Morgunblaðið - 28.10.1997, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
____. Síöasta
, Kirkjuþing var sett I gær, en það
- er það sfðasta sem Ólafur Skúla-
son biskup stýrir. ‘ I ’1 i'1111111 I 11
VELKOMINN að því...
Vinnuskúr
brann í
Kópavogi
VINNUSKÚR við Hagasmára í
Kópavogi brann til kaldra kola
síðastliðinn sunnudag en að sögn
lögreglunnar er talið sennilegt
að börn sem voru að leik við
skúrinn hafi farið ógætilega með
eld og kveikt í honum. Skúrinn
var í niðumíðslu og ekki talið
að um mikil verðmæti hafi verið
að ræða.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Samþykkt ríkisstjómar um þróunarsamvinnu íslands
Framlög í 0,15% af þjóð-
arframleiðslu á 6 árum
RIKISSTJORNIN hefur samþykkt,
að tillögu Halldórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra, að fjárveitingar
til þróunarsamvinnu íslands verði
hækkaðar smátt og smátt næstu
árin þannig að hlutfall þeirra af
vergri þjóðarframleiðslu (VÞF)
verði 0,15% árið 2003 í stað 0,10%
í ár. Fjárveiting til Þróunarsam-
vinnustofnunar Islands hækki úr
172 milljónum króna í ár í 250-300
milljónir árið 2000 og 400-500
milljónir árið 2003, reiknað á núver-
andi verðlagi.
Utanríkisráðherra lagði til á rík-
isstjómarfundi að failizt yrði á þau
markmið, sem sett eru fram í
skýrslu um þróunarsamvinnu ís-
lands, sem Jónas H. Haralz, fyrr-
verandi bankastjóri og fulltrúi
Norðurlanda í stjóm Alþjóðabank-
ans, skilaði stjómvöldum fyrr á
þessu ári. Þar er bent á að varð-
andi marghliða þróunarsamvinnu
séu framlög íslands ekki lægri en
annarra ríkja og hafí stjómvöld
staðið við skuldbindingar sínar um
fjárframlag tii fjölþjóðlegra stofn-
ana sem fara með málefni þróunar-
landanna. Hins vegar sé ísland eft-
irbátur annarra í framlögum til tví-
hliða samvinnu við ríki þriðja heims-
ins.
Áfram mun lægra hlutfall en
í öðrum iðnríkjum
Jónas setti fram þau markmið
að tvíhliða þróunaraðstoð íslands
hækkaði úr 0,035% af þjóðarfram-
leiðslu í ár í 0,08% árið 2003 og
þróunaraðstoð í heild úr 0,10% í
0,15% á sama tímabili. Þetta verður
þó áfram Iangt undir tilsvarandi
framlögum flestra iðnríkja, sem
vom að meðaltali um 0,3% vegna
tvíhliða aðstoðar og 0,4% í heild
árið 1995. í skýrslu Jónasar kom
fram að þetta væri ekki æskilegt
markmið, heldur markmið sem
gæti verið raunhæft.
Halldór Ásgrímsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að skipu-
leggja yrði þróunaraðstoð íslands
vel. „Það er ekki nóg að leggja fram
fé. Það verður að fínna verkefni,
sem eru líkleg til að skila árangri.
Við þurfum að byija að leita að
nýjum verkefnum og þess vegna
höfum við lagt til að í því sam-
bandi verði miðað við ákveðnar fyár-
veitingar á næstu árum,“ segir
Halldór.
Raunhæf markmið
Alþingi samþykkti árið 1971 lög
um að framlag íslands til þróunar-
samvinnu skyldi verða 0,7% af þjóð-
arframleiðslu. Þessi lög voru í sam-
ræmi við samþykkt allsheijarþings
Sameinuðu þjóðanna. Með þingsá-
lyktun 1985 var markmiðið áréttað
og að því skyldi náð á sjö árum.
Hæst hefur framlagið hins vegar
orðið 0,12% árin 1992 og 1993.
Halldór segir að háleit markmið
hafí ekki náðst í þessum efnum.
„Þess vegna teljum við að hér séum
við að setja fram raunhæf mark-
mið, sem hægt er að standa við.
Jafnframt er mikilvægt að við get-
um gefíð þau skilaboð til samstarfs-
aðila okkar í þessum málaflokki að
við viljum gera betur,“ segir hann.
Halldór segist í þessu efni eiga við
hin Norðurlöndin, sem ísland vinni
mikið með, Alþjóðabankann og
jafnvel Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun SÞ (FAO), en til greina
komi að auka samstarfíð við þá
stofnun.
Fjölskyldan og fyrirtækið
Er fjölskyldu-
væn starfs-
mannastefna til?
NÁMSTEFNA verð-
ur haldin um fjöl-
skylduna og fyrir-
tækið á Hótel Loftleiðum á
morgun, miðvikudag. Til
námstefnunnar efna Dag-
vist bama og foreldrasam-
tök leikskóla í Reykjavík
og er hún hugsuð fyrir
stjómendur starfsmanna-
mála í fyrirtækjum og
stofnunum, að sögn að-
standenda, sem og tæki-
færi fyrir stjórnendur til
þess að öðlast betri þekk-
ingu á því hvemig skapa
má jafnvægi milli vinnu og
velferðar fjölskyidunnar.
Meðal annars verður
flallað um hvemig íslenskt
þjóðfélag býr að foreldrum
ungra bama, hvort máli
skipti fyrir fyrirtæki og
stofnanir að hafa ánægða
starfsmenn í vinnu og
hvort til sé fjölskylduvæn starfs-
mannastefna.
