Morgunblaðið - 23.11.1997, Page 4
4 SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
fttargtntfrifafeib
VIKAN 16/11 - 22/11
►HLUTABRÉF í Flugleið-
um lækkuðu um 15% íkjöl-
far þess að félagið birti tölur
yfír afkomu sfna fyrstu níu
mánuði þessa árs. Hagnaður
af reglulegri starfsemi nam
341 milljón kr. og minnkaði
hann um 547 milljónir milli
ára. Þetta er lakasta afkoma
Flugleiða frá árinu 1993.
►GERHARD Schröder, for-
sætisráðherra Neðra-
Saxlands, sem kom í opin-
bera heimsókn hingað til
lands í vikunni, sagði í erindi
sem hann héit á föstudag að
hann skildi vel blendna af-
stöðu íslendinga til Evrópu-
sambandsins. Islendingar
nytu nú allra kosta aðildar
án þess að eiga í þeim vanda
sem búast mætti við að
fylgdi aðild.
►STJÓRN Landsvirkjunar
hefur ákveðið að hækka
hcildsöluverð á rafmagni til
almenningsveitna um 1,7%
frá næstu áramótum og
kemur sú hækkun til viðbót-
ar 3,2% hækkun á rafmagni
1. apríl sl. Verð á raforku í
heildsölu frá Landsvirkjun
til almenningsveitna hefur
þannig hækkað um nærri 5%
á niu mánaða tímabili.
►MENNTAMÁLARÁÐHER
RA hefur veitt Rfkisútvarp-
inu skriflega heimild til að
flytja starfsemi stofnunar-
innar á einn stað, í útvarps-
húsið í Efstaleiti. Hafist
verður handa fljótlega um
að flyfja starfsemi Sjón-
varpsins af Laugavegi. RÚV
hefur óskað eftir lántöku-
heimild til að geta lokið
flutningnum af á sem
skemmstum tíma og er beðið
eftir því að sú heimild verði
afgreidd í lánsfjárlögum.
Sameiginleg
Schengen-stefna
ÍSLENSK og norsk stjómvöld hafa
komið sér saman um sameiginlega
stefnu í samningaviðræðum við Evrópu-
sambandið um þátttöku ríkjanna í hinu
breytta Schengen-vegabréfasamstarfi,
en ákveðið hefur verið að Schengen-
samningurinn verði hluti af stofnsátt-
mála ESB og að stofnanir þess taki við
framkvæmd hans. Sendiráð Noregs og
íslands í Brussel hafa á síðustu dögum
kynnt fastafulltrúum aðildarríkja ESB
hjá stofnunum sambandsins áherslur
ríkjanna í viðræðunum sem framundan
eru. Ríkin vilja m.a. áfram eiga aðild að
öllum viðræðum innan ESB sem snerta
vegabréfasamstarfíð og tillögurétt um
nýjar Schengen-reglur.
Flak Goth
fundið eftir 49 ár
REYKHÁFUR af breska togaranum
Goth frá Fleetwood, sem fórst
norðnorðvestur af Hala í desember
1948 með 21 manns áhöfn, kom í troll
Helgu RE nýverið. Mikil leit var gerð
að breska togaranum á sínum tíma en
án árangurs.
Fundur flaksins hefur vakið mikia at-
hygli í Fleetwood og nágrenni og til
stendur að reykháfurinn verði fluttur
þangað. Helga RE hélt aftur á miðin á
föstudag og hafði meðferðis blómsveig,
sem kastað var út á síðasta legstað
Goth til minningar um hina látnu.
Búrhval rak á land í
Steingrímsfirði
BÚRHVAL rak upp í grynningar í
Steingrímsfirði á miðvikudag og þar
sem hann var mikið særður var ákveðið
að aflífa hann. Þegar líffræðingar skoð-
uðu hann kom í ljós að búrhvalurinn var
vanskapaður að því leyti að neðri kjálk-
ann vantaði á hann. Til stendur að úr-
beina hvalinn og koma beinagrindinni
fyrir í nýju hvalasafni á Húsavík.
58 ferðamenn myrtir
í Egyptalandi
A.M.K. sex múslimskir öfgamenn
myrtu 58 erlenda ferðamenn í
Hatsepsut-hofinu í Lúxor í Egyptalandi
á mánudag. Þetta er blóðugasta tilræð-
ið í landinu frá því heittrúaðir múslimar
hófu uppreisn gegn stjóm Hosnis Mub-
araks forseta árið 1992 til að stofna ísl-
amsktríki.
