Morgunblaðið - 23.11.1997, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 23.11.1997, Qupperneq 40
- 40 SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ A UTGERÐIN PENING FYRIR AUÐLINDAGJALDI? UNDANFARIÐ hefur farið fram mikil umræða um auðlinda- gjald í sjávarútvegi. Margir hafa geyst fram á ritvöllinn og útlistað sínar skoðanir á þessu máli. Þarf ekki að koma neinum á óvart að sitt sýnist hverjum um réttlæti þess að útgerðarmenn séu rukkað- ir um aðgangseyri að þeirri auðlind sem fískistofnarnir við Island eru. Skoðun þessa höfundar er að að- gangur að náttúruauðlind, hvort sem hún nefnist fiskur, jarðhiti eða eitthvað annað, skuli ekki vera ókeypis. Eigandi auðlindarinnar á rétt á því að rukka aðgangseyri eða notendagjald. Þessi aðgangseyrir er ekki skattur, heldur greiðsla til eiganda fyrir þá þjónustu sem fæst af auðlindinni. En nóg um hvort auðlindagjald sé réttlátt eður ei. Tilgangur þessarar ritsmíðar er ekki að telja upp rök með eða á móti auðlindagjaldi. Margir ágæt- ismenn hafa á síðum Morgunblaðs- ins, sem og annars staðar, gert þeim málum ágæt skil. Þessum greinarstúf er á hinn bóginn beint að þeirri spurningu hvort þeir út- gerðarmenn sem stunda fiskveiðar í dag hafi hreinlega mátt til þess að standa skil á auðlindagjaldi, hversu réttlátt sem það gjald annars kynni að vera. Lltið til baka Til að svara þessari spumingu er nauðsynlegt að líta til baka til þess tíma er kvótakerfinu var fyrst komið á. Gamla sóknardagakerfið olli háum kostnaði fyrir útgerðina þar sem sjómenn stunduðu í raun kappveiðar. Börðust þeir við að ná sem mestum afla á þeim tíma sem þeir máttu vera á sjó. Flýtirinn sem hlaust af þessu kerfi kallaði á ýmsa óhagkvæmni í rekstri og einnig varð aflinn lakari að gæðum en nauðsyn krafði. Leiddi þetta til að farið var að leita að betra kerfi sem veitti möguleika á auknum hagnaði af veiðunum; hagnaði sem var ekki til staðar í gamla kerfinu. Kvótakerfið var álitið lausnin á vandanum. Hugmyndin að baki því kerfi er að þar sem hver útgerðar- maður veit í upphafi fiskveiðiárs hversu mikinn afla hann má veiða, þá muni hann hætta hinu gegndar- lausa kappi sem áður var lýst og reyna að ná aflanum á sem hag- kvæmastan hátt. Ef þetta gengur eftir, þá lækkar kostnaður útgerð- Án nákvæmra rann- sókna á kvótatilfærsl- um og afkomu útgerða er erfítt, segir Vil- hjálmur Wiium, að svara þeirri spurningu hvort þær hafí mátt til greiðslu auðlindagjalds. armannsins og hann situr eftir með hagnað, þ.e. tekjur umfram gjöld. Hverjum útgerðarmanni var síðan úthlutað kvóta og var kvótinn veitt- ur endurgjaldslaust. Ymsar ástæð- ur lágu að baki því að útgerðar- menn þurftu ekki að borga fyrir kvótann, t.d. var álitið að erfitt yrði að fá útgerðina til að samþykkja kerfi þar sem byrja þyrfti að standa í miklum útgjöldum. Einnig þótti sýnt að margir útgerðarmenn hefðu ekki riðið feitum hesti frá veiðum þar sem hagnaði hafði verið sóað í óþarfa útgjöld. Því þótti ekki stætt á að láta borga fyrir kvóta. Á ég að selja kvótann minn? Fyrst um sinn var kvótinn óframseljanlegur. Þetta var reynd- ar aðeins i orði en ekki á borði. Kvóti var bundinn skipum og ef skip var selt þá fylgdi kvóti skips- ins með í kaupunum. Ýmsar kvaðir voru settar á sölu af þessu tagi, en ef hugur fylgdi verki þá var vel mögulegt að selja. Síðar voru smátt og smátt kvaðir á sölu kvóta