Morgunblaðið - 28.10.1997, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 RBYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kjarasamningar við grunnskólakennara undirritaðir og verkfalli frestað
Um 33% launahækkun
á þremur og- hálfu ári
Morgunblaðið/Ásdís
FORYSTUMENN kennarafélaganna og samninganefndar sveitarfélaga undirrita nýjan kjarasamning í hús-
næði ríkissáttasemjara í gærkvöldi.
SAMNINGANEFNDIR kennara-
félaganna og launanefndar sveit-
arfélaga undirrituðu nýjan kjara-
samning, sem byggðist á innan-
hússtillögu ríkissáttasemjara, á
áttunda tímanum 1 gærkvöldi.
Verkfalli grunnskólakennara, sem
staðið hafði yfir í tæpan sólar-
hring var frestað þar til samning-
urinn hefur verið afgreiddur af
hálfu samningsaðila í atkvæða-
V^'greiðslu innan þriggja vikna frá
undirritun. Sáttafundir höfðu
staðið nær óslitið frá því á laugar-
dagsmorgun þegar samningar
náðust.
Samkomulagið felur í sér um
33% meðalhækkun launa á samn-
ingstímanum, sem gildir út árið
2000, að meðtalinni þeirri 4%
launahækkun sem samið var um
með bráðabirgðasamkomulagi í
mars sl. Launatöflu kennara er
^breytt frá og með 1. ágúst sl. og er
' vegin meðalhækkun launatöflu
vegna þeirrar breytingar 5,04%.
Laun hækka síðan um 3,5% 1. jan-
úar næstkomandi, 1,5% 1. ágúst
1998, 3,5% 1. janúar 1999, 3,5% 1.
janúar 2000 og 3,25% 1. desember
á sama ári.
Byrjunarlaun kennara hækka
afturvirkt frá 1. ágúst og verða
89.400 kr.; 1. ágúst á næsta ári
verða byrjunarlaunin 100.120 kr.
og 110.736 kr. í lok samningstím-
ans. Taxtalaun skólastjóra við
stærsta skóla eftir 18 ára starf
verða 192.209 kr. í lok samnings-
tíma.
Ekki dregið af launum
vegna verkfalls
væri annað verjandi en að bera
samninginn undir atkvæði félags-
manna.
Að sögn Eiríks fengu kennarar
skriflega yfirlýsingu frá launa-
nefnd sveitarfélaga um að ekki yrði
dregið af launum kennara þrátt
fyrir að þeir hefðu verið einn dag í
verkfalii.
ugleikanum í þjóðfélaginu. „Það
hefur verið vilji stjómmálamanna,
foreldra og almennings að kennar-
ar fengju meiri hækkun en aðrar
stéttir,“ segir hann.
Jón sagði að ríkið kæmi ekki á
neinn hátt að þessari samnings-
gerð og sveitarfélögin tækju að
öllu leyti á sig kostnaðinn. Að-
spurður hvort sveitarfélögin gætu
staðið undir þessum launakostnað-
arauka án þess að auka tekjur sín-
ar með hækkun útsvars eða ann-
arra tekjustofna sagði Jón annarra
að ákveða það en kvaðst reikna
með að sveitarfélögin væra mis-
jafnlega sett hvað það snertir. „Við
erum þeirrar skoðunar að sveitar-
félögin þurfi að hagræða og fara
ofan í sín mál,“ sagði hann.
Viðræður við ríkið
koma til greina
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði að sér fyndist
koma til greina að óska eftir við-
ræðum við ríkisvaldið vegna meiri
kostnaðar af grunnskólunum.
■ Breytingar á/10
■ Stöðugleikanum/11
■ Ekki annað/11
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Islands, sagði í
gærkvöldi að þegar innanhússtil-
laga sáttasemjara lá fyrir hefðu
kennarar eftir miklar umræður
komist að þeirri niðurstöðu að ekki
Sveitarfélögin bera
ein kostnaðinn
Jón G. Kristjánsson, formaður
samninganefndar launanefndar
sveitarfélaga, segir að nýgerður
samningur eigi ekki að raska stöð-
Samkomulag í lífeyrisnefnd fjármálaráðherra
Aukínn sveigjanleiki
um lágmarksiðgjald
Síldar-
fundur í
Ósló
ÍSLENSKIR og norskir emb-
ættismenn hittast á fundi í Ósló
í dag til að ræða um norsk-ís-
lenska sfldarstofninn. Að sögn
Halldórs Ásgrímssonar utan-
ríkisráðherra er um árlegan
fund að ræða sem löngu hefur
veríð ákveðinn og stendur ekki
í neinu sambandi við stjórnar-
skiptin í Noregi.
„Það tókst samkomulag í
fyrra milli allra aðila, sem var
mjög erfitt að ná, sérstaklega
vegna Evrópusambandsins. Eg
á ekki von á að menn muni gera
þar miklar breytingar enda
hefur í sjálfu sér lítið breyst í
þessu máli frá í fyrra,“ sagði
Halldór. Hann sagði stefnt að
því að ná niðurstöðu á þessum
fundi sem Jóhann Sigurjónsson
frá utanríkisráðuneytinu og
Arnór Halldórsson frá sjávar-
útvegsráðuneytinu sitja fyrir
íslands hönd.
