Morgunblaðið - 28.10.1997, Side 58

Morgunblaðið - 28.10.1997, Side 58
►. v-e.. ...ti.aiiwí'* 58 PRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM adidas Feet You Wear Handboltaskór Equipment Stabil M adiWEAR ytfisóli adiPRENE undir hæl og framfæti PUi yf 5PORTHÚ5 ftffll REYKJAVÍKUR Laugavegi 44 • Sími 562 2477 •* í í. r Kraftmeiri, nú með 1400W mótor. Fislétt, aðeins 6.5 kg. Biðstöðufesting fyrir rör og slöngu. Og hinn frábæri Nilfisk AirCare® síunarbúnaður með HEPA H13 síu. Komdu og skoðaðu nýju Nilfisk GM-400 ryksugurnar /rúnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 !í UTIVISTARBUÐIN við Umferðarmiðstöðina Sími: 551 9800 og 551 3072 á miðviJd,^ - kjarni málsins! Gaman og* al- vara í Sunnu- dagsleikhúsinu Þrír þættir af Sunnudagsleikhúsi Sjónvarps- ins hafa nú farið í loftið og verður ekki annað sagt en að Sjónvarpið hafi dottið niður á ágætis form til þess að halda íslenskri sjón- varpsleikritagerð lifandi. Anna Sveinbjarnar- dóttir fékk tækifæri á dögunum til þess að skoða Sunnudagsleikhúsið nánar. FASTUR rammi var settur upp fyrir Sunnudagsleikhúsið, m.a. til þess að halda kostnaðinum niðri. Valdir voru saman fimm höf- undar og fimm leikstjórar. Hver höf- undur fékk það verkefni að skrifa þrjá 20 mínútna þætti og mátti við- komandi ráða hvort þeir væru stakir eða þriggja þátta framhaldsmynd. Höfundur fékk einnig aðeins fjóra leikara til umráða í aðalhlutverkin og afmarkað leikrými, t.d. kemur sama kaffihúsið fyrir í ýmsum út- færslum í mismunandi þáttum. Jafn- framt voru höfundum settar þær skorður að þættirnir segðu sögu sem gerist í samtímanum, helst frekar gamansama. Nú þegar er búið að sýna alla þá þætti sem Friðrik Erlingsson og Gísli Snær Erlingsson unnu saman, Blóm handa frúnni, Hnefann, og Prjá morgna. Þeir voru ólíkir hvað varðar efnistök og framsetningu, og var athyglisvert að sjá hvernig höf- undurinn og leikstjórinn tókust á við rammann sem þeir þurftu að fylgja. Blóm handa frúnni og Þrír morgn- ar áttu það sameiginlegt að fjalla um fjölskyldutengsl, og leyfðu báðir skopi að laumast í gegn þó ekki væri um gamanþætti að ræða. Verður að segjast að þeir voru mun betur heppnaðir en Hnefinn sem leið m.a. fyrir algerlega húmorslausa lýsingu á sambandi tveggja ólíkra manna, aldraðs hnefaleikakappa og ungskálds. Kvennamál og Qölmiðlasamfélag I nóvember verða væntanlega á dagskrá þættir sem Hlín Agnars- dóttir og Viðar Víkingsson unnu saman. Hlín hefur valið að tengja þættina saman og fjalla þeir umA kvennamál, og kannski karlamál líka, ef eitthvað er að marka titlana. Þættirnir heita Aðeins einn en hver þáttur hefur síðan undirtitil. Sá fyrsti er Flökkuslímhúð, númer tvö nefnist Fyrirtíðaspenna, og loka- þátturinn Frjósemi. Eg sá þann fyrsta og var vel skemmt. Edda Heiðrún Backman, Steinunn Ólafsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leika þrjár vin- konur sem hittast á kaffihúsi konu sem Edda Heiðrún leikur. Steinn Armann Magnússon fer með hlut- verk kúgaðs eiginmanns Eddu Heiðrúnar og Kjartan Guðjónsson leikur kvensjúkdómalækni vin- kvennanna þriggja. Leikararnir stóðu sig allir geysi- vel og voru samskipti Steinunnar Ólínu og Kjartans einstaklega skemmtileg. Ég vona að hinir þætt- irnir tveir hafi heppnast jafnvel. Næsti þáttur Sunnudagsleikhúss- ins sem ég sá vakti ekki jafnmikla lukku. Það var þáttur úr framlagi Þorvalds Þorsteinssonar og Baltasars Kormáks sem nefnist Eins og ég sagði. Þorvaldur hefur valið að skrifa staka þætti svo það er aldrei að vita nema að Að vara og Mikið áhvílandi eigi eftir að hrífa mann meira en þeir verða á dagskrá í des- ember. Benedikt Erlingsson, Halldór Gylfason, Inga María Valdimars- dóttir og Þrúður Vilhjálmsdóttir leika fjóra eigingjarna og sjálfum- glaða vini sem finnst skemmtilegast að hlusta á eigin raddir. Ég skildi verkið svo að það ætti að gagnrýna sjálfumgleði fólks sem lifir og hrær- ist í slúðri og ,játningaviðtölum“ glansblaðanna og vill helst vera á kafi í athygli fjölmiðla. Þorvaldur hefur greinilega gaman af að velta fyrir sér ímyndum og áhrifum fjölmiðlaumhverfis á fólk, og í Eins og ég sagði mátti finna ýmsar skoplegar athugasemdir um hégóma mannskepnunnar. Verkið er forvitnilegt en vantaði þann heildar- svip sem Flökkuslímhúðin bjó yfir. Spenna og grín Eftir jól verða síðan tvær fram- haldsmyndir á dagskrá. Hjartans mál sem er spennuleikrit skrifað af INGA Valdimarsdóttir, Halldór Gylfason, Benedikt Erlingsson, og Þrúður Vilhjálmsdóttir í Eins og ég sagði. Guðrúnu Helgadóttur og leikstýrt af Þorsteini Jónssyni, og Blöðruveldið sem er gamanleikrit eftir Sigurð G. Valgeirsson og Sveinbjörn I. Bald- vinsson og leikstýrt af Ágústi Guð- mundssyni. Þar sem Hjartans mál er spennu- leikrit vil ég segja sem minnst um það. Það sem ég get sagt er að þátt- urinn sem ég sá lofaði góðu en það er auðvitað engin leið að segja til um heildaráhrifin fyrr en allir þættirnir hafa verið sýndir. Blöðruveldið er tilraun til nokkurs konar íslenskrar „sitcom“ eða gam- anþáttagerðar. Örn Árnason og Halldóra Geirharðsdóttir leika hjón sem eru að reyna að höndla íslenska hamingju. Hann m.a. með því að flytja inn blöðrur. Þátturinn sem ég sá var ágætlega fyndinn en vantaði þó talsvert upp á ferskleika í gaman- seminni. Þrátt fyrir að þættimir sem ég fékk tækifæri til þess að sjá hafi hrifið mig mismikið verður ekki ann- að sagt að þetta framtak Sjónvarps- ins lofi góðu. Vonandi á Sunnudags- leikhúsið eftir að fá fleiri íslenska höfunda og leikstjóra til samstarfs til þess að skemmta sjónvarpsáhorf- endum í framtíðinni. ÞÓR Túliníus og María Ellingsen fara með aðalhlutverkin í Iljartans mál.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.