 24 klst. Viðtalsmeðferð. Þjálf-
unarnámskeið fyrir fagfólk. Kennar-
ar: Halldóra Ólafsdóttir geðlæknir,
Högni Óskarsson geðlæknir og Sig-
uijón Björnsson sálfræðingur.
Á 10 vikum munu þátttakendur
hitta kennara flórum sinnum. Þess á
milli fer námið fram á neti, þ.e.a.s.
öll samskipti við kennara, móttaka
verkefna, verkefnaskil og leiðbein-
ingar. Tímar með kennara: 30. sept.
kl. 16:30-18:30, 14. og 28. okt. og
18. nóv. kl. 17:30-18:30.
Viðskiptaskrif á dönsku. - bréf,
skýrslur, erindi. Kennari: Pétur Ras-
mussen, mag.art., konrektor við MS
og löggiltur skjalaþýðandi.
Þri. og fim. 23. sept. - 4. des. kl.
20:00-21:30 (11 vikur, 33 klst.).
Rússneska með áherslu á viðskipta-
mál. Kennarar: Nadejda Assanova,
Ph.D., rússneskukennari við HÍ. með
langa reynslu af kennslu í rússnesku
fyrir útlendinga.
1. okt. kl. 15:00-18:30 og 2. okt
kl. 13-16. Afleiðusamningar (Deriv-
atives). Kennarar: Sigurður Einars-
son Kaupþingi hf. og Siguijón Geirs-
son Landsbanka íslands.
Fim. 25. sept.-23. okt. kl. 20 - 22
(5x). Fjölskyidur fatlaðra og „eðlilegt
líf“. Kennari: Dóra S. Bjarnason,
dósent við KHÍ.
Mið. 1. okt. - 7. jan. kl. 17-19
(nema 17. des.) (12x). Stjórnun
starfsmannamála. Misserislangt
nám. Kennari: Ólafur Jón Ingólfsson
viðskiptafræðingur, starfsmanna-
stjóri hjá Sjóvá-Almennum og
stundakennari við HÍ.
1. okt. kl. 15-19. Stjórnun starfs-
mannamála - almennt yfírlit. Kenn-
ari: Þórður S. Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri starfsmanna- og
stjórnunarsviðs Norðuráls hf.
2. okt. kl. 12:30-17:30. Grunnur að
gæðastjómun og mótun gæðastefnu.
Kennari: Davíð Lúðvíksson verkfræð-
ingur hjá Samtökum iðnaðarins.
2 . okt. kl. 8:30-12:30. Þemadagur
- fjölskyldumeðferð. Haldið í sam-
starfi við Tengsl sf. Kennarar: Nanna
K. Sigurðardóttir og Sigrún Júlíus-
dóttir ijölskyldufræðingar 0g félags-
ráðgjafar.
2. okt. kl. 15-19. Þróun starfs-
manna, hvatning og starfslýsingar.
Kennari: Þórður S. ðskarsson, fram-
kvæmdastjóri starfsmanna- og
stjórnunarsviðs Norðuráls hf.
4. okt. kl. 9-13. Samskipti á vinnu-
stað og ný vinnubrögð - lausn starfs-
mannavandamála. Kennari: Þórður
S. Óskarsson, framkvæmdastjóri
starfsmanna- og stjórnunarsviðs
Norðuráls hf.
2. og 3. okt. kl. 9-16 og 4. okt.
kl. 9-13. Veika fóstrið og veiki nýbur-
inn. Umsjón: Atli Dagbjartsson dr.
med. og Reynir Geirsson dr. med.
Kennarar: Læknar frá Barnaspítala
Hringsins og kvennadeild Lsp., auk
erlendra fyrirlesara.
3. okt. kl. 13-17 og 4. okt. kl.
9:30-13:30. EES reglur og íslenskur
landsréttur. Kennarar: Þór Vil-
hjálmsson dómari við EFTA dómstól-
inn og mannréttindadómstólinn í
Strassborg, Björn Friðfínnsson ráðu-
neytisstjóri og Davíð Þór Björgvins-
son prófessor HÍ.
HUGVEKJA
„ Trúin er ónýt
án verkanna “
I þessari hugvelgu
segir sr. Heimir
Steinsson m.a.:
Guð mun krýna
viðleitni þína til
góðra verka ævi-
daga þína alla.
FYRIR hálfum mánuði birtist á
þessum stað í Morgunblaðinu hug-
vekja frá minni hendi undir yfir-
skriftinni „Kirkja fagnaðarerindis-
ins“. Þar eins og oftar í hugvekjum
þessum lagði höfundur áherzlu á
réttlætingu af trú. Nær lokum
greinarinnar sagði á þessa leið:
„Gleðiboðskapurinn er hins veg-
ar sá, að Guð lýsir því yfir form-
lega á torgi himinsins, að þú sért
réttlát(ur), eins og hann sjálfur.
Hann nefnir þig með nafni og
sýknar þig. Þaðan í frá ert þú
hólpin(n) um tíma og um eilífð.
Guð hefur tileiknað þér réttlæti
sitt.“
Þessi voru þó ekki lokaorð hug-
leiðingarinnar. Það sem enn var
ósagt var svohljóðandi:
„Allt atferli þitt eftir það ein-
kennist af þakkiæti þínu til Guðs
fýrir þá grundvallarbreytingu,
sem hann hefur gjört á lífi þínu.
Þú ert nú í náðarstöðu. Guð mun
krýna viðleitni þína til góðra verka
ævidaga þína alla. Þennan boð-
skap skaltu meðtaka í einni saman
trú.“
Trúin er til margháttaðrar
blessunar. Eg trúi á Guð og reiði
mig á friðþægingarfóm sonar
hans, Jesú Krists. Sú trú er mér
til réttlætis reiknuð. Hið sama
stendur þér til boða. En fyrir sömu
trú auðnast mér einnig að trúa
því að Guð muni krýna viðleitni
þína til góðra verka, að Guð m.o.ö.
gjöri þér kleift að vinna góð verk
í þakklætis skyni fyrir náð hans.
