Morgunblaðið - 23.11.1997, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 23.11.1997, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ___________________LISTIR Einsemd sálarinnar BÓKMENNTIR Skáldsaga GÓÐA NÓTT, SILJA eftir Siguijón Magnússon. Bjartur. Reykjavík 1997.120 bls. GÓÐA nótt, Silja er athyglisverð saga um sálarkreppu fólks í Reykjavík samtímans. Sagan tekur á þema sem hefur verið aigengt í borgarskáldsögum fyrr og síðar, þema sem mætti lýsa með orða- tvenndinni einsemd/samvera. Per- sónurnar eiga allar í erfiðleikum með samskipti við annað fólk, ná ekki að tengja sig við aðrar mann- eskjur, við umhverfí sitt, við heim- inn. Þessa einsemd sálarinnar nær höfundur að túlka á sannfærandi hátt, ekki síst með því andrúmi sem yfirvegaður og kaldur frásagnar- hátturinn nær að skapa. Bókin er fyrst og fremst saga Jónatans næturvarðar, þótt annað sé gefið í skyn í frekar slæmum titli hennar (að mínu mati segir titillinn allt of mikið um örlög Silju). Jónatan er næturvörður í einhvers konar athvarfi fyrir af- vegaleidda menn. Þrátt fyrir að hann sé þar innan um heldur van- sæla einstaklinga virðist hann vera sá aumasti af þeim, og þá einkum vegna þess að hann stendur utan hópsins, er sá sem sker sig úr, er einn eins og fyrsta setning bókar- innar gefur svo sterkt til kynna: „Enginn þekkir næturvörðinn." Jónatan er holdgervingur einsemd- arinnar. Hann stendur einn í upp- hafi sögu, og í lok hennar. Hjónin Sölvi og Alma standa Jónatani næst en samskipti hans við þau eru brot- hætt. Haraldur, sonur þeirra hjóna, hefur hom í síðu hans, eins og raunar flestra og flests þess sem hann snertir. Haraldur er veiklundaður og lætur ósætti sitt við um- hverfið bitna á vin- konu sinni, Silju. Þar er komin konan sem tengir örlagaþræði þessa fólks en sagan fjallar einmitt öðrum þræði um það hvernig fólk tengist hvert öðru, hvernig örlög eins ryðjast inn í líf annars, hvernig veiklyndi eins styrkir annan eða slær öll vopn úr höndum hans. Eins og aðrar persónur sögunn- ar á Silja erfitt með að aðlagast heiminum, hún á erfitt með „að vera bundin öðrum“, eins og hún segir sjálf. En um leið sækir hún í samveru, hún er haldin þessu „ofstækisfulla trygglyndi“, sem Jónatan þekkir líka svo vel, löng- uninni „til að vera öðrum allt, skilja og líða með þeim sem manni standa næst“. Bókin er stutt en innan síns takmarkaða ramma tekst höfundi að gæða persónur sínar lífi og at- burði trúverðugleika. Það hefur færst í vöxt undanfar- in ár að íslenskir höfundar glími við þetta nóvelluform. Og iðulega hefur tek- ist vel upp; nægir að nefna Ástin fiskanna eftir Steinunni Sigurð- ardóttur og Snigla- veislu Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Bygging þessara skáldsagna hefur oft verið heil- steyptari en í viða- meiri sögum íslenskra höfunda. Bygging bókar Siguijóns Magnússonar er engin undantekning á þeirri reglu, bæði innri og ytri bygging sögunnar er afar markviss og skýr. Það má með sanni segja að sagan sé þéttofinn vefur. Eins og áður sagði er það ekk- ert nýtt að höfundar skrifi um til- vistarkreppu og firringu fólks í nútímasamfélagi. Þetta er djarf- lega valið umfjöllunarefni hjá höf- undi sem er að senda frá sér sína fyrstu bók en það verður ekki ann- að sagt en að vel hafi tekist til. Efnistökin eru kannski ekki ný en bókin er bæði vel skrifuð, yfirveguð og skemmtileg aflestrar. Við eigum vafalaust eftir að heyra gagnrýnendur segja að þessi bók segi svo sem ekki merkilega sögu og hún sé svolítið reyfara- kennd, jafnvel of opin og blátt áfram en það eru engin rök þegar bókin er ein af þeim fáu sem halda lesandanum við efnið allt til loka. Þröstur Helgason Sigurjón Magnússon Sambandið er mjög gott Nú er rétti tíminn til að fá sér GSM frá Siemens því að verðið á þessum glæsilegu og vönduðu símum hefur aldrei verið betra. SIEMENS S6 er vinsælasti GSM sem við höfum selt frá upphafi, enda einstaklega léttur (165 g), þunnur (16/22 mm) og meðfærilegurfarsími. Hljómgæðin í S6 eru framúrskarandi. 