Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 22

Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 22
Tf<V* 22 vppf wafyrvf} fMf'yffyvrrrxrcrr* ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 ERLEIUT Misheppnuð tilraun norska hersins Napalm var fram- leitt úr hvallýsi NORÐMENN framleiddu um 100 tonn af napalmi úr hvallýsi á sjötta áratugnum og gerðu tilraunaspreng- ingar með þær á Gardemoen árið 1953. Þetta kemur fram í nýrri bók „Kunnskap som vápen“ (Með þekk- ingu að vopni) sem kemur út í dag og fjallar um rannsóknarstarf í norska hemum og vamarmálaráðu- neytinu á árinum 1946-1975. Höf- undar bókarinnar, tveir sagnfræð- ingar, fengu aðgang að öllu skjala- safni ráðuneytisins, en stór hluti skjalanna hefur hingað til verið leynilegur. í bókinni, sem er um 500 síður, em raktar frásagnir af tilraunafram- leiðslu hersins en hiuti hennar þótti heppnast vel, t.d. nokkrar tegundir eldflauga. Það sama var hins vegar ekki upp á teningunum hvað na- palmframleiðsluna varðaði, að því er fram kemur í Aftenposten. Napaim vakti fyrst athygli og hrylling almennings er því var beitt í Víetnamstríðinu en það er hlaup- kennt efni sem verður m.a. til þess að eldur læsist í húð manna. 100 tonn framleidd Ástæða þess að Norðmenn hófu napalmframleiðslu var óánægja með napalm sem framleitt var úr kókos- hnetuolíu en það leystist ekki upp í bensíni færi hitastigið undir 15 gráð- ur. Norskir vísindamenn höfðu kom- ist að því að lýsi kom að góðum notum við lágt hitastig og svo var það yfirlýst stefna hersins að nýta norskt hráefni. Nota átti napalmið í þýskar eld- vörpur, í sprengjur sem varpað var úr flugvélum og til vama í höfnum landsins. í ljós kom að illa gekk að nota napalmið í eldvörpumar en engu að síður voru um 100 tonn framleidd án þess að nokkrar erlend- ar pantanir bæmst. Á sjöunda áratugnum voru birgð- imar afhentar almannavörnum sem gátu notað þær til að líkja eftir kjamorkusprengingum á æfingum á Gardemoen. Reuters JIANG Zemin, forseti Kína, og Vicki Cayetano, eiginkona fylkis- stjórans á Hawaii, æfa lagið „Aloha Oe“ sem þau fluttu í kvöld- verðarboði sem fylkisstjórinn hélt til heiðurs kínverska forsetan- um á sunnudagskvöld. Reuters FULLTRÚAR mannréttinda- samtaka söfnuðust saman við bústað fylkisstjórans meðan á kvöldverðinum stóð. Jiang Zemin, forseti Kína, heimsækir Bandaríkin Reynir að fnða Bandaríkjamenn Washington, Peking, Honoluiu. Reuters. FYRSTI áfangi opinberrar heim- sóknar Jiang Zemins, forseta Kína, til Bandaríkjanna, hófst á Hawaii á sunnudag. Meðal þess sem forsetinn gerði á fyrsta degi heimsóknarinnar var að fá sér sundsprett við hina frægu Waikiki-strönd og dansa húla með 100 skólabömum. Þá heimsótti hann staðinn þar sem USS Arizona, var sökkt, einu af átta herskipum Bandaríkjamanna, í árás Japana á Pearl Harbor og minntist að því til- efni samvinnu Kínveija og Banda- ríkjamanna á dögum síðari heims- styrjaldarinnar. í hádegisverðarboði borgarstjór- ans í Honolulu sagði hann m.a. að Kína og Bandaríkin ættu sameigin- legra hagsmuna að gæta í mikilvæg- um málum sem varða frið og þróun mannkyns. Einnig sagðist hann þess fullviss að vinsamleg samskipti ættu eftir að koma báðum þjóðunum til góða. Þó formlegar viðræður hafí enn ekki hafist eru þessar yfirlýsingar Jings taldar gefa tóninn um þá þýðu í samskiptum sem forráðamenn ríkj- anna vonast eftir í kjölfar heimsókn- ar hans. Stirð samskipti Á undanfömum árum hafa sam- skipti