Morgunblaðið - 28.09.1997, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
íMlí ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóiðið kl. 20.00:
ÞRJÁR SYSTUR - Anton Tsjekhof
5. sýn. í kvöld sun. örfá sæti laus — 6. sýn. fim. 2/10 nokkur sæti laus —
7. sýn. sun. 5/10 nokkur sæti laus — 8. sýn. lau. 11/10 nokkur sæti laus
— 9. sýn. sun. 12/10 — 10. sýn. fös. 17/10 — 11. sýn. sun. 19/10.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick
Fös. 3/10 - lau. 4/10 - fös. 10/10 - lau. 18/10.
Litla sóiðið kl. 20.30:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Mið. 1/10 uppselt — fös. 3/10 uppsett — lau. 4/10 uppseit — mið. 15/10 uppseft
— fim. 16/10 uppsett — lau. 18/10 uppsett.
SALA ÁSKRIFTARKORTA STENDUR YRR
Miðasalan er opin alla daga í september kl. 13-20
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
ÚTSENOlRfG
3. sýn. í kvöld sun. 28.9. kl. 20
4. sýn. mið. 1. okt. kl. 20
5. sýn. sun. 5. okt. kl. 20
Loftkastalinn, Seljavegi 2.
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miðasalan opin frá 10:00—18:00
85. sýn. í kvöld 28/9 kl. 20.00.
Uppselt.
86. sýn. fös. 3/10 kl. 20.00.
Miðasala í Herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar, Skólavörðustíg 15,
sími 552 4600.
SKEMMTIHÚSIÐ
LAUFASVEGt 22 S:552 2075
SÍMSVARI í SKEMMTIHÚSINU
ALLAN SÓLARHRINGINN.
5 LEIKFELAG <
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
KORTASALA STENDUR YFIR
Stóra svið kl. 14.00
GALDRAKARUNN í OZ
eftir Frank Baum/John Kane
Frumsýning sun. 12/10, uppselt
lau. 18/10, fáein sæti laus
sun. 19/10, uppselt
sun. 26/10, laus sæti.
Stóra svið kl. 20:00:
tol3úf&ÍÍF
eftir Benóný Ægisson með tónlist
eftir KK og Jón Ólafsson.
Lau. 4/10, fáein sæti laus
fim. 9/10, fáein sæti laus
lau. 11/10, örfá sæti laus
fös. 17/10, laus sæti.
Litla svið kl. 20.00
'
eftir Kristínu Ómarsdóttur
Fim. 2/10, lau. 4/10, fim. 9/10.
Stóra svið:
Höfuðpaurar sýna:
HÁR OC HITT
eftir Paul Portner
Fös. 3/10, kl. 20.00, uppselt,
lau. 4/10, kl. 23.15, fáein sæti laus,
fös. 10/10, kl. 20.00, fáein sæti
laus og kl. 23.15, laus sæti.
Miðasata Borgarleikhússins er opin daglega
frá kl. 13 — 18 og fram aö sýningu
sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10
Greiðslukortaþjónusta
Sími 568 8000 fax 568 0383
Fös. 3. okt. kl. 20. uppselt
Lau. 4. okt. laus sæti.
„Snilldarlegir kómískir taktar
ieikaranna. Þau voru satt að segja
morðfyndin.''(SA.DV)
„Þarna er loksins kominn
sumarsmellurinn í ár“. (GS.DTJ
ALLTAF FYRII
IR LEIKHUS
I MAT EÐA DRYKK
LIFANDITÓNLIST ÖLL KVÖLD
ÍSLENSKA ÓPERAN SÍITIÍ 551 1475
__iini
COSI FAN TUTTE
„Svona eru þær allar“
eftir W.A. Mozart.
Frumsýníng föstudaginn 10. október, hátíðarsýning laugardaginn 11. október,
3. sýn. fös. 17. okt., 4 sýn. lau. 18. okt. Sýningar hefjast kl. 20.00.
Styrktarfélagar Islensku óperunnar eiga forkaupsrétt til 26. september.
Nýjung: Tilboð íslensku óperunnar og Sólon Islandus í Sölvasal.
Tónleikar Styrktarfélgs íslensku óperunnar:
Andreas Schmidt, baritón,
Helmut Deutsch, píanó.
