Morgunblaðið - 23.11.1997, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 23.11.1997, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Bandaríkjamönnum að leika í hveiju liði og ég hélt ég fengi ekki að spreyta mig eins mikið og til stóð. Þá var ákveðið að skoða eitt- hvað annað. Ég fór til Houthalen í Belgíu þar sem framheiji hafði slitið krossband í hné um vorið og ljóst að hann yrði ekki tilbúinn fyrr en um ára- mót. Mér var boðinn mjög góður samningur til tveggja mánaða, þar til hann væri tilbúinn, og vilyrði fyrir því að reyna að koma ungum miðheija til liðs í neðri deildinni og hafa mig áfram. Sirrý var ólétt þannig að mér fannst ekki hægt að vaða heim með hana þegar hún væri nýbúin að eiga. Því næst lá leiðin til Hamborgar þar sem topplið i 2. deildinni hafði áhuga á mér. Félagið lagði áherslu á að komast upp í 1. deild og metn- aðurinn var til staðar þannig að ég ákvað að taka tilboði félagsins. Daginn eftir að ég skrifaði undir hringdu forráðamenn Trier í mig, en liðið leikur í 1. deild. Þar sem ég var búinn að skrifa undir varð ekkert meira úr því. Mjög ánœgð í Hamborg Okkur líkar vel hér í Hamborg og það hefur allt staðið sem stafur á bók og ef eitthvað er hefur félag- ið gert heldur meira en lofað var. Ég ákvað samt að sjá til í sumar en Hamborgarar vildu endilega að ég skifaði undir áður en ég færi heim í frí. Við ákváðum að vera áfram, bæði vegna þess að við kunnum vel við okkur og svo líka vegna þess að ég fékk enn betri samning en ég hafði áður. Samn- ingurinn gilti frá 1. maí þannig að ég var á launum i allt sumar, en hefði maður farið að athuga með önnur lið veit maður aldrei hvað hefði komið upp á. Ég hefði í það minnsta ekki verið á launum í sum- ar, en ég veit að tvö lið í 1. deild spurðust fýrir um mig en maður veit aldrei hvernig það hefði farið. Það var nokkur óvissa á meðan á þessu öllu stóð og konan kasólétt heima. Það var meðal annars ein af ástæðum þess að við ákváðum síðasta vor að vera hér áfram frek- ar en fara aftur á flakk. Ég held líka að það sé betra fýr- ir mig að vera í örlítið slakara liði og fá að spila mikið heldur en vera í miðlungsgóðu liði í 1. deildinni og fá kannski lítið að spila. Maður á ekki það mörg ár eftir og vill því fá að spila. Það er líka skemmti- legra að vera í liði sem fer upp á milli deilda en liði sem fellur um deild. Hamborg er eina „alvöru“-körfu- boltaliðið í borginni og virðist vel statt. Það er auðvitað ekki sjálfgef- ið að við förum upp, en við eigum ágæta möguleika og ef það gerist verður mjög gaman. Það eru tals- verðir peningar í húfi því félagið mun eiga auðvelt með að gera enn betri samninga við ýmis fyrirtæki verði það í fyrstu deildinni." Gaman aö geta gefíð sér tíma með stráknum Er ekki mikið mál að rífa sig upp og flytja til útlanda? „Það er dálítið mál, en þó ekkert mjög mikið, og við sjáum alls ekki eftir því að hafa drifið í þessu því þetta er búinn að vera mjög skemmtilegur tími. Við erum bæði þannig gerð að okkur þykir gaman að ferðast og kynnast nýju fólki og svo munar auðvitað mjög mikið um vinnutímann. „Heima vann ég tíu til tólf tíma á dag og síðan voru æfíngar eftir það og leikir þannig að ég var eiginlega aldrei heima. Hér hef ég mikinn tíma til að vera með fjölskyldunni og það er mjög gaman, sérstaklega eftir að strák- urinn fæddist. Það er mjög gott og gaman að geta verið svona mikið með honum; farið út að leika við hann eða fara í sund. Svo kann ég bara vel við konuna eftir að ég fór að kynnast henni,“ segir Guðmund- ur og glottir. Hann segist ekki finna mikið fyrir því að fara frá Grindavík, þar sem um 2.500 manns búa, til Ham- borgar þar sem íbúarnir eru 1,8 milljónir. „Við búum í svo rólegu hverfí þannig að við finnum lítið fyrir stórborgarbragnum. Hér er allt í göngufæri þannig að maður þarf ekki að fara víða. Það er helst þegar gestir koma að maður fer niður í miðbæ.