Bandaríkjanna og Kina verið stirð og er Jiang Zemin fyrsti hátt- setti kínverski embættismaðurinn sem heimsækir Bandaríkin í 12 ár. Auk þess sem Bandaríkin for- dæmdu aðgerðir kínverskra stjóm- valda er þau beittu hervaldi gegn mótmælendum á Torgi hins himn- eska friðar árið 1989 hafa þjóðirnar m.a. deilt um aðgang að mörkuðum, mannréttindamál, málefni Tævan, vopnasölu og þróun kjamorkuvopna. Bandaríkjastjórn var löngum harðorð í garð Kínastjórnar en hefur nú snúið við blaðinu í von um stærri markaðshlutdeild á mörkuðum í Kína. Þeir sem hafa réttlætt stefnu- breytingu Bandaríkjastjórnar hafa m.a. haldið því fram að með auknum samskiptum Kínvetja við Vesturlönd muni ástand mannréttindamála þar smám saman batna. Jiang Zemin hefur þegar lagt sig fram um að bæta ímynd sína í Banda- ríkjunum og áður en hann lagði upp í ferðina gaf hann fulltrúa Kína hjá Sameinuðu þjóðunum fyrirmæli um að undirrita alþjóðlegan sáttmála samtakanna um efnahagsleg, félags- leg og menningarleg réttindi. Mannréttindasamtök í Bandaríkj- unum, sem hafa skipulagt öflug mótmæli meðan á heimsókn Jiangs stendur, segja hins vegar að viðleitni hans nái ekki nærri nógu langt og hafa hvatt hann til að samþykkja einnig sáttmála samtakanna um mál- og trúfrelsi og leysa alla póli- tíska fanga úr haldi. Þó lítið væri um mótmæli á meðan Jiang var í Hawaii er búist við mikl- um og stöðugum mótmælum fjöl- margra mannréttinda- og baráttu- samtaka eftir að hann kemur til meginlandsins. Frá Hawaii hélt forsetinn til Will- iamsburg í Virginíufylki. Þaðan mun hann halda áfram til Washington þar sem hann mun m.a. eiga viðræður við Bill Clinton, Bandaríkjaforseta. ESB-ríkin deila um fjölda ríkja sem bjóða á til aðildarviðræðna Tillögn framkvæmdastj órn- arinnar líklega breytt UTANRÍKISRÁÐHERRAR aðild- arríkja Evrópusambandsins deildu hart á fundi sínum í Lúxemborg um helgina um það hversu mörgum Austur- og Suður-Evrópuríkjum ætti að bjóða til aðildarviðræðna á næsta ári. Framkvæmdastjóm ESB hefur lagt til að sex ríkjum verði boðið til viðræðna en líklegt er að tillögu hennar verði breytt þannig að öðrum ríkjum, sem sækjast eftir aðild að sambandinu, finnist ekki að þeim hafí verið hafnað. Ekki er meirihluti fyrir því innan ESB að hafnar verði samningavið- ræður strax á næsta ári við öll ríkin ellefu, sem sambandið hefur lýst yfír að muni fá aðild í framtíðinni. Svíþjóð og Grikkland beijast enn fyrir því að viðræður verði hafnar við öll ríkin ellefu. Önnur ESB-ríki, sem hafa verið hlynnt þeirri stefnu, virtust hins vegar draga nokkuð í land á ráðherrafundinum um helg- ina, að sögn Reuters-fréttastofunn- ar. Sennilegast er því að aðeins ríkjunum sex, sem fram- kvæmdastjórnin gerði tillögu um, verði boðið til viðræðna. Hins vegar verði orðalag samþykktar þeirrar, sem gerð verður á leiðtoga- fundi ESB í Lúxemborg í desember, með þeim hætti að það komist skýrt til skila til þeirra fímm, sem eftir verða, að ekki sé verið að setja þau út í kuldann. „Orðalagið mikilvægt“ „Orðalagið er mjög mikilvægt og út úr orðalaginu verða öll ríkin að geta lesið að þau séu velkomin, jafn- vel þótt hraði viðræðnanna verði mismunandi frá einu landi til ann- ars,“ sagði Jacques Poos, utanríkisráð- herra Lúxem- borgar og forseti ráðherraráðs ESB, í samtali við Reuters. Ein leiðin til að halda Austur-Evr- ópuríkjunum, sem ekki fá boð um aðildarviðræður, við efnið, er að setja á fót fastaráðstefnu, sem á að hafa það