Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREIIMAR
SKOÐUIM
Reiðleiðir fyrir
hestamenn
landsins
VARLA er það of-
mælt þegar fullyrt er
að hestamennska sé
orðin ein af vinsælli
íþróttagreinum hér-
lendis. Á síðustu árum
hefur mjög færst í vöxt,
ekki síst í þéttbýli, að
íjölskyldur eignist
hesta og stundi útreið-
~-$x í miklum mæli. Þá
hefur vakið athygli
hversu kraftmikil fyr-
irtæki í ferðaþjónustu
hafa haslað sér völl
með skemmtilegum,
skipulögðum ferðum
fyrir hestafólk. Árlega
koma þúsundir er-
lendra ferðamanna til
gagngert í þeim tilgangi að njóta
íslenskrar náttúru í hestaferðum.
En nú eru ýmsar blikur á lofti.
Segja má að ríki skipulagsleysi
hvað varðar reiðleiðir með þeim
afleiðingum að hestafólk og ferða-
menn einfaldlega komast ekki leiðar
sinnar um landið.
v Girtar jarðir og nýir vegir
Hestamennska á sér langa og
sögulega hefð hérlendis. Reynslan
er sú að nokkrar þekktar reiðleiðir
Aðgerða er þörf, segja
Hjálmar Árnason og
Guðni Ágústsson.
Hjálmar
Árnason
Guðni
Ágústsson
—sL
Koma þarf á samráði
ríkisvalds, sveitarstjóm-
arvalds og hestafólks.
hafa skapast víða um landið, þar
sem hestamenn hafa getað farið
óhindrað á milli staða. Á síðustu
árum hefur orðið sú breyting að
einstaklingar, gjarnan úr þéttbýli,
festa kaup á jörðum og sýna fornum
hefðum lítinn skilning. Eiga þeir til
að girða af jarðir sínar og meina
öllum hestamönnum umferð um
lendur sínar þótt um þær liggi
þekktar reiðleiðir. Við lagningu bíl-
vega hefur Vegagerðin í sumum
^tilvikum þurft að spilla reiðleiðum,
án þess að leggja nýjar í staðinn.
Samkvæmt upplýsingum okkar
mun það einungis kosta fimmtung
af verði ef nýr reiðvegur er lagður
samhliða öðrum vegaframkvæmd-
um í stað þess að leggja reiðvegi
sérstaklega. Segja má að allt þetta
stafi af skipulagsleysi hvað varðar
stöðu hestaíþróttar í landinu.
Lífshætta
Vegna þessa óhindraða aðgangs
hestafólks um landið má segja að
skapist veruleg lífshætta. Sem
dæmi má nefna, að þegar fólk úr
þéttbýli fer með hross sín í sumar-
haga þarf oftar en ekki að fara um
fjölfamar umferðargötur þar sem
reiðleiðir eru engar. Því miður hafa
orðið alvarleg slys í slíkum tilvikum.
Við höfum upplýsingar um það
að virt fyrirtæki í ferðaþjónustunni
hefur orðið að fella niður vinsælar
hestaferðir með útlendinga þar sem
jarðeigendur hafa bannað ferðir
hesta um land sitt. Flestir þekkja
hversu viðkvæmur gróður á hálendi
landsins er. Hestamenn skilja það
flestir og aðilar í ferðaþjónustunni
hafa sýnt áhuga á því að breyta
ferðum sínum þannig að hlífa megi
viðkvæmum gróðri hálendis. Sú
ætlan hefur gengið erfiðlega í fram-
kvæmd af þeirri einföldu ástæðu
að hestamönnum er bannaður að-
gangur viða í uppsveitum. Þannig
má segja að þetta bann hafi beinlín-
is skaðleg áhrif á náttúru landsins.
Við höfuðborgina er dásamleg
náttúruperla, Heiðmörk. Svæðið er
stórt og afgirt og er ætlað almenn-
ingi til útivistar. Það hlýtur að telj-
ast skjóta skökku við að hesta-
mönnum skuli meinaður aðgangur
að Heiðmörkinni og þar skuli engar
reiðleiðir vera leyfðar. Aðgerða er
þörf.