felldar niður. I kvótakerfi standa útgerðar- menn frammi fyrir tveimur val- kostum. Annar er að stunda veiðar og ná inn þeim hagnaði sem hlýst af spamaði vegna kvótakerfisins. Hinn er að selja kvótann. Ef seinni kosturinn er valinn, þá vaknar sú spuming hversu hátt verð á að rukka fyrir sölu af þessu tagi. Til að svara því verður að bera val- kostina tvo saman. Annars vegar að róa og taka sjálfur inn hagnað- inn; hins vegar að selja kvótann og snúa sér að öðmm verkefnum. Það segir sig sjálft að ef kvótaverðið er lægra en hagnaðurinn af því að veiða, þá mun enginn selja. Til að selja verður útgerðarmaðurinn að fá a.m.k. jafngildi þess hagnaðar sem hann hlyti ef hann héldi áfram í útgerð. Þessi hagnaður er sá sem eftir er þegar útgerð- armaðurinn hefur reiknað sér sín eigin laun. Það er mikil- vægt að átta sig á því að hér er um að ræða þann hagnað sem út- gerðarmaðurinn býst við að fá í framtíðinni. Með öðmm orðum, það sem skiptir máli í þessari umræðu er væntanlegur hagnað- ur. Gróðinn af sölu kvótans verður að jafngilda núvirði þess hagnaðar sem vænst er um ókomna framtíð. Annars borgar sig ekki að selja því útgerðarmaðurinn er betur settur með því að halda áfram í útgerð. Á ég að kaupa kvóta? Setjum okkur nú í spor þess sem hugleiðir hvort kaupa eigi kvóta eður ei. Spumingin sem snýr að þessum aðila er hversu hátt verð eigi að greiða fyrir kvótann. Þá er litið á væntanlegar tekjur af tilvon- andi veiðum og dregin frá þau út- gjöld sem hljótast af því að veiða og landa aflanum. Ef einhver af- gangur er þegar hinn tilvonandi út- gerðarmaður er búinn að reikna sér laun, þá er komin sú upphæð sem hæst verður boðin í kvóta. Eins og í tilviki þess sem vill selja kvóta þá er um að ræða væntanleg- an hagnað um ókomna framtíð. Til- vonandi kaupanda skiptir engu hvort gamh útgerðarmaðurinn hagnaðist á veiðunum eða ekki; framtíðin skiptir sköpum. Hver græðir? Ef af kvótasölu á að verða, þá má sá hagnaður sem hinn tilvon- andi útgerðarmaður býst við ekki vera lægri en sá hagnaður sem gamli útgerðarmaðurinn reiknar með í framtíðinni. Ekki er ástæða til að ætla að miklu muni á þeim hagnaðartölum sem þessir tveir að- ilar reikna út. Því er líklegt að nýi útgerðarmaðurinn greiði megnið af þeim hagnaði sem hann býst við að fá af framtíðarveiðum fyrir kvót- ann. Hann sér engu að síður hag í viðskiptunum, því hann býst við framtíðartekjum sem duga fyrir útgjöldum og sínum eigin laun- um. Allur hagnaður þar umfram væri vel- komin búbót en ekki nauðsynlegur til að hann vilji kaupa. Gamh útgerðarmað- urinn situr sáttur eftir því hann hefur aflað vel með því að selja kvótann. I krafti eign- arréttar yfir kvótan- um hefur hann náð að krækja í þann fram- tíðarhagnað sem reiknað er með að hljótist af veiðunum. Hann hefur eignast það sem má kalla umskiptagróða (þetta hefur verið nefnt á ensku transitional gain). Umskiptagróði hlýst af því að skipt er um stjórnkerfi; horfið er frá stjómkerfi sem ekki eru framseljanleg veiðileyfi og skipt yf- ir í stjómkerfi sem veitir slík leyfi endurgjaldslaust. Rétt er að geta þess að þetta er ekki afleiðing kvótakerfisins sem slíks. Öll fisk- veiðistjómunarkerfi sem veita ókeypis en framseljanleg veiðirétt- indi hefðu sams konar áhrif. Umskiptagróði og auðlindagjald Hvemig tengjast svo umskipta- gróði og auðlindagjald? Geram augnablik ráð fyrir að nýi