Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 41

Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ + Þórdís Daníels- dóttir fæddist í Reykjavík 4. októ- ber 1904. Hún lést á Droplaugarstöðum 14. október síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Daníel Þorsteinsson, skipa- smiður, f. 4.6. 1874, d. 20. 7. 1959, og kona hans Guðrún Egilsdóttir, f. 5.11. 1875, d. 8.1. 1969. Systkini Þórdísar eru: Egill, fulltrúi, f. 30.5. 1902, d. 2.3. 1973, Þorsteinn, skipasmiður, f. 18.4. 1903, d. 21.8. 1967, Marta, f. 28.2. 1906, d. 6.2 1996, og Ingibjörg, f. 20.9. 1910, d. 13.11. 1965. Þórdís giftist Sigurði Skúlasyni, kennara og mag.art., 18. maí 1932. Sigurður var fæddur 2.2. 1903, d. 16.5. 1987. Hún Dísa frænka er dáin, níutíu og þriggja ára að aldri. Einhvern veginn er mjög erfítt að horfast í augu við þá staðreynd að einnig hún hafí orðið að láta í minni pok- ann fyrir elli kerlingu og dauðanum sem þó alla sækir fyrr eða síðar. Hún Dísa sem var eins og álfkonan góða í ævintýrum bernskunnar svo björt og nett, fín og falleg. Snert- andi umhverfi sitt með töfrasprota svo allt hið gráa og hversdagslega varð gyllt og bleikt, dúkuð borð svignuðu af krásum og börnin máttu setja fingraför og súkkulaði- mylsnu út um fallega heimilið þeirra Dísu og Sigurðar. Hún hét Þórdís, hún Dísa frænka, og var ekki einu sinni frænka mín, en hún var móð- ursystir Gunnars mannsins míns, frænka bama okkar, nokkurs konar auka amma. Hjónaband Dísu og Sigurðar var Sigurður var sonur Skúla Árnasonar læknis og konu hans Sigríðar Sigurðar- dóttur. Þórdís ólst upp hjá foreldrum sínum á Mýrargötu 7 í Reykjavík, (nú Mýrargata 14.). Að loknu skyldunámi stundaði Þórdís nám í Kvennaskó- lanum í Reykjavík í 2 ár. Eftir giftingu dvaldist hún oft er- lendis, oftast í Frakklandi, en þar stunduðu þau hjónin nám við Sorbonne-háskólanum í París í frönsku og bókmenntum. Sig- urður og Þórdís bjuggu lengst á Hrannarstíg 3 í Reykjavík. Útför Þórdísar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. með eindæmum gott og fallegt. Engan mann hef ég séð dá konu sína meira í orði og verki og Sigurð- ur var Dísu hinn trausti, hlýi lífs- förunautur sem hún deildi öllu með og hún saknaði sárt er hann lést fýrir tíu árum. Þau voru bamlaus, en líf þeirra var hvorki autt né snautt, Sigurður, fræðimaðurinn og ljúfmennið, kenndi ungmennum landsins ára- tugum saman. Dísa hugsaði um glæsilega heimilið þeirra, töfraði fram framandi heilsurétti, spilaði á píanóið og hitti vinkonur sínar í spila- og lesklúbbum. Hún heimsótti móður sína aldraða til síðasta dags, huggaði og hressti frændfólk stórt og smátt á erfiðum stundum. En öfugt við farfuglana, þá flugu þau Dísa og Sigurður til framandi landa vor hvert, oftast til Frakklands sem var þeirra uppáhaldsstaður. Með MINNIIMGAR haustinu komu þau heim sólbrún og sælleg, endumærð á sál og líkama tilbúin í hlutverk vetrarinS. Hvert aðfangadagskvöld í mörg ár deildu Sigurður og Dísa og for- eldrar okkar Gunnars með okkur fjölskyldunni hátíðleik jólanna, nú eru þau öll horfín, tómið er mikið söknuður sár. En þakklæti er einn- ig mikið til þeirra allra og minning- in björt. Það er sagt að sama rósin spretti aldrei aftur og eitt er víst að vand- fundnar eru frænkur eins og hún Dísa okkar. Hugheilar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða sem annaðist Þór- dísi af mikilli alúð síðustu árin. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Anna Þrúður Þorkelsdóttir. Hún Dísa frænka er dáin, en eftir lifir minningin um elskulega frænku, þá bestu sem ég hef átt. Ég minnist þess þegar ég lá veik- ur, eins og gengur sem barn, alltaf kom Dísa frænka færandi hendi með ávexti eða annað góðgæti. Dísa og mamma mín voru systur og mjög samrýndar, og mikil vin- átta og samgangur var milli fjöl- skyldnanna. Hjónin Dísa og Sigurð- ur voru einstök. Fyrir um 40 árum tóku þau ákvörðun um að dvelja á hveiju sumri í 3 mánuði í Frakk- landi. Þau fóru þangað og völdu sér Nice sem dvalarstað. Fyrst fóru þau til Parísar og settust á skólabekk í Sorbonne, en þar voru þau í tvö sumur og töluðu frönsku sem inn- fædd eftir. Sumarið eftir var haldið til Nice og héldu þau þangað nán- ast á sama degi hvert ár í hartnær 30 ár, gistu á sama hóteli og í sama herbergi alla tíð. Þau hjón urðu hluti af samfélag- inu þar suður frá og gekk hún und- ir nafninu Madame Skúlason. Lán- aðist mér og fjölskyldunni að dvelj- ast nokkrum sinnum þar suður frá okkur til sælla minninga. Ég þakka þér fyrir allt, elsku Dísa mín. Guð veri með þér. Gunnar frændi. ÞÓRDÍS DANÍELSDÓTTIR PÁLL FRIÐRIK EYJÓLFSSON + Páll Friðrik Ey- jólfsson fæddist á Norðfirði 14. júlí 1928. Hann lést á heimili sínu 20. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jóhanna María Jóhannsdóttir, Fá- skrúðsfirði, og Ey- jólfur Jónsson. Páll átti þjár dæt- ur og eru þær Helga, Jóhanna og Elísabet. Móðir Helgu hét María Hrólfsdóttir frá Hallbjarnarstöðum i Skriðdal. Móðir Elísabetar og Jóhönnu hét Gabríella Oddrún Eyfjörð frá Akureyri. Eftirlifandi kona Páls er Guðbjörg Jósefsdóttir frá Hlíðartúni í Dalasýslu og á hún fjögur börn frá fyrra hjónabandi. Páll fluttist frá Norðfirði 29 ára gamall og vann hann við almenna verkamannavinnu, fyrst í Hafnarfirði svo í Reykja- vík, til ársins 1991, lét þá af störfum vegna heilsubrests. Útför Páls fór fram frá Hafn- arfjarðarkirkju mánudaginn 27. október. Páll Friðrik Eyjólfsson, Palli eins og hann var alltaf kallaður, lést á heimili sínu 20. október. Páll kynntist móður minni, Guð- björgu Jósefsdóttur frá Hlíðartúni í Dalasýslu, þegar ég var tvítug, árið 1972. Hann varð strax einn af okkur í fjölskyldunni. Hann var afskaplega mikið ljúfmenni, en stundum smástríðinn, sem alltaf var meinlaus stríðni. Hann giftist mömmu árið 1974. Ári seinna giftist ég mín- um manni og áttum við þá fyrir eitt barn, sem er Ottó Bergvin. Palli kom strax í afa- hlutverkið og fórst honum það vel úr hendi. Ottó Bergvin var þá ríkur, átti þrjá afa. Ég sjálf átti aldrei afa sem ég man eftir. Það er erfitt að skrifa minn- ingu um Pál, ég hef svo margs að minnast um góðan mann sem varð bráðkvaddur. Og ég spyr: „Af hveiju núna?“ Hann var orðinn mjög sáttur við svo margt. Konan hans er sjúklingur á Landakotsspítala, fyrst var erfítt fyrir hann að sætta sig við að vera einn. Hann sagði við mig fyrir nokkrum dögum: „Ólafía, fínnst þér ég ekki bara miklu hressari núna en oft áður?