ítreka skal að hestafólk á íslandi
skiptir þúsundum og ekki eru er-
lendir ferðamenn færri sem sækja
sér upplyftingu með íslenska hestin-
um. Hér hefur verið bent á að nú-
verandi skipulag leiðir til hættu
fyrir fólk og dýr, það snertir með
öðrum orðum öryggisþætti, hindrar
eðlilega uppbyggingu mikilvægrar
greinar ferðaþjónustunnar og jafn-
vel kemur í veg fyrir náttúruvemd.
Fleiri rök þarf ekki. Aðgerða er
þörf. Það er von okkar að þar til
bær stjórnvöld bregðist skjótt við
og taki mál þetta föstum tökum
þannig að hestaíþróttin megi dafna
svo sem reynsla og saga sýna.
Koma þarf á samráði ríkisvalds,
sveitarstjómarvalds og hestafólks.
Úr því samráði þarf að leggja fram
gott skipulag þar sem jafnvel þarf
að setja þær kvaðir á landeigendur
að þeir virði reiðleiðir, skylda Vega-
gerðina til að sinna reiðvegum þar
sem þeirra er þörf vegna lagningar
slitlags fyrir bílaumferð og aðrar
aðgerðir sem festa hestaíþróttina í
sessi hérlendis.
Höfundar eru alþingismenn.
SNYRTISTOFAN
GUERLAIN
REYKJAVÍK
RÆSTIVAGNAR
RÆSTIÁHÖLD
Arnarberg ehf.
Fossháls 27, Draghálsmegin
Sími 567 7557 • Fax 567 7559
„VERRIEN
DÓPSALAR“
NOKKRIR íslenskir dreifingar-
aðilar Herbalife ásamt áhuga-
mönnum um Herbalife á íslandi
vilja nú þegar fara í mál við eigend-
ur DV, Lyfjaeftirlit íslands (Guð-
rún S. Eyjólfsdóttir) og heilbrigðis-
ráðuneytið (Einar
Magnússon) fyrir
hrottalegustu rógsher-
ferð í manna minnum
á hendur hinu virta
ameríska heilsuvöru-
fyrirtæki Herbalife. í
blaðinu voru vörur fyr-
irtækisins m.a. sagðar
innihalda vímuefni,
sem ekki aðeins leiða
til fíknar, heldur og
dauða! Sömuleðis segir
blaðið, á sinn viðeig-
andi hátt, að seljendur
Herbalife séu verri en
dópsalar!
Enda þótt þetta sé
ljótasta dæmi um mis-
beitingu opinbers valds og fjöl-
miðla á villigötum sem ég man
eftir í lýðræðislandi er ég þeirrar
skoðunar að áður en menn leita á
náðir dómstóla eigi þeir að sjálf-
sögðu fyrst að reyna að leita rétt-
ar síns í fjölmiðlum. Svo fremi ég
fái inni í Morgunblaðinu fyrir stað-
reyndir um þetta mál óttast ég
ekki eitt andartak að sannleikurinn
mun sigra. Að lokum.
Það sem meira er. Tíminn vinn-
ur með okkur. Tilgangur andstæð-
inganna, eins og Japana með árás-
ina á Pearl Harbor, er að valda
svo miklum usla í upphafi að allt
viðnám verði umsvifalaust úr sög-
unni.
En þar skjátlast þeim. Ég veit
að vísu ekki hvort þeim er það ljóst,
en allt sem þau héldu fram um
þetta mál í fjölmiðlum í síðustu
viku er blekking frá rótum. Og ég
hyggst taka mér góðan tíma til
að sanna það.
Hvers vegna? Vegna þess að
öfugt við ykkur þremenningana
ætla ég að reyna að tryggja að
allt sem ég set frá mér sé sannleik-
anum samkvæmt og staðfest í bak
og fyrir. Enda væri allt annað
óeðlilegt úr því dreifing Herbalife
á íslandi er orðin lögreglumál.
Skoðanir efedrínhópsins
Ákæra þremenninganna snýst í
stuttu máli um tiltekið efni - efedr-
in - sem samkvæmt efnagreining-
um (sem DV segist hafa „látið“
fara fram) fínnst í „talsverðu
magni“ í einni af vörum Herbalife.
DV segir efedrín vera vímuefni
(sem verki svipað og amfetamín)
og segir það sama efnið og fannst
í líkama Díego Maradona knatt-
spyrnumanns og varð til þess að
hann var útilokaður frá keppni í
argentínskri knattspyrnu.