F.Schubert; Die schöne Mullerin, sunnudaginn 28. sept. kl. 17.00.
Með kaupum á aðgöngumiðum á báða tónleikana fylgir boð í samsæti að afloknum tónleikum
á laugardag.
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 15—19, sýningardaga
kl. 15—20, sími 551 1475, bréfsími 552 7382. Greiðslukortaþjónusta.
Kí FRÉTTUM
SYSTKINI á spjalli:
Helga Jónsdóttir
og Arnar Jónsson.
avarsson
Höfum líka
leikið elskendur
Arnar Jónsson leikur kynsveltan bónda í kvik-
myndinni Maríu og systir hans, Helga Jónsdóttir,
leikur umhyggjusama en afbrýðisama systur
hans. Brynja Tomer hitti þau daginn fyrir frum-
sýningu, drakk með þeim fírnagott kaffí og for-
vitnaðist um það hvernig systkinum fínnst að
leika systkini.
„ÉG fór á forsýningu og myndin
kemur vel út, þú þarft engu að kvíða
og getur hlakkað til að sjá hana,“
segir Arnar Jónsson, leikari, hug-
hreystandi við systur sína Helgu, er
hann mætir í blaðaviðtal daginn fyr-
h- frumsýningu á Maríu, nýrri kvik-
mynd Einars Heimissonar. Viðtalið
fer fram í einkar hlýlegu umhverfi, á
heimili Helgu, í fallegu 97 ára gömlu
timburhúsi í vesturbæ Reykjavíkur.
Systkinin segja að kvíðablandin eft-
irvænting fylgi ávallt frumsýningu,
erida sjái kvikmyndaleikarar ekki
afrakstur vinnu sinnar fyrr en mynd
sé tilbúin til sýninga á breiðtjaldi.
Falleg vinnukona
í einangraðri sveit
María er skáldverk þótt söguleg-
ur rammi myndarinnar sé raunveru-
legur. Vorið 1949 birtist auglýsing í
þýsku blaði þar sem óskað var eftir
hraustum konum til starfa á íslensk-
um sveitabæjum. Fram kom að góð
kjör væru í boði og voru landkostir
lofaðir. I kjölfarið sigldi mikill fjöldi
Þjóðverja hingað og réðst til sveita-
starfa víðs vegar um landið. Mun að-
búnaður ekki alltaf hafa verið jafn
góður og gefið var til kynna í aug-
lýsingunni og aðstæður oft aðrar en
fólkið hafði búist við.
Kvikmyndin segir sögu Maríu,
fallegrar ungrar konu sem ræðst til
starfa á afskekktum sveitabæ hjá
rosknum systkinum, sem Arnar og
Helga leika. „Það er eins og tíminn
hafi liðið fram hjá þeim í harðri lífs-
baráttu í einangraðri sveit og þau
hafi einangrast saman,“ segja þau
um hlutverk sín. „Fálæti einkennir
samskipti þeirra en fyrir þeim
flækjast ýmsar tilfinningar, sérstak-
lega eftir komu Maríu. Kynsveltur
bóndinn hrífst af henni, en er klaufi í
samskiptum og kann engan veginn
að tjá hug sinn. Systir hans heldur
yfir honum verndarhendi, en er
jafnframt óörugg og afbrýðisöm."
Eins og títt var um krakka um
miðja öldina fór Arnar í sveit á
sumrin og má því segja að nærtækt
hafi verið að rifja upp ýmsar persón-
ur og takta þeirra sem næmt barnið
sá í kringum sig. Hann var í af-
skekktum sveitum þar sem til dæm-
is var hvorki rennandi vatn né sal-
erni innandyra, auk þess sem hey-
skapur fór að mestu fram með orfi
og ljá. Líklegt er að andrúmsloftið
sem Arnar upplifði sem barn í sveit
skili sér að einhverju leyti í
túlkun hans á Jónasi, bónd-
anum í myndinni.
Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem Arnar og Helga leika
systkini, því það gerðu þau
einnig í fyrstu kvikmynd
Kristínar Jóhannesdóttur, A
hjara veraldar. Þau segja leiðir sín-
ar oft liggja saman gegnum vinnuna
og saman hafi þau meðal annars sett
saman ljóðadagskrá oftar en einu
sinni, auk þess sem þau fluttu ljóð
Davíðs Stefánssonar á geisladiski
sem út kom í fyrra. „Við höfum líka
leikið elskendur, meira að segja
tvisvar“ segja þau sposk. „Raunar
voru engar heitar ástarsenur í þess-
um verkum, enda hefðum við þá
ekki tekið hlutverkin að okkur.“
Spurð hvað þau séu að sýsla um
þessar mundir segja þau bæði að
nóg sé að gera. Arnar, sem er fast-
ráðinn hjá Þjóðleikhúsinu, leikur í
Fiðlaranum á þakinu og Þremur
systrum auk þess sem hann leikur í
útvarpsleikritinu Veröld Soffíu, sem
hann segir heimspekilegt og afar
skemmtilegt verk. „Ég kem líka til
með að leika í mynd Agústs Guð-
mundssonar, en handritð er gert
eftir sögu Williams Heinesen, Dans-
inum. Vitaskuld verð ég líka í jóla-
dagatali sjónvarpsins, svo eitthvað
sé nefnt.“
Helga hefur að undanförnu feng-
ist við leikstjórn og kveðst hafa mik-
ið gaman af því. I vetur leikstýrir
hún meðal annars 3. árs nemendum
Leiklistarskóla Islands í Þremur
systrum, sama verki og Arnar leik-
ur í, í Þjóðleikhúsinu. Auk þess
kemur hún til með að leikstýra
ljóða-söngdagskrá með Sif Ragn-
hildardóttur í tilefni af því að 100 ár
eru liðin frá fæðingu Bertholds
Brecht og eftir áramót leggur hún
land undir fót og heldur norður í
Eyjafjörð þar sem hún setur upp
verk með hópi áhugamanna sem
nefnir sig Freyvangsleikhúsið. Þá
leikur hún í Heimi Guðríðar eftir
Steinunni Jóhannesdóttur, en verk-
ið fjallar um Tyrkja-Guddu og hefui-
um nokkurt skeið verið sýnt í kirkj-
um landsins.
Varla er ofsögum sagt að list
tengist og hafi ávallt tengst lífi þess-
ara systkina. Móðuramma þeirra,
Oddný Arnadóttir, var mikil tónlist-
arkona, var bæði organisti og kór-
stjóri. Faðir þeirra, Jón Kristinsson,
var lengi formaður Leikfélags Akur-
eyi-ar og lék þar mikið. „Þegar við
vorum krakkar var miðasalan heima
hjá okkur og við tókum þátt í
leikritum í skóla og í leikfé-
laginu." Þegar Leikfélagi
Akureyrar var breytt í at-
vinnuleikhús var Arnar einn
af fyrstu leikurum sem ráðn-
ir voru. Örnólfur Arnason,
eiginmaður Helgu, er rithöf-
undur og þýðandi. Þau eiga fjögur
börn, sem öll hafa leikið í leikhúsum
og kvikmyndum. Tvö eldri börnin
eru nú tónlistarmenn. Eiginkona
Arnars, Þórhildur Þorleifsdóttir, er
leikhússtjóri Borgarleikhússins og
eiga þau fimm börn, sem einnig hafa
öll leikið í leikhúsum og kvikmynd-
um. Ættartré Arnars og Helgu gef-
ur tilefni tii að velta fyrir sér hvort
listhneigð sé ríkjandi erfðaeigin-
leiki, en hvort sem það er rétt eða
rangt er ljóst að sumar fjölskyldur
þjóna listagyðjum betur en aðrar.
Listin
er í
blóðinu
Lau. 4. okt. kl. 23.30
örfá sæti laus
Þri. 14. okt. kl. 20
lí?#.-+.Rn1 Miðasölusími
552 3000
Þríréttuð Veðmáls-
p máltið á 1800 kr.
Ktf'imm
Afsláttur af akstri
á Veðmálið.
□i;g
Leikfélag
Akureyrar
4 TROMP Á HENDI
♦ Hart í bak
♦ Á ferð með frú Daisy
V Söngvaseiður
4 Markúsarguðspjall
Kortasalan er hafin
s. 462 1400
Frumsýningakortin uppseld