Einnig verður rætt hvemig fyr-
irtæki og stofnanir geti komið til
móts við þarfir foreldra í nútíð og
framtíð og hvað íslendingar geti
lært af reynslu annarra þjóða.
Meðal fyrirlesara eru Gunnar Öm
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Marels, sem fjallar um hluthafa,
starfsfólk og viðskiptavini, og
Guðný Björk Eydal og Tómas
Bjarnason, þjóðfélagsfræðingar,
sem Qalla um fjölskyldu- og
starfsmannastefnu.
- Hver er aðdragandinn að
námstefnunni?
„Foreldrasamtök leikskóla-
barna í Reykjavík sendu stjórn
Dagvistar barna bréf þar sem
þeim tilmælum var beint til stofn-
unarinnar, að vakin yrði athygli
vinnuveitenda á þörfum foreldra
fyrir styttri og sveigjanlegri
vinnutíma. Og jafnframt, að auka
þyrfti möguleika þeirra á því að
samræma vinnu- og foreldrahlut-
verk. í framhaldi af því var stofn-
uninni falið að standa að ráð-
stefnu.
Dagvist barna er leiðandi í því
að tryggja bömum yngri en sex
ára í Reykjavík öruggt og upp-
byggilegt leik- og námsumhverfi.
Foreldrar barnanna eru mjög
margir í hlutverki starfsmanna og
því eðlilegt að Dagvist barna og
foreldrasamtök sameini krafta
sína til þess að vekja athygli
vinnumarkaðsins á þessu málefni.
Auk þess er unnið að stefnumótun
hjá stofnuninni með framtíðarsýn
til ársins 2002 og aukið kynningar
og upplýsingaátak er eitt þeirra
verkefna sem unnið er að.“
- Hvers vegna er þetta málefni
tii umræðu nú?
„Miklar breytingar hafa orðið á
vinnumarkaði, meðal annars auk-
in tæknivæðing, vaxandi sam-
keppni og nýir stjórnunarhættir.
Kröfur stjómenda og ------------
starfsmanna til um-
hverfis og möguleikar
á því að læra og þróast
í starfi hafa líka auk-
ist. Þessar breytingar
þrýsta á um endurskipulagningu
vinnubragða í fyrirtækjum og
stofnunum og leiða til þess að
stjórnendur og starfsmenn leita
úrræða.
Notaðar hafa verið ýmsar að-
ferðir, svo sem stefnumótun,
gæðastjórnun og stofnunarþróun.
Þær miða allar að því að auka
gæði og árangur í starfí viðkom-
andi fyrirtækis, eða stofnunar, og
meðal þess sem verið er að skoða
er hvaða atriði hafa hvetjandi
Anna Hermannsdóttir
► Anna Hermannsdóttir fædd-
ist árið 1948 og ólst upp fyrir
norðan. Hún útskrifaðist sem
leikskólakennari árið 1971 í
Reykjavík og var í framhalds-
námi við Kennaraháskólann í
Kaupmannahöfn 1973-74. Hún
var forstöðumaður athugunar-
og greiningardeildar ríkisins í
Kjarvalshúsi 1975-1986. Anna
stundaði cand. mag. nám á upp-
eldissviði við Óslóarháskóla,
með ráðgjöf sem valsvið, og
hefur tekið að sér námskeið í
starfsmannastjórnun. Hún hef-
ur verið stundakennari við
Fósturskólann og Kennaraliá-
skólann og gegnt starfi
fræðslustjóra þjá Dagvist barna
frá 1991. Anna á tvö börn.
Hvað skapar
vellíöan í
starfi?
áhrif á starfsmenn og hvað skapar
vellíðan í starfi. Lykilatriði í
breyttum áherslum er framsækið
og ánægt starfsfólk og í því sam-
bandi þarf vinnumarkaðurinn að
huga að mörgum þáttum."
- Hvað verður fjallað um á
námstefnunni?
„Meðal þess sem velt verður
upp er hvort hægt sé að búa til
íjölskylduvæna starfsmanna-
stefnu þannig að starfsmenn verði
ánægðari og að vinna þeirra skili
betri árangri. Hvaða þætti starfs-
mannastefna þarf að innihalda til
þess að áherslurnar skili sér og
hvort hægt sé að samþætta líf
fjölskyldunnar og fyrirtækisins
svo allir uni við sitt. Þetta eru
spurningar sem innlend og erlend
fyrirtæki velta fyrir sér í dag.“
- Finnst foreldrum að fyrir-
tækjum sé sama um fjölskyldur
þeirra?
„Nei, en hins vegar er ljóst að
oft og tíðum er flókið fyrir ein-
stakiinga að sinna báðum þessum
________ hlutverkum vel. Nám-
stefnunni er ætlað að
vekja athygli á gildi þess
að fyrirtæki ástundi fjöl-
skylduvæna starfs-
mannastjóm, sem lið í
því að bæta árangur. Einnig verð-
ur skoðað hvað sett hefur verið
fram í lögum og reglugerðum sem
snúa að þessum þáttum hérlendis,
hvað hefur verið gert annars stað-
ar og hver reynslan er af því.
Kannanir, meðal annars í Svíþjóð,
hafa bent til þess að starfsmenn
eru ánægðari og sáttari þar sem
foreldrahlutverki þeirra er sýndur
skilningur. Það leiðir síðan ef til
viil til betri árangurs og hagnaðar
fyrirtækisins.“