22.SOO fcr. stgr. Þessi er sá nýjasti frá Siemens - nýkominn á markað í Evrópu og hefur þegar hlotið mikla athygli og góðar móttökur, enda hlaðinn nýrri tækni. Til dæmis hefur hann stóran og skýran litaskjá og möguleika á hljóðupptöku á styttri skilaboðum. 46.100 fcr. stgr. ... með Siemens símtækjum! SIEMENS SMITH & NORLAND Nóatúni 4 • Sími 5113000 www.tv.is/sminor ERLENPAR BÆKUR * A nætur- vaktinni með Ed McBain Erf M Dkrifa eíns Ed McBam sem Ed McBain: „Nocturne". Hodder og Stoughton 1997. 291 síða. f~VER sá sem skrifað hef- ■""I ur meira en 80 skáld- sögur eins og banda- ríski rithöfundurinn Evan Hunt- er, sem einnig er þekktur undir nafninu Ed McBain, er orðinn ansi sjóaður höfundur. Ekki þarf að lesa sig langt inní nýjustu Iögreglusögu hans, „Nocturne“, til þess að finna að hér er góður sögumaður á ferð, öruggur með sig, ein- beittur en líka hæfilega væru- kær, skjótur að kjarna málsins og spar á orð- in, alltaf gam- ansamur og skemmtilegur aflestrar. Söguna skrifar hann undir McBa- in heitinu enda er hún í flokki lög- reglusagna hans úr 87. hverfi, þær sem McBa- in er fræg- ur fyrir, og hún veldur ekki von- brigðum þeim sem kunnugir eru sögunum úr því hverfinu. Aðrir ættu að gera sjálfum sér greiða og leita þær uppi. Glæpir um nótt Hunter/McBain starfaði eitt sinn sem handritshöfundur í Hollywood og það gætir nokkurs misskilnings hjá sumum persón- um „Noctume" þegar þær halda því fram að Alfred Hitchcock hafi skrifað handritið að Fuglun- um eða „The Birds“. Hunt- er/McBain gerði það sjálfur og hefur skrifað litla minningarbók um reynsluna af að starfa með leikstjóranum og kallar hana Ég og Hitch. Líklega er höfund- urinn að minna á að handrits- höfundar gleymast mjög auð- veldlega en Ieikstjórar lifa. „Þetta er saga sem gerist um nótt,“ er haft eftir McBain í ein- hveiju tímaritinu um nýjustu söguna, „og næstum því allir í henni eru skítseiði.“ Tveir glæp- ir eru framdir sömu nóttina í „Nocturne“, sem gerist svo að segja öll að næturþeli eins og nafnið gefur til kynna. Gömul kona af rússneskum ættum er skotin til bana í íbúð sinni. í ljós kemur að hún var eitt sinn fræg- ur píanóleikari. Engu virðist hafa verið stolið. Kötturinn hennar var myrtur í leiðinni. Skammt frá heimili hennar kaupa þrír skólapiltar þjónustu vændiskonu og myrða hana. Ósköp venjuleg nótt í borginni. Ósköp venjuleg nótt í 87. hverfi. Lögreglumennirnir fara af stað, ræða við vitni, aka um hverfið, púsla saman brotum héðan og þaðan, reyna að hafa uppi á morðingjunum með því að safna saman upplýsingum hversu smávægilegar sem þær virðast, vinna sína vinnu á næturvakt- inni. Fáir skrifa eins hnitmiðuð og skemmtileg samtöl og McBain og hann er í essinu sínu í þess- ari sögu. Hann þekkir líka sögu- sviðið og söguefnið eins og putt- ana á sér og hann þekkir vel persónurnar og Heitúm E^HuTte? ZP^túrZS SllSa han® heitir JoctunfJ*SUl McBain~ . morðmáJum Í 8™ve% se^ af á götunum og börunum og lögreglu- stöðvunum. Hann hefur auðvit- að skrifað um allt þetta mörgum sinnum áður, en tekst að finna ný sjónarhorn, fleiri athyglis- verðar persónur, aðrar dularfull- ar ráðgátur og koma því saman í stemmningssögu úr næturlífi stórborgar. Hann hefur lag á að skipta óvænt um sjónarhorn, lýsa hugsunum persónanna um leið og þær segja frá. Og hann er með húmorinn í lagi. Hættu að kalla mig Nell, ég er ekki alin upp úti í skógi, er ein af spaugi- legum tilvísunum hans í bíó- myndir (hann vitnar einnig skemmtilega í „Pulp Fiction" án þess þó að nefna hana á nafn). Það er rétt hjá McBain að flest- ir í þessari sögu hans eru skít- seiði og hann hefur nokkra unun af að útmála þær sem slíkar, oftast háðslega. Saga þessi gefur raunsanna svipmynd af lífi rannsóknarlög- reglumanna vestra og fólkinu sem þeir bæði kynnast og eltast við og er að því leyti að nokkru andlega skyld t.d. sögum Wa- hlöö og Sjöwall hinna sænsku. „Nocturne“ er kannski ekki mik- illa sanda, hún er ekki gerð til þess að leysa neinar af lífsgát- unum, en hún er lipurlega sam- in af höfundi sem sannarlega kann sitt fag. Arnaldur Indriðason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.