Viðleitni þín er ekki til einskis.
Góður Guð er að gjöra góðan
mann úr þér.
í hinu almenna bréfi Jakobs
segir höfundur við lesara sinn:
„Fávísi maður! Vilt þú Iáta þér
skiljast, að trúin er ónýt án verk-
anna?“ (Jak. 2:20.) Ogí annan
stað segir í sama bréfi: „Hvað
stoðar það, bræður mínir, þótt
einhver segist hafa trú, en hefur
eigi verk? Mun trúin geta frelsað
hann? Ef bróðir eða systir eru
nakin og vantar daglegt viðurværi
og einhver yðar segði við þau:
„Farið í friði, vermið yður og
mettið!“ en þér gefið þeim ekki
það sem líkaminn þarfnast, hvað
stoðar það? Eins er líka trúin dauð
í sjálfri sér, vanti hana verkin."
(Jak. 2:14-17.)
Menntun og umsýsla
Hvar sem kirkja Krists sækir
fram í veröldinni, siglir a.m.k.
tvennt í kjölfari hennar, menntun
og skipulögð aðstoð við þá, sem
þurfandi eru. íslendingar voru
hálfsiðaðir þar til kristnin tók að
festa rætur í landinu. Bráðum
þúsund ára bókleg menning vor
og lærdómsiðkanir ém ávextir
kristninnar. Slíkir ávextir byggj-
ast á þeirri grundvallarsannfær-
ingu, að unnt sé með fræðslu að
bæta menn og koma öllum til
nokkurs þroska, m.a. að kenna
þeim að vinna góð verk í kær-
leika. Ekki hafði kristnin fyrr fest
rætur í landinu en ákveðið var að
veija tilteknum hluta af almanna-
fé til fátækraframfærslu. Að-
hlynning þeirra, sem bágstaddir
voru, spratt þannig af kristinni rót
og sprettur enn.
Kristinn siður er jákvæður í
mannskilningi sínum og þjóðfé-
lagsviðhorfi. Kirkjan kennir oss,
að það sé raunverulega til ein-
hvers að leitast við að snúa góðum
hlutum áleiðis hér í heimi. Kristn-
in er þróttmesta menningaraflið,
sem enn hefur komið fram á jörðu.
Hvergi hefur mannlegt félag
náð öðrum eins þroska og í vel-
ferðarríkjum nútímans. Þegar litið
er til velferðarríkja í ljósi sögunn-
ar, kemur í ljós, að bezt hefur til
tekizt um eflingu þeirra með þeim
þjóðum, er öldum saman hafa lot-
ið forræði þeirrar kirkju, sem
kennir sig við fagnaðarerindið.
Fram eftir 20. öld fóru Norður-
landabúar í fýlkingarbijósti varð-
andi sköpun velferðarríkja. Norð-
uriönd hafa hins vegar lotið
evangelísk-lútherskum sið frá því
á 16. öld. Rök hafa verið færð
fyrir því, að hér sé ekki um tilvilj-
un eina að ræða, heldur eigi vel-
ferðarríki í þessum löndum m.a.
rætur að rekja til evangelískrar
arfleifðar.
Skikkan skaparans
í lok sköpunarsögu Heilagrar
ritningar er eftirfarandi orð að
fínna: „Og Guð leit allt, sem hann
hafði gjört, og sjá, það var harla
gott.“ (1. Mós. 1:31.)
Hér kemur fram grundvallaraf-
staða kristins dóms til lífsins á
jörðinni. Lífið er „harla gott“,
heimurinn vel heppnaður smíðis-
gripur almáttugs Guðs. Þessi já-
kvæða skoðun birtist einnig í
mannskilningi sköpunarsögunnar.
Maðurinn er skapaður eftir Guðs
mynd. Maðurinn er spegilmynd
hins algóða Guðs.
Til eru lífsskoðanir, sem fela í
sér neikvæða grundvallarafstöðu
til mannsins og veraldat' hans.
Þannig er kristninni engan veginn
farið. Þar gætir einvörðungu já-
kvæðrar afstöðu.
Sá góði maður, sem Guð skapar
í árdaga, fellur síðar í sögu sinni
samkvæmt opinberun ritningar-
innar. En Guð tekur jafnharðan
til við að endurskapa manninn,
leiða að nýju fram hið góða Guðs
bam á jörðu. Vér nefnum þá end-
ursköpun „endurlausn“, og hún á
sér stað fyrir krossdauða og up-
prisu frelsarans Jesú Krists. End-
urleystur maður lifír síðan í sam-
ræmi við skikkan skaparans og
kappkostar að verða jafnan góður
maður og batnandi.
MARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR S51-1S40. S52-1700. FAX 562-0540
VANTAR FYRIR ELDRI BORGARA.
Vantar 4ra herb. íbúðir fyrir eldri borgara við
Sléttuveg, Þorragötu, Miðleiti, Gimli,
Skúlagötu og Hólmgarð.
VANTAR
120-150 fm hæð í vesturbæ, Högum eða Melum.
%
FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
Slagorðskeppni
fyrir Tískuna 98
SAMKEPPNI um, slagorð fyrir
keppnina Tískan 98 er hafin.
I fréttatilkynningu segir að leitað
sé að jákvæðu slagorði svo að tískan
geti leitt jákvæða strauma í gegnum
alnetið og aðra fjölmiðla í heiminum.
Tillögur sendist til tímaritsins Hár &
fegurð fyrir 10. október.
- kjarni málsins!
>