Morgunblaðið - 23.11.1997, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.11.1997, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens [TF(6mKLAápr?fftí'ANNAÐti\toier )Fo&W(%, Emæ epa EerE&aFyMi}, Grettir Tommi og Jenni Ljóska Ferdinand Smáfólk ^ MERE, YOU \ 10 3 ''PEAR 5N00PY.. 601 A \ WHAT MAPPENED T0 LETTERFROM | ANPY AND OLAF? YOLIR BROTHER I TH0U6MT THEY „ 5PIKE.. /' # U/ERE COMING OUT HERE.." Gjörðu svo vel, þú fékkst bréf frá Sámi bróður þínum. „Kæri Snati... Hvað kom fyrir Kát og Lubba? Eg hélt að þeir ætluðu að koma hingað..." „Mikki mús, vinur minn, kom hér við og skildi eftir gjafir handa þeim.“ Snotrir skór ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Lyfjasala og lyfjafölsun Frá Ásmundi Brekkan: RÍKISSJÓNVARPIÐ sýndi í gær (18. nóvember) fyrri þátt hasar- myndar úr flokki mynda um bresku tollvörsluna, en slíkar myndaraðir hafa verið sýndar þar áður. Þessar hasarmyndir hafa yfirleitt snúist um baráttu tollaranna við eitur- lyfjabófa, með misjöfnum árangri, en í þessari mynd var tekið á nýju viðfangsefni, sem vert er að vekja athygli á. Hér var nefnilega toll- vörðunum att á rannsókn á og bar- áttu við glæpahringi sem markaðs- setja, dreifa og selja fölsuð og gagnslaus lyf undir því yfirskini að um ósvikna og virka vöru sé að ræða. í þessum þætti var drepið á aðferðir og aðfarir, sem byggðust á raunverulegum atburðum, svo sem frásögnin um ósótthreinsaðar lyfjainndælinganálar, sem seldar voru til Afríku fyrir nokkrum árum og ollu þar miklum usla. Þá var líka skýrt frá aðferðum þessara glæpahringja við fölsun töflulyfja, annaðhvort með algjörlega óvirkum meðulum eða mikilli uppblöndu. Auðvitað er það í eðli og náttúru svona spennumynda að draga upp skarpar línur og mála í sterkum lit- um. Engu að síður iiggur þarna að baki stórhættuleg þróun og við- skiptahættir, sem eru að verða æ algengari í óheftum alþjóðasam- skiptum, og greiniiegt markmið höf- unda að vekja almenning til vitund- ar og umhugsunar um, að ekki þarf allt að vera með felldu á lyíjamark- aðnum, meira að segja í landi sem Bretlandi, þar sem er sterkt og virkt eftirlit og verulegt aðhald. Ekki er vitað um slík tilvik sem þessi hérlendis, en með auknum og breyttum umsvifum í lyfjasölu og lyfjadreifingu gæti vitanlega leynst misjafn sauður í mörgu fé, og gróða- von getur verið talsverð. Þetta á bæði við um lyfseðilsskyld lyf og sérlyf og ekki síður um öll þau fim af allskonar fæðubóta- og skottu- lækningalyfjum, sem falboðin eru hér eins og víðast hvar annars stað- ar í auknum mæli. Við eigum mjög gott og sterkt lyfjaeftirlit og eigum að geta haft góða yfirsýn yfir lyfjamarkaðinn. Engu að síður er rétt að vara við þessari vá, ekki síst á þessum niður- skurðartímum, þegar það er beinlín- is stefna og hvatning stjórnvalda til þeirra, sem mesta ábyrgð bera gagnvart almenningi, lækna og sjúkrahúsa, að ganga framhjá hin- um stærstu og virtustu lyfjafram- leiðendum og -seljendum og leita eftir tilboðum í ódýrari samheitalyf. Þessi lyf þurfa ekki að vera „verri“. Kostnaðarmunurinn liggur oft í því, að hlutaðeigandi framleiðendur hafa sloppið við óhemju þróunar- og framleiðslukostnað, sem önnur fyr- irtæki hafa borið. Á þann hátt er hægt að beita sér fyrir öðruvísi og ódýrari markaðs- setningu, stundum til hagsbóta, en væntanlega líka stundum til bölvun- ar. Eins og tekið var fram, eru ekki handbær nein dæmi um falsaðar vörur í þeim flokkum sem lyfjaeftir- lit ríkisins hefur umsjá með, en all- ur er varinn góður, og ofannefnd sjónvarpsmynd er því góð áminning og upplýsing, þrátt fyrir hasar- kennda framsetningu. ÁSMUNDUR BREKKAN, prófessor, Þorragötu 7, Reykjavík. Intemet - millinet Frá Jóni Baldri Þorbjörnssyni: FIMMTUDAGINN þegar þetta er ritað hefur rithöfundurinn Kristján Jóhann Jónsson nýskrifað grein um nauðsyn hreintungustefnu í DV og Össur tileinkar meðal annars tung- unni leiðarann í því sama blaði undir heitinu „Alnetið og íslensk menning". Nýlokið er málþingi um íslenska tungu í nútíð og framtíð, þar sem meðal annars var rætt um notkun orðabanka á „Netinu“, og rétt í þessu er Steingrímur J. að nefna internetið í viðtali í útvarp- inu. Ekki að undra þótt íslenskan sé mér áleitin á þessum síðustu tím- um. í upphafi síðasta mánaðar átti ég þess kost að sækja áhugaverða og þarfa ráðstefnu um nútíma sam- skiptamöguleika sem haldin var í Loftkastalanum og hét „Markaðs- setning á Internetinu“. Latneska forskeytið „inter“ þýðir í raun „milli", á sama hátt og „intra" þýð- ir „innan“. Það er umhugsunarvert að árvökulum íslenskulóðsum, lærð- um og leikum, skuli hingað til ekki hafa tekist að festa íslenskt orð í sessi í stað internets. í þessu sam- hengi kemur að mínu mati „alnet“ ekki til greina; alnet mun það verða þegar örgjörvar undir stjórn manna tengjast þráðlaust og e.t.v. gagn- virkt örgjörvum dauðra hluta, t.d. véla, eða eitthvað í þá veruna. Mannkynið hefur enn ekki náð svo langt; við notumst núna við boð- skiptakerfi sem stendur allavega einu þrepi neðar. Á áðurnefndri ráðstefnu hefði gefist einstaklega gott tækifæri til að nota millinet í stað internets, meir að segja í stuðluðu samhengi: „Markaðssetning á millinetinu“. En ef nota á internet í stað millinets og intranet í stað innnets má leiða hugann að því hvernig íslensk tunga hefði getað þróast ef fólk fyrr á tímum hefði ekki haft dulítið meiri hugmyndaauðgi heldur en við- gengst í dag. „Interfærslur“ hefðu orðið til milli bankanna, en „intra- færslur" innan þeirra og „interteng- ingar“ hefðu orðið allsráðandi í raf- lagnamáli. Framtíðarhugtök eins og „milliför", sem menn munu þeyt- ast á um geiminn milli hnatta, verða á sama hátt „interför" - sem mér þætti afturför. Höldum okkur því við góð íslensk orð á meðan þau eru auðfundin, eins og t.d. millinet í stað internets. JÓN BALDUR ÞORBJÖRNSSON, bíltækniráðgjafi og áhugamaður um íslenska tungu. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.