Tilræðið er mildð áfall fyrir stjóm
Mubaraks, sem hafði talið að samtök
öfgasinnaðra múslima hefðu verið gerð
nánast óvirk nema á mjög afmörkuðum
svæðum syðst í landinu. Hundmð er-
lendra ferðamanna forðuðu sér úr land-
inu vegna tilræðisins, margar ríkis-
stjómir vömðu þegna sína við ferðum
til Egyptalands og þúsundir manna
hafa hætt við að ferðast þangað.
Mubarak gaf út fyrirmæli um að hert
yrði á öryggisráðstöfunum við ferða-
mannastaði og vék Hassan el-Alfi úr
embætti innanríkisráðherra. Klaus Kin-
kel, utanríkisráðherra Þýskalands,
sagði að þótt það væri allt að því
ógjömingur að stöðva „öfgasinnaða
hryðjuverkamenn" yrðu egypsk stjóm-
völd að gera betur en hingað til.
Irakar gefa eftir í
deilunni við SÞ
ÍRAKAR féllust á fimmtudag á að leyfa
Bandaríkjamönnum að taka þátt í
vopnaeftirliti Sameinuðu þjóðanna í
írak þar sem Rússar Iofuðu að beita sér
fyrir því að slakað yrði á refsiaðgerðum
samtakanna gegn írak. Madeleine Al-
bright, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, þakkaði Jevgení Prímakov, rús-
seskum starfsbróður sínum, fyrir þátt
hans í að leysa deiluna en aðrir banda-
rískir embættismenn sögðu að írakar
hefðu fyrst og fremst gefíð eftir vegna
„pólitískrar og hemaðarlegrar stað-
festu Bandaríkjamanna". Clinton
Bandaríkjaforseti kvaðst ekki vilja
hrósa sigri, heldur bíða og sjá hvort
írakar stæðu við orð sín og hindruðu
ekki störf eftirlitsmanna. Bandaríkja-
her sendi aukinn liðsstyrk á Persaflóa-
svæðið þrátt fyrir eftirgjöf íraka.
► DÚMAN, neðri deild rúss-
neska þingsins, samþykkti á
flmmtudag að fresta umræðu
um fmmvarp stjómarinnar
til fjárlaga næsta árs þar til f
byijun desember. Aður hafði
Borís Jeltsfn forseti ákveðið
að víkja Anatolf Tsjúbajs frá
sem fjármálaráðherra en
hann verður áfram aðstoðar-
forsætisráðherra. Fijálslynd-
ur hagfræðingur, Mfkhafl
Zadomov, var skipaður fjár-
málaráðherra.
► SKÝRT var frá því á
mánudag að atkvæðamiklir
stjórnmálamenn f Likud-
bandalaginu f ísrael væm
búnir að fá sig fullsadda á
forystu Benjamins Netanyah-
us forsætisráðherra og ynnu
að þvf að hrekja hann frá
völdum.
► Kfnverski andófsmaðurinn
Wei Jiangsheng var látinn
laus úr fangelsi í Kíha á
sunnudag af heilsufarsástæð-
um og fór á sjúkrahús í
Bandaríkjunum. Wei hefur
verið nefndur „faðir
lýðræðishreyflngarinnar" í
Kína.
► STJÓRN norsku miðflokk-
anna og Hægriflokksins
náðu samkomulagi um nýtt
fjárlagafrumvai-p á mánu-
dag. Gengið var að kröfu
hægrimanna um skattalækk-
anir sem nema milljarði
norskra króna.
► BRESKI íhaldsflokkurinn
varð fyrir miklu áfalli í
tvennum aukakosningum á
flmmtudag. Flokkurinn tap-
aði miklu fylgi í öðm kjör-
dæmanna, Winchester, þar
sem Fijálslyndir demókratar
unnu stórsigur, en hélt þing-
sæti sínu í Beckenham naum-
lcga þrátt fyrir mikið fylgis-
tap.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
HILDUR Þórisdóttir, 6 ára, klippti á borðann, en á honum héldu Óskar Magnússon forsljóri Hagkaups og
Örn Kæmested forsljóri Alftáróss.
Kjarni í Mosfellsbæ opnaður
KJARNI, ný verslunar- og þjón-
ustumiðstöð við Þverholt í Mos-
fellsbæ, var opnaður í gærmorgun
við hátfðlega athöfn. Miðstöðin er
um 4.400 fermetrar að stærð en
samtengd henni er 3.600 fermetra
skrifstofubygging, sem tekin var í
notkun árið 1993. Saman mynda
þessar byggingar átta þúsund fer-
metra miðbæjarhús, Kjarna.
Með opnun Kjarna Iýkur
Álftarós hf. miklum byggingar-
framkvæmdum á svæðinu, sem
hafa tekið sjö ár og kostað um
960 miHjónir króna á núvirði.