“ Ættum að vinna deildina heima Hvemig kemur DHL-deildin heima út í samanburði við 2. deild- ina hér í Þýskalandi? „Bestu liðin í annarri deildinni hér ættu að vinna deildina heima. Munurinn liggur _að miklu leyti í hæð leikmanna. Ég er til dæmis fjórði hæstur í liðinu; einn strákur er 2,12 metrar, annar er 2,08 og sá þriðji 2,06. Ég byija samt alla leiki sem miðheiji og er alltaf að dekka mér stærri menn. Ég er reyndar ekkert óvanur því að leika á móti stærri mönnum því það er venjan með landsliðinu, en núna geri ég það um hveija helgi, og raunar á hverri æfingu því ég er alltaf á móti þessum sem er 2,12. Ég kann vel við að leika á móti stærri mönnum og fínnst það raun- ar skemmtilegra, sérstaklega í sókninni því þar hef ég kannski meiri snerpu en þeir. Ég held ég hafí lært heilmikið á að leika héma, bæði í vörninni og við að dekka stærri menn. Mér hefur eiginlega alltaf tekist að halda miðheijum mótheijanna ágætlega niðri þannig að þeir skora yfírleitt minna á móti okkur en þeir gera að meðaltali. Það er svo bara við- bót ef ég dett niður á leiki þar sem ég geri 15 til 20 stig. Ég var mjög ánægður þegar við lékum í Salz- kotten í bikarkeppninni. Þá voru liðin borin saman í leikskránni og þar var ég sagður alhliða leikmaður og kallaður „defensiv monster". Maður hefur reynt að halda uppi baráttu og réttum anda í liðinu og það er trúlega ein af sterku hliðun- um hjá mér.“ Nú er stíli þinn í vítaskotum dálít- ið öðruvísi en hjá flestum, hefur ekkert verið dæmt á það hér? „Nei, en ef fyrsta vítaskot mitt mistekst fæ ég alltaf annað skot því það eru allir komnir inn í teig- inn. Það hefur bjargað nýtingunni enda er ég með mjög góða nýtingu. Menn kvörtuðu dálítið yfír þessu í fyrra og sögðu að ég væri að plata menn til að fara inn í vítateiginn, en þetta er bara minn stíll og þegar dæmt er á menn núna hlæja þeir og segjast hafa verið búnir að gleyma skotstílnum." Hvernig er svo framhaldið hjá ykkur? „Ég er með samning út þetta tímabil, þeir vildu gera tveggja ára samning, en ég vildi það ekki, enda veit ég ekki í hvaða deild liðið verð- ur. Það eru mjög miklir peningar hér í Hamborg og ef við förum upp er búist við að miklir peningar komi i reksturinn, enda mun félagið ekki sætta sig við að falla aftur, heldur verður liðið styrkt verulega þannig að það verði enn sterkara. Þýska HANDKNATTLEIKUR - MFL - KARLA HLÍÐARENDI KL. 20.00 í KVÖLD VALUR Valsmenn, mætum í rauðu! Gísli Jónsson ehf. Morgunblaðið/Skúli Unnar Sveinsson KÖRFUKNATTLEIKSFJÖLSKYLDA í Hamborg í Þýskalandi í búningum félaga slnna. Grindvíking- arnir Stefánía Jónsdóttir, Guðmundur Bragason og „au-pair“ stúlkan Stefanía Ásmundsdóttlr er lengst til hægri. sambandið vonar líka að við förum upp því Hamborg er eina stóra borgin sem er ekki með lið í efstu deild. Það er verið að byggja tólf þúsund manna íþróttahöl! í Ham- borg og við förum beint þangað ef við förum upp. Það verður því mjög spennandi ef við komumst upp og þá verð ég hérna og félagið vill hafa mig áfram.