útgerð- armaðurinn hafi greitt fyrir kvót- ann sinn nákvæmlega jafnvirði væntanlegs hagnaðar. Ef vænting- amar era réttar, þ.e. ef nýi útgerð- armaðurinn hefur reiknað framtíð- ina rétt út, hvað situr hann eftir með? Jú, hann aflar sér nægilegra tekna til að eiga upp í þann kostnað sem hann þarf að leggja út fyrir veiðunum. Eins fær hann launin sín. En ... meira fær hann ekki. All- ur umframhagnaður sem myndast vegna þess að kvótakerfi er við lýði í stað sóknardagakerfis fór í að borga fyrir veiðiréttinn; fyrir kvót- ann. Hversu mikið getur þessi nýi útgerðarmaður greitt í auðlinda- gjald? Nákvæmlega ekki neitt. Þegar hann er búinn að borga reikningana sína þá er ekkert af- gangs til að mæta auðlindagjaldi. Hvernig stendur á þessu? Ástæðan er sú að nýi útgerðarmaðurinn er búinn að greiða aðgangseyrinn að Vilhjálmur Wiium auðhndinni. Hann greiddi gamla útgerðarmanninum aðgangseyr- inn, vegna þess að sá gamli átti miðann - öðru nafni kvótann - til að öðlast aðgang að auðlindinni. En nú má spyrja sem svo hvort nýi útgerðarmaðurinn hafi greitt fyrir kvótann allan hagnaðinn sem hann bjóst við að fá. Gæti hann ekki átt einhvern hagnað afgangs? Erfitt er að fá úr þessu skorið, til þess þarf viðamikla rannsókn á högum þeirra sem hafa keypt kvóta síðan kvótakerfið var sett á laggirnar. Hins vegar er vert að benda á að hægt er að færa rök fyrir því að nýi útgerðarmaðurinn okkar hafi greitt meira en sem nam þeim hagnaði sem hann raun- veralega fékk eftir að hann hóf út- gerð. Ýmsir hafa bent á að sjó- menn og útgerðarmenn séu með eindæmum bjartsýnir menn. Áður en kvóti komst á héldu allir sjó- og útgerðarmenn sífellt í vonina um að fá „þann stóra“. Ef ekki í þess- um túr, þá í þeim næsta. Bjartsýni af þessu tagi gæti auðveldlega leitt tilvonandi útgerðarmenn til að of- reikna væntanlegan hagnað. Því gætu þeir greitt of hátt verð fyrir kvóta og sætu eftir í tapi. Hvaðan eiga þá peningar að koma fyrir auðhndagjaldi? Aldrei auðlindagjald? Ber þá svo að skilja að aldrei sé hægt að setja á auðlindagjald? Nei, ekki er það nú alveg svo. Ef satt er að umskiptagróði hafi tekið megnið af hagnaði vegna núver- andi kvóta, þá er nokkuð ljóst að fyrir þann kvóta er tómt mál að tala um að innheimta auðlinda- gjald. Hins vegar horfir ekki svo við um nýjan kvóta. Ef fiskistofn- ar, sem kvóti er á, stækka þá mætti úthluta nýjum kvótum og krefjast aðgangseyris að þeim. Eins með nýja fiskistofna sem hafa verið utan kvótakerfis. Þegar kvót- ar era settir á er hægt að rakka aðgang að þeim stofnum. Lokaorð Hversu réttlátt sem auðlinda- gjald þykir, þá verður að horfast í augu við staðreyndir. Spyrja þarf hvort útgerðin hafi hreinlega mátt til að greiða auðlindagjald. Án ýt- arlegra rannsókna á kvótatilfærsl- um og afkomu útgerðarmanna er erfitt að svara þessari spurningu. Er ekki nokkur vafi á að í þessu máli, sem og öðram sem tengjast fiskveiðum, era skiptar skoðanir. Hér hafa verið færð rök fyrir því að ókeypis úthlutun framseljan- legra kvóta hafi leitt af sér um- skiptagróða fyrir þá sem fyrstir fengu kvóta. Mögulegt er að þessi umskiptagróði hafi valdið því að út- gerðarmenn í dag séu ekki þess megnugir að greiða fyrir aðgang að auðlindum sjávarins við Island. Höfundur er hagfræðingur og starfar við Háskólann l Galway á írlandi. < ( ( I < ( (
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.