Þremenningarnir - efedrínhóp-
urinn - telja þetta efni vera vímu-
efni og styðja þá skoðun með áliti
Þórarins Tyrfíngssonar, yfirlæknis
á Vogi og eins helsta sérfræðings
landsins í vímu og vímuefnum.
Þórarinn er þeirrar skoðunar að
úr því að þetta efni finnist í þess-
ari vöru Herbalife og neytendur
séu ekki varaðir við séu dreifendur
Herbalife-afurða „verri en dópsal-
ar“.
Staðreyndir málsins
Staðreyndir málsins eru þær að
grænu töflurnar - Original Green
- frá Herbalife innihalda sannar-
lega efedrín. Ástæðan er sú að í
þeim er elsta og jafnframt eitt
þekktasta fæðubótarefni jarðar,
Ma huang, sem inniheldur þetta
efni. Stafa vinsældir Ma huang
plöntunnar einmitt af því að efedr-
ín (í sama efnaflokki og kaffeín)
er frábært meðal m.a. við ofnæmi,
þ.á m. heymæði svo og við astma.
Eins og nær öll efni
með lyfíaverkun getur
efedrín haft í för með
sér aukaverkanir,
þ.á m. hækkaðan
blóðþrýsting o.fl.
Krafa Guðrúnar um
að þetta efni eigi ein-
göngu að selja með
viðvörunum til þeirra
hópa sem viðkvæm-
astir eru á því fullan
rétt á sér.
Það sem blaðinu og
Guðrúnu láðist að
geta er að í Ma huang
er efedrínið í sínu upp-
runalega og náttúru-
lega formi og um-
hverfi og flestar þær rannsóknir
sem fram hafa farið sýna að þegar
þannig er í pottinn búið sýnir efedr-
ínið engar eða nær engar af þeim
Enda þótt þetta mál sé
ljótasta dæmi um mis-
beitingu opinbers valds
og fjölmiðla á villigötum
sem ég man eftir í lýð-
ræðislandi, segir Jón
—?---------------------------
Ottar Ragnarsson, þá
er ég þeirrar skoðunar
að áður en menn leita á
náðir dómstóla eigi þeir
fyrst að leita réttar síns
í fjölmiðlum.
aukaverkunum sem efnið gerir í
hreinu formi.
Þrátt fyrir það hefur Þórarinn
Tyrfingsson algerlega rangt fyrir
sér þegar hann segir að verið sé
að blekkja neytendur. Utan á um-
búðum Óriginal Green er einmitt
varðað sérstaklega við notkun
þessa efnis fyrir ófrískar og mjólk-
andi konur, fyrir fólk með blóðrás-
arsjúkdóma (hjarta- og æðasjúk-
dóma), fyrir fólk með háan blóð-
þrýsting og fyrir alla sem haldnir
eru alvarlegum sjúkdómum. Jafn-
framt er sérstaklega tekið fram
að Orginal Green eigi algerlega
að halda frá börnum!
Og þá er bara eitt eftir. Hvað
með magnið af náttúrulegu efedr-
íni í Original Green frá Herbalife
í samanburði við verksmiðjufram-
leidda efedrínið í paradrýli og öðr-
um hóstamixtúrum á íslenskum
markaði? í beinni útsendingu með
Guðrúnu S. Eyjólfsdóttur að Bylgj-
unni sl. miðvikudag tilkynnti hún
að hún hefði enga hugmynd um
hversu mikið efedrín er í grænu
töflunum frá Herbalife. Klukku-
tíma síðar var tilkynnt í Ríkisút-
varpinu að heilbrigðisráðuneytið
hefði krafist lögreglurannsóknar á
dreifingu Herbalife-afurða á ís-
landi.
Nú og ekki má heldur gleyma
því að DV, sem auðvitað lætur sér
annt um íþróttaheiminn, ætti nú í
snarhasti að hafa samband við
argentínska knattspyrnuráðið og
tilkynna því að Maradona hafi ver-
ið mikium órétti beittur. Honum
hafi einfaldlega óvart orðið það á
að taka sopa af hóstasaft barnanna
sinna frá Lyfjaverslun íslands eða
Original Green töflur frá Herbalife
áður en íslenska lögreglan gerði
þær upptækar.