“ Vildi ekki verða fyrirliði Nokkrir útlendingar eru í liði BCJ og má eiginlega kalla það alþjóð-, legt. Þrír Bandaríkjamenn eru þar á meðal en einn þeirra er með enskt vegabréf og annar írskt því aðeins er leyfilegt að vera með einn Banda- ríkjamann í hveiju liði. Einn Rússi er í liðinu, en hann er giftur þýskri stúlku og er með þýskt ríkisfang og svo eru tveir sem fluttu frá Afr- íku fyrir sex árum og eru með þýskt ríkisfang. „Ég er varafyrirliði en strákarnir vildu að ég yrði fyrirliði í vetur. Það var skoðanakönnun innan liðsins og það var stungið upp á mér sem fyrirliða. Ég neitaði því þar sem ég var ekki orðinn nógu góður í þýskunni og það eru tveir leikmenn í liðinu sem tala enga ensku og ég taldi nauðsynlegt að fyrirliðinn gæti talað við alla leik- mennina. Ef við förum ekki upp mun ég skoða mín mál gaumgæfilega. Það þyrfti talsvert mikið að breytast til að ég yrði áfram, t.d. að fá nýjan þjálfara. Það verður gert ef við för- um upp; þá verður fenginn fær þjálfari." Ert þú kannski að hugsa um að taka liðið að þér? „Ég veit það nú ekki, en forráða- menn félagsins vita að ég þjálfaði heima. En það er ekki algengt í efstu deildunum í Þýskalandi að menn séu bæði leikmenn og þjálfar- ar. Eftir að ég þjálfaði hjá Grinda- vík settist ég niður og velti því fyr- ir mér hvort ég vildi þjálfa og spila, og vera útbrunnin um þrítugt, eða snúa mér fyrst að því að spila og síðan þjálfun einhvern tímann síð- ar. Ég hef alltaf skrifað hjá mér það sem ég hef lært hjá þjálfurum og safnað þannig að mér fróðleik, og sjálfsagt enda ég á því að þjálfa. Hvar og hvenær það verður á eftir að koma í ljós.“ Hef það gott en verð ekki milljónamæringur Er eitthvað upp úrþessu að hafa? „Við höfum það ágætt og sjáum fram á að eiga einhvern afgang þegar við komum heim, enda væri annað óeðlilegt því við fáum íbúð og bíl og það eina sem maður borg- ar er bensín, matur og sími. Það kemur síðan í ljós hversu miklu við höfum safnað þegar heim kemur, en við verðum engir milljónamær- ingar á þessu. Það sem er best við þetta allt er að ég er að gera það sem ég hef gaman af, spila körfu- bolta, og lifi vel af því og sé fyrir fjölskyldunni og maður getur lagt eitthvað fyrir. Það er varla hægt að hafa það betra,“ sagði Guðmund- ur Bragason. Loks útisigur hjá Chicago Michael Jordan var heldur betur í sviðsljósinu þegar meistarar Chicago Bulls unnu sinn fyrsta útisigur, 111:102. Til þess þurfti að framlengja leik liðsins við Los Angeles Clippers í tvígang. Leikmenn Clippers voru yfir 102:100 og höfðu knöttinn þegar 20,5 sek. voru eftir af fyrri fram- lengingunni. Þegar 15,7 sek. voru eftir var brotið á Jordan og hann fékk tvö vítaskot. Hann hitti ekki úr fyrra skotinu, heldur ekki því síðara - náði sjálfur frákastinu, lék á Brent Barry og skoraði þegar 8,9 sek. voru eftir. í seinni framlengingunni fór Jordan á kostum og skoráði öll níu stig meistaranna, en leikmenn Clippers náðu ekki að skora. Hann lauk leiknum með því að skora 49 stig - hæsta skor í NBA-deild- inni í vetur. Af þessum stigum skoraði hann 40 í seinni hálfleik framlengingar. Þetta er í 150. skipti sem Jord- an skorar yfir 40 stig í leik í NBA-deildinni. Luc Longley skor- aði 22 stig fyrir Chicago, en þeir Lamond Murray 24 og Barry 17 fyrir Clippers. Vin Baker skoraði 22, tók sjö fráköst og Hersey Hawkins skoraði 18 stig þegar Seattle SuperSonics vann San Ant- onio Spurs, 94:75. Larry Johnson skoraði 23 stig og John Starks 15 þegar New York Knicks skellti Washington Wizards, 104:82. Antoine Walker skoraði 24 stig, tók tólf fráköst og átti fimm stoð- sendingar fyrir Boston Celtic, sem notaði alla tólf leikmenn sína gegn New Jersey Nets. Wesley Per- son skoraði 22 stig fyrir Cleve- land Cavaliers, sem rústaði Min- nesota Timberw- olves, 103:80. Cedric Hend- erson skoraði 19 og Shawn Kemp tók 19 fráköst fyrir Cavaliers. NBA Leikir í fyrrinótt: Charlotte - Miami........119:102 Washington-NewYork .......82:104 Minnesota - Cleveland.....80:103 Boston - New Jersey.......101:93 Seattle - San Antonio.... 94: 74 Vancouver-Denver......... 99: 96 La Clippers - Chicago ...102:111 • í tvíframlengdum leik.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.