“ Það var rétt hjá honum, hann var hressari og jákvæðari, reyndar var hann oftast mjög jákvæður maður, nema ef honum þótti eitt- hvað miður, þá gat hann verið mjög stífur og þver, en það hvarf fljótt úr honum. Palli var fæddur Norðfirðingur, hann fluttist suður til Reykjavíkur 29 ára gamall með fóstra sínum. Ég kann ekki hans æskusögu. Helgi frá Stuðlum, eins og hann var nefndur, var mjög góður við Palla og nefndi Helgi heitinn heim- ili þeirra hérna fyrir sunnan, sem var í Hafnarfirði, Stuðlaberg, eftir Stuðlum á Norðfirði. Páll vann við verkamannavinnu, fyrst í Hafnarfirði, svo í Reykjavík alla tíð þar til heilsan fór að gefa sig. Hann missti alveg heyrn fyrir sex árum, þá eftir erfíð veikindi og þá hætti hann alveg að vinna. Hann hélt alltaf góða skapinu fyrir því. Hann hugsaði vel um móður mína í veikindum hennar. Þau skildu allt- af hvort annað. Palli var ekki á leiðinni að deyja þegar kallið kom, því hann var að hugsa um að fara í afmæli hjá barnabarni sínu á mánudagskvöldið, en hann var bú- inn að boða forföll því hann var með kvef. Það er mjög erfítt fyrir mig og fjölskyldu mína að kveðja þig, Palli minn, en við ráðum víst engu þegar kallið kemur. Með þess- um fátæklegu orðum vil ég kveðja þig. Ég geymi allar minningar í hjarta mínu um góðan mann. Ég votta móður minni og dætrum hans, afabörnum og öðrum að- standendum mína dýpstu samúð. Guð geymi ykkur öll. Ólafía Ottósdóttir. ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER1997 41' ------------------------------- i + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SIGURÐUR FRIÐRIKSSON, Víðihlíð 29, Sauðárkróki, fyrrum bóndi Stekkjarflötum, andaðist á Sjúkrahúsi Sauðárkróks sunnu- daginn 26. október. Anna Hrólfsdóttir, Una Sigurðardóttir, Bogi Arnar Finnbogason, Snorri Sigurðsson, Edda Haraldsdóttir, Hrólfur Sigurðsson, Hafdís Skarphéðinsdóttir, Hulda Sigurðardóttir, Matthías H. Guðmundsson, Kristján Valur Sigurðsson og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir oa amma, AÐALHEIÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR JEN- SEN, Hlévangi, Faxabraut 13, Keflavík, sem lést 21. október sl. á Sjúkrahúsi Suðurnesja, verður jarðsungin frá Keflavíkur- kirkju miðvikudaginn 29. október kl. 14.00. Edda Jensen, Sigfús Þorsteinsson, Friðrik Jensen, Sigríður Þórólfsdóttir, Engilbert Jensen og barnabörn hinnar látnu. Bróðir minn, GUÐMUNDUR HJARTARSSON, Mýrarholti 7, Ólafsvík, andaðist sunnudaginn 26. október. Ólafur Brandsson og aðrir aðstandendur. 4~ + Elskulegur eiginmaður minn, MATTHÍAS GUÐMUNDSSON, Hringbraut 104, Keflavík, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 26. október. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Friðbjörg Ólina Kristjánsdóttir. + Útför föðurbróður míns, AÐALSTEINS JÓNSSONAR húsasmíðameistara frá Vestra Skagnesi í Mýrdal, sem lést hinn 14. október hefur farið fram í kyrrþey að hans eigin ósk. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð. Fyrir hönd vandamanna. Guðný Sigurgisladóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, JÓHANNESJÓHANNESSON tæknifræðingur, Skaftahlíð 15, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðviku- daginn 29. október kl. 13.30. Ólafía Björk Davíðsdóttir, Jóhannes Jóhannesson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Margrét Björk Jóhannesdóttir, Örvar Ólafsson, Birkir Máni Örvarsson, Selma Rún Jóhannesdóttir, Siguriaug Jóhannesdóttirl, Svanhildur Jóhannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.