Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 15.
PÓSTUR OG SÍMI
1 sland
g] ald s v
Þróun á verði þriggja mínútna símtals innanlands á dagtaxta.
Miðað við fast verðlag.
40.00 Kr.
35.OO
30.00
25.OO
20.00
15.00
10.00
5-00
0.00
Júu'89 1 Okt '91 1 Sbpt'93 TÁgúst'95 1 Des'96 1 Nóv'97
Innanbæjar/innansvæðis
Reykjavík - Borgarnes
ísafjörður - Egilsstaðir
Frá Og með l. nóvember tekur ný gjaldskrá fyrir innanlands-
símtöl gildi hjá Pósti og síma og verður allt landið þar með gert
að einu gjaldsvæði. Langlínusímtöl verða nú rúmlega helmingi
ódýrari en áður, en mínútan á dagtaxta lækkar úr 4,15 krónum
í 1,99 krónur. Sem dæmi má nefna að þriggja mínútna
langlínusímtal lækkar úr 15,77 krónum í 9,30 krónur. Hins vegar
hækkar þriggja mínútna innanb æj ar símtal úr 6,64 krónum í
9,30 krónur. Það kostar því jafnmikið að hringja frá ísafirði til
Egilsstaða og það kostar að hringja innanbæjar.
Jafnframt er gerð sú breyting að kvöld-, nætur-, og helgartaxti,
sem er 50% af dagtaxta, gildir nú alltaf á lögbxmdnum frídögum.
Eftir sem áður munu innanbæjarsímtöl á íslandi verða einna
ódýrust í Evrópu.
Gjaldskrá fýrir símtöl til útlanda lækkar um 22% að meðaltali.
Þannig munu t.d. símtöl til Bandaríkjanna lækka um 24% og til
Þýskalands um 32%. Einnig verður sú breyting að kvöld- og
næturtaxti til Evrópulanda, sem er 25% lægri en dagtaxti, hefst
kl. 19.00 í stað 21.00.
Breytingin hefur að meðaltali lítil áhrif á símreikninga. Jafnframt
hefur hún svipuð áhrif á öllu landinu. Hinsvegar geta einstakir
símreikningar hækkað eða lækkað, eftir því hvemig símnotkun
er háttað.
í heildina lækka gjöld fýrir símtöl milli landshluta og til útlanda
en innanb æj ar símtöl hækka.