1.600 fermetra stórversiun Hag-
kaups er uppistaðan í Kjarna en
þar er einnig veitingastaðurinn
Pizzabær, lyfjabúðin Lyfjakaup,
bókabúðin Asfell, hárgreiðslustof-
an Pflus, snyrtistofan Fatíma og
fataverslunin Bliss. Þá mun
heilsugæslustöð sveitarfélagsins
flyfjast í húsið á næstunni. I miðju
verslunarhússins er innitorg og
stefnt er að því að opna þar kaffi-
hús innan skamms.
Samræmd próf
í íslensku
Stúlkur með
betri árangur
en piltar
STÚLKUR í fjórða og sjöunda bekk
grunnskóla náðu að jafnaði betri
árangri en piltar í sami'æmdum
könnunarprófum í íslensku sem fram
fóru 14. og 15. október sl. Lítill mun-
ur er hins vegar á árangri kynjanna í
stærðfræði
í 4. bekk yar meðaleinkunn
stúlkna 5,2 en 4,8 hjá piltum. í 7.
bekk var meðaleinkunn stúlkna í ís-
lensku 5,3 en 4,7 hjá piltum.
Óverulegur munur er á milli kynj-
anna í stærðfræði. í 4. bekk var með-
aleinkunn stúlkna 4,9 en 5,1 hjá pilt-
um. í 7. bekk er meðaleinkunn
stúlkna 5,1 en 4,9 hjá piltum. Séu
niðurstöður bornar saman við könn-
unarpróf sem fram fóru í fyrra í 4. og
7. bekk kemur í ljós að kynjamunur
í ár er svipaður og í fyrra.
í könnun sem Rannsóknastofnun
uppeldis- og menntamála gerði með-
al skólastjóra kom í Ijós að um 90%
þeirra töldu framkvæmd prófanna
hafa tekist mjög vel.
Olafur Haukur
Símonarson hlaut
verðlaun í Caen
ÓLAFUR Haukur Sím-
onarson rithöfundur
hlaut í gær aðalverðlaun
norrænnar bókmennta-
hátíðar í háskólaborg-
inni Caen í Normandí í
Frakklandi. Um tíu nor-
rænar bækur eru til-
nefndar til verðlauna
vegna hátíðarinnar, sem
haldin er annað hvert
ár. Líkið í rauða bflnum,
eftir Ólaf Hauk, var til-
nefnd fyrir íslands hönd
að þessu sinni. Hún kom
út hérlendis árið 1992.
„Þessi bók mín er
komin út í Frakklandi Olafur Haukur
núna og þetta hlýtur að Símonarson
vekja einhverja athygli á henni,“
sagði Ólafur Haukur, spurður um
þýðingu verðlaunanna fyrir hann.
„Áuðvitað er ágætt að veifa þessu
þegar maður á frekari samtöl við út-
gefendur, þetta greiðir
alltaf fyrir. En ég er
ekki farinn að þreifa á
því hvað þetta þýðir og
hvað þessu fylgir,“
sagði Olafur Haukur
þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í síma í
gærmorgun, skömmu
áður en honum voru
veitt verðlaunin við at-
höfn ytra.
„Þetta er mjög gam-
an vegna þess að þessi
bók er ekki alveg ný af
nálinni. Þetta er sú leið
sem bækur vilja fara;
þær eru oft neðanjarðar
dálítið lengi og svo birt-
ast þær allt í einu,“ sagði Ólafur
Haukur. Hann mun halda fyrirlestra
á hátíðinni og sitja fyrir svörum
næstu daga. Þá verður haldin kynn-
ing á verkum hans.
GilJirtil 30.11 'Q7
s ta ðg re iðslu afsíá ttur
af öllum vörum
yfir 2.000,- Ur.
SILFURBÚÐIN
KRINGLUNNI 8-12 S: 568-9066
Benz eyði-
lagðist í
bruna
MERCEDES Benz bíll er tal-
inn ónýtur eftir að bflskúr við
Hörgshlíð í Reykjavík brann í
fyrrinótt.
Eldurinn kom upp laust
fyrir klukkan þrjú á laugar-
dagsmorgun. Slökkvistarf tók
skamma stund og bflskúrinn
skemmdist talsvert.
Að sögn lögreglu var inni i
skúrnum Mercedes Benz
skutbifreið bifreið, um það bil
10 ára gömul og er hún talin
ónýt.
Eldsupptök eru ekki Ijós en
rannsóknarlögreglumenn
unnu að rannsókn málsins á
vettvangi í Hörgshlíð í gær-
morgun.