Morgunblaðið - 23.11.1997, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Böndum komið
Þriggja gljúfra-áætlunin, stíflugerð í
Yangtze og risastórar virkjanir, er fram-
kvæmd, sem jafnast aðeins á við byggingu
Kínamúrsins fyrir meira en 2.000 árum að
því er fram kemur í grein Niels Peter
Arskog, fréttaritara Morgunblaðsins í
----------7----------------------------
Peking. Ymis umhverfísverndarsamtök
hafa gagnrýnt hana, en Kínverjar sjálfír
trúa því, að hún verði stórt stökk í átt til
aukinnar velmegunar í landinu.
ETTA ár, sem nú fer senn
að kveðja, hefur verið
merkilegt fyrir margra
hluta sakir fyrir Kínverja.
Þeir fylgdu Deng Xiao-ping, arf-
taka Maós, til grafar snemma á ár-
inu og um mitt árið buðu þeir vel-
komnar sex milljónir manna þegar
breska krúnunýlendan Hong Kong
sameinaðist gamla landinu. í sept-
ember kastaði kommúnistaflokkur-
inn í raun fyrir róða einum af horn-
steinum hugmyndafræðinnar,
áætlunarbúskapnum, og nú í haust
var byrjað á einu mesta mannvirki
í heimi fyrr og síðar, stíflu og
vatnsorkuveri við Gljúfrin þrjú í
Yangtze-fljóti. I Kina jafnast það
aðeins á við Kínamúrinn, sem reist-
ur var fyrir meira en 2.000 árum.
Yangtze er þriðja lengsta fljót í
heimi, 6.300 km frá upptökunum í
fjallendinu í Vestur-
Kína til ósanna við
Shanghai, og það hefur
alla tíð skipt Kína í
tvennt, jafnt menningar-
lega sem landfræðilega.
Þriggja gljúfra-verkefnið dregur
nafn sitt af einni fegurstu nátt-
úruperlu landsins, gljúfrunum
miklu í Hubei-héraði, sem fljótið
rennur um, en þau hafa lengi haft
mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
70 ára gamall draumur
að veruleika
Með stíflunni er verið að gera að
veruleika 70 ára gamlan draum um
að koma böndum á Yangtze, en um
þúsundir ára hafa orðið stórflóð í
fljótinu öðru hvoru, sem líkja má
við miklar náttúruhamfarir. Aðeins
á þessari öld hafa þau kostað meira
en 300.000 manns lífíð. 1931 fórust
145.000 manns og fjórum árum síð-
ar 142.000 manns. 1954 týndu
33.000 manns lífinu og 18 milljónir
manna urðu heimilislausar.
Sun Yat Sen, stofnandi hins nýja
Kína, lagði til árið 1919, að reist
yrði stífla í Yangtze og virkjun,
sem lýsa skyldi upp kínversk heim-
ili og örva iðnvæðingu í landinu. Að
auki myndi stíflan draga úr flóða-
hættu og tryggja öruggari sigling-
ar. Það var þó ekki fyrr en 1993, að
kínverska þingið ákvað að hrinda
þessari áætlun í framkvæmd.
Eins og áður segir var Yangtze
fyrr á öldum eins konar landa-
mæri, sem skipti landinu í tvennt,
en á þessari öld hefur það verið
brúað mjög víða. Um brýrnar
streymir fólk og varningur og hafa
þær átt sinn þátt í auka
samkennd allra Kín-
verja. Skammt frá vfrkj-
unarstaðnum hafa verið
byggðar þrjár brýr og
flughöfn og ný hrað-
braut, sem sums staðar hefur verið
sprengd í gegnum fjöllin, tengir
Wuhan, höfuðborg Hubei-héraðs,
við Þriggja gljúfra-svæðið. Hafa
orðið miklar breytingar þarna á fá-
um árum.
A síðustu áratugum hafa verið
reistar margar litlar virkjanir við
Yangtze og þverár þess. Sú
stærsta var reist 1984 við bæinn
Yichang, en Þriggja gljúfra-virkj-
unin verður 38 km fyrir vestan
hann. A skömmum tíma hefur
íbúatala bæjarins tvöfaldast, farið
SJÁ SÍÐU14
Fljótið
skiptir Kína
í tvennt
Morgunblaðið/Kong Qing Yan
YANGTZE-fljót hefur um aldabil verið ein helsta samgönguæð Kína. Það mun ekki breytast með virkjun
fljótsins. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki eftir tólf ár og eru stórvirk vinnutæki notuð við þær.