hlutverk að búa ríkin undir ESB-aðild, bæði efnahagslega og pólitískt. Gert er ráð fyrir að ráð- stefnan, sem gengur undir vinnu- heitinu „Evrópuráðstefnan" komi í fyrsta sinn saman á fyrri hluta næsta árs. Á ráðherrafundinum í Lúxemborg var deilt um aðild Tyrk- lands að ráðstefnunni. Frakkland og Bretland eru hlynnt því að Tyrkland eigi aðild að henni en Þýzkaland, Danmörk og fleiri ríki setja sig upp á móti því, meðai annars vegna mannréttindabrota tyrkneskra stjómvalda. Vill aðild EFTA-rílqanna að fastaráðstefnunni í þýzka blaðinu Die Welt í gær kemur fram að Þýzkaland vilji að EFTA-ríkjunum íslandi, Liechten- stein, Noregi og Sviss verði einnig boðin aðild að ráðstefnunni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa íslenzk stjórnvöld og ríkisstjórnir hinna EFTA-ríkjanna farið þess á leit við ráðamenn í ESB að EFTA-ríkin fái aðild að ráðstefn- unni með einum eða öðrum hætti, en þessi ríki, önnur en Sviss, eiga aðild að innri markaði ESB sam- kvæmt samningnum um Evrópskt efnahagssvæði. Viðbrögð við þessum umleitunum hafa verið fremur já- kvæð, án þess að ákveðin svör hafi fengizt. Rætt um aðild EFTA-ríkjanna að fastaráð- stefnu ESB og væntanlegra aðildarríkja MORGUNBLAÐIÐ Málamiðl- unum Gíbraltar SPÁNVERJAR eru reiðubúnir til viðræðna við bresk stjóm- völd um flugvöllinn á Gíbraltar til að ryðja úr vegi síðustu stóm hindruninni í vegi þess að Spánn verði fullgildur aðili að hernaðarsamstarfi Atlants- hafsbandalagsins. Segjast spænsk yfirvöld munu aflétta loftferðabanni á flugvöllinn, fallist Bretar á að þjóðimar tvær fari sameiginlega með stjóm vallarins og að hann verði nýttur sem herflugvöllur. Prímakov til Sýrlands JEVGENÍ Prímakov, utanrík- isráðherra Rússlands, vísaði um helgina á bug fréttum um að Rússar aðstoðuðu írani við að útvega þeim síðamefndu langdrægar eldflaugar. Prím- akov er á ferð um Mið-Austur- lönd og vonast til þess að geta blásið lífi í glæður friðaramleit- ana þar. Hélt hann í gær óvænt til Sýrlands, í annað sinn í ferð- inni, þar sem hann mun eiga fund með Farouq al-Shara ut- anríkisráðherra. Fundur gegn barnaþrælkun RÁÐSTEFNA um barnavinnu og -þrælkun, hófst í Ósló í gær en hún miðar að því að binda enda á misnotkun og þrældóm um 250 milljóna bama á aldr- inum fimm til fjórtán ára. Bömin vinna oft á tíðum erfið og hættuleg störf fyrir brot af því sem fullorðnum er greitt og eru beitt ofbeldi af ýmsum toga. Að ráðstefnunni standa norska stjórnin, barnahjálp SÞ og Alþjóðavinnumálastofnunin. Hóta nýju verkfalli FRANSKUR verkalýðsleiðtogi sagði í gær að vörabílstjórar væru reiðubúnir að loka vegum um allt land nk. sunnudag til að leggja áherslu á launakröfur sínar og endurtaka verkföll sem lömuðu franskt samfélag fyrir réttu ári. Nýnasískt efni í hernum SKAMMT er síðan tekið var fyrir sölu á „Mein Kampf“ eft- ir Adolf Hitler í þýskum her- skálum, að því er fyrrverandi hermaður segir en hann hefur verið ákærður fyrir að hafa gert myndband með andgyð- inglegum áróðri. Hermaðurinn fullyrðir að horft hafí verið fram hjá því að hermenn hefðu í fórum sín- um bannaðar bækur nasista, tónlist nýnasista og haka- krossa, og að slíkt efni hafi jafnvel verið til sölu. Mótframboð gegn Kútsjma JEVHEN Martsjúk, fyrrver- andi forsætisráðherra Úkraínu, tilkynnti í gær að hann myndi bjóða sig fram í forsetakosn- ingum 1999, gegn Leoníd Kútsjma sem rak hann úr emb- ætti á síðasta ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.