Herbalife á íslandi
Það skondnasta er að það eru
liðnir níu mánuðir síðan ég byijaði
að vinna að því að fá Lyfjaeftirlit-
ið (Guðrúnu) til að skera úr um
það hvaða vörur Herbalife ætti að
leyfa á íslandi. Og ég fór ekki einu
sinni fram á að hún leyfði Original
Green. Ekki af því að ég teldi ekki
að þessi frábæra afurð ætti ekki
eins mikið erindi til Islendinga ein-
sog allar hinar.
Ástæðan var allt önnur. Ég vissi
að Orginal Green er umdeildasta
e.t.v. eina umdeilda varan sem
Herbalife framleiðir, einmitt vegna
þess að hún inniheldur upprunalegt
náttúrulegt efedrín (það var reynd-
ar aður en ég vissi um efedrínást
íslenskra lyíjayfirvalda) og vegna
þess að ég taldi réttara að einblína
á þær vörur sem leyfðar eru í Sví-
þjóð þar sem eftirlit og rannsóknir
með fæðubótaefnum eru víðtæk-
astar og strangastar.
En það var stærra mál sem hékk
á spýtunni. Þegar ég bað Lyfjaeft-
irlitið um þennan úrskurð var búið
að selja Herbalife utan kerfisins í
tíu ár á íslandi. Mín ósk um hraðan
úrskurð var gerð til þess að unnt
væri að selja þessar vörur innan
kerfísins og síðan opna landið lög-
formlega því einungis þannig er
unnt að skikka Herbalife til þess
að merkja vörumar á íslensku í sam-
ræmi við óskir heilbrigðisyfírvalda.
En þetta er bara byijunin. Aug-
ljóst er að hvorki Þórarinn - né
Guðrún í annálaðri fáfræði - gera
sér grein fyrir því að einmitt þetta
efni, efedrín, og þá ekki í sinni
upprunalegu mynd, heldur í hreinu
formi, er einmitt virka efnið í ja,
hveiju haldið þið, hvorki meira né
minna en hóstasaft sem seld er
án lyfseðla til bama, tveggja ára
og eldri!
Paradrýl með efedríni er einmitt
ein vinsæl hóstasaft á íslandi fyrir
smábörn. Og hún inniheldur enga
smáskammta af efedríni. í einum
millílítra af saftinni em hvorki
meira né minna en 2 millígrömm
af þessu „banvæna vímuefni". Og
mælt er með allt að einni teskeið
eða 5 millílítrum þrisvar sinnum á
dag. Það gera alls 30 millígrömm
af hreinu efedríni á dag fyrir bam-
ið rétt tveggja ára gamalt!
Og ekki nóg með það. Utan á
umbúðum stendur hvað? Eina við-
vöranin er ekki fyrir börn og ekki
fyrir ófrískar konur og ekki fyrir
mjólkandi konur og ekki fyrir fólk
með háan blóðþrýsting og ekki
fyrir fólk með veikt hjarta eða fólk
með alvarlega sjúkdóma. Nei, það
stendur einungis að saftin sé vara-
söm fyrir stjórnendur ökutækja!
Hvað skal gjöra?
Og nú er ekki annað fyrir Þórar-
in að gera en að taka sér frí í vinn-
unni í nokkra daga og skunda sem
skjótast í lyfjaverslanir landsins
og vara fólk við sölumönnunum
sem samkvæmt hans eigin skil-
greiningu eru miklu, miklu verri
en dópsalarnir frá Herbalife. Eða
ef hann vill beyta smáhugkvæmni
væri fljótlegra að snúa sér beint
til lyfjainnflytjenda og Lyfjaversl-
unar ríksins og heimta lögbann og
lögreglurannsókn á öllum innflutn-
ingi og framleiðslu á hóstamixtúr-
um.
Já, það er stundum betra að
staldra við áður en arkað er í fjöl-
miðla. Og það er stundum betra
fyrir ijölmiðla að hafa á sér and-
vara og taka ekki við hvaða dellu
sem dettur inn af götunni. Og það
er betra fyrir starfsmenn virðu-
legrar stofnunar á borð við heil-
brigðisráðuneytið að láta a.m.k.
einn hlutlausan mann lesa greinina
yfir áður en hann rýkur sjálfur í
fjölmiðla og hrósar rógberanum
Jón Ottar
Ragnarsson