HUNDRUÐ
milljóna Kín-
verja fylgdust
með í beinni út-
sendingu er lok-
ið var við stíflu
yfír Yangtze.
Ottast afleiðingar stíflugerðar
Deilt er um hvort takast muni að koma í veg fyrir eyðilegg-
ingu af völdum flóða með stíflugerð í Yangtze
VIÐA um heim hafa menn lýst
áhyggjum vegna hugsanlegra
áhrifa risastíflunnar á umhverfið
en þeir svartsýnustu segja að
hún kunni að bresta og verða
milljónum manna að bana. For-
mælendur stíflugerðarinnar
segja hana hins vegar svara
brýnni orkuþörf og gera mönn-
um mögulegt að beisla fljótið.
Það er einmitt hugmyndin um
það að ná stjórn á flæði Yangtze
sem er einna umdeildust. Á
hveiju ári flæðir fljótið yfír
bakka sína og verður hunduðum,
jafnvel þúsundum manna að
bana, auk þess sem það veldur
gríðarlegri eyðileggingu. Kín-
verskir verkfræðingar fullyrða
að með stíflugerðinni beisli þeir
fljótið og hægt sé að koma í veg
fyrir flóðin.
Fyrri tilraunir Kínveija á
sjötta áratugnum til að ná tökum
á Yangtze með því að selja upp
62 stíflur höfðu skelfilegar af-
leiðingar. Er vatnið tók að rísa í
fljótinu og starfsmenn hugðust
opna stíflurnar, reyndist það
ómögulegt vegna þess að slý og
rusl hafði safnast í þær. Stíflum-
ar brustu á endanum og tugir,
jafnvel hundrað þúsunda manna
drukknuðu.
Óttast hættu á
jarðskjálftum
Bandarískir sérfræðingar sem
skoðuðu framkvæmdiraar í
Yangtze fyrir skemmstu komust
að því að botnleðja safnast hrað-
ar upp en gert hafði verið ráð
fyrir og gijót hrynur úr veggjum
bráðabirgðastíflunnar. Þá er hún
hvorki hönnuð til að standast
flóð né jarðskjálfta.
Stíflan er á sprungusvæði og
ýmsir óttast að hún muni auka
þrýstinginn á jarðskorpuna og
þar með auka hættuna á jarð-
skjálfta. Breskur jarðfræðingur
spáði því fyrir skemmstu að hún
myndi hreinlega hrynja í
skjálfta. Milljónir manna myndu
drukkna er hið gríðarlega mann-
virki léti undan.
Bættar samgöngur
og hreinna andrúmsloft
Mikil skipa- og bátaumferð er
um Yangtze en hún hefur verið
nokkrum erfiðleikum háð vegna
straumþunga og fallhæðar. Með
beislun fijótsins og skipaskurð-
um verður skipaumferð auðveld-
ari og samgöngur við Sichouan-
hérað batna til muna. Yfirvöld
binda miklar vonir við iðnaðar-
uppbyggingu í héraðinu, ekki
síst í borginni Chonqing, sem er
stærsta sveitarfélag í heimi, en
þar búa um 33,4 milljónir
manna.
Kínversk yfirvöld segja mikla
þörf á rafmagninu sem vatns-
orkuverið í Yangtze mun skila og
enginn efast um að það sé rétt.
Hvergi í heiminum er brennt
meira af kolum en í Kina og
mengunin leynir sér ekki í borg-
um landsins. Um 75% orkunnar
fást með kolabrennslu sem hefur
skelfileg áhrif á umhverfið.
Hins vegar hafa kínversk
stjórnvöld vísað á bug tillögum
um að byggðar yrðu fleiri og
minni stíflur í fljótinu. Slík fram-
kvæmd er ekki eins stórfengleg
og bygging stærsta orkuvers
heims.
Þetta og fjölmörg önnur vafa-
atriði sem komið hafa upp í
tengslum við stíflugerðina hafa
orðið til þess að Kínveijar verða
sjálfir að borga reikninginn. AI-
þjóðabankinn og bandaríski inn-
og útflutningsbankinn hafa hætt
við að veita kínverskum stjórn-
völdum lán vegna framkvæmdar-
innar. Eru Kínveijar afar ósáttir
við ákvarðanir þessara lánastofn-
ana og segja þær eingöngu
byggjast á því að Bandaríkja-
menn vilji ekki að Kínverjar
verði ríkir og valdamiklir.
• Byggt á: The Daily Telegraph,
Reuters og Aftenposten.