SAMKOMULAG nefndar um líf-
eyrismál felur í sér aukið svigrúm
lífeyrissjóða til að ákveða lág-
marksiðgjald til samtryggingar.
Telji lífeyrissjóður að hann geti
uppfyllt 4. grein framvarpsins um
lágmarks tryggingavernd fyrir
sjóðsfélaga með 8-9% iðgjaldi er
honum heimilt að ákveða að hafa
það svo lágt. Það myndi þýða að
sjóðsfélaginn getur sjálfur tekið
ákvörðun um í hvaða sjóð hann
greiðir það sem á vantar upp á lág-
marksiðgjaldið, en það verður eftir
sem áður 10%.
Ekki verða gerðar umtalsverðar
breytingar á ákvæði um aðild að
lífeyrissjóðum, en framvarpið gerir
hins vegar ráð fyrir að skref verði
stigin í þá átt að sjóðsfélagar hafí
Sjóðsfélagar
ráði meiru um
ráðstöfun iðgjalds
innan sjóðanna
meira að segja um það hvernig
hluta af iðgjaldi þeirra er ráðstafað
innan sjóðanna. Frumvarpið legg-
ur það í vald lífeyrissjóðanna að
taka ákvörðun um aukið val í líf-
eyristryggingum. í bráðabirgðaá-
kvæði frumvarpsins segir að það sé
markmið þess að auka valfrelsi í
lífeyrismálum og ef lífeyrissjóðim-
ir hafi ekki stigið skref í þessa átt
fyrir árið 2001 skuli fjármálaráð-
herra, í samráði við hagsmunaað-
ila, undirbúa frumvarp um breyt-
ingar á lögunum svo að þetta
markmið náist.
Eykur vonandi
líkur á sátt
Friðrik Sophusson íjármálaráð-
herra segir að þetta samkomulag
sé mikilvægt og komi vonandi til að
auka líkur á góðri sátt um málið á
Alþingi.
„Þessi niðurstaða styrkir að
mínu mati lífeyrissjóðakerfið og ýt-
ir jafnframt undir frjálsan lang-
tímasparnað, en hvort tveggja flyt-
ur hluta launatekna á starfsævinni
yfir í lífeyri eftir að starfsævinni
lýkur,“ segir fjármálaráðherra.
■ Aukið valfrelsi/12
Réðst
aftur inn
í Póst
og síma
LÖGREGLAN í Reykjavík yfir-
bugaði í gærkvöldi mann eftir að
hann hafði brotist inn í aðalstöðvar
Pósts og síma við Austurvöll.
Að sögn lögreglu var þama á
ferð sami maður og braust inn í að-
alstöðvar Pósts og síma í síðustu
viku. Maðurinn var vopnaður hnífi,
en ekki fengust upplýsingar um
það hvort hann hefði reynt að beita
honum.
Yfirbugaður
með gasi
Hann braut sér leið inn í húsið og
hafði brotið hurðir til að komast
upp á aðra hæð þar sem hann var
staddur þegar lögregla yfirbugaði
hann. Beitti lögi’egla til þess gasi
og var maðurinn fluttur á slysa-
varðstofuna. Síðar í nótt átti að
færa hann í fangageymslur og
sagði lögreglan að hann yrði senni-
lega geymdur þar til morguns,
enda væri maðurinn hættulegur.
Tilkynning um innbrotið barst til
lögreglunnar 29 mínútur yfir mið-
nætti og voru fjórir bílar sendir á
vettvang. Þeir vora komnir þegar
klukkan var 31 mínútu gengin í eitt
og tveimur mínútum síðar hafði
lögreglan náð manninum á sitt
vald.
Maðurinn er 39 ára gamall og
hefur unnið við dyravörslu hjá
Pósti og síma. Sagt er að hann eigi
við geðræn vandamál að stríða.
Dýrbíta
leitað
Drápu tvö lömb
LÖGREGLAN á Hvolsvelli
leitar nú dýrbíts eða -bíta,
sem drápu tvö lömb á Heiða-
bæ í Arbæjarbraut í liðinni
viku.
„Þetta var greinilega eftir
hund eða hunda,“ sagði Krist-
ján Guðmundsson lögreglu-
maður í gær. „Meira vitum við
ekki á þessari stundu."
Kristján sagði að hundanna
væri nú leitað svo hægt væri
að eyða þeim. Tilkynnt hefði
verið um lömbin á sunnudag
og sennilega hefði atvikið átt
sér stað þremur eða fjóram
dögum fyrr.
„Það hefur ekki orðið sér-
staklega vart við flækings-
hunda á þessu svæði þannig
að við eram svo að segja á
byrjunarreit enn þá,“ sagði
Kristján.
Hundarnir líklega frá
nærliggjandi bæjum
Að hans sögn sást af bitför-
um og verksummerkjum að
sennilega hefðu verið fleiri en
einn hundur á ferð og líkleg-
ast væru þeir frá nærliggj-
andi bæjum.
Kristján taldi víst að um
væri að ræða hunda, sem
væru látnir vera úti allan sól-
arhringinn: „Það er eðli hund-
